Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 31

Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 31
MESSUR 31á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 AKURINN kristið samfélag | Samkoma í Nú- palind 1, Kópavogi, kl. 14. Biblíufræðsla, söng- ur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Sklenár. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar Helgadótt- ur og Benjamíns Gísla Einarssonar. ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í umsjá Sigurðar Jónssonar sóknarprests, Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur djákna og Dags Fannars Magnússonar guðfræðinema. Brúður, bænir, söngur, sögur. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Árna Heiðars Karlssonar. Prestur er Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudaga- skóli á sama tíma undir stjórn Sigríðar S. Jóns- dóttur. Hressing og samfélag á eftir. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni hefur Sigrún Ósk. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Org- anisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Gísli Jónasson sóknarprestur kvaddur. Sr. Magnús Björn Björnsson og Þórey Dögg Jónsdóttir þjóna ásamt messuþjónum. Kór Breiðholtskirkju syngur undir stjórn Arnar Magnússonar organista. Sóknarnefnd Breið- holtssóknar býður til veislu eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Ragnar Bjarni, Hreiðar Örn, Helga Vilborg og Pálmi leiða stundina. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Antoniu He- vesi. Messuþjónar aðstoða. Prestur Pálmi Matthíasson. Kaffi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Gunnar Sigurjónsson. Organisti Sólveig Sigríð- ur Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju. Ein- söngur Marteinn Snævarr Sigurðsson. Sunnu- dagaskóli í kapellu á neðri hæð. Veitingar í safnaðarsal að messu lokinni. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar, Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu hjá Ólafi og Sigurði. Stund í tali og tónum kl. 16, Gunnar Kvaran og Haukur Guðlaugsson. Æðru- leysismessa kl. 20. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Pétur Ragnhild- arson og Ásta Guðmundsdóttir taka á móti börnunum í sunnudagaskólann. Organisti Arn- hildur Valgarðsdóttir, einsöngur Arnþrúður Ösp Karlsdóttir. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina. Fermingarbörn taka þátt. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tón- listina ásamt Gunnari Gunnarssyni organista. Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álf- heiðar Björgvinsdóttur. Við hvetjum fjölskyldur fermingarbarna til að mæta og vera með börn- um sínum í guðsþjónustunni. Verið öll hjartanlega velkomin. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Sunnudagaskóli í umsjón Sunnu Kristrúnar Gunnlaugsdóttir djákna. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir og sr. Grétar Halldór Gunnarsson þjóna. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng og organisti er Hákon Leifsson. Eftir messuna er fundur með fermingarbörnum úr Kelduskóla, Rimaskóla og Vættaskóla og for- eldrum þeirra. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11. Brúðuleikhús, söngvar, sögur og límmiðar. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurð- ardóttir og Aldís Rut Gísladóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. GRAFARVOGUR – KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Grétar Halldór Gunn- arsson þjónar. Vox Populi leiðir söng og org- anisti er Hilmar Örn Agnarsson. GRENSÁSKIRKJA | Samkirkjuleg guðsþjón- usta kl. 11 í tilefni af alþjóðlegri samkirkjulegri bænaviku fyrir einingu kristninnar. Sr. María Ágústsdóttir og sr. Arna Grétarsdóttir, fulltrúar þjóðkirkjunnar í Samstarfsnefnd kristinna trú- félaga á Íslandi þjóna og prédika. Fulltrúar ann- arra trúfélaga lesa lestra og bænir ásamt messuþjónum. Samskot til HÍB. Organisti Ásta Haraldsdóttir og kirkjukórinn syngur. 9 ára stúlk- ur úr Suzukitónlistarskólanum leika á fiðlu. Kaffi og meðlæti fyrir og eftir messu. Bæna- stund kl. 10.15. Daníel og Sóley með sunnu- dagaskóla kl. 11. Hversdagsmessa fimmtudag kl. 18. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs- þjónusta í umsjón Félags fyrrum þjónandi presta klukkan 14 í hátíðasal Grundar. Séra Anna Sig- ríður Pálsdóttir þjónar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Leifur Ragnar Jónsson, organisti Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskóli er í umsjá Sigurðar Óskars og Hákons Darra. Ferm- ingarbörn úr Sæmundarskóla taka þátt í mess- unni og foreldarar þeirra bjóða upp á veitingar með kaffinu eftir messu. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir og meðhjálpari Guðný Aradótt- ir. Fermingarbörn úr Sæmundarskóla máta fermingarkyrtlana eftir messuna. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjarts- syni. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir. Í messunni verða afhent framlög til Hjálparstarfs kirkjunnar og Kristniboðs- sambandsins. Bænastund mánud. kl. 12.10. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár- degismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrðarstund fimm- tud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kórinn Hljómfélagið leiðir messusöng undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttir. Organisti Steinar Logi Helgason. Prestur Eiríkur Jóhannsson. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskóli í kirkjunni kl. 11. Ekki er hefðbundin messa á sama tíma. Um samveruna sjá Markús og Heið- björt. HRUNAKIRKJA | Dægurlagamessa kl. 20.30. Messuform brotið eilítið upp og kórinn syngur sálma í bland við dægurlög. Stjórnandi Stefán Þorleifsson. HVALSNESSÓKN | Sólrisumessa í Safn- aðarheimilinu í Sandgerði kl. 14. Hljómsveitin Suðurnesjamenn annast tónlistina. Sólrisukaffi Kvenfélagsins Hvatar í Samkomuhúsinu að messu lokinni í samstarfi við FEBS. Sameig- inleg messa fyrir báðar sóknir. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Íslensk guðs- þjónusta í Västra Frölundakirkju kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur. Orgel og kórstjórn Lisa Fröberg. Altarisganga. Prestur er Ágúst Ein- arsson. Barnastund, smábarnahorn. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnakirkja og al- menn samkoma með lofgjörð. Ólafur H. Knúts- son prédikar. Heilög kvöldmáltíð. Kaffi og sam- félag eftir stundina. KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Kjartans Jósefssonar Ognibene. Prestur er Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir. Kristín Ólafsdóttir fræðslufulltrúi segir frá starfi Hjálparstarfs kirkjunnar. Þátttöku ferming- arbarna og aðstandenda þeirra er sérstaklega vænst. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, sr. Fritz Már þjónar ásamt messuþjónum. Eftir guðsþjónustu verður súpusamfélag í kirkju- lundi. Miðvikudag kl. 12 er kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar, súpa og brauð eftir stundina. Kl. 13 leiðir sr. Toshiki Toma bænastund fyrir inn- flytjendur og flóttafólk. Kirkja heyrnarlausra | Messa kl. 14. Tákn- málskórinn leiðir söng undir stjórn Eyrúnar Ólafsdóttur. Prestur Kristín Pálsdóttir. Mola- sopi eftir messu. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskólinn hefst á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Sr. Jóhanna Gísladóttir þjónar og undirleik annast Bryndís Baldvinsdóttir. Barnakórinn Graduale Liberi syngur fyrir kirkjugesti undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur. Aðalsteinn Guðmundsson kirkjuvörður og messuþjónar aðstoða við helgihaldið. Kaffi, djús og ávextir eftir stundina. Starf eldri borgara fer fram alla miðvikudaga kl. 12-15.30. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. El- ísabet Þórðardóttir organisti og Kór Laug- arneskirkju. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskóli í safn- aðarheimilinu á meðan. Kaffi og samvera á eftir. Fimmtudagur. Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, altarisganga og fyrirbænir. Súpa í safnaðarheimilinu á eftir. Helgistund kl. 14 Fé- lagsmiðstöðinni Dalbraut 18-20 með sr. Davíð Þór og Elísabetu. Helgistund kl. 16 Hásalnum Hátúni 10 með sr. Davíð Þór og Hjalta Jóni. LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldsöngvar við upp- haf þorra er yfirskrift guðsþjónustu kl. 20. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur kvöldsöngva undir stjórn Þórðar Sigurðarsonar organista. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn prédikar og þjónar fyrir altari. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Fé- lagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org- anisti Steingrímur Þórhallsson. Prestur Skúli S. Ólafsson. Umsjón sunnudagaskóla Ása Laufey, Katrín, Heba og Ari. Samfélag og kaffi- sopi eftir messu. ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11. Nemendur úr Tón- listarskólanum, biblíusaga, mikill söngur og af- mælisbörn. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam- komur Salts og SÍK alla sunnudaga kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð, Hver er ég? Ræðumaður er sr. Ragnar Gunnarsson. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir þjónar, kór kirkjunnar syngur, organisti Edit Molnár. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Jóhönnu Ýrar Jóhannsdóttur og leiðtoga úr æskulýðsstarfinu. Súpa í safn- aðarheimilinu að messu lokinni gegn vægu gjaldi. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Org- anisti Tómas Guðni Eggertsson. Kór Selja- kirkju leiðir safnaðarsöng. Prestur Kristinn Ágúst Friðfinnsson. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjón- ar. Organisti safnaðarins leikur. Leiðtogar sjá um sunnudagaskólann og félagar í Kamm- erkór Seltjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. STOKKSEYRARKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Nýjar myndir og spjall við börnin í miðri messu. Kór Stokkseyrarkirkju syngur. Org- anisti og kórstjóri er Haukur Arnarr Gíslason. Sr. Kristján Björnsson VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli og messa kl. 11. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar og þjónar ásamt félögum úr Kór Vídalínskirkju, Jó- hanni Baldvinssyni organista og messuþjón- um. Molasopi og djús í messulok. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistar- guðsþjónusta kl. 11. Guðrún Árný syngur. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Maríu og Bryn- dísar. Veitingar eftir messu í safnaðarsalnum. ÞORLÁKSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Hafdís og Guðmundur sjá um stundina. (Matt. 8) Morgunblaðið/Sverrir Ólafsvíkurkirkja, Ólafsvíkurprestakalli í Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi. Vígð 19. nóvember 1967. Orð dagsins: Jesús gekk ofan af fjallinu. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í leið- togakjöri Sjálfstæð- isflokksins. Vil ég með þessu bréfi vekja at- hygli á þeim ástæðum sem lágu þar að baki. Fyrir það fyrsta tel ég að hefðbundna stjórnmálamenn skorti kjark til þess að takast á við þau vandamál sem eru aðkallandi á sviði stjórnmálanna. Hinir hefðbundnu stjórnmálamenn virðast engan veg- inn þora að taka til umræðu erfið mál og tala máli skattgreiðenda. Sem er kannski ástæðan fyrir fall- andi trausti og stjórnmáladoða. Þetta er ekki séríslenskt fyrirbæri. Það er vissulega auðvelt að ganga með veggjum og kóa með vitleys- unni en hverju hefur það skilað, hverju hefur það áorkað? Afborg- anir af lánum borgarinnar nálgast fimmtán milljarða á næsta ári. Fimmtán milljarða. Hvorki meira né minna en samt þorir enginn að nefna einu leiðina sem fær er; alger áherslubreyting samhliða nið- urskurði. Ég legg áherslu á að hygla hinum duglega, að fækka borgarstarfsmönnum og að menn beri ábyrgð á sínu líferni. Það er óréttlátt að reykvískir skattgreið- endur séu að halda uppi ólifnaði og ábyrgðarleysi annarra. Ég hef sagt að skattborgarinn eigi ekki að borga fyrir fólk í sjálfs- tortímingu og mun ég skera niður við trog í þessum málaflokki. Það er undarlegt að hugsa til þess að út- lendir rónar ferðist heimshorna á milli til þess að leggjast á félagslega kerfið hér í Reykjavík en þetta er raunin. Reykjavík virðist stefna í að verða einhverslags félagsleg rusla- kista fyrir menn í sjálfstortímingu. Á minni vakt verður félagsleg að- stoð skorin niður við nögl. Vænt- anlega mun mannréttindaskrifstofa borgarinnar súpa hveljur en óttist ekki, það mun verða mitt fyrsta verk að loka henni. Samhliða fyrrnefndum niður- skurði mun ég taka til í út- gjaldaaukningunni og skapa fjár- hagslega hvata fyrir uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Sjálfur hef ég verið að byggja hús allt mitt líf og ég kann að byggja. Að byggja hefur verið mitt lifibrauð. Ég veit hvernig hægt er að skapa hvatana. Ég veit líka hvernig borgaryfirvöld standa í vegi fyrir uppbyggingu á íbúðar- húsnæði með þunglamalegu kerfi og óhóflegum gjöldum. Það kerfi mun ég brjóta niður og sam- hliða fella niður óþarfa gjöld sem hafa allt of lengi legið eins og til- beri á hinum duglega. Gjöld, skattar og reglu- verk eru farin að hamla nýbyggingu íbúðar- húsnæðis og stjórn- málamenn hafa meira að segja viðurkennt það þótt þeir virðist að- eins vilja tala um vandann en ekki bregðast við honum. Samgöngumál höfuðborgarinnar eru í algjörum ólestri og skapa mikla og óþarfa mengun. Rándýr verkefni á borð við borgarlínu þarf að stöðva og leggja þarf þess í stað áherslu á betri vegi, umferð sem flæðir og skattalega hvata fyrir at- vinnuuppbyggingu í efri byggðum. Lækkun eða niðurfelling fasteigna- gjalda á átvinnuhúsnæði í efri byggðum þarf að skoða með það fyrir augum. Skaði jafnaðarmanna á samgöngukerfinu er mikill og hug- myndafræði þeirra sem gengur út á að neyða fólk til þess að taka strætó hefur beðið algjört skipbrot. Reykjavík er höfuðborg lands- manna og flugvöllurinn í Reykjavík er flugvöllur allra landsmanna og tenging landsmanna við höfuðborg- ina. Flugvöllurinn á auðvitað að vera þar sem hann er. Það er fyrir löngu kominn tími á að stjórnmálamenn tali tæpitungu- laust um aðkallandi vanda. Mikil- vægt er að taka til í þeirri óreiðu sem einkennir Reykjavíkurborg í dag. Fjármálin eru í ólestri á sama tíma og jafnaðarmenn ausa fjár- munum í gæluverkefni sín. Nauðsynlegt er að bjóða upp á valkost sem er tilbúinn að taka til í rekstrinum og skera niður í því óhófi sem hefur verið stundað síð- ustu ár. Of lengi hafa jafnaðarmenn ausið miklu fjármagni í yfirbygg- ingu, nefndir og gæluverkefni sem betur færu í grunnstoðir borgar- innar eða í hendur harðduglegra skattgreiðenda sem jafnaðarmenn vilja reyna að blóðmjólka um hverja krónu. Ég mun verða martröð jafn- aðarmannsins. Eftir Viðar Guðjohnsen Viðar Guðjohnsen »Ég mun verða martröð jafnaðarmannsins. Höfundur er leigusali og frambjóð- andi í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokks- ins. Bréf til Reykvíkinga Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Atvinnublað alla laugardaga mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.