Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 55
MENNING 55 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 var markmiðið að undirstrika hár- prýði konungsdótturinnar í Kórinþu og þar með mögulega frjósemi hennar? Áhorfendur sitja beggja vegna sviðsins, sem Björn Bergsteinn Guðmundsson lýsir framúrskarandi vel. Í öðrum enda leikrýmisins mynda ógrynni ferðataska tröppur og athvarf fyrir Medeu í upphafi verks, en í hinum endanum er há- sæti Kreons umkringt fjölda hvítra styttna sem virka í senn þungar og brothættar. Vatnið sem þekur sviðs- gólfið stóran hluta sýningar nýttist með áhrifaríkum hætti til þvotta Medeu á barnafötum og siglinga pappírsskipa, en rýnir hafði iðulega áhyggjur af því að leikarar meidd- ust þegar þeir runnu á hálu gólfinu. Valgeir Sigurðsson skapar magn- aðan seið með tónaflóði sínu og hljóðvinna Garðars Borgþórssonar virkaði vel. Edda Björg Eyjólfsdóttir hafði góða nærveru í hlutverki fóstrunnar sem varar við hinu óhjákvæmilega en getur líkt og áhorfendur aðeins beðið þess sem verða vill. Lýsing hennar á dauðastríði konungsdótt- urinnar þar sem Lovísa Ósk Gunn- ardóttir engdist um var tilþrifarík. Sú ákvörðun að gera brúðina sýni- lega á sviðinu í stað þess að segja aðeins frá örlögum hennar ut- ansviðs virkaði vel og jók til muna samúðina með henni. Lovísa geislaði í dansinum, hvort heldur var í til- hugalífinu með Jasoni, í kröftugri brúðkaupssenu eða fyrrnefndu dauðastríði. Frammistaða Lydíu Katrínar Steinarsdóttur og Hilmars Mána Magnússonar í hlutverkum barnanna var aðdáunarverð, ekki síst með tilliti til ungs aldurs þeirra. Arnar Dan Kristjánsson sýndi ótrúlega fimi og jafnvægislist í hlut- verki hirðmanns og var trúverðugur sem hinn hrekklausi Egeifur sem finnur til með Medeu óafvitandi um myrk áform hennar. Jóhann Sigurð- arson fór létt með að túlka myndug- leika valdsmannsins, sem af sam- kennd leyfir Medeu að vera þann aukasólarhring í Kórinþu sem hún þarf til að fremja voðaverk sín. Textameðferð kórsins var prýðileg og vel virkaði að skipta línum milli einstakra radda í stað þess að láta alla þylja textann í einu. Hjörtur Jóhann Jónsson hafði góð tök á hlutverki Jasonar þrátt fyrir skamman undirbúning, en hann stökk sem kunnugt er inn í sýninguna með aðeins þriggja vikna fyrirvara. Í fyrsta samtali þeirra Medeu tókst honum vel að miðla al- gjöru skilningsleysi á reiði og sorg Medeu yfir svikum hans og á öðrum fundi þeirra var hann skemmtilega grunlaus gagnvart leikaraskap Me- deu sem snýr honum um fingur sér með lygum sínum og undirferli. Sem fyrr sagði hefði þurft að vinna betur með textameðferðina í loka- samtali Medeu og Jasonar sem varð of lágstemmt. Kristín Þóra Haraldsdóttir fær það vandasama hlutverk að túlka Medeu. Henni tókst afar vel að miðla reiði hennar, sorg og von- brigðum. Sú stigmögnun sem verð- ur á örvæntingu hennar eftir því sem tíminn til framkvæmda styttist var góð, en það hjálpaði henni ekki að eiga rólega senu á sviðinu með börnin enn á lífi stuttu eftir að hafa tilkynnt áhorfendum að hún væri að fara utansviðs til þess að drepa þau þá á þeirri stundu. Best tókst henni upp þegar hún var að leika auðmýkt sína gagnvart þeim Kreoni og Jas- oni og lék sér að þeim líkt og köttur að mús. Kynngikraftur Medeu er undir- strikaður með tilkomumiklum hætti í sýningunni þegar vatn byrjar að flæða upp um sviðsgólfið skömmu áður en hún fær skjól hjá Egeifi um miðbik verks. Rísandi vatnið minnir okkur á aðsteðjandi ógnir mann- kyns þar sem heimurinn eins og við þekkjum hann mun smám saman sökkva og tortímast vegna aðgerða- leysis okkar í loftslagsmálum. Vatn- ið skapar einnig sjónrænt sterka tengingu við flóttafólkið sem við heyrum sífellt fréttir af að leggi leið sína yfir opið haf á vanbúnum bát- um í leit að friðsamlegri og líf- vænlegri strönd. Lokamynd verks- ins þar sem Medea og Jason ræða saman yfir líkum barna sinna í flæð- armálinu fær áhorfendur sennilega til að velta vöngum yfir því hvort það sé ekki hræsnisfullt að fordæma morð einnar konu á tveimur börnum sínum í hefndarskyni meðan við skeytum engu um þær þúsundir barna sem myrtar eru víðs vegar um heiminn í nafni réttlætis og hefnda. Í fyrrnefndu viðtali við leikstjór- ann segist Harpa leggja „áherslu á sjónræna útfærslu og sterka líkam- lega nærveru sem virkjar undir- meðvitundina og þá visku sem hún býr yfir“. Vandasamt er að rýna í sýningu með undirmeðvitundina að leiðarljósi, en skoða má þær tilfinn- ingar og hugsanir sem uppfærslan framkallar. Þrátt fyrir mjög flotta umgjörð og heilt yfir áhrifaríkan leik höfðaði Medea hjá undirritaðri fremur til hugans en hjartans. Flott umgjörð „Þrátt fyrir mjög flotta umgjörð og heilt yfir áhrifaríkan leik höfðaði Medea hjá undirritaðri fremur til hugans en hjartans,“ segir í rýni um harmleikinn Medeu eftir Evripídes í uppfærslu Borgarleikhússins. Pönkrokksveitin Tappi tíkarrass var endurlífguð fyrir þremur ár- um eftir að hafa legið í dvala frá árinu 1983. Endurlífgunin heppnaðist svo vel að í fyrra kom út ný 14 laga breiðskífa, samnefnd sveitinni, og jafnframt sú fyrsta með Eyþóri Arnalds í hlutverki söngvara. Hljómsveitin var stofnuð árið 1981 og gekk Björk Guðmunds- dóttir nokkru síðar til liðs við hana. Björk er nú fjarri góðu gamni og verður því ekki með á tónleikum hljómsveitarinnar í kjallara Hard Rock Café í kvöld kl. 22. Sérstakur gestur Tapp- ans verður hins vegar Mike Pol- lock sem fær að þenja radd- böndin. Fögnuðu fimmtugu Auk Eyþórs skipa hljómsveitina bassaleikarinn Jakob Smári, gítar- leikarinn Eyjólfur Jóhannsson og trymbillinn Guðmundur Þór Gunn- arsson. Jakob segir þá Eyþór og Eyjólf hafa fagnað því að vera ný- orðnir fimmtugir yfir kvöldverði fyrir þremur árum. Kviknaði þá sú hugmynd að endurvekja Tappann. „Við sömdum svo mörg lög þeg- ar hljómsveitin var að byrja, á fyrstu mánuðunum og áður en Björk gekk til liðs við okkur. Hug- myndin var að athuga hvort við myndum eitthvað af þeim og spila þau okkur til skemmtunar. Við mundum ótrúlega mörg lög og fór- um að hittast reglulega. Þegar við vorum búnir að rifja upp langaði okkur að gera eitthvað nýtt þann- ig að við fórum að semja nýtt efni. Svo þróaðist þetta og við fórum að taka upp og enduðum með 14 lög,“ segir Jakob. Lögin rötuðu á fyrr- nefnda plötu, þar af 10 ný. „Þetta er aðeins rokkaðra,“ svarar Jakob þegar hann er spurður að því hvort nýju lögin séu í sama anda og gömlu Tappa- lögin. Textarnir hafi lítið breyst en þó kannski örlítið. „Þeir endur- spegla það sem menn eru að gera í daglegu lífi. Nú er t.d. eitt lag sem heitir „Spak“. Spak er nýyrði yfir bakspik og það er náttúrlega vandamál sem menn eru að glíma við í dag,“ segir Jakob kíminn. helgisnaer@mbl.is Tappinn glímir við bakspik  Tappi tíkarrass heldur tónleika á Hard Rock Café Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas. Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Allra síðustu sýningar leikársins! Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Lau 20/1 kl. 20:00 47. s Fös 2/2 kl. 20:00 49. s Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Sun 28/1 kl. 20:00 48. s Lau 3/2 kl. 20:00 50. s Draumur um eilífa ást Medea (Nýja sviðið) Mið 24/1 kl. 20:00 6. s Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Sun 28/1 kl. 20:00 7. s Fim 1/2 kl. 20:00 9. s Stuttur sýningatími. Allra síðustu sýningar! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 28/1 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Allra síðustu sýningar. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 20/1 kl. 13:00 5. s Sun 28/1 kl. 13:00 8. s Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 6. s Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Lau 27/1 kl. 13:00 7. s Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Búðu þig undir dularfullt ferðalag! Hafið (Stóra sviðið) Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 10.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 13.sýn Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Lau 20/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 27/1 kl. 13:00 5.sýn Fim 8/2 kl. 13:00 7.sýn Lau 20/1 kl. 15:00 4.sýn Lau 27/1 kl. 15:00 6.sýn Fim 8/2 kl. 15:00 8.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Lau 20/1 kl. 20:00 Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Lau 20/1 kl. 22:30 Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30 Sun 21/1 kl. 20:00 Fös 2/2 kl. 22:30 Fim 15/2 kl. 20:00 Fim 25/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 20:00 Fös 26/1 kl. 20:00 Lau 3/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 22:30 Fös 26/1 kl. 22:30 Fim 8/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 20:00 Lau 27/1 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Lau 27/1 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 22:30 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.