Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 38

Morgunblaðið - 20.01.2018, Page 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ég kynntist Mar- gréti Guðnadóttur þegar ég var í námi í líffræði og falaðist eftir sumarvinnu hjá henni á Keldum. Hún tók mér afar vel og alla tíð síðan naut ég velvildar hennar og áhuga. Hún fékk mér verkefni sem voru byggð á kenn- ingu hennar um það hvernig mæði-visnuveiran kemst undan ónæmissvari hýsilsins með stökk- breytingum. Tilgáta Margrétar reyndist rétt, og seinna kom í ljós að það sama gilti um eyðniveir- una, sem er náskyld mæði-visnu- veiru. Margrét var óþreytandi að leita leiða til að finna bóluefni gegn þessari veiru sem svo erfitt hefur reynst að hefta. Hún var komin vel á níræðisaldur þegar hún birti grein um rannsóknir sín- ar á Kýpur þar sem henni tókst að sýna fram á að með bólusetningu væri hægt að hægja á framgangi veirunnar í lömbum. Veirurannsóknir eiga sér merka sögu á Íslandi og er sú saga kunn langt út fyrir land- steinana. Þar átti Björn Sigurðs- son mikinn hlut að máli með rann- sóknum sínum á hæggengum veirusjúkdómum á fyrri hluta síð- ustu aldar. Tilraunastöðin að Keldum varð alþjóðlega þekkt vísindastofnun sem laðaði að margt hæfileikaríkt fólk, og má þar nefna, auk Margrétar Guðna- dóttur, Halldór Þormar og seinna læknana Guðmund Georgsson og Guðmund Pétursson. Páll Agnar Pálsson yfirdýralæknir var einnig mjög virkur í þessum rannsókn- um. Margir þessara frumkvöðla eru gengnir og nú einnig Margrét Guðnadóttir. Verður hún öllum sem henni kynntust eftirminnileg sökum eldmóðs hennar og brenn- andi áhuga. Margét Guðnadóttir hélt sig ekki aðeins innan tilraunastof- unnar eða innan veggja ráð- stefnu- og fundarsala. Hún fór út í þjóðfélagið og lét þar finna fyrir sér og því sem hún hafði fram að færa. Hún var dæmi um vísinda- mann sem taldi sig hafa skyldur við samfélag sitt og undir þeim skyldum kappkostaði hún allt sitt líf að rísa, einnig löngu eftir að formlegum starfsferli hennar lauk. Með Margréti Guðnadóttur er gengin mikil baráttukona. Ég sendi börnum hennar, barnabörnum og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Valgerður Andrésdóttir. Margrét Guðnadóttir var sterkur persónuleiki sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hún var skemmtileg, ákveðin og líka Margrét Guðnadóttir ✝ Margrét Guð-munda Guðna- dóttir fæddist 7. júlí 1929. Hún lést 2. janúar 2018. Margrét var jarðsungin 19. jan- úar 2018. þrjósk þegar henni lét svo. Ég þekkti til hennar í mörg ár en þegar ég tók við starfi gæða- og ör- yggisstjóra lífsýna- safna Landspítalans átti ég því láni að fagna að vinna með henni að skipulagn- ingu og frágangi lífs- ýna í hennar vörslu, afrakstur ævistarfs hennar. Vil geta þess að ég er 17 árum yngri en hún og hætti að vinna fyrir þrem árum en kjarnorkukonan hætti aldrei að vinna að sínum verkefnum. Með okkur þróaðist gagnkvæm virðing og skilningur og okkur tókst að koma verkefninu vel áleiðis. Mig langaði að senda kveðju að leiðarlokum, Margrét var kona sem ekki var hægt annað en bera virðingu fyrir og þykja vænt um. Sendi innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar. Halla Hauksdóttir. Nú kveðjum við bekkjarsystk- in MR 1949 okkar kæru Margréti. Sum höfðum við verið með henni frá 14 ára aldri í gagn- fræðaskóla, uns okkur var fyrir náð hleypt inn í háborgina þar sem við útskrifuðumst. Þar kynntumst við mörg, sem enn höldum hópinn og söknum nú okkar góðu Möggu. Eftir 5. bekkjar ferð til Norð- urlands vakti Margrét athygli fyrir fyndna ferðasögu. Hún hik- aði hvergi í háði í garð okkar for- ystupilta. Ekki fylgdist ég vel með lækn- isnámi hennar, en vissi þó seinna að hún stundaði rannsóknir, m.a. á Keldum. Ég skildi ekki fyllilega hvað búfjársjúkdómar kæmu mannkyninu beint við. En það breyttist þegar við hittumst við störf sem tengdust. Þótti mér merkilegt að kynnast bágri starfsaðstöðu í þvottahús- inu gamla á Landspítalalóðinni en sem stórbatnaði er fengið var hús fyrir rannsóknirnar við Ármúla. Eftir stúdentspróf hittumst við bekkjarsystkinin öðru hverju á tyllidögum. Í árslok 2003 hitti ég Margréti hjá Umferðarmiðstöðinni. Hún var þá á leið til Landakots á Vatnsleysuströnd, þar sem hún ræktaði landnámshænsn. Mér þótti það merkilegt, ekki síst þar sem Geir vinur okkar hjóna stundaði sams konar ræktun vestur í henni Ameríku og hafði sett okkur rækilega inn í sálfræði þessara merkilegu fugla. Umræðurnar spunnust áfram. Spurði ég hana hvaða bekkjar- systkin okkar hún umgengist. Hún sagði það vera mest lítið. Hvort sem ég ræddi það lengur eða skemur, þá kom fram að hún hitti fá okkar og sjaldan; saknaði þess að það var ekki meira. Mér þótti slæmt að við „strák- arnir“ fengjum ekki tækifæri til að blanda geði við svona skemmti- legan félaga, auk hinna „stelpn- anna“. Hafði ég samband við Ragnhildi, bekkjarsystur okkar, sem veitti bekknum forystu það árið. Hún sagðist ekkert geta í því máli gert. Hvers vegna ég gerði það ekki sjálfur? Varð þá úr að við bekkjarsystk- inin fórum að hittast 2004. Síðan höfum við hist reglulega alls 166 sinnum. Auk þess höfum við ferðast saman, okkur til gagns og ánægju. Og aldrei skrópaði Magga nema, að mig minnir, þeg- ar hún var við rannsóknir á sauðfé á eyju í Miðjarðarhafi. Hafði hróður af, eins og kom fram á merkilegri ráðstefnu í hátíðarsal Háskólans. Sérlega gefandi fyrir mig, síð- ustu ár, hefur verið að ræða við Margréti um búskap forfeðra hennar í Landakoti á Vatnsleysu- strönd og bera hag þeirra saman við kjör míns fólks á Seltjarnar- nesi fyrir og eftir aldamótin 1900. Þar, á Reykjanesi, Álftanesi og á Seltjarnarnesi, var blómleg byggð fiskimanna, forfeðra okk- ar, sem allt í einu, vegna „fram- fara“ í útgerð, einkum þó á Bret- landseyjum, lagði fiskimiðin við Faxaflóa í eyði, ekki síst með til- styrk íslenskra dómsyfirvalda. Og þessar byggðir náðu aldrei fyrri reisn. Hví rifja ég þetta upp? Fræg barátta Margrétar og barna hennar hefur flutt lærdóm alda- mótanna 1900 til nútímans. Þau voru styrk og úthaldsgóð til að brjóta raflínustefnu opinberra fyrirtækja um Suðurnes, kannski víðar, á bak aftur. En dag skal að kvöldi lofa. Fyrir þetta og margt fleira á hún og fjölskyldan heiður og þakkir skildar. Eggert Ásgeirsson. Margrét Guðnadóttir lauk stúdentsprófi árið 1949 ásamt fleiri stúlkum sem síðar urðu mik- ilvægur hluti af Íslandssögunni: Vigdísi Finnbogadóttur, Ragn- hildi Helgadóttur, Svövu Jakobs- dóttur og fleirum. Hún var því af fyrstu kynslóð kvenna sem ólust upp í lýðveldinu Íslandi og þurftu að ryðja brautir og taka að sér hlutverk sem konum hafði aldrei áður verið treyst fyrir. Sjálf var Margrét fyrsta konan sem varð prófessor við Háskóla Íslands og í nítján ár var hún raunar eini kvenprófessorinn við Háskóla Ís- lands. Það sópaði að henni í því starfi og hvarvetna sem hún kom. Margrétar verður eflaust eink- um minnst fyrir rannsóknir sínar á hæggengum veirusjúkdómum og það gagn sem hún gerði í því starfi sínu í baráttunni við visn- una. Sjálf kynntist ég henni í fé- lagsstarfi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð upp úr 2000, hún gekk í flokkinn sjötug en þó alls ekki sest í helgan stein heldur tók hún virkan þátt í starfi hans. Ekki var hún oft í ræðustól en á henni var að vonum mikið mark tekið þegar hún tjáði sig. Þar að auki var Margrét tíður gestur á mótmælafundum og í kröfugöng- um. Fáir munu hafa eytt fleiri klukkutímum í að mótmæla Kára- hnjúkavirkjun á sínum tíma. Með- al þeirra málefna sem hún lét sig varða voru jöfnuður og félagslegt réttlæti, friðarmál og ekki síst umhverfismálin. Þá var hún öfl- ugur talsmaður fæðu- og mat- vælaöryggis enda sérfræðingur á því sviði. Þessi virkni hennar í baráttunni á gamals aldri segir sína sögu um konu sem hafði svo óbilandi trú á mannkyninu og framtíð þess að hún lét sig ekki muna um að eyða ellinni í funda- höld og í að standa með eigin sannfæringu fram í dauðann. Margrét ferðaðist gjarnan með strætisvagninum, jafnan skyn- samlega klædd og virtist lítt gefin fyrir tildur og fínheit. Hún gat verið ströng á svip en þegar henni var skemmt iðaði hún af hlátri og þá leyndi sér ekki hve ung hún var í anda fram eftir öllum aldri. Hún skipaði heiðurssæti á listum Vinstri-grænna í nokkur skipti og til hennar var þá oft leitað um að- stoð við texta eða stefnumótun. Hún nálgaðist þau verkefni ávallt af virðingu en reyndist jafnan haf- sjór fróðleiks. Margrét tók vel á móti ungum konum í hreyfingunni eins og ég kynntist af eigin raun. Hún hvatti okkur til dáða og vildi að konur væru í fremstu röð í stjórnmál- unum. Ég er þakklát fyrir kynnin við slíkan frumkvöðul sem hefur verið mér og öðrum konum af yngri kynslóð fyrirmynd eins og fleiri hennar skólasystur. Hennar verður sárt saknað af félögum sínum í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem minnast hennar með þakklæti. Katrín Jakobsdóttir. Haustið 2002 varð ljóst að stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi stefndu að innrás í Írak þrátt fyrir öll varnaðarorð um að slíkt myndi leiða til hörmunga í Miðausturlöndum. Á sama tíma reis upp öflug mótmælahreyfing á heimsvísu. Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja. Fjölmennir mótmælafund- ir voru við Stjórnarráðið um hverja helgi svo mánuðum skipti, en alla virka daga safnaðist lítill hópur saman þar í hádeginu og minnti á andstöðuna við stríðið og krafðist þess að því lyki tafar- laust. Sumir friðarsinnar mættu bara í fáein skipti, aðrir oftar en þrjár eldri konur mættu alltaf og stóðu stundum einar. Ein þeirra var Margrét Guðnadóttir. Þrek og úthald Margrétar í baráttunni gegn Íraksstríðinu er í samræmi við annað í langri og glæsilegri sögu hennar sem einkenndist af brennandi réttlætiskennd, sósíal- isma og andúð á vígvæðingu og hernaði. Hún tók virkan þátt í þessari baráttu, mætti á fundi, lagði sitt af mörkum og var öðrum fyrir- mynd. Samtök hernaðarandstæðinga sjá á eftir öflugum liðsmanni. Fjölskyldu og ástvinum Mar- grétar Guðnadóttur vottum við innilega samúð. Fyrir hönd Sam- taka hernaðarandstæðinga, Auður Lilja Erlingsdóttir og Stefán Pálsson. Margrét Guðnadóttir var brautryðjandi, frumkvöðull og fyrirmynd. Hún var mikill áhrifa- valdur á mínum náms- og starfs- ferli. Hún leiddi mig fyrstu skref- in inn í heim vísindanna, þegar hún fékk okkur nokkra unga læknanema til liðs við sig að rann- saka veirusjúkdóminn rauða hunda á Íslandi, löngu áður en það varð lenska að stúdentar tækju þátt í rannsóknum. Það þurfti að skipuleggja verkefnið, fjármagna það, afla leyfa, sjá um framkvæmdina á sýnasöfnun og mælingum og loks kynna á ráð- stefnu og skrifa vísindagrein. Þetta var mikill skóli sem var mér verðmætt veganesti í doktors- nám. Ég fetaði þó ekki áfram í fót- spor Margrétar, því að hún opn- aði augu mín fyrir ónæmisfræðinni en þá hafði að- eins einn á undan mér lagt stund á þá grein. En Margrét kenndi mér fleira; hún kenndi mér að gera slátur. Það þótti sumum skemmtilegt að sjá fyrir sér tvær vísindakonur, þá eldri og þá yngri, í eldhúsinu í Rofabænum að sauma vambir. Seinna tók Margrét þátt með mér í norrænu samvinnuverkefni og þar munaði um íslenska framlagið vegna þess góða sýnasafns sem Margrét hafði komið upp á Rannsóknastof- unni í veirufræði. Síðustu árin lágu leiðir okkar Margrétar oftast saman á tónleikum og alltaf var hún jafn opin fyrir nýjungum, hvort sem var í vísindum eða list- um. Nú er hljómmikil rödd henn- ar þögnuð. Ég minnist Margrétar Guðnadóttur með virðingu og þökk. Helga M. Ögmundsdóttir. Elsku tengdamamma, nú þegar leiðir okkar skilur er mér efst í huga þakklæti til þín. Ég vil þakka þér samfylgd þína á lífsins leið þar sem vinátta þín hafa varðað veginn. Segja má að lífið sé dans á þyrnum, ein- staka sinnum rekst maður á rós eins og þig. Lífsleikni þín hefur verið mér nokkurs konar and- leg leiðsögn um hvernig skuli bregðast við þegar upp koma erfiðar aðstæður. Ég kalla fram ímynd þína um hvernig þú brást við á sorgarstundum. Þó svo vindurinn hafi blásið í fang- ið á lífsins leið þá brá aldrei skugga á jákvæðni þína, hjá þér var þetta spurning um hugar- far; þú sást það fallega og góða í öllu sem að höndum bar. Þeg- ar heilsan brast varstu ekki tilbúin að láta undan og per- sónuleiki þinn sem gleðigjafi beygði í engu af. Vinátta þín var mér ótrúlega dýrmæt, þú varst full af krafti, gleði og kærleika og öllum leið vel í návist þinni, eftir að hafa átt stund með þér varð ég betri maður. Þegar einhver átti um sárt að binda réttir þú fram kærleiks- ríka hjálparhönd og gerðir á þann hátt lífsgöngu fólks auð- veldari. Mín kæra vinkona, fyr- ir þetta allt er ég þér þakk- látur. Þú naust þess að ferðast, allt fram á 86 ára aldur fórstu ár- lega til Spánar. Á ferðum þín- um eignaðist þú marga vini og naust þess að vera meðal þeirra og varst fremst meðal jafn- ingja. Eitt af því sem einkenndi þína persónu var að þú leist á alla sem jafningja, enginn var yfir annan hafinn. Þínar næmu tilfinningar gagnvart öðru fólki og öllu í umhverfinu voru aðdáunarverð- ar. Líf hinna tilfinningalausu einkennist af tilfinningaleysi, ekkert er dapurlegra en líf án tilfinninga. Gömul hyggindi segja „það kemur maður í manns stað“, það á ekki við um þig, þú varst sannur vinur er gegndi einstæðu hlutverki. Ekki er fallegt að setja sig í dómarasæti en ég geri það samt: þú ert ein af fáum sem hægt er að segja um að séu virðingarverðar persónur. Kæra vinkona, það mun enginn taka þitt sæti eða fylla þitt skarð í huga mér. Ég mun alltaf geyma minningu þína með mér og þakka þér fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og kenndir mér. Þú verður alltaf vinur minn, ég mun sakna þín. Svo viðkvæmt er lífið sem vordags- ins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherj- ardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Í okkar samskiptum skiptir þú aldrei skapi. Við tengdumst órjúfanlegum böndum vináttu og kærleika. Minningin um það þegar ég kom til þín sl. að- Ágústína Berg Þorsteinsdóttir ✝ Ágústína BergÞorsteinsdóttir fæddist 18. apríl 1929. Hún andaðist 30. desember 2017 Útförin fór fram 15. janúar 2018. Vegna mistaka birtist röng útgáfa greinarinnar í Morgunblaðinu 17. janúar. fangadag, það var verulega dregið af þér og þú bentir mér á að koma nær. Ég hallaði mér niður að þér og þú sagðir við mig: „Mér þykir svo vænt um þig.“ Síðan í ákveðnari tón: „Mér þykir svo vænt um þig og ég vil að þú munir það.“ Þetta voru þín síðustu orð til mín. Þessum orðum mun ég aldrei gleyma, þau munu ávallt standa með mér í gegnum lífið. Þau snertu tilfinningar mínar og hafa fengið mig til að brynna músum svo þær eru við það að drukkna. Vertu sæl, mín elsku tengda- mamma, þakka þér samfylgd- ina, þú varst sannur vinur. Ég veit þú munt njóta aðdáunar og virðingar á vegferð þinni hér- eftir sem hingað til, Steini þinn og Milla munu taka þér fagn- andi. Hjá okkur er tómarúm eftir en minningin um heiður- skonu mun að einhverju leyti fylla upp í það skarð. Þinn vinur og tengdasonur, Jón Tryggvi Kristjánsson. Minningar mínar um góða vinkonu. Enn einu sinni kveð ég eina af okkur. Við vorum eitt sinn átta glaðværar konur, sem hittumst í svokölluðum sauma- klúbb yfir 30 ár. Líklega leng- ur, tíminn er svo fljótur að líða. Við tókum upp á ýmsu öðru en að sauma. Eitt sinn fórum við fjórar saman til Edinborgar. Ótrúlegt en satt, enginn hægð- arleikur að koma öllum börnum í fóstur, en það gekk. Út var haldið í tvær vikur, gleði og gaman. Við urðum allar ungar aftur, dönsuðum og lékum okkur sem aldrei fyrr. Höfðum mikið fyrir að skarta því fegursta, svo eftir okkur væri tekið – það tókst. Komum heim með fangið fullt af dýrmætum leyndarmálum. Brosandi sælar tókum við upp þráðinn þar sem frá var horfið. Við fjórar sem fórum voru syst- urnar Svava og Gússý og við vinkonurnar Soffía og ég. Ekki var verra að hún Emilía mamma systranna kom líka, okkur að óvörum, með fjórar rauðar rósir sem hún festi á okkur. Þar með engar húsmæð- ur lengur, bara stelpur að fara í frí. Mikið nutum við þessara daga, m.a. gengum við í djass- klúbb, sem við stunduðum hvert kvöld. Þetta var eins og að kasta af sér hlekkjum og njóta hvers augnabliks. Svona ævintýri endast ævina út. Stundum á saumaklúbbskvöldi datt okkur í hug svo ótal margt, eins og að skreppa á Borgina eða í Klúbbinn. Á fimmtudög- um var dansað í Þórskaffi, átt- um við til að drífa okkur þang- að. Allt þetta gerði tilveruna skemmtilegri og við gátum haft gaman af að taka svona saklaus spor. Í dag erum við bara fjórar eftir, við Gússý að verða 89 ára. Þess vegna er óhætt að láta gamminn geisa. Eiginlega eng- inn er til frásagnar lengur. Eitt er víst, við hittumst allar í blómabrekkunni, þá getum við tekið upp þráðinn. Elskulegu vinkonurnar mínar, svo margs að sakna og minnast. Orðin svo mörg ár sem spanna ógleym- anlega vináttu og væntum- þykju. Elska ykkur allar. Gússý mín sem gafst svo mikla gleði og hlýju. Það er gott að elska og sakna góðra vina. Sjáumst. Sigrún frá Möðruvöllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.