Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 40

Morgunblaðið - 20.01.2018, Side 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Jóhannes bróðir minn er látinn, 68 ára að aldri. Næst- yngsta systkini mitt. Aldrei aftur munum við sitja við eldhúsborðið í hádeginu á virkum degi og leysa þar flest vandamál íslensks samfélags, einkum í efnahagsmálum. Það var 3. október 1949 þeg- ar ég kom heim, eftir fyrsta dag í 11 ára bekk í Austurbæjar- skóla, að mér var tilkynnt að ég hefði eignast bróður, fimmta systkinið. Við vorum börn hjónanna Gunnars Jóhannes- sonar og Málfríðar Gísladóttur. Pabbi var póstmaður og vann allt mögulegt annað líka því að fyrir mörgum þurfti að sjá og svo þurfti að standa í byggingu húsnæðis. Börn þeirra urðu alls sjö. Mamma hafði enga aðstöðu til að sinna öðru en heimili og gerði það af dugnaði og ást við okkur öll. En aðstaða til uppeld- is barna hennar var ólík. Meiri var tíminn fyrir þau elstu, eink- um mig, en þau yngri. Kynni mín af yngri systkin- um urðu ánægjuleg og náin eftir að ég kom úr námi að utan haustið 1961. Til dæmis minnist ég þess ekki að við Jóhannes hefðum nokkurn tíma deilt. Honum leiddist í skóla á ung- lingsárum eins og eðlilegt er og tók því fagnandi þegar við pabbi töldum rétt að hann hætti um tíma námi 15 ára og gerðist vinnumaður í eitt ár á bæ í Hraungerðishreppi. Þar undi hann hag sínum vel, samkomu- lag hans við húsbændur og hús- dýr var frábært. Næsta vetur var hann við nám við héraðs- skóla og lauk þar gagnfræða- prófi 1966. Eftir það hófst nám hans í mjólkurfræði, fyrst í tvö ár hér á landi og síðan í Dan- mörku eins og víða er rakið. Hann starfaði eitt ár við mjólk- urbú á miðju Fjóni. Hjólaði hann í vinnuna og úr henni nokkra klukkutíma dag hvern. Einkahagir Jóhannesar sem fullorðins manns hafa verið beint og óbeint raktir hér í mörgum minningargreinum og verður því aðeins hér örlitlu bætt við. Jóhannes giftist fyrri konu sinni skömmu áður en hann hélt til Danmerkur 1968, þá tæplega nítján ára. Með henni átti hann tvær dætur. Með seinni konu sinni átti hann tvö börn. Auk þess ól hann upp eina fósturdóttur sem ávallt hef- ur litið á hann sem föður og var það gagnkvæmt. Öll þessi börn fæddust áður en hann var þrí- tugur. Barnabörnin eru mörg. Hann var yndislegur faðir og afi eins og víða hefur komið fram. Eiginlega var hann yndislegur í öllu. Jóhannes átti að sjálfsögðu auðvelt með að fá vinnu. Hann hafði sérhæft sig í ostagerð og átti þann metnað að búa til góða osta. En Íslendingum þóttu þeir of bragðmiklir. Honum leiddist því starfið til lengdar. Hann hafði þá þegar sinnt nokkuð greinaskrifum og útgáfu og fékk starf sem útgáfustjóri Verðlags- stofnunar sem hann sinnti 1980- 1990. Neytendasamtökin áttu eftir það alla starfsævi hans, eða í 26 ár. Hann dvaldi í Neskaupstað 1973-1975 og var virkur í björg- unarstarfi eftir snjóflóðin þar 1974, gróf t.d. upp lík. Þá þótti sjálfsagt að enginn kvartaði eða sýndi hryggð. Jóhannes var við- Jóhannes Gunnarsson ✝ JóhannesGunnarsson fæddist 3. október 1949. Hann lést 6. janúar 2018. Útför Jóhann- esar fór fram 16. janúar 2018. kvæmt góðmenni en hann fylgdi karl- mennskukröfum þess tíma, á yfir- borðinu. Jóhannes lét fólk ekki troða sér um tær og ennþá síður þoldi hann að öðrum væri sýnt óréttlæti. Hann var alltaf talsmaður jafnaðar. Ég hef aldrei neit- að að standa í góðri deilu en ég minnist þess ekki að hafa deilt við þennan bróður minn. Ekki af því að við værum alltaf sam- mála heldur vegna þess hve góður og heiðarlegur hann var. Gísli Gunnarsson. Ég vil minnast með nokkrum orðum góðs vinar, Jóhannesar Gunnarssonar, sem lést 6. jan- úar sl. Í kjölfar greinar sem ég skrifaði um svínarí olíufélag- anna á neytendum fyrir um átta árum hringdi síminn og á lín- unni var Jóhannes Gunnarsson. Hann hrósaði mér fyrir greinina og ég varð eiginlega „star- struck“ yfir því að fá hringingu frá sjálfum neytendafrömuði Ís- lands. Í kjölfarið hittumst við nokkrum sinnum og ekki leið á löngu þar til ég bauð ég mig fram í stjórn Neytendasamtak- anna, m.a. fyrir hvatningu Jó- hannesar. Ég náði kosningu og sat með Jóhannesi í stjórn Neytendasamtakanna í sex ár og unnum við á þessum tíma ná- ið saman. Jóhannes bað mig oft að skrifa umsagnir um laga- frumvörp eða greinar til birt- ingar í blöðum. Það var dýr- mætur lærdómur að fá að fylgjast með Jóhannesi berjast fyrir hagsmunum neytenda. Ég minnist sérstaklega fundar sem við sátum með atvinnuvega- nefnd Alþingis og ræddum nýj- an búvörusamning. Fundurinn átti að standa í hálftíma en end- aði í tveimur tímum og voru neytendamálin rædd út frá mörgum sjónarhornum. Jóhann- es gaf ekkert eftir hvað varðaði hagsmuni neytenda á þessum fundi og áleit þennan nýja bú- vörusamning ekki hagstæðan neytendum. Framvinda fundar- ins lýsir Jóhannesi vel, hann var vakinn og sofinn yfir hagsmun- um neytenda og Neytendasam- takanna. Á þessum árum þróaðist með okkur náin og góð vinátta og þegar við ræddum saman stóðu samtölin lengi yfir. Jóhannes var ráðagóður og skemmtilegur og hann hafði góða nærveru. Ég kveð góðan vin og sendi börnum hans og barnabörnum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Gunnar Alexander Ólafsson. Það var vor í lofti fyrir 40 ár- um þegar leiðir okkar Jóhann- esar Gunnarssonar lágu saman í stjórn Neytendasamtakanna. Þessi galvaski vörpulegi Trotskíisti vatt sér að mér eftir aðalfund og mæltist til sam- starfs, þó að við værum á önd- verðum meiði í pólitík. Þá hvarflaði ekki að okkur að góð og náin tengsl stæðu næstu 40 árin. Þegar farið var fram á það að ég yrði formaður Neytendasam- takanna gerði ég að skilyrði að Jóhannes yrði varaformaður. Betri varaformann var ekki hægt að fá. Við unnum náið saman og ég gat treyst því að væri Jóhannesi falið verkefni yrði það vel af hendi leyst. Við vorum sammála um að það væru málefni neytenda sem skiptu máli og flokkspólitískir hagsmunir og áhugamál yrðu að víkja fyrir þeim. Á þeim tíma þurftu íslenskir neytendur að heyja harða bar- áttu gegn ríkiseinokun og mark- aðsráðandi fyrirtækjum á mik- ilvægustu sviðum viðskiptalífsins. Þegar við geng- umst fyrir undirskriftasöfnun vegna þess að neytendum voru boðnar óætar kartöflur neitaði landbúnaðarráðherra að tala við okkur þó að meira en tugþús- undir neytenda hefði brugðist við undirskriftasöfnun Neyt- endasamtakanna og mótmælt. Sú bylgja sem þá reis leiddi samt til að ríkiseinokunin á þessu sviði var lögð niður. Þetta voru tímamót í baráttu neyt- enda og félagsfólki fjölgaði til muna. Nokkru eftir að Jóhannes varð formaður samtakanna risu þau sem aldrei fyrr. Þá var bar- áttan við einokunaröflin augljós. Ríkisvaldið var þó neikvætt, ólíkt því sem var annars staðar á Norðurlöndunum, þar sem stjórnvöld studdu neytendur. Þó að baráttan gegn ríkisein- okunarfyrirtækjunum og betra viðskiptaumhverfi gengi vel var erfitt að fá stjórnvöld til að setja lög til hagsbóta fyrir neyt- endur. Neytendasamtökin þurftu í áraraðir að berjast fyrir sanngjörnum breytingum þó að viðunandi árangur hafi nú náðst. Jóhannes naut þess eins og hann sagði sjálfur að fá að vinna að áhugamáli sínu. Hann var sanngjarn og óeigingjarn í því starfi og íslenskir neytendur þakka honum fyrir starf hans í þeirra þágu. Jóhannes átti barnaláni að fagna og lét sér annt um börn sín og barnabörn, hann var góð- ur vinur vina sinna, alltaf sann- ur og orðum hans mátti jafnan treysta. Fyrir nokkru hittumst við ásamt öðrum og veltum fyrir okkur hvað við gætum gert til að Neytendasamtökin gætu fengið nauðsynlegan bakstuðn- ing og vorum sammála um að nauðsynlegt væri að mynda hollvinasamtök þeim til styrkt- ar. Að því ætluðum við að vinna á nýja árinu. Af því varð ekki, en hugmyndin nær vonandi fram að ganga. Mér finnst mikill missir að Jóhannes skuli ekki vera lengur til staðar til að eiga orðastað við eða njóta samvista með. Þó að lát hans sé missir fyrir okkur vini hans er missir nánustu að- standendanna, sem þekktu Jó- hannes sem ástríkan föður og afa, enn meiri. Ég sendi hug- heilar samúðarkveðjur til barna hans og barnabarna og vona að þið hafið þá trú að dauðinn sé ekki endalok heldur upphaf nýs vettvangs fyrir góðan dreng sem vann óeigingjarnt starf fyr- ir hagsmuni hinna mörgu gegn hagsmunum hinna fáu. Jón Magnússon. Jóhannes Gunnarsson hafði þegar hann lét af störfum fyrir tveimur árum gegnt for- mennsku í einu af stærstu fé- lagasamtökum landsins, Neyt- endasamtökunum, um 30 ára skeið. Það segir sína sögu um einstaka hæfileika hans til að virkja fólk til samstarfs, sætta ólík sjónarmið innan sinna sam- taka og leiða baráttu fyrir hags- munum íslenskra neytenda. Jóhannes hafði óbilandi trú á getu félagasamtaka til að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Þegar til tals kom fyrir um ára- tug að stofna samtök félagasam- taka og sjálfseignarstofnana sem starfa í almannaþágu, sem síðan urðu Almannaheill, sam- tök þriðja geirans, hvatti hann eindregið til þess, tók virkan þátt í undirbúningi stofnunar þeirra og Neytendasamtökin urðu eitt af stofnfélögum Al- mannaheilla. Hann sat um tíma í stjórn samtakanna. Hann miðl- aði þar af langri reynslu sinni og hvatti félögin til að læra hvert af öðru og tileinka sér fyr- irmyndarstarfshætti, þannig að þau mættu verða þeim sem njóta góðs af starfsemi al- mannaheillasamtaka að sem mestu gagni. Það er með eftirsjá og þökk sem við í stjórn Almannaheilla kveðjum Jóhannes Gunnarsson, sem nú er fallinn frá fyrir aldur fram. Hann var holdgervingur hins óþreytandi baráttumanns fyrir almannahag, en jafnframt ljúfur og hvetjandi starfsfélagi sem af sanngirni lagði ætíð gott til lausnar á þeim málum sem glímt var við. Megi hann hvíla í friði. Fyrir hönd stjórnar Al- mannaheilla – samtaka þriðja geirans, Ketill Berg Magnússon. Með Jóhannesi Gunnarssyni er genginn mestur baráttumað- ur á Íslandi fyrir réttindum og hag íslenskra neytenda. Mér finnst ég hafa þekkt Jóhannes í áratugi en samt eru ekki liðin nema rúm fimm ár frá því við kynntumst persónulega og fór- um að starfa saman. Við kynnt- umst þegar Jóhannes bauð mér til þings Neytendasamtakanna haustið 2012. Þar var ég kosinn í stjórn og við urðum samstarfs- menn. Samstarf okkar Jóhannesar varð strax gott og áherslur okk- ar í hagsmunamálum neytenda lágu saman þó að við kæmum nú hvor úr sinni áttinni póli- tískt. Með okkur tókst góð vin- átta og ég hugsa með hlýju og þakklæti til margra góðra funda og símtala sem við áttum, að- allega um neytendamál en oft samt um eitthvað allt annað. Við Jóhannes ræddum stund- um um hve mikilvægt það er að hagsmunabarátta neytenda sé ekki rekin á pólitískum forsend- um. Við vorum sammála um að baráttan fyrir hagsmunum neyt- enda gæti samt aldrei verið ópólitísk og því væri mikilvægt að baráttan byggðist á neytendapólitík en ekki flokks- pólitík. Í neytendapólitíkinni náðum við vel saman, Jóhannes, sem upphaflega kom úr Alþýðu- bandalaginu, og ég, sem kom úr allt annarri átt. Á löngum formannsferli Jó- hannesar hjá Neytendasamtök- unum gerðist það stundum að ekki mættu allir stjórnarmenn til leiks undir þeim formerkjum að neytendapólitík væri eina pólitíkin sem stunda skyldi í hagsmunabaráttu neytenda. Fyrir kom að ráðist var til at- lögu gegn Jóhannesi en ávallt vatt hann sér undan sverðalög- um og hafði sigur að lokum. Erfitt er að hugsa sér öflugri og farsælli talsmann almannahags- muna en Jóhannes Gunnarsson. Á mínum stutta formannsferli hjá Neytendasamtökunum fundaði ég með forystumönnum norrænna og evrópskra neyt- endasamtaka. Ekki get ég sagt að það hafi komið mér á óvart en mikið gladdi það mig að komast að því hve mikillar virð- ingar minn góði vinur, Jóhann- es, naut meðal kollega sinna í landssamtökum neytenda um alla álfuna. Virðingu fyrir störf sín verð- skuldaði Jóhannes Gunnarsson svo sannarlega. Ef rödd hans hefði ekki hljómað hefði rödd neytenda á Íslandi verið þögguð og kæfð. Neytendasamtökin voru ekki sjálfsprottin, þau uxu ekki af sjálfu sér og þau munu ekki lifa og dafna nema með hugsjóna- og baráttumenn í brúnni. Á níunda áratugnum, þegar Neytendasamtökin uxu sem aldrei fyrr, fór Jóhannes Gunnarsson um landið og beitti sér fyrir neytendavakningu. Á sex dögum stofnaði hann sex neytendafélög í sex kauptúnum úti á landi. Á engan er hallað þegar fullyrt er að aðrir fara ekki í skóna hans. Stjórn Neytendasamtakanna útnefndi Jóhannes heiðursfélaga samtakanna á fyrsta fundi eftir að hann lét af embætti sem for- maður. Það var heiður minn og ánægja að fá að afhenda honum skjöld því til staðfestingar við hátíðlega athöfn í janúar á síð- asta ári. Nú er Jóhannes fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Hann gaf allt sitt í baráttuna fyrir hags- munum íslenskra neytenda og skeytti ekki um eigin heilsu og hag. Ég votta fjölskyldu hans innilega samúð. Ólafur Arnarson. Við fráfall Jóhannesar er margs að minnast. Leiðir okkar lágu fyrst saman árið 1986 er ég kom til starfa í viðskiptaráðu- neytinu, sem var í forsvari fyrir málefni neytenda. Jóhannes var á þeim tíma ötull talsmaður þess að auka þyrfti vernd neyt- enda í löggjöfinni og bæta þjón- ustu hins opinbera við neytend- ur. Neytendavitund og skilningur á málefnum neytenda var á þessum tíma takmörkuð. Jóhannes var þó óþreytandi í að vinna að almannahag og greindi mikilvægi þess að frjáls félaga- samtök neytenda hefðu sterkt hlutverk til að skapa nauðsyn- legt aðhald í þeirri takmörkuðu samkeppni sem var hér á landi á þeim tíma. Þeir tímar breytt- ust og stórir áfangar náðust með aukinni lagalegri vernd neytenda, sem hann hafði lengi barist fyrir. Með sívaxandi laga- legum réttindum neytenda leiddi hann í auknum mæli al- menna hagsmunagæslu fyrir neytendur. Mikilvægi þess að stjórnvöld tryggðu að lögbært eftirlit væri fullnægjandi til að framfylgja réttindum neytenda samkvæmt löggjöf sem hann og Neytendasamtökin höfðu svo lengi barist fyrir voru honum einnig hjartfólgin. Mikil vinna fylgdi starfinu sem krafðist þrautseigju, úthalds og góðra tengsla við umbjóðendur Neyt- endasamtakanna. Þessir mann- kostir Jóhannesar skiluðu miklu fyrir íslenska neytendur og hag heimila í landinu. Eftir langa samvinnu, samstarf og margvís- leg samskipti sem við höfum átt í gegnum tíðina er margs að sakna en eftir sitja góðar minn- ingar sem ber að þakka. Vil nú að leiðarlokum senda innilegar samúðarkveðjur til barna Jó- hannesar og fjölskyldna þeirra. Tryggvi Axelsson. Kær vinur okkar og fyrrver- andi yfirmaður, Jóhannes Gunn- arsson, er fallinn frá. Árið 1978 hóf Jóhannes fyrst afskipti af neytendamálum, þá sem for- maður Neytendafélags Borgar- fjarðar. Sex árum síðar var hann kosinn formaður Neyt- endasamtakanna og því starfi sinnti hann svo að segja sleitu- laust til ársins 2016. Starf formanns svo stórra hagsmunasamtaka er ekki alltaf auðvelt og oft getur þurft að sætta ólík sjónarmið. Í því hlut- verki sýndi Jóhannes kannski sínar sterkustu hliðar, en hann hafði einstakt lag á að miðla málum. Hann skipti sjaldan skapi og þá sjaldan hann reidd- ist var það vart greinilegt. Það var því gott að vinna með Jó- hannesi. Hann hafði einlægan áhuga á neytendamálum og reynsla hans og þekking var ómetanleg okkur sem unnum með honum. Neytendamálin sem Jóhannes barðist fyrir gegnum tíðina voru fjölmörg og of langt mál að rekja þau hér en fullyrða má að fáir, ef nokkrir, hafi lagt jafn mikið af mörkum fyrir bættum hag neytenda hér á landi og Jóhannes Gunnars- son. Jóhannes var almennt ekki mikið fyrir breytingar, í það minnsta ekki hvað varðar há- degismat. Síðustu árin hjá Neytendasamtökunum borðaði Jóhannes alltaf sama hádegis- matinn; danskt rúgbrauð með smjöri og osti, vanilluskyr og nýmjólk. Á föstudögum gerði hann að vísu vel við sig og fékk sér „föstudagsskammt“ sem samanstóð af kóki í gleri, rækjusamloku og súkku- laðimúffu. Ef Jóhannes brá sér til útlanda brást ekki að hann kæmi til baka með ostinn Gamle Ole í farteskinu, samstarfsfólk- inu til lítillar gleði. Mjólkur- fræðingurinn Jóhannes kunni að meta bragðmikla osta og lét því mótbárur vinnufélaganna ekk- ert á sig fá og benti því kurt- eislega á að þeir hefðu ekkert vit á góðum ostum. Jóhannes hafði líka gaman af hlusta á tón- list, en þó ekki hvað sem er. Pink Floyd og Rolling Stones voru í uppáhaldi, að ekki sé tal- að um Neil Young, sem Jóhann- es hafði sérstakt dálæti á. Það er óhætt að segja að Jó- hannes hafi ekki verið uppnum- inn yfir nýjustu tækni, en hann var með tíu ára gamalt stýri- kerfi í tölvunni sinni þegar hann lét af störfum og notaði 15 ára gamlan farsíma. Starfsfólk og stjórn samtakanna ákvað því að gefa Jóhannesi nýjan síma þeg- ar hann lét af störfum haustið 2016. Jóhannesi fannst hann þó ekkert hafa með slíkt að gera, enda var gamli góði síminn í ágætis standi. Nýja símann tók hann svo fyrst í gagnið fyrir nokkrum mánuðum, þegar lím- bandsviðgerðir dugðu ekki leng- ur á þann gamla. Jóhannes heimsótti skrifstof- una síðast í desember síðast- liðnum. Ekki grunaði okkur þá að kærkomnar heimsóknir hans yrðu ekki fleiri. Það eru forrétt- indi að hafa unnið með Jóhann- esi Gunnarssyni. Við minnumst hans sem góðs yfirmanns, kærs vinar og ötuls baráttumanns. Við sendum fjölskyldu hans og vinum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Starfsfólk Neytendasamtak- anna, Brynhildur, Hrannar, Ívar, Ingibjörg og Sigurlína. Með Jóhannesi Gunnarssyni er genginn einstakur maður. Hann er kunnastur fyrir störf sín að neytendamálum, þar sem hann lyfti grettistaki. Samferða- menn þekkja hann af ósérhlífni í þágu hagsmuna neytenda, sem hann mælti fyrir af framsýni um áratuga skeið. Eins og vænta má var honum hugleikinn réttur til traustra upplýsinga um allt sem afla þarf til lífsviðurværis og öryggis, til að velja á milli kosta á grundvelli haldgóðrar þekkingar. En hann horfði lengra en til vöruvals og verð- lags. Hann skynjaði einnig þræði milli markaða og um- hverfis. Jóhannes var jafnaðarmaður og talaði fyrir réttlátri skatt- heimtu í þágu grunnstoða sam- félagsins, en studdi af einurð opinn markað sem varinn væri öflugu samkeppnis- og gæðaeft- irliti. Undir forystu hans voru samtök neytenda fundvís á sér- hagsmuni sem draga úr sam- keppni og miðlun réttra upplýs- inga, ýmist í krafti eigin stærðar eða pólitískrar fyrir- greiðslu. Af þeim sökum upp- skar hann hörð viðbrögð stjórn- málamanna og hagsmunaaðila. En um leið tókst oft að þoka umræðu fram á við, opna orm- agryfjur og rýma fyrir bættri viðskiptamenningu. Neytenda- samtökin hafa lengi talað fyrir auknu frelsi í innflutningi. Vegna þess hefur Jóhannes ranglega verið talinn andstæð- ingur bænda. Kynni okkar af Jóhannesi sýna þvert á móti ríkan áhuga hans á landbúnaði, enda mjólkurfræðingur að mennt og starfaði um skeið sem slíkur í nánum samskiptum við bændur. Jóhannes skynjaði þörf ís- lenskra neytenda fyrir bætt að- gengi og kost á heilnæmum af-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.