Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 ✝ Guðrún fæddistá Kambi í Deildardal í Skaga- firði 23.12. 1928. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki 8.1. 2018. Foreldrar henn- ar voru Hjálmar Pálsson, f. 3.3.1904, d. 15.4. 1983, og Steinunn Hjálmarsdóttir, f. 11.6. 1905, d. 15.7. 1942. Systkini hennar eru Páll, f. 22.12. 1929, Ragnar, f. 3.3. 1931, d. 10.1. 1998, Ásta, f. 9.8. 1932, d. 1.12. 2014, Höskuldur, f. 13.11. 1934, d. 11.7. 1935, Hulda, f. 13.11. 1934, d. 9.7. 1935, Þór- anna, f. 12.4. 1936, Hulda, f. 28.9. 1938, Skarphéðinn, f. 30.9. 1940, stúlka f. 10.7. 1942, d. 10.7. 1942. Þrettán ára missti Guðrún móður sína og þau systkinin hjálpuðu föður sínum við að reka búið og halda heimili þar til Guðrún flutti í Hólkot í Unadal 1955, eiginkona hans er Hulda Gísladóttir. Þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. 5) Ingibjörg Ásta, f. 10.3. 1956, eiginmaður hennar er Sigurður Þorleifsson. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn. 6) Guð- rún Hjálmdís, f. 25.1. 1958, eig- inmaður hennar er Grétar Jakobsson. Þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn. 7) Jakobína Helga, f. 20.8. 1959, eiginmaður hennar er Þórarinn Þórðarson. Þau eiga fjögur börn og sjö barnabörn. 8) Guðfinna Hulda, f. 30.1. 1961, maður hennar er Steen Johansson. Hún á þrjú börn. 9) Haraldur Árni, f. 10.10. 1963, eiginkona hans er María Pétursdóttir. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 10) Hjálmar Höskuldur, f. 20.9. 1965, kona hans er Linda Friðriksdóttir. Hann á þrjú börn og tvö barna- börn. Í byrjun árs 2015 fluttust þau Guðrún og Hjálmar á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Sauðárkróki. Hjálmar dvelur þar enn og lifir eiginkonu sína til nærri 70 ára. Útför Guðrúnar fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 20. janúar 2018, klukkan 11. Jarð- sett verður að Hofi á Höfða- strönd. og hóf búskap með Hjálmari Sigmars- syni. Þau giftust vorið 1954. For- eldrar Hjálmars voru Sigmar Þor- leifsson, f. 15.10. 1890, d. 27.2. 1968, og Kristjana Guð- mundsdóttir, f. 14.9. 1889, d. 10.3. 1945. Börn Guðrúnar og Hjálmars eru; 1) Steinunn f. 29.4. 1951, eiginmaður hennar er Hafsteinn Ragnarsson. Þau eiga þrjú börn og níu barnabörn. 2) Kristjana, f. 1.10. 1952, eiginmaður hennar er Valdimar Birgisson. Þau eiga þrjú börn, níu barnabörn og fjögur barnabarnabörn. 3) Guð- mundur, f. 14.2. 1954, kona hans er Erla Unnur Sigurðardóttir. Þau eiga tvö börn. Með Heiðdísi Huldu Andradóttur, fyrrv. eiginkonu, á hann eitt barn, tvö barnabörn og eitt barna- barnabarn. 4) Halldór, f. 30.1. Elsku móðir mín, nú ertu farin í ferðina löngu. Þú sem varst svo lífsglöð og sagðir við mig í síðasta símtali að þú vonaðist til þess að fá að vera lengur með okkur, en þá varst þú orðin mjög þjáð og þreytt. Þú varst mjög gjafmild og gafst allt- af jafnóðum allt sem þú bjóst til, eins og það sem þú prjónaðir á okkur systkinin og síðar alla af- komendur og tengdabörn sem inn í fjölskylduna komu, og svo auðvitað allt fallega postulínið sem þú málaðir af mikilli natni síðustu ár á meðan þú dvaldir á Heilbrigðisstofnuninni. Gjafmild- in ríkti í þér alla tíð, þú kvaddir aldrei börnin nema að gleðja þau, þú sagðir alltaf; „Hjálmar, við verðum að gleðja börnin,“ og fylgdi þá alltaf smáaur eða annar glaðningur börnunum heim. Minni þitt var einstakt, þú mundir öll símanúmer og alla af- mælisdaga allra í þinni stóru fjöl- skyldu og hringdir jafnan við þau tækifæri á meðan kraftar leyfðu. Það sem þér þótti einstaklega vænt um allan stóra hópinn þinn og gladdist ætíð þegar vitað var að nýr einstaklingur væri vænt- anlegur. Elskaðir og dáðir alla með þínu fallega brosi og þinni hjartahlýju sem var alveg ein- stök. Það síðasta sem þú sagðir við mig var „Guð heldur vernd- arhendi yfir okkur öllum,“ þessu hvíslaðir þú að mér og ég veit að trú þín styrkti þig í gegnum þá mörgu erfiðleika sem þú þurftir að yfirstíga í gegnum lífið. Móðir mín, þú varst hjartahlý og vildir öllum vel. Fórst aldrei í mann- greinarálit og það voru allir jafnir í þínum huga. Hvíl í friði elsku móðir mín. Þín dóttir, Kristjana. Í dag kveð ég hinstu kveðju elsku móður mína, Guðrúnu Hjálmarsdóttur. Ég finn fyrir tómleika og sorg þegar ég skrifa þessar línur. Lífið var þér ekki alltaf auðvelt, elsku mamma mín. Þrettán ára gömul missir þú móður þína, sem var þér mikið áfall og mótaði þig fyrir lífstíð. En með bjartsýni og dugn- aði lærðir þú að lifa með sorginni yfir móðurmissinum. Þú varst stórglæsileg kona, hjartahlý og hlýju faðmlögin þín gleymast okkur aldrei. Þú varst orðvör og fannst ávallt það besta í hverri manneskju. Ég þakka þér fyrir allt það góða sem þú kenndir mér. Minningarnar streyma fram í hugann, algjörlega ósjálfrátt. Til dæmis þegar ég var lítið barn að skottast í kringum þig í eld- húsinu í sveitinni og þú varst að baka lummur eða pönnukökur. Ég þakka þér fyrir öll símtölin, við gátum talað saman endalaust um börnin, barnabörnin og barnabarnabörnin sem voru þér svo kær. Það verður erfitt fyrir þau að sjá á eftir henni. Ég sakna hljómfögru og þýðu raddarinnar þinnar. Mamma studdi okkur í öllu sem við tókum okkur fyrir hend- ur, hún var næm á alla hluti. Elsku hjartans mamma mín, ég þakka þér fyrir allar góðu stundirnar. Þú varst einstök kona, trygg og trú og svo stolt af afkomenda- hópnum þínum. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þín Steinunn. Elsku amma mín. Ég trúi því varla að það sé komið að kveðjustund. Að þú sért allt í einu ekki með okkur hér er hálf óskiljanlegt. En ég veit að núna fylgistu bara með okkur á annan hátt en áður. Ég vil leyfa mér að trúa því að bróðir minn hafi tekið vel á móti þér og að þið fylgið okkur eftir og passið upp á okkur saman. Allt frá því ég var lítil stelpa hef ég dáðst að þér. Faðmlagið þitt var hlýrra en hjá nokkrum öðrum, þú varst mýkri en nokkur annar. Þú varst blíðust af þeim öllum. Dugleg varstu og kraft- mikil, tíu barna móðirin. Hlýjan, ástin og umhyggjan skein úr aug- um þínum. Mér þótti alltaf ynd- islegt að koma til ykkar í sveitina og aldrei klikkaðir þú á því að hringja á afmælisdegi mínum eða barnanna minna. Allar sögurnar, vísurnar, ljóðin, sorgirnar og gleðistundirnar lifa áfram með okkur því að þú varst svo dugleg að segja okkur frá og deila með okkur. Styrkur þinn fólst í ást- inni. Samferðafólk þitt og þau sem þurftu að kveðja of snemma eins og móðir þín og litlu systk- inin lifa áfram í minningunni því þú hugsaðir alltaf svo fallega til þeirra allra og deildir þeim með okkur. Og ég skal minnast þín um aldur og ævi og leyfa mínum af- komendum að heyra sögurnar um elsku ömmu Rúnu í sveitinni. Það er ekki hægt að rita til þín kveðju án þess að minnast á það hversu stolt ég var að vera fyrsta langömmubarnið ykkar afa og hversu stolt þú varst af mér. Ég hef alltaf fengið að heyra það að ég sé lík þér og sést það glettilega á myndum sem til eru af okkur þegar ég var lítil stelpa. Sveita- konurnar saman að skoða hrossin í réttunum og í göngutúr um dal- inn okkar fallega, Unadalinn. Fallegasta stað á jarðríki. Og ekki minnkaði stoltið við það þeg- ar ég átti dætur mínar. Fyrst þær Heklu Berglindi og Kötlu Bryndísi en við það tilefni hafðir þú nú orð á því að núna værir þú næstum því orðin heimsfræg. Enda værum við komnar í fimmta ættlið í beinan kvenlegg. Síðan bættust Askja Bjargey og svo Eldey Björk í hópinn. Þær eru fjársjóðurinn minn og okkar og því mun ég aldrei gleyma. Skilyrðislaus ást er það sem kem- ur upp í hugann þegar ég hugsa um þig. Og ást ykkar afa er sú sterkasta og fallegasta sem ég hef nokkurn tímann vitað. Einu sinni sagði ég við Örn manninn minn að ef við fengjum bara að upplifa brot af þeirri ást sem þið afi báruð hvort til annars þá vær- um við sko í góðum málum. Þú deildir með mér vísubút sem afi orti til þín áður en þú fluttir til hans í Hólkot. Ég hef passað upp á hann alla tíð síðan og finnst viðeigandi að leyfa hon- um að fylgja þér hér, enda sá allra fallegasti texti sem ég veit. Sit ég einn og segi fátt, sviptur návist þinni. Heyri ég samt þinn hjartaslátt, heim úr fjarlægðinni. (Hjálmar Sigmarsson, Hólkoti, Unadal) Elsku amma mín. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Takk fyrir allt það góða sem þú kenndir mér. Takk fyrir að vera þú. Takk fyrir að gera heiminn betri fyrir okkur hin. Þín Birgitta. Elsku amma mín! Það er sárt að missa þig þó að ég hafi vitað í hvað stefndi síðustu dagana. Að eiga þig sem ömmu var minn fjár- sjóður alla tíð. Það er gott að geta gengið í þennan fjársjóð minninganna um þig, elsku amma mín. Mínar dýr- mætustu minningar um þig eru frá barnæsku minni. Hólkot var minn staður og staðurinn sem þú elskaðir svo mikið. Við eigum þessar minningar saman sem aldrei munu gleymast. Þú leyfðir mér að taka þátt í bakstrinum með þér sem jafn- ingja og ég var stolt að bjóða fram veitingar með þér. Við bök- uðum svo mikið magn og margar sortir og mér fannst ég tengjast þér og sveitinni minni. Það var gaman að fara í berjamó, veiði- ferðir og fjallgöngu. Þetta voru yndislegar stundir sem ég mun ávallt geyma í hjarta mínu. Þú sinntir heimilinu svo vel og elskaðir afa mikið og hann þig, það sáu allir. Þið voruð samheldin hjón. Þú þurftir að vera dugleg því gestagangurinn var mikill og það þurfti að sinna gestunum. Þegar við krakkarnir vorum hjá þér varstu svo skemmtileg og við gátum alltaf hlegið mikið saman. Þú gleymdir aldrei afmælis- dögunum okkar og lagðir þig alla fram fyrir okkur. Hlýjan og gæskan skein úr augum þínum og þú vildir öllum vel. Síðustu árin á Sauðárkróki heimsótti ég þig og átti góðar stundir með þér. Ég var svo stolt að koma til þín þegar ég var búin að eignast Sig- urð Aron og sýna þér hann. Þig langaði svo mikið að sýna fólkinu í kringum þig nýjasta meðlim fjölskyldunnar og fórum við með hann í borðsalinn til þess að sýna hann og þú varst jafn stolt og ég. Þú sýndir mér og börnunum allt- af mikla væntumþykju. Þú varst svo dugleg í höndun- um og prjónaðir handa fjölskyld- unni þinni. Síðustu árin málaðir þú á postulín fyrir fólkið þitt. Elsku amma, ég á eftir að sakna þess að hitta þig, finna hlýjuna, heyra sögurnar, sjá fal- lega brosið þitt og finna faðmlag þitt. Þú varst engin venjuleg amma, þú varst sú besta sem hægt er að eiga. Þín Guðrún. Guðrún Hjálmarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR frá Hofstöðum, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 12. janúar. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 26. janúar klukkan 13. Ólafur Gíslason Una Sigurðardóttir Jóhannes Gíslason Elín María Ólafsdóttir Gunnhildur Gísladóttir Björn Rúnar Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Davíð útfararstjóri 551 3485 - www.udo.is Óli Pétur útfararstjóri Okkar ástkæri HREINN BERNHARÐSSON kennari, Hornbrekkuvegi 14, Ólafsfirði, lést mánudaginn 15. janúar. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 27. janúar klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð dvalarheimilisins Hornbrekku, Ólafsfirði. Guðrún Þorvaldsdóttir synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, SIGRÍÐUR HRÓLFSDÓTTIR, varð bráðkvödd í Frakklandi laugardaginn 6. janúar. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 26. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Gunnar Sverrisson Halldór Árni Gunnarsson Sverrir Geir Gunnarsson Þórunn Hanna Gunnarsd. Halldóra Sveinbjörnsdóttir Þóra Hrólfsdóttir Tómas Kristjánsson Halldóra Hrólfsdóttir Pétur S. Waldorff Sverrir Gunnarsson Sigríður H. Gunnarsdóttir Lára Sverrisdóttir Jón Höskuldsson og aðrir aðstandendurElskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, mágur og afi, STEINGRÍMUR EIRÍKSSON hæstaréttarlögmaður, er látinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Harpa Sigr. Steingrímsdóttir Ólafur Karel Jónsson Helga Ína Steingrímsdóttir Bjarki Ólafsson María Ellen Steingrímsdóttir Lilja Eiríksdóttir Bragi Líndal Ólafsson Eva Eiríksdóttir Ditto Michael Ditto og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, PETRÍNA KRISTÍN STEINDÓRSDÓTTIR, frá Bolungarvík, Hrafnistu, Reykjavík, áður til heimilis á Nönnugötu 6, lést á Landspítalanum þann 13. janúar. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 26. janúar klukkan 14. Árni Andersen Sigríður M. Jónsdóttir Rut Andersen Þorsteinn Gunnarsson Steindór I. Andersen Hrefna Ársælsdóttir Sigþrúður Jóhannesdóttir Ólafur Bragason Kristín G. Jóhannesdóttir Preben Hansen Rósa Jóhannesdóttir Helgi Zimsen ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Ástkær sonur okkar, faðir og bróðir, BJÖRN THEODÓR HÚNFJÖRÐ BJÖRNSSON, lést á heimili sínu 17. janúar. Útförin fer fram í kyrrþey. Emílía V. Húnfjörð Will Thornton Björn Heiðar Björnsson Freyja Þorsteinsdóttr Theodór Heiðar Björnsson Dagur Húnfjörð Björnsson Magnús Páll Haraldsson Lara Roje Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.