Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Öflug innanlandsmót: Skák-þing Reykjavíkur 2018,Skákhátíð MótX Kópavogiog Skákþing Akureyrar
2018, eru komin á dágóðan rekspöl. Á
Skákþingi Reykjavíkur hafa þrjár
umferðir verið tefldar og eru í efsta
sæti með fullt hús Hilmir Freyr
Heimisson, Björn Hólm Birkisson og
Stefán Bergsson.
Á MótX-skákhátíðinni eru þeir
stigahæstu efstir; Hjörvar Steinn
Grétarsson og Jóhann Hjartarson
hafa unnið báðar skákir sínar. Staðan
í þessu móti er alltaf dálítið óljós því
þátttakendur eiga kost á hálfs vinn-
ings yfirsetu þrisvar í sjö umferðum
og mun t.d. Hjörvar Steinn ekki tefla í
næstu umferð.
Í B-riðli eru Gauti Páll Jónsson og
Siguringi Sigurjónsson efstir með tvo
vinninga en hjá Hvítum hröfnum er
dálítið um frestanir en Júlíus Frið-
jónsson er efstur eins og staðan er
með 1½ vinning úr tveimur skákum.
Skákþing Akureyrar er nú haldið í
80. skipti, en Skákfélag Akureyrar
fagnar brátt 100 ára afmæli sínu. Rún-
ar Sigurpálsson tekur þátt í þinginu
aftur en sigurstranglegastan verður
að telja Jón Kristin Þorgeirsson.
Magnaður Anand
í Wijk aan Zee
Skákhátíðin í Wijk aan Zee, sem
tekur nafn sitt eftir aðalkostanda
þess, stáliðjuverinu Tata Steel, dreg-
ur að venju til sín nær alla bestu skák-
menn heims með heimsmeistarann
Magnús Carlsen í broddi fylkingar.
Hann hefur unnið mótið oftar en
nokkur annar eða fimm sinnum. Eftir
fimm umferðir hefur hann skipað sér í
hóp efstu manna en þó aðeins unnið
eina skák og taflmennska hans verið
fremur tilþrifalítil. Staða efstu
manna:
1.-3. Anand, Giri og Mamedyarov
3½ v. (af 5) 4.-6. Magnús Carlsen,
Kramnik og So 3 v. Keppendur eru 14
talsins.
Frískleg taflmennska gamla heims-
meistarans Wisvanathans Anands
hefur vakið mikla athygli, en á dög-
unum varð hann heimsmeistari í at-
skák. Hið létta handbragð hans naut
sín í viðureigninni við Fabiano Ca-
ruana, sem hefur átt erfitt uppdráttar
í Hollandi:
Wijk aan Zee 2018; 4. umferð:
Wisvanathan Anand – Fabiano Ca-
ruana
Petroffs-vörn
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4.
Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. 0-0
0-0 8. c4 c6 9. Dc2 Ra6 10. a3 Bg4 11.
Re5
Þessi staða er er ekki ný af nálinni
og útheimtir gríðarlega undir-
búningsvinnu. Hér hefur áður verið
leikið 11.… Bxe5 12. dxe5 Rac5 13. f3
Rxd3 14. Dxd3 Rc5 15. Dd4 Rb3 16.
Dxg4 Rxa1 17. Bh6 g6 18. Rc3 með af-
ar óljósri stöðu. Það kom á óvart að
Caruana skyldi velja leik sem ekki
hefur gefist vel.
11. … Bf5!? 12. b4 Rc7 13. f3 Bg6
14. c5 Bxe5 15. dxe5 Rg5 16. Bb2 d4?!
Hyggst hasla sér völl á e3 en hvítur
er fyrri til. „Houdini“ telur 16. … a5
betra.
17. f4! Rd5 18. fxg5 Re3 19. Dd2
Bxd3 20. Dxd3 Rxf1 21. Kxf1 Dxg5
22. Rd2 Dxe5 23. Rf3 Dh5 24. Dxd4 f6
25. Dc4 Kh8 26. Bc1!
Vel leikið. Anand veit auðvitað að
biskup og riddari eiga erfitt upp-
dráttar gegn hrók og peði, einkum ef
línur eru opnar. Biskupinn stefnir
skónum á d6 þar sem hróknum er
haldið niðri.
26. … Hfe8 27. Bf4 a5 28. Bd6 axb4
29. Dxb4 Dd5 30. Dxb7 h6 31. Kg1
Ha4 32. h3 Hc4 33. Db2 Dd3 34. Ha2
Dd1 35. Kh2 Hc1 36. a4!
Kóngsstaðan er alveg örugg og frí-
peðið skundar af stað.
36. … f5 37. Db7 f4 38. Bxf4 Hxc5
39. Hd2 Dxa4 40. Df7 Hg8 41. Be5!
Hótar t.d. 42. Hd8.
41. … Dc4
42. Hd6!
Glæsilega leikið, 42. … Dxf7 er
svarað með 43. Hxh6 mát. Caruana
gafst því upp.
Hjörvar og Jóhann efstir
á skákhátíð MótX
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is Kærleikurinn
spyr ekki um eigin
hag og er ekki á
eigin forsendum.
Hann segir ekki,
þegar mér hentar,
þegar ég vil eða
nenni og þá þegar
ég fæ sem mest út
úr honum á móti.
Nei, kærleikurinn
hlustar og sér með
hjartanu. Hann opnar hjarta
sitt fyrir neyð náungans, án
þess að spyrja um rök eða
ástæður. Um leið og hann er
brotthvarf úr sjálfinu leiðir
hann til sjálfsmeðvitundar.
Hann nær út fyrir öll hags-
munasamtök og allar pólitískar
samfylkingar.
Kærleikurinn er flæðandi en
honum fylgir sjálfsagi. Hann er
miskunnsamur. Hann virðir
mörk og hann er ekki sjálf-
hverfur. Hann er umhyggja frá
innstu hjartans rótum. Hann
uppörvar og hvetur.
Því hann á upp-
sprettu í hinni tæru
lind lífsins. Hann
breytir refsingu í
fyrirgefningu. Er
fórnfús og spyr ekki
um endurgjald.
Kærleikurinn
kemur í veg fyrir
ósætti. Hann flytur
frið og leitar sátta.
Hann stuðlar að
gleði og veitir fögn-
uð. Gleði og fögnuð
sem byggð eru á
djúpri alvöru sem leiðir til var-
anlegrar hamingju. Hamingju
sem umbreytir hjörtum fólks
svo það leitast við að snúa sér
frá ranglæti og óréttvísi og inn í
ljós sannleikans.
Kærleikurinn stuðlar að
skilningi, er nærgætinn, al-
úðlegur og hlýr. Hann er í senn
gjafmildur og þakklátur. Hann
veitir hjörtunum frið. Eilífan
frið sem er æðri mannlegum
skilningi.
Kærleikurinn fer ekki í mann-
greinarálit og tekur sér ekki frí.
Hann er ekki aðeins falleg orð
heldur lætur hann verkin tala.
Hann umvefur og faðmar. Í
honum er fólgin lausn, sigur og
ólýsanlegur lækningamáttur.
Svo veldur hver á heldur.
Með einlægri kærleiks- og
friðarkveðju.
Lifi lífið!
Með kærleikann
að leiðarljósi
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
»Kærleikurinn er
flæðandi en honum
fylgir sjálfsagi. Hann
er miskunnsamur,
virðir mörk. Hann ekki
sjálfhverfur, er um-
hyggjusamur, upp-
örvar og hvetur.
Höfundur er ljóðskáld og rithöf-
undur og aðdáandi lífsins.
588 90 90 · eignamidlun.is
SUNNUSALURINN
HÓTEL SÖGU
Til leigu
Sunnusalurinn á Hótel Sögu er til leigu. Stærð er um 289 fm.
Salurinn er á götuhæð í suðurenda hótelsins. Sér inngangur.
Salurinn gæti hentað vel fyrir verslun (verslanir) og skrifstofur.
Sverrir Kristinsson
löggiltur fasteignasali
sverrir@eignamidlun.is
Hilmar Hafsteinsson
löggiltur fasteignasali og löggiltur leigumiðlari
hilmar@eignamidlun.is
ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA SENDIÐ TÖLVUPÓST TIL