Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 34

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 ✝ Vésteinn Berg-jón Arngríms- son fæddist á Smyrlhóli í Hauk- dal Dalasýslu 15. september 1941. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akra- nesi 7. janúar 2018. Foreldrar Vé- steins voru Sólveig S. Jósefsdóttir, f. 23.4. 1908, d. 23.12. 1987, og Arngrímur Magnússon, f. 17.10. 1896, d. 22.7. 1984. Alsystkini Vésteins eru Vésteinn, f. 1937, d. 1943, Gunnlaug Magna, f. 1946, Magnús Oddur f. 1947. Sammæðra Gunnlaugur Guð- jónsson, f. 1929, d. 1946. 31.des- ember 1968 opinberuðu Vé- steinn og Erna Kristín Hjaltadóttir, f. 21.3. 1950, frá Hjarðarholti, síðar Hróðnýj- arstöðum í Dölum, trúlofun sína. Vésteinn og Erna giftust 14. september 1974 . Börn þeirra eru: Hjalti, f. 9.10. 1968, kvænt- ur Lindu Traustadóttir. Börn búið í alla tíð síðan. Vésteinn vann þar öll verk fyrir utan raf- magn og pípulagnir, ásamt hjálp sveitunga og vina. Árið 1972 tóku þeir bræður Vésteinn og Magnús við búskapnum á Fells- enda af foreldrum sínum, ásamt konum sínum, systrunum Ernu og Báru. Bjuggu þau félagsbúi allt til ársins 2006 þegar þau þurftu að hætta búskap sökum veikinda Vésteins. Magnús og Bára hættu þá líka búskap og Hjalti Vésteinsson og Linda Traustadóttir tóku við. Vésteinn og Erna áttu þó áfram heima á Fellsenda og fengu að hjálpa til við búskapinn eins og heilsa og geta leyfði. Vésteinn var í U.M.F. Æskunni í mörg ár og einnig í sóknarnefnd Kvenna- brekkukirkju og um tíma með- hjálpari þar. Í desember 2005 veiktist Vésteinn mikið sökum sýkingar í blóði og þurfti að dvelja á hinum ýmsu sjúkra- stofnunum fram í júní 2006. Á fætur komst hann og átti góð 10 næstu ár. Árið 2016 greindist hann með nýrnabilun og var í svokallaðri kviðskilunarmeð- ferð sem hægt var að fram- kvæma heima. Útför Vésteins fer fram frá Kvennabrekkukirkju í dag, 19. janúar 2018, og hefst klukkan 14. þeirra eru Erna og Atli. Berglind, f. 4.2. 1970, gift Finn- boga Harðarsyni. Börn þeirra eru Vé- steinn Örn, Har- aldur Ingi og Haf- dís Ösp. Gunn- laugur, f. 1.4. 1974, kvæntur Ástu Guð- rúnu Guðbrands- dóttir. Barn þeirra er Björn Þór. Vésteinn ólst upp hjá for- eldrum sínum,fyrst á Smyrlhóli í Haukadal til ársins 1946, síðan eitt ár í Keflavík og eitt ár í Gaulverjabæ í Flóa. Árið 1948 fluttist fjölskyldan að Fellsenda í Dalasýslu. Vésteinn gekk í far- skóla í sveitinni og var svo tvo vetur í Reykholtsskóla 1958- 1960. Á árunum 1960-1968 vann hann hjá Kaupfélagi Hvamms- fjarðar í sláturhúsi, á skrifstofu og trésmíðaverkstæði ásamt því að aðstoða foreldra sína í bú- skapnum. Árið 1968 hófu þau Erna byggingu íbúðarhús sem þau fluttu í í júlí 1970 og hafa Elsku hjartans ástin mín. Í fimmtíu ár höfum við geng- ið götu lífsins saman í leik og starfi. Minningarnar streyma fram- ,börnin alast upp, búskapurinn, samverustundir fjölskyldu og vina, barnabörnin sex og öll ferðalögin okkar vítt og breitt um landið. Það var líka yndislegt að fá að vaka saman í sauðburði á vorin. Að sjá sólina koma upp og taka á móti lömbunum var okkur mjög kært. Þú varst ótrúlega laginn við að hjálpa þeim í heiminn ef eitthvað bar ekki rétt að. Haustin voru líka skemmtilegur tími. Þegar þú fórst með fullan bíl- inn (Grána gamla) af barna- börnum og öðrum ungmennum í fyrirstöðu á Reykjadal. Ég veit að það var þér erfitt síðastliðið haust að geta ekki tekið þátt í því sökum veikinda þinna. Elsku ástin mín, nú ertu laus við allar þrautir og ég veit þú vakir yfir öllum. Góða nótt elsku hjartað mitt og guð geymi þig alla tíð. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á að eins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Þín að eilífu, Erna. Elsku hjartans pabbi minn. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir) Þín dóttir Berglind. Ég minnist Vésteins tengda- föður míns með miklu þakklæti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman og hve gott var fyrir börnin okkar að fá að alast upp með hann í næsta nágrenni. Ég minnist hans sem rólegs og yfirvegaðs einstaklings með góðan húmor og skemmtilegan hlátur sem auðvelt er að smit- ast af, auðsótt var að fá hjálp hans og bauð hann upp á „sér- fræðiráðgjöf“ eins og hann orð- aði það og glotti við, en það var engin vitleysa sem kom frá hon- um og var hann fær um að leið- beina á fleiri sviðum en véla- viðgerðum þó að þær væri honum kærast. Er hann var yngri var hann ágæt grenjaskytta og var oft kallaður til með riffilinn til að fást við refi sem erfiðlega gekk að ná. Einnig hafði hann unnið tals- vert í byggingarvinnu og átti auðvelt með að tileinka sér þau fræði eins og annað. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Ég vil votta Ernu tengda- móður minni, börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúð mína. Finnbogi. Elsku afi. Orð fá ekki lýst því hversu mikið þín verður saknað. Ég vil ekki trúa að ég muni aldrei fá að sitja með þér í Gamla Grána aftur leiðina inn í Reykjadal eða fá ráð hjá þér með bíla. Allar minningar sem ég hef af þér geymi ég í hjarta mínu. Ég mun ávallt líta upp til þín. Það er stórt skarð sem þarf að fylla með að bera nafnið Vé- steinn og ég vona bara að ég nái að fylla upp í helming þess, elsku hjartans afi minn. Ó, hjartans afi, öll þín heitt við söknum því enginn var eins góður á okkar braut. Á angurs nótt og vonar morgni er vöknum þá vakir andi þinn í gleði og þraut og „gleim mér ei“ að þínu lága leiði við leggjum hljótt og brosum gegn- um tár, sem maísól, er brosir blítt í heiði þú blessar okkar stundir daga og ár. (H.P.) Saknaðarkveðja, þinn nafni Vésteinn Örn. Hann afi Vési er dáinn og það töluvert fyrr en við bjugg- umst við. Eins lengi og við systkinin munum hafa afi Vési og Erna amma verið stór hluti af okkar daglega lífi og lengst af búið í næsta húsi við okkur í sveitinni. Næstum því hvenær sem var gátum við skroppið út í skemmu og heilsað upp á afa, þar sem hann var eitthvað að brasa við vélar. Nú, eða hitt ömmu ef við höfðum minnsta grun um að hún væri að steikja kleinur eða ástarpunga. Að alast upp í sveitinni í næsta húsi við afa sinn og ömmu finnst okkur vera forrétt- indi sem við erum afskaplega þakklát fyrir. Í sveitinni er líka margt að gera og smalamennska að hausti er uppfull af ævintýrum. Þegar við vorum lítil og verið var að smala áttum við fast pláss hjá afa Vésa í „Grána“, gamla Toyota-jeppanum hans. Afi Vési var ráðagóður í smalamennsku sem og öðru og það sem hann ekki komst á tveimur jafnfljótum fór hann óhikað á „Grána“. Þegar við héldum að sumar kindurnar hefðu náð að snúa á afa gaf hann hressilega í upp snarbratt barðið eða niður í gil- skorning og komst þannig fyrir þær svo að þær gáfust upp og runnu heim bakkana. Það kom stundum fyrir að okkur fannst „Gráni“ hallast fullmikið til hlið- ar og sjálfsagt hefur komið á okkur skelfingarsvipur. Þá sagði afi Vési alltaf: „Þetta er allt í lagi, krakkar mínir, ég er svo vanur.“ Og það var auðvitað rétt hjá honum því hans ævistarf var að vera bóndi sem hafði gaman af að vera inn- an um dýr og einstakt lag á að gera við vélar og bíla. Elsku Erna amma, missir þinn er mikill en þá er dýrmætt að eiga góðar minningar um afa Vésa. Erna og Atli Hjaltabörn. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Í dag þegar við kveðjum Vésa bróður og mág viljum við minnast allra áranna sem við bjuggum saman félagsbúi á Fellsenda. Þar var aldrei spurt um hver gerði hvað eða hver ætti hvað. Allt var unnið í samvinnu og þó ekki værum við alltaf sammála bar aldrei skugga á samstarf okkar. Síðasta ár var honum erfitt vegna veikindanna, þótt ýmsu væri vanur frá fyrri tíð þar sem hann hafði reynslu af sex mán- aða sjúkrahúsvist fyrir 12 árum. En hann stóð meðan stætt var og kom oft og iðulega í kaffisopa til okkar að Leiðar- enda síðastliðið sumar. Allan þennan tíma hefur Erna staðið eins og klettur við hlið hans og ekkert vílað fyrir sér, svo að aðdáunarvert er. Öllum símtölum okkar bræðra og morgunkaffisopunum er lokið og við minnumst þess með þakklæti. Elsku Erna, Hjalti, Berglind, Gunnlaugur, tengdabörn og barnabörn, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin lifir. Magnús og Bára frá Fellsenda. Vésteinn Bergjón Arngrímsson HINSTA KVEÐJA Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði. Linda Traustadóttir. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Sigrún Óskarsdóttir, guðfræðingur Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR SVEINBJARNARSON frá Ysta-Skála, Hlíðarhúsum 7, Reykjavík, lést þriðjudaginn 9. janúar á hjúkrunar- heimilinu Eiri. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 22. janúar klukkan 11. Kjartan Garðarsson Antonía Guðjónsdóttir Guðbjörg Garðarsdóttir Stefán Laxdal Aðalsteinsson Anna Birna Garðarsdóttir Jón Ingvar Sveinbjörnsson Guðrún Þóra Garðarsdóttir Sigurjón Ársælsson Sigríður Garðarsdóttir Stefán Þór Pálsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur okkar, bróðir, frændi og barnabarn, EMIL ARNAR REYNISSON, Hringbraut 2b, Hafnarfirði, lést sunnudaginn 14. janúar. Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 29. janúar klukkan 13. Guðlaug Gestsdóttir Jón Hinrik Hjartarson Reynir Guðmundsson Jón Aron, Adam Örn, Guðrún Marín Eggert, Katrín, Eva Irena Guðrún Arndal Guðmundur Gunnarsson og systkini Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR ALBERTSSON, Ennishvarfi 12, Kópavogi, lést á Landspítalanum 12. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 25. janúar klukkan 13. Ilona Karlashchuk Ilanita Jósefína Harðardóttir Milagros Ísold Harðardóttir Berglind Ólafsdóttir Svavar Egilsson Jóhann Albert Harðarson Jóhanna Kristín Steinsdóttir Edda Austmann Harðardóttir Gunnar Ingi Jóhannsson Þórhalla Austmann Harðard. Björn Ólafur Ingvarsson barnabörn og aðrir aðstandendur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÉTAR L. STRANGE rafvélavirkjameistari, Hjallaseli 25, sem lést miðvikudaginn 10. janúar, verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 23. janúar klukkan 13. Edda Ásta Sigurðardóttir Strange Sigurður Strange Harpa Kristjánsdóttir Guðrún Strange Hilmar Snorrason Hannes Strange Bryndís Björnsdóttir Grétar Strange Guðbjörg Fanndal Torfadóttir afabörn og langafabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN VALDIMARSSON, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður frá Varmadal, lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 16. janúar. Útför fer fram í Landakirkju laugardaginn 27. janúar klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða, kt. 420317-0770, bankaupplýsingar: 0582-26-200200. Guðfinna Sveinsdóttir Ásgeir Þorvaldsson Margrét Sveinsdóttir Guðmundur Guðmundsson barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.