Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 14

Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup, Sunnubúðin, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Heimsending á matvöru virðist vera orðin raunverulegur valkostur á Ís- landi. Tilraunir hafa verið gerðar með slíkt undanfarin misseri en nú stefnir í samkeppni á þessum mark- aði og það eru góð tíðindi fyrir neyt- endur. Eitt og hálft ár er nú síðan Box- ið.is hóf starfsemi. Síðasta haust bættist Nettó í hópinn og innan tíð- ar ætla Hópkaup, stærsta netversl- un á Íslandi, að hefja heimsendingu á matvöru. Þessir aðilar eiga það sameiginlegt að bjóða upp á heim- sendingu samdægurs. Hægt er að skoða vörurnar í vefverslun og jafn- vel lesa sér til um þær. Hagkaup sendir einnig vörur heim en þær eru sendar daginn eftir. Netverslun Hagkaups er auk þess óvirk. „Það liggur fyrir að Heimkaup munu fara í matinn og undirbún- ingur fyrir það stendur nú yfir. Þetta fer í gang á næstu mánuðum,“ segir Guðmundur Magnason, fram- kvæmdastjóri Heimkaupa. „Við finnum það á okkar kúnnum að það er eftirspurn. Við eigum mik- ið af fastakúnnum og þegar við spyrjum þá hverju megi bæta við þá kemur maturinn alltaf upp,“ segir Guðmundur sem telur að íslenskir neytendur séu tilbúnir fyrir matar- innkaup á netinu. „Íslendingar eru ekkert öðruvísi en annað fólk. Ef eitthvað svona nær fótfestu í nágrannalöndunum þá mun það ná fótfestu hér.“ – Hvers konar vörur verða í boði? „Þetta verður fjölbreytt en þú munt geta klárað öll innkaup í einni ferð. Við munum annars vegar flytja sjálf inn vörur en hins vegar notast við innlenda framleiðslubirgja.“ „Viðtökurnar hafa farið fram úr mínum björtustu vonum. Fólk nýtir sér þetta mjög mikið. Við erum allt- af að bæta við fólki,“ segir Birkir Einar Björnsson, verslunarstjóri Nettó í Mjódd, en Nettó hóf að bjóða upp á heimsenda matvöru síð- asta haust. Súrdeigsbrauð heim að dyrum Vörurnar eru sendar heim í gegn- um kerfi Aha.is sem líka er nýtt við heimsendingu á mat frá veitinga- stöðum. Heimsending kostar 1.490 krónur en gjaldið fellur niður ef verslað er fyrir 15 þúsund krónur eða meira. Hægt er að fá pöntun senda heim innan 90 mínútna eða ákveða afhendingartíma með lengri fyrirvara. Viðskiptavinur fær SMS þegar pöntun hans er tilbúin til af- hendingar eða fer af stað. Birkir Einar segir að vöruúrvalið í net- verslun Nettó sé gott og alltaf sé verið að bæta við vörum. Boxið.is hefur notið vinsælda síð- an það var opnað haustið 2016. Fyr- irkomulag er svipað og hjá Nettó, sendingargjald er 1.490 krónur en það fellur niður ef verslað er fyrir meira en 10 þúsund krónur. Vöruúrval hefur smám saman verið að aukast og nú hefur ýmis ferskvara og frystivara bæst við þurrvöru sem farið var af stað með í upphafi. Boxið nýtur sérstakra vin- sælda hjá yngri kynslóðinni enda er til að mynda hægt að fá tilbúna rétti frá Kjöti og fiski og súrdeigsbrauð frá Brauð & co. Útlit fyrir samkeppni um heimsendingar á matvöru  Heimkaup blanda sér í slaginn  Loks raunverulegur valkostur á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Matvöruverslun Það virðist nú vera orðinn raunverulegur valkostur að fá matvöru senda heim á Íslandi. Því er hægt að sleppa við biðraðir og stress sem hefðbundnum verslunarferðum fylgir og nýta tímann í eitthvað annað. Matvara heim að dyrum » Boxið.is og Nettó bjóða nú heimsendingar á matvöru samdægurs. Heimsending- argjald fellur niður ef verslað er fyrir ákveðna upphæð. » Heimkaup ætla inn á þenn- an markað síðar á þessu ári. » Vöruúrval er sífellt að batna. Nú er hægt að panta ferska kjötvöru, tilbúna rétti, súr- deigsbrauð og fleira heim að dyrum, svo fátt eitt sé nefnt. Þórir Guðmunds- son hefur verið ráðinn frétta- stjóri Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis. Þetta kem- ur fram í tilkynn- ingu sem Voda- fone sendi frá sér í gær. Þórir er með meistara- gráðu í alþjóð- legum samskiptum frá Boston Uni- versity og B.A. gráðu í blaða- og fréttamennsku frá University of Kansas. Þórir hefur undanfarin ár starfað á vegum Rauða krossins, hér heima og erlendis, og gegnir nú síð- ast starfi forstöðumanns Rauða krossins í Reykjavík. Áður hafði hann starfað sem fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, fyrst á árun- um 1986 til 1999 og svo á árunum 2005 til 2008. Í tilkynningunni segir ennfremur að ráðning Þóris sýni metnað Fjar- skipta til að reka öfluga fréttastofu með ritstjórnarlegu sjálfstæði. Þórir ráð- inn nýr fréttastjóri Þórir Guðmundsson  Breytingar í kjöl- far kaupa Vodafone Leiðir til þess að efla nýsköpun í op- inberum rekstri ríkis og sveitarfé- laga verða ræddar á morgunverðar- fundi sem Stofnun stjórnsýslufræða við HÍ, Félag forstöðumanna ríkis- stofnana, Ríkisendurskoðun og skrifstofa stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu standa saman að á Hótel Natura, 25. janúar nk. Á fundinum verða m.a. kynntir áhugaverðir hlutir sem eru að gerast á Norðurlöndum og kynntar verða ábendingar til aukins árangurs í ný- sköpun hjá hinu opinbera. Fund- urinn hefst kl. 8.30. Nýsköpun í op- inberum rekstri rædd á fundi Opinn fundur verður í Veröld – Húsi Vigdísar, á mánudag í tilefni þess að 55 ár eru liðin frá undir- ritun Élysée-sáttmálans en hann er oft talinn undirstaða stöðugleika í Evrópu. Sáttmálinn lagði grunninn að samskiptum Þýskalands og Frakklands eftir seinni heimstyrj- öldina og fjallar um samstarf ríkjanna á sviði utanríkis-, varnar- og menntamála. Á fundinum, sem haldinn er á vegum Alþjóðamálastofnunar Há- skóla Íslands, í samstarfi við franska og þýska sendiráðið, munu sendiherrar Þýskalands, Herbert Beck, og Graham Paul, sendiherra Frakklands, ræða einstætt sam- starf Frakka og Þjóðverja og drif- kraft þeirra í uppbyggingu Evrópu. Fundurinn hefst kl. 12 á mánu- dag í Veröld, stofu 008. Rektor Há- skóla Íslands stýrir fundi, sem fram fer á ensku. Élysée sáttmálinn ræddur í húsi Vigdísar Heildarendurskoðun umferðarlaga er nú í undirbúningi í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Frestur til þess að koma með ábendingar og umsóknir rennur út 2. febrúar. Gildandi umferðarlög taka ekki tillit til breyttra samgönguhátta og umferðarmenningar sem orðið hafa á undanförnum árum. Árið 2007 skipaði samgöngu- ráðherra nefnd til þess að endur- skoða umferðarlög og var frumvarp lagt fram á Alþingi veturinn 2012 til 2013 en það frumvarp fékkst ekki af- greitt. Frumvarpið var sent öllum hagsmunaaðilum til umfjöllunar sumarið 2017. Víðtækt samráð verð- ur áfram haft við hagsmunaaðila og umsagna þeirra leitað. Nýr kafli um hjólreiðar Meðal þess sem tekið verður fyrir í nýrri endurskoðun er nýr kafli um hjólreiðar. Lækkun á leyfilegu magni áfengis í blóði ökumanna. Endurbætt ákvæði um snjalltæki og ljósaskylda skýrð. Einnig er fyrirhugað að sett verði í ný lög ákvæði um samspil ólíkra samgöngumáta, samspil og upp- bygging laga um framúrakstur verð- ur einfölduð og ákvæði um neyð- arakstur gerð ítarlegri. Endurskoðuð verða ákvæði um akst- ur í hringtorgum. Í heildarend- urskoðuninni verður nýjum skil- greiningum bætt við, svo sem ákvæði um að ökutækjatryggingar verði í sérstökum lögum, einnig að sektarfjárhæðir hækki úr 300.000 kr. í 500.000 kr. Samhliða þessu yrðu reglugerðir um sektir og önnur við- urlög vegna umferðarlagabrota upp- færð. Hægt er að koma ábendingum og umsögnum á netfang samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, post- ur@srn.is. ge@mbl.is Nýr kafli um hjólreið- ar í umferðarlögum  Sektir hækkaðar  Ákvæði um snjalltæki skýrð og end- urbætt  Núgildandi lög fylgja ekki þróun umferðarmála Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þrengsli Breytingar hafa átt sér stað í umferðarmenningu landans og hjól- reiðar hafa aukist. Hjólreiðar fá nýjan kafla í endurskoðun umferðarlaga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.