Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16 – www.rafkaup.is
Ég nýt þess að vera á eftirlaunum,“ segir Guðrún Ásbjörg Stef-ánsdóttir, fyrrverandi námsráðgjafi og áfangastjóri í Mennta-skólanum á Ísafirði, en hún á 70 ára afmæli í dag.
„Ég er ekki að gera neitt af því sem ég starfaði við,“ segir Guðrún
en hún var einnig bæjarfulltrúi á Ísafirði um skeið. „Ég sinni fjöl-
skyldunni og hef spilað golf í 20 ár og stunda það á hverjum degi yfir
sumarið og þar sem ég get erlendis.
Við hjónin höfum gaman af því að byggja, breyta og bæta og höfum
tekið að okkur ýmis verkefni, eins og þegar fólk vill breyta baðinu hjá
sér. Maðurinn minn, Tryggvi Sigtryggsson, er vélvirki og kenndi
málmgreinar í Menntaskólanum á Ísafirði og ætli ég hafi ekki lært
eitthvað af honum. Við byggðum sumarbústað saman og gerðum upp
gamalt hús á Eyrinni og búum þar núna. Túristarnir halda að húsið sé
safn og hanga á gluggunum hjá okkur á sumrin,“ en húsið var byggt
árið 1908.
Guðrún ætlar að halda upp á daginn með fjölskyldu sinni. „Við er-
um svo mörg að við þurfum ekki fleira fólk til okkar.“ Börn Guðrúnar
og Tryggva eru Stefán Haukur í Grindavík, Jakob Ólafur á Ísafirði,
Heiðrún á Ísafirði og Ásta sem býr í Kanada. Barnabörnin eru fimm-
tán en af þeim eru tvö bónusbörn í Kanada, og barnabarnabörnin eru
sex plús tvö sem eru í Kanada, en Ásta býr þar. Stefán býr í Grindavík
en Jakob og Heiðrún á Ísafirði.
Golfarinn Guðrún á uppáhaldsgolfvellinum sínum, Tungudalsvelli.
Finnst gaman að
byggja, breyta og bæta
Guðrún Stefánsdóttir er sjötug í dag
R
únar Gíslason fæddist í
Reykjavík 20.1. 1948 og
ólst upp í Hólmgarði í
Bústaðahverfinu. Hann
var sjö sumur í sveit á
Skógum á Fellsströnd.
„Þar bjuggu bræðurnir Áskell og
Sigmundur Jóhannssynir, ásamt móð-
ur sinni, Júlíönu Sigmundsdóttur.
Þarna var gott að vera og gaman að ná
í skottið á gamla tímanum. Rafmagn
kom ekki á Fellsströndina fyrr en á
áttunda áratug síðustu aldar. Þar voru
því olíulampar, koksvél til að elda á og
ofn til húshitunar sem brenndi kolum
og timbri. Fjósið var torffjós. Að vísu
var ein forláta dráttarvél á bænum en
auk þess var slegið með hestasláttuvél.
Maturinn var óneitanlega svolítið ein-
hæfur og varla fiskur nema saltfiskur.
En þarna réð sómafólk húsum og
þarna leið manni vel.“
Rúnar gekk í Breiðagerðisskóla,
Rúnar Gíslason, dýralæknir í Stykkishólmi – 70 ára
Í Vín 2016 Frá vinstri: Christoph, Kaan, Björk, Sóley og Io, vinkona Sóleyjar, en á bak við er Jóhanna með Gabriel.
Gömul handbolta-
kempa með veiðidellu
Á HM 2014 Rúnar og Brynja með Hermanni og fjölskyldu hans í Fortaleza í
Brasilíu. F.v.: Hermann, Guðni Jóel, Rúnar, Andri Hrafn, Brynja og Rósa.
Gísli Kristjánsson, skipstjóri, frá Móa-
búð, Grundarfirði, er 90 ára á morgun,
sunnudaginn 21. janúar. Eiginkona
hans er Lilja Finnbogadóttir.
Ættingjar og vinir eru hvattir til að
kíkja í kaffi og samgleðjast Gísla á
Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík frá kl.
15.30 til 17.00 á afmælisdaginn,
sunnudaginn 21. janúar. Blóm og gjafir
eru vinsamlegast afþakkaðar.
Árnað heilla
90 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.