Morgunblaðið - 20.01.2018, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
✝ Guðrún fæddistá Kambi í
Deildardal í Skaga-
firði 23.12. 1928.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Norðurlands á
Sauðárkróki 8.1.
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Hjálmar
Pálsson, f. 3.3.1904,
d. 15.4. 1983, og
Steinunn Hjálmarsdóttir, f. 11.6.
1905, d. 15.7. 1942.
Systkini hennar eru Páll, f.
22.12. 1929, Ragnar, f. 3.3. 1931,
d. 10.1. 1998, Ásta, f. 9.8. 1932, d.
1.12. 2014, Höskuldur, f. 13.11.
1934, d. 11.7. 1935, Hulda, f.
13.11. 1934, d. 9.7. 1935, Þór-
anna, f. 12.4. 1936, Hulda, f. 28.9.
1938, Skarphéðinn, f. 30.9. 1940,
stúlka f. 10.7. 1942, d. 10.7. 1942.
Þrettán ára missti Guðrún
móður sína og þau systkinin
hjálpuðu föður sínum við að
reka búið og halda heimili þar til
Guðrún flutti í Hólkot í Unadal
1955, eiginkona hans er Hulda
Gísladóttir. Þau eiga fjögur
börn og fimm barnabörn. 5)
Ingibjörg Ásta, f. 10.3. 1956,
eiginmaður hennar er Sigurður
Þorleifsson. Þau eiga fjögur
börn og tvö barnabörn. 6) Guð-
rún Hjálmdís, f. 25.1. 1958, eig-
inmaður hennar er Grétar
Jakobsson. Þau eiga fjögur börn
og sjö barnabörn. 7) Jakobína
Helga, f. 20.8. 1959, eiginmaður
hennar er Þórarinn Þórðarson.
Þau eiga fjögur börn og sjö
barnabörn. 8) Guðfinna Hulda, f.
30.1. 1961, maður hennar er
Steen Johansson. Hún á þrjú
börn. 9) Haraldur Árni, f. 10.10.
1963, eiginkona hans er María
Pétursdóttir. Þau eiga þrjú börn
og eitt barnabarn. 10) Hjálmar
Höskuldur, f. 20.9. 1965, kona
hans er Linda Friðriksdóttir.
Hann á þrjú börn og tvö barna-
börn.
Í byrjun árs 2015 fluttust þau
Guðrún og Hjálmar á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki. Hjálmar dvelur
þar enn og lifir eiginkonu sína til
nærri 70 ára.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 20.
janúar 2018, klukkan 11. Jarð-
sett verður að Hofi á Höfða-
strönd.
og hóf búskap með
Hjálmari Sigmars-
syni. Þau giftust
vorið 1954. For-
eldrar Hjálmars
voru Sigmar Þor-
leifsson, f. 15.10.
1890, d. 27.2. 1968,
og Kristjana Guð-
mundsdóttir, f.
14.9. 1889, d. 10.3.
1945.
Börn Guðrúnar
og Hjálmars eru;
1) Steinunn f. 29.4. 1951,
eiginmaður hennar er Hafsteinn
Ragnarsson. Þau eiga þrjú börn
og níu barnabörn. 2) Kristjana,
f. 1.10. 1952, eiginmaður hennar
er Valdimar Birgisson. Þau eiga
þrjú börn, níu barnabörn og
fjögur barnabarnabörn. 3) Guð-
mundur, f. 14.2. 1954, kona hans
er Erla Unnur Sigurðardóttir.
Þau eiga tvö börn. Með Heiðdísi
Huldu Andradóttur, fyrrv.
eiginkonu, á hann eitt barn, tvö
barnabörn og eitt barna-
barnabarn. 4) Halldór, f. 30.1.
Elsku móðir mín, nú ertu farin
í ferðina löngu.
Þú sem varst svo lífsglöð og
sagðir við mig í síðasta símtali að
þú vonaðist til þess að fá að vera
lengur með okkur, en þá varst þú
orðin mjög þjáð og þreytt. Þú
varst mjög gjafmild og gafst allt-
af jafnóðum allt sem þú bjóst til,
eins og það sem þú prjónaðir á
okkur systkinin og síðar alla af-
komendur og tengdabörn sem
inn í fjölskylduna komu, og svo
auðvitað allt fallega postulínið
sem þú málaðir af mikilli natni
síðustu ár á meðan þú dvaldir á
Heilbrigðisstofnuninni. Gjafmild-
in ríkti í þér alla tíð, þú kvaddir
aldrei börnin nema að gleðja þau,
þú sagðir alltaf; „Hjálmar, við
verðum að gleðja börnin,“ og
fylgdi þá alltaf smáaur eða annar
glaðningur börnunum heim.
Minni þitt var einstakt, þú
mundir öll símanúmer og alla af-
mælisdaga allra í þinni stóru fjöl-
skyldu og hringdir jafnan við þau
tækifæri á meðan kraftar leyfðu.
Það sem þér þótti einstaklega
vænt um allan stóra hópinn þinn
og gladdist ætíð þegar vitað var
að nýr einstaklingur væri vænt-
anlegur. Elskaðir og dáðir alla
með þínu fallega brosi og þinni
hjartahlýju sem var alveg ein-
stök. Það síðasta sem þú sagðir
við mig var „Guð heldur vernd-
arhendi yfir okkur öllum,“ þessu
hvíslaðir þú að mér og ég veit að
trú þín styrkti þig í gegnum þá
mörgu erfiðleika sem þú þurftir
að yfirstíga í gegnum lífið. Móðir
mín, þú varst hjartahlý og vildir
öllum vel. Fórst aldrei í mann-
greinarálit og það voru allir jafnir
í þínum huga.
Hvíl í friði elsku móðir mín.
Þín dóttir,
Kristjana.
Í dag kveð ég hinstu kveðju
elsku móður mína, Guðrúnu
Hjálmarsdóttur.
Ég finn fyrir tómleika og sorg
þegar ég skrifa þessar línur. Lífið
var þér ekki alltaf auðvelt, elsku
mamma mín. Þrettán ára gömul
missir þú móður þína, sem var
þér mikið áfall og mótaði þig fyrir
lífstíð. En með bjartsýni og dugn-
aði lærðir þú að lifa með sorginni
yfir móðurmissinum. Þú varst
stórglæsileg kona, hjartahlý og
hlýju faðmlögin þín gleymast
okkur aldrei. Þú varst orðvör og
fannst ávallt það besta í hverri
manneskju. Ég þakka þér fyrir
allt það góða sem þú kenndir
mér. Minningarnar streyma fram
í hugann, algjörlega ósjálfrátt.
Til dæmis þegar ég var lítið barn
að skottast í kringum þig í eld-
húsinu í sveitinni og þú varst að
baka lummur eða pönnukökur.
Ég þakka þér fyrir öll símtölin,
við gátum talað saman endalaust
um börnin, barnabörnin og
barnabarnabörnin sem voru þér
svo kær. Það verður erfitt fyrir
þau að sjá á eftir henni. Ég sakna
hljómfögru og þýðu raddarinnar
þinnar.
Mamma studdi okkur í öllu
sem við tókum okkur fyrir hend-
ur, hún var næm á alla hluti.
Elsku hjartans mamma mín,
ég þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar.
Þú varst einstök kona, trygg
og trú og svo stolt af afkomenda-
hópnum þínum.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þín
Steinunn.
Elsku amma mín.
Ég trúi því varla að það sé
komið að kveðjustund. Að þú sért
allt í einu ekki með okkur hér er
hálf óskiljanlegt. En ég veit að
núna fylgistu bara með okkur á
annan hátt en áður.
Ég vil leyfa mér að trúa því að
bróðir minn hafi tekið vel á móti
þér og að þið fylgið okkur eftir og
passið upp á okkur saman.
Allt frá því ég var lítil stelpa
hef ég dáðst að þér. Faðmlagið
þitt var hlýrra en hjá nokkrum
öðrum, þú varst mýkri en nokkur
annar. Þú varst blíðust af þeim
öllum. Dugleg varstu og kraft-
mikil, tíu barna móðirin. Hlýjan,
ástin og umhyggjan skein úr aug-
um þínum. Mér þótti alltaf ynd-
islegt að koma til ykkar í sveitina
og aldrei klikkaðir þú á því að
hringja á afmælisdegi mínum eða
barnanna minna. Allar sögurnar,
vísurnar, ljóðin, sorgirnar og
gleðistundirnar lifa áfram með
okkur því að þú varst svo dugleg
að segja okkur frá og deila með
okkur. Styrkur þinn fólst í ást-
inni. Samferðafólk þitt og þau
sem þurftu að kveðja of snemma
eins og móðir þín og litlu systk-
inin lifa áfram í minningunni því
þú hugsaðir alltaf svo fallega til
þeirra allra og deildir þeim með
okkur. Og ég skal minnast þín um
aldur og ævi og leyfa mínum af-
komendum að heyra sögurnar
um elsku ömmu Rúnu í sveitinni.
Það er ekki hægt að rita til þín
kveðju án þess að minnast á það
hversu stolt ég var að vera fyrsta
langömmubarnið ykkar afa og
hversu stolt þú varst af mér. Ég
hef alltaf fengið að heyra það að
ég sé lík þér og sést það glettilega
á myndum sem til eru af okkur
þegar ég var lítil stelpa. Sveita-
konurnar saman að skoða hrossin
í réttunum og í göngutúr um dal-
inn okkar fallega, Unadalinn.
Fallegasta stað á jarðríki. Og
ekki minnkaði stoltið við það þeg-
ar ég átti dætur mínar. Fyrst
þær Heklu Berglindi og Kötlu
Bryndísi en við það tilefni hafðir
þú nú orð á því að núna værir þú
næstum því orðin heimsfræg.
Enda værum við komnar í
fimmta ættlið í beinan kvenlegg.
Síðan bættust Askja Bjargey og
svo Eldey Björk í hópinn. Þær
eru fjársjóðurinn minn og okkar
og því mun ég aldrei gleyma.
Skilyrðislaus ást er það sem kem-
ur upp í hugann þegar ég hugsa
um þig. Og ást ykkar afa er sú
sterkasta og fallegasta sem ég
hef nokkurn tímann vitað. Einu
sinni sagði ég við Örn manninn
minn að ef við fengjum bara að
upplifa brot af þeirri ást sem þið
afi báruð hvort til annars þá vær-
um við sko í góðum málum.
Þú deildir með mér vísubút
sem afi orti til þín áður en þú
fluttir til hans í Hólkot. Ég hef
passað upp á hann alla tíð síðan
og finnst viðeigandi að leyfa hon-
um að fylgja þér hér, enda sá
allra fallegasti texti sem ég veit.
Sit ég einn og segi fátt,
sviptur návist þinni.
Heyri ég samt þinn hjartaslátt,
heim úr fjarlægðinni.
(Hjálmar Sigmarsson, Hólkoti, Unadal)
Elsku amma mín. Takk fyrir
allar góðu stundirnar. Takk fyrir
allt það góða sem þú kenndir
mér.
Takk fyrir að vera þú. Takk
fyrir að gera heiminn betri fyrir
okkur hin.
Þín
Birgitta.
Elsku amma mín! Það er sárt
að missa þig þó að ég hafi vitað í
hvað stefndi síðustu dagana. Að
eiga þig sem ömmu var minn fjár-
sjóður alla tíð.
Það er gott að geta gengið í
þennan fjársjóð minninganna um
þig, elsku amma mín. Mínar dýr-
mætustu minningar um þig eru
frá barnæsku minni. Hólkot var
minn staður og staðurinn sem þú
elskaðir svo mikið. Við eigum
þessar minningar saman sem
aldrei munu gleymast.
Þú leyfðir mér að taka þátt í
bakstrinum með þér sem jafn-
ingja og ég var stolt að bjóða
fram veitingar með þér. Við bök-
uðum svo mikið magn og margar
sortir og mér fannst ég tengjast
þér og sveitinni minni. Það var
gaman að fara í berjamó, veiði-
ferðir og fjallgöngu. Þetta voru
yndislegar stundir sem ég mun
ávallt geyma í hjarta mínu.
Þú sinntir heimilinu svo vel og
elskaðir afa mikið og hann þig,
það sáu allir. Þið voruð samheldin
hjón.
Þú þurftir að vera dugleg því
gestagangurinn var mikill og það
þurfti að sinna gestunum.
Þegar við krakkarnir vorum
hjá þér varstu svo skemmtileg og
við gátum alltaf hlegið mikið
saman.
Þú gleymdir aldrei afmælis-
dögunum okkar og lagðir þig alla
fram fyrir okkur. Hlýjan og
gæskan skein úr augum þínum
og þú vildir öllum vel.
Síðustu árin á Sauðárkróki
heimsótti ég þig og átti góðar
stundir með þér.
Ég var svo stolt að koma til þín
þegar ég var búin að eignast Sig-
urð Aron og sýna þér hann. Þig
langaði svo mikið að sýna fólkinu
í kringum þig nýjasta meðlim
fjölskyldunnar og fórum við með
hann í borðsalinn til þess að sýna
hann og þú varst jafn stolt og ég.
Þú sýndir mér og börnunum allt-
af mikla væntumþykju.
Þú varst svo dugleg í höndun-
um og prjónaðir handa fjölskyld-
unni þinni. Síðustu árin málaðir
þú á postulín fyrir fólkið þitt.
Elsku amma, ég á eftir að
sakna þess að hitta þig, finna
hlýjuna, heyra sögurnar, sjá fal-
lega brosið þitt og finna faðmlag
þitt. Þú varst engin venjuleg
amma, þú varst sú besta sem
hægt er að eiga.
Þín
Guðrún.
Guðrún
Hjálmarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HÓLMFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR
frá Hofstöðum,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 12. janúar.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 26. janúar
klukkan 13.
Ólafur Gíslason Una Sigurðardóttir
Jóhannes Gíslason Elín María Ólafsdóttir
Gunnhildur Gísladóttir Björn Rúnar Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Davíð
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
útfararstjóri
Okkar ástkæri
HREINN BERNHARÐSSON
kennari,
Hornbrekkuvegi 14, Ólafsfirði,
lést mánudaginn 15. janúar.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
laugardaginn 27. janúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð dvalarheimilisins Hornbrekku,
Ólafsfirði.
Guðrún Þorvaldsdóttir
synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
systir, mágkona og tengdadóttir,
SIGRÍÐUR HRÓLFSDÓTTIR,
varð bráðkvödd í Frakklandi laugardaginn
6. janúar.
Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju
föstudaginn 26. janúar klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Gunnar Sverrisson
Halldór Árni Gunnarsson Sverrir Geir Gunnarsson
Þórunn Hanna Gunnarsd. Halldóra Sveinbjörnsdóttir
Þóra Hrólfsdóttir Tómas Kristjánsson
Halldóra Hrólfsdóttir Pétur S. Waldorff
Sverrir Gunnarsson Sigríður H. Gunnarsdóttir
Lára Sverrisdóttir Jón Höskuldsson
og aðrir aðstandendurElskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
mágur og afi,
STEINGRÍMUR EIRÍKSSON
hæstaréttarlögmaður,
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Harpa Sigr. Steingrímsdóttir Ólafur Karel Jónsson
Helga Ína Steingrímsdóttir Bjarki Ólafsson
María Ellen Steingrímsdóttir
Lilja Eiríksdóttir Bragi Líndal Ólafsson
Eva Eiríksdóttir Ditto Michael Ditto
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PETRÍNA KRISTÍN STEINDÓRSDÓTTIR,
frá Bolungarvík,
Hrafnistu, Reykjavík,
áður til heimilis á Nönnugötu 6,
lést á Landspítalanum þann 13. janúar.
Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. janúar klukkan 14.
Árni Andersen Sigríður M. Jónsdóttir
Rut Andersen Þorsteinn Gunnarsson
Steindór I. Andersen Hrefna Ársælsdóttir
Sigþrúður Jóhannesdóttir Ólafur Bragason
Kristín G. Jóhannesdóttir Preben Hansen
Rósa Jóhannesdóttir Helgi Zimsen
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn
Ástkær sonur okkar, faðir og bróðir,
BJÖRN THEODÓR HÚNFJÖRÐ
BJÖRNSSON,
lést á heimili sínu 17. janúar.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Emílía V. Húnfjörð Will Thornton
Björn Heiðar Björnsson Freyja Þorsteinsdóttr
Theodór Heiðar Björnsson Dagur Húnfjörð Björnsson
Magnús Páll Haraldsson Lara Roje
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi
ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar