Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 13
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Ljósmynd/Getty Images
Breytingar í lífinu Við tíðahvörf er allur gangur á því hverju og hversu miklu konur finna fyrir.
valkost fyrir konur sem fyrsta val á
breytingaskeiði, fyrir þær sem vilja
síður taka hormón, sérstaklega í
upphafi breytingaaldurs, þótt þær
þurfi kannski seinna að taka öflugri
lyf, hormón. Í erindi Andrea kom
fram að gerðar hafa verið fjölmarg-
ar rannsóknir á Femarelle bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum undan-
farin 14 ár og bandaríska lyfjaeftir-
litið hefur samþykkt að TOFU sé
skaðlaust og það hafi engin neikvæð
áhrif, hvorki á brjóstakrabbamein,
blóðtappa né á blæðingar eða aðra
áhættuþætti sem hormón geta haft
neikvæð áhrif á. Það virðist því ekki
vera áhætta fyrir konur að prófa að
taka Femarelle, nema þær hafi of-
næmi fyrir einhverju innihaldsefni
þess.“
Arnar segir að það hafi komið
fram á ráðstefnunni að þótt þessar
rannsóknir séu flestar litlar þá sýni
þær að virka efnið DT56a hefur já-
kvæð áhrif á beinþéttni.
„Það hefur líka haft jákvæð
áhrif á að draga úr vanlíðan og
svefntruflunum á breytingaaldri. Í
nokkrum rannsóknum, að vísu mjög
litlum, hefur efnið haft jákvæð áhrif
á hitakóf, þegar þau eru af vægri
gerð, en efnið virkar síður á öflug
hitakóf. Einnig hefur sýnt sig að
það hefur jákvæð áhrif á slímhimnu
í leggöngum, með svipuðum hætti
og staðbundin hormón í leggöngum
geta haft. Í öllum þessum rann-
sóknum sem birtar hafa verið hefur
Femarelle reynst betra en gervi-
lyf,“ segir Arnar og bætir við að
fyrir konur með áhættuþætti skipti
miklu máli að þær geti fengið ein-
hverja bót með öðru en hormóna-
inntöku.
„Breytingaaldurseinkenni geta
dregið verulega úr lífsgæðum og þá
skiptir máli að eitthvað sé í boði
fyrir konur sem þær geta tekið án
þess að það skapi þeim áhættu.“
Annað kom í ljós þegar
konurnar máttu kvarta
En konur finna mismikið fyrir
þessum einkennum breytinga-
skeiðsins; sumar fá heiftarleg ein-
kenni en aðrar finna varla fyrir
þeim. Þegar Arnar er spurður
hverju þetta sæti segir hann að það
sé ekki enn þekkt hvað valdi þess-
um mun.
„En það verið að rannsaka
þetta og munurinn virðist liggja í
ættum og jafnvel þjóðum. Það var
haldið að konur í Suður-Ameríku og
Asíu væru lausar við einkenni
breytingaskeiðsins en í ljós kom að
konur í þessum löndum urðu ekki
eins gamlar og þær á Vest-
urlöndum, sem skekkti myndina.
Í Japan og Indlandi voru þær
konur sem nutu virðingar, þær
elstu í ættunum, ekkert að kvarta
hér áður fyrr. En þegar konur átt-
uðu sig á að þær mættu kvarta fóru
að koma fram sömu tölur og í Evr-
ópu og líka þegar ævi kvenna á
þessum svæðum lengdist. Rétt und-
ir tuttugu prósentum kvenna í
heiminum finna nánast aldrei fyrir
breytingaeinkennum, en þær geta
samt verið með beinþynningu.“
Ljósmynd/Getty Images
Hormónabreytingar Við tíðahvörf dregur úr framleiðslu kvenhormóna.
„Rétt undir tuttugu
prósentum kvenna í
heiminum finna nánast
aldrei fyrir breytinga-
einkennum.“
Goes Iron & Cobalt
Fjölhæf fjórhjól á góðum verðum með
vs
k
Verð frá
1.259.000
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyri // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir // Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Mest seldu fjórhjól
á Íslandi síðastliðin 2 á
r!