Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 36

Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 ✝ Björg Skarp-héðinsdóttir fæddist 23. nóv- ember 1936 á Syðri-Tungu í Stað- arsveit. Hún lést 12. janúar 2018 á hjúkrunardeildinni Skógarbrekku á Húsavík. Foreldrar henn- ar voru Skarphéð- inn Þórarinsson, f. 1898, d. 1978, og Elín Sigurð- ardóttir, f. 1901, d. 1971. Systk- ini Bjargar eru Birkir, f. 1929, Jenný, f. 1931, d. 2010, og Rakel Erna, f. 1947. Björg var gift Ívari Júlíus- syni, sjómanni á Húsavík, f. 1.1 1935, og eignuðust þau fimm börn: 1) Júlíus, f. 1956, kvæntur Guðrúnu Elsu Finnbogadóttur, f. 1955. Þau eiga fjögur börn: a. Björg, f. 1989, b. Arnar, f. 1998. 4) Elín, f. 1968, gift Benedikt Kristjánssyni, f. 1970. Þau eiga þrjú börn: a. Rut, f. 1998, b. Hrund, f. 2000, c. Kristján, f. 2005. 5) Hrönn, f. 1978, gift Haf- steini Halldórssyni, f. 1972. Þau eiga tvo syni, a. Máni, f. 2001, b. Dagur, f. 2006. Björg ólst upp í Staðarsveit á Snæfellsnesi og tók þátt í bú- störfum með foreldrum sínum. Hún sótti farskóla í Staðarsveit- inni. Hún fór á vertíð til Kefla- víkur veturinn 1955, þar kynnt- ist hún Ívari. Hún fór í Hús- mæðraskólann á Laugum í Reykjadal veturinn 1955-1956 og settist að á Húsavík eftir það. Björg var húsmóðir framan af, en stundaði einnig fiskvinnslu- störf þegar börnin uxu úr grasi. Hún tók virkan þátt í útgerð eig- inmanns síns um nokkurra ára- tuga skeið. Síðustu 20 ár starfs- ævinnar vann hún við Leikskólann Bestabæ á Húsavík. Útför Bjargar fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 20. jan- úar 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. Valdimar, f. 1973, kvæntur Svandísi Ríkharðsdóttur. Þau eiga tvo syni, b. Ívar, f. 1978, kvæntur Sæunni Margeirsdóttur. Þau eiga tvær dæt- ur. c. Elva, f. 1980. Hún á tvö börn. d. Hlynur, f. 1990. 2) Aðalbjörg, f. 1961, gift Gylfa Sigurðs- syni, f. 1962. Þau eiga þrjú börn: a. Björgvin, f. 1978, kvæntur Jónu Birnu Óskarsdóttur. Þau eiga tvö börn. b. Hrannar, f. 1984, í sambúð með Eygló Sófusdóttur. Þau eiga tvö börn. c. Líney, f. 1993, í sambúð með Kristjáni Elinóri Helgasyni. 3) Skarphéðinn, f. 1966, í sambúð með Arnhildi Pálmadóttur, f. 1972. Þau eiga tvö börn: a. Það var haustið 1981 að ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir einni af dætrum Húsavíkur. Hún bjó í foreldrahúsum og lengi vel lét ég duga að dvelja í herbergi hennar. En svo kom að því að hún taldi að nú væri kominn tími til að kynna mig fyrir foreldum sínum. Ég var með hnút í maganum; hvað ef þeim litist ekki á mig? Björg var í eldhúsinu. Ég stundi upp einhverju sem átti að þýða „góðan dag“. Hún tók undir kveðjuna. Líklega sá hún hvað mér leið. Hún brosti og talaði glaðlega um heima og geima. Lét eins og hún hefði alltaf þekkt mig. Mér fannst það líka. Eftir þetta varð ég sem einn af fjöl- skyldunni. Nokkrum áratugum seinna rifjaði tengdamamma þessa morgunstund upp. Hún sagðist svo sem hafa séð að það var a.m.k. eitt gat á sokknum mínum og skyrtan ekki alveg rétt hneppt. En hún var auðvitað ekk- ert að hafa orð á því. Björg ólst upp í Staðarsveit á Snæfellsnesi þar sem Jökullinn gnæfði yfir. Hún talaði alltaf hlý- lega um „jökulinn sinn“. Við gát- um rætt endalaust hvert væri fal- legasta fjall landsins og vorum sjaldnast sammála. Ég sagði Gunnólfsvíkurfjall. Hún sagði Snæfellsjökull. Líklega var það rétt hjá henni. Raunar var það nú þannig að við vorum oftast sam- mála um að vera ósammála. Kannski þess vegna náðum við vel saman. Tengdamamma ruglaði saman reytum við Ívar frá Húsavík. Þau byggðu hús að Höfðavegi 10. Hún stundaði almenn fiskivinnslustörf framan af en þau hjón áttu einnig útgerð með tveimur frændum Ív- ars sem rekin var með myndar- brag í tæp 30 ár. Vinnudagur tengdamömmu hefur stundum verið langur en aldrei hafði hún orð á því og aldrei heyrði ég hana kvarta, enda var það ekki hennar háttur. Hún var fylgin sér. Glað- lynd í góðum hópi en ákveðin og stóð fast á sínu. Hún hafði áhuga á börnum og alltaf gat hún passað barnabörnin. Bóngóð með af- brigðum og það var stundum gott að geta leitað til hennar á mestu baslárunum. Seinni hluta starfs- ævinnar vann hún á leikskóla, henni leið vel innan um börn. Þegar um hægðist fóru tengdaforeldrar mínir að njóta lífsins meira. Þau fóru reglulega á sólarströnd og áttu nánast fast- an samastað á Kanarí. Á Höfða- vegi 10 var líka gestkvæmt allt árið. Björg var húsfreyja á sínu heimili og stjórnaði af myndar- skap. Á kvöldin tók hún sér gjarnan prjóna í hönd með kött- inn sér við hlið. Lopapeysurnar hennar voru listaverk sem fóru víða. Einhvern tíma kalsaði ég það við hana að hún gerði mér peysu. Hún svaraði litlu. En kvöld eitt kom hún í heimsókn með ullarpeysu í poka. Seinna fékk ég aðra þar sem hún taldi hina úr sér gengna. Tengdamamma var alltaf mjög heilsuhraust. Hún fór oft í göngu- ferðir og kom þá stundum við og þáði kaffibolla. Hún notaði tæknina ekki mikið en var oft iðin við að senda sms. Gjarnan brand- ara sem voru svolítið tvíræðir. Síðustu jól hennar heima tók hún mig á tveggja manna tal. Hvíslaði að mér sögu frá æskuár- um sínum er pabbi hennar fór ásamt fleiri mönnum í vonsku- veðri til Borgarness til að sækja áburð fyrir búfénað á bæjunum. Þeir komust við illan leik aftur heim. Björg sagðist aldrei geta gleymt biðinni og hve hrædd hún var um að pabbi hennar ætti ekki afturkvæmt. Þetta mundi hún þó meira en 70 ár væru liðin frá því þetta gerðist. Af hverju hún hvíslaði þessu að mér að kvöldi jóladags vissi ég ekki og ég held að hún hafi engum öðrum sagt þessa sögu. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum.). Kærar þakkir fyrir samfylgd- ina. Hvíl í friði. Gylfi Sigurðsson. Mig langar að kveðja systur mína elskulega úr fjarlægð, með þessum fallegu vísum. Við kveðjum þig með tregans þunga tár sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. Móðir, systir, minningin um þig er mynd af því sem ástin lagði á sig. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Til Ívars mágs míns sendi ég þessa kveðju. Vermi hug þinn vonin hlý Verndi þig Guðs kraftur, Þótt á sólu skyggi ský Skín hún bráðum aftur. (G.G. frá Melgerði) Megi algóður Guð varðveita systur mína og minningu hennar. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, kæru ættingjar og vinir. Rakel Erna. Grallari og gleðigjafi er það sem mér dettur í hug þegar ég minnist Bjargar föðursystur minnar. Á milli okkar var ein- stakt, fallegt, náið samband. Ég var svo heppin að vera send í pössun til Húsavíkur sem barn þegar foreldrar mínir fóru til út- landa. Það þurfti aldeilis ekki að selja mér þá hugmynd. Ég sótti í að vera hjá frænku enda var hún svo skemmtileg. Þar var alltaf líf og fjör, húsið fullt af fólki og eng- in lognmolla í eldhúskróknum þar sem gikkurinn að sunnan fékk hvatningu. Einstakt afrek hjá henni að fá mig til að smakka hafragraut og smjatta á steiktu slátri. Minningar um heit og sólrík sumur þar sem við krakkarnir syntum í Botnsvatni. Pissubíllinn mætti til að rykbinda Höfðaveg- inn og fáklæddur krakkaskarinn hljóp á eftir til að ná bununni. Ég fylgdist með hvalskurði á bryggj- unni og lærði að halda með Liver- pool. Siglingin á sjómannadaginn var svo hápunkturinn hjá borg- arbarninu. Frænku leiddist nú ekki að rifja upp og hlæja að sög- unni um nýju, dýru gleraugun mín sem voru skilin eftir í landi þann dag. Sem unglingur sóttist ég áfram eftir að koma norður, í skíðaferð um páska eða Laugahá- tíð um verslunarmannahelgi. Hún hafði líka gott lag á ung- lingnum og við ræddum mál sem ég var ekki vön að ræða mikið við fullorðna. Björg var hrein og bein, hafði sterkar skoðanir og ræddi hlutina tæpitungulaust. En alltaf var stutt í hláturinn og glensið. Í gegnum allt fann mað- ur kærleikann, áhugann og um- hyggjuna. Við tvær höfðum alltaf um nóg að spjalla og mér þótti vænt um öll löngu símtölin okkar. Þau verða ekki fleiri. Í Guðs friði. Helga Birkisdóttir. Björg Skarphéðinsdóttir ✝ GuðmundurFriðrik Vigfús- son fæddist í Seli í Ásahreppi 28. júní 1932. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Lundi á Hellu 12. janúar 2018. Foreldrar hans voru Vigfús Guð- mundsson, bóndi í Seli, f. 12. mars 1901, d. 19. nóvember 1984, og kona hans Margrét Friðriks- dóttir, f. 13. ágúst 1898, d. 19. mars 1980. Guðmundur átti einn bróður, Egil Guðmar bifreiða- stjóra í Reykjavík, f. 18. ágúst 1936, d. 6. janúar 2014. Guðmundur kvæntist eftirlif- 2) Andrés, starfsmannastjóri í Reykjavík, f. 25. febrúar 1959, kvæntur Huldu Helgadóttur. Dóttir þeirra er Rakel. 3) Grétar Haukur, bílstjóri og bóndi, Seli, f. 11. ágúst 1960, kvæntur Krist- ínu Hreinsdóttur, sonur þeirra er Guðmundur Hreinn og börn Kristínar eru Ásta Hrönn og Bjarni Bent. 4) Marteinn, öku- kennari Hafnarfirði, f. 24. des- ember 1966, dætur hans eru Helga Klara og Hildur María. Barnabarnabörnin eru fimm talsins. Guðmundur ólst upp hjá for- eldrum sínum í Seli. Hann sótti barnaskóla í Þykkvabæ og vann við almenn sveitastörf á ung- lingsárum. Guðmundur og Klara reistu nýbýlið Bólstað í landi Sels árið 1957 og stunduðu þar búskap en auk þess var Guð- mundur alla tíð bílstjóri að at- vinnu. Útförin fer fram frá Selfoss- kirkju í dag, 20. janúar 2018, klukkan 11. andi konu sinni, Sigurást Klöru Andrésdóttur, 17. maí 1958. Klara fæddist 18. maí 1935 í Berjanesi undir Austur- Eyjafjöllum. For- eldrar hennar voru Andrés Andrésson bóndi, f. 3. ágúst 1901, d. 14 maí 1984, og kona hans, Marta Guðjónsdóttir, f. 3. ágúst 1912, d. 9. október 1993. Synir Guðmundar og Klöru eru: 1) Vigfús Andrés, bílstjóri á Selfossi, f. 30. ágúst 1955, kvæntur Helgu Þ. Guðmunds- dóttur. Synir þeirra eru Guð- mundur Fannar og Vignir Egill. Pabbi fæddist inn í sveitasam- félag og var alinn upp ásamt bróður sínum í Seli hjá afa og ömmu sem voru af hinni svoköll- uðu aldamótakynslóð. Pabbi vann við almenn sveitastörf á unglingsárum, kom að byggingu Þjórsárbrúar og tók bílpróf þeg- ar hann hafði aldur til. Bílar áttu hug hans allan upp frá því. Pabbi vann við akstur á Keflavíkur- flugvelli og síðar sem leigubíl- stjóri í Reykjavík um nokkurt skeið. En átthagarnir toguðu líka og þar kom að því að pabbi snéri til baka í sveitina til að taka við búi foreldra sinna eins og ættmenni okkar hafa gert kynslóðum saman í Seli. Pabbi og mamma reistu nýbýlið Ból- stað í landi Sels árið 1957. Þau komu fyrst inn í búskapinn í Seli með afa og ömmu en auk þess var pabbi alla tíð bílstjóri að at- vinnu meðfram búrekstrinum. Bílstjórahlutverk hans voru mörg, hann ók til að byrja með fyrir aðra en síðar eignaðist hann eigin vörubíl og rútur. Hann var um tíma félagi í vöru- bílstjórafélaginu Fylki og sinnti vörubílaakstri með félögum sín- um þar. Hann var einn af fyrstu skólabílstjórum við Laugalands- skóla og einnig ók hann með ferðamenn um landið. Þær ferðir voru pabba ánægjustundir þar sem hann hafði mikinn áhuga á landinu. Í mörg ár átti hann það til að skreppa í dagsferðir til fjalla og kom endurnærður heim að kvöldi. Pabbi hafði einnig ein- lægan áhuga á eldsumbrotum og jarðhræringum enda alinn upp í nágrenni við Heklu. Þegar gaus þar eða annars staðar kom ekki til greina annað en fara og upp- lifa sjónarspilið úr nálægð. Hann var á ferðalagi erlendis og missti af jarðskjálftanum sem skemmdi innbú og hús í Ásahreppi. Hann taldi það óheppni að hafa verið að heiman þegar ósköpin gengu yfir. Þó pabbi væri aðgætinn var hann frumkvöðull í sér. Hann lét sér ekki duga að kaupa verkfæri og tæki í búskapinn, þegar sjón- varpstæki fóru að verða algeng eign á heimilum í Reykjavík keypti pabbi slíkt tæki og með miklum tilfæringum náðust út- sendingar á kanasjónvarpinu á Bólstað. Tækið var auðvitað mikið undur í sveitinni enda eng- in sjónvörp í sýslunni og ná- grannar komu og fylltu stofuna á kvöldin og horfðu þar meðal annars á Bonanza og Combat. Pabbi bjó með sauðfé en auk þess var hann um tíma í kart- öfluræktun, eggjabóndi og seldi sand og túnþökur. Þegar hey- bindivélar komu á markaðinn keypti pabbi slíka vél og batt hey fyrir bændur í verktöku. Pabbi og mamma ferðuðust víða erlendis á efri árum. Oft voru þetta strangar rútuferðir til margra landa og stöðugt verið á ferðinni. Það kom lítið að sök þó dagleiðir væru langar, í huga pabba skipti ferðalagið meira máli en áfangastaðirnir og best leið honum þegar hann sat í flug- vél eða bíl. Heilsu pabba hrakaði síðustu árin, hann hafði þó fótavist og gat verið heima á Bólstað. Síð- ustu tvo mánuðina bjó pabbi við gott atlæti á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu þar sem starfsfólk sýndi honum og fjölskyldunni einstaka alúð. Mamma heimsótti hann alla daga og hélt í hönd hans þegar hann kvaddi föstu- dagskvöldið 12. janúar. Fyrir hönd bræðranna frá Bólstað, Andrés Guðmundsson. Mér er minnisstætt þegar ég heimsótti tengdaforeldra mína í fyrsta skipti fyrir tuttugu og tveimur árum síðan. Ekki var laust við að ég kviði heimsókn- inni. Sá kvíði reyndist ástæðu- laus, enda var mér og börnunum mínum tekið af mikilli alúð og gæsku. Heimilið á Bólstað er gestrisið heimili þar sem ávallt er gott að koma. Jafnvel eftir að tengdapabbi veiktist og átti erf- itt um mál kom hann því alltaf til skila ef gest bar að garði að nú ætti Klara að drífa sig og hella upp á kaffi. Gummi og Klara voru alltaf góð heim að sækja, hjálpsöm og ráðagóð. Gummi var einstakt góð- menni, jafnan alvarlegur í fasi, en þegar honum þótti eitthvað spaugilegt lýsti hann upp her- bergið með hlátri sem yfirtók allt andlitið. Kátínan smitaðist í alla sem nálægir voru og eru slíkar stundir dýrmætar í minn- ingunni. Hann var traustur og vel liðinn í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Við vorum sam- herjar í búskapnum í gegnum árin, hann fyrst aðal og við auka og svo snerist það við. Alltaf var hann tilbúinn að annast skepn- urnar og snyrtimennska hans var einstök, bæði í kringum skepnurnar og allar vélar. Hátt í fjörutíu ára gamall traktorinn hans ber þess órækt vitni, en hann er ennþá næstum eins og nýr. Ófá voru þau börnin sem sátu hjá honum í skólabíl þau rúmu 30 ár sem hann keyrði skólabíl og hef ég trú á að þeim hafi öllum þótt vænt um hann, enda var hann bæði barngóður og þolinmóður. Við unnum í skamman tíma saman við Laugalandsskóla, hann bílstjóri og ég kennari. Þar sá ég glöggt að hann naut þar mikillar virð- ingar. Gumma þótti líka gaman að ferðast og fóru þau Klara víða um heiminn saman. Við fórum með þeim í ferðalag til Dan- merkur þegar hann varð sjötíu og fimm ára, þau Klara, þrír synir þeirra og fjölskyldur. Margt var baukað þar og til gamans gert og samveran hin skemmtilegasta. Þeir feðgar fóru saman í bíltúr til Þýska- lands þar sem þeir fengu að prufukeyra Benz. Þegar Gummi var spurður í lok ferðarinnar hvað hefði verið skemmtilegast í ferðinni hugsaði hann sig um stutta stund og svaraði: „Ætli það hafi ekki verið þegar við prufukeyrðum Benzinn.“ Gummi og Klara voru sam- hent hjón og bættu hvort annað upp í bestu merkingu þeirra orða. Síðustu þrjú árin hrakaði heilsu Gumma hratt. Þá bjó hann vel að lífsförunaut sínum til yfir sextíu og fimm ára og stóð Klara við hlið hans sterk og styðjandi allan tímann. Þolgæði hennar, umhyggja og fórnfýsi var aðdáunarverð. Síðustu tvo mánuðina var hann þó of veikur til að dvelja lengur heima. Flutt- ist hann þá að hjúkrunarheim- ilinu Lundi á Hellu. Okkur að- standendum Gumma er ofarlega í huga þakklæti til alls þess góða fólks sem annaðist hann þar. Sérstaklega þökkum við Þórunni Guðbjörnsdóttur alla hennar að- stoð, greiðvikni og alúð þessi síð- ustu ár. Nú er komið að ferðalokum og löng og viðburðarík ævi að baki. Ég þakka Gumma samfylgdina í gegnum árin og allar þær góðu minningar sem eftir sitja. Ég votta Klöru, sonum þeirra og fjölskyldum samúð mína. Kristín Hreinsdóttir. Elsku besti afi. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Helga Klara og Hildur María. Guðmundur Fr. Vigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.