Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 60
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 20. DAGUR ÁRSINS 2018
Í LAUSASÖLU 1.050 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Jón og Hildur Vala selja Hagamelinn
2. Bara leiðindaveður í kortunum
3. Aldrei aftur Allen
4. Trúi ekki að neinn langi að rífa …
Víóluleikarinn Ásdís Valdimars-
dóttir og hollenski píanóleikarinn
Marcel Worms flytja verk fyrir víólu
og píanó eftir tónskáldin Mieczyslaw
Weinberg, Felix Mendelssohn, Dmitri
Shostakovich og Dick Kattenburg á
fyrstu Tíbrár-tónleikum ársins í Saln-
um í Kópavogi í dag kl. 16.
Víóla og píanó í Tíbrá
Tónlistarhóp-
urinn Camer-
arctica heldur
tónleika undir
merkjum Kamm-
ermúsíkklúbbsins
á morgun í
Norðurljósasal
Hörpu kl. 17. Á
efnisskránni eru
þrjú sjaldheyrð verk: kvartett fyrir
klarínettu og strengjatríó eftir
Krzysztof Penderecki, strengjakvar-
tett nr. 2 eftir Arnold Schönberg og
Capriccio fyrir strengjakvartett eftir
Felix Mendelssohn.
Flytja þrjú sjaldheyrð
verk í Norðurljósum
Í Galleríi Harbinger, Freyjugötu 1 í
Reykjavík, verður í dag kl. 18 opnuð
sýningin Góðan dag og nótt og er hún
hluti af sýningaröðinni 2 become 1 en
á hverri sýningu raðarinnar eru tveir
listamenn fengnir til að vinna saman
sem einn. Listamennirnir að þessu
snni eru Baldvin Einarsson og Val-
gerður Sigurðar-
dóttir sem eru
bæði förunautar í
listinni og lífinu
og „koddahjalið
veitir innsýn í hug-
arheima sem öðr-
um eru luktir“, eins
og það er orðað
í tilkynningu.
Tvö verða eitt
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 2-11 m/s. Bjartviðri á Suður- og Suðvesturlandi. Létt-
ir til eystra, en snjókoma eða él fyrir norðan, einkum við ströndina. Frost 0 til 10 stig.
Á sunnudag Austanátt, víða 10-18 m/s síðdegis en 20-25 syðst. Skýjað á landinu og
snjókoma suðaustantil. Frost 1-10 stig, en hiti um frostmark syðra. Á mánudag Norð-
austan 8-15 og él, en þurrt syðra og vestra. Frost yfirleitt 0-5 stig. Á þriðjudag Norðan-
átt og snjókoma eða él nyrðra og eystra, en þurrt og bjart á Suður- og Suðvesturlandi.
Grindvíkingar rótburstuðu nágranna
sína í Keflavík, 85:60, í 14. umferð
Dominos-deildar karla í körfubolta í
Mustad-höllinni í gærkvöld. Grindvík-
ingar tóku heldur betur stórt skref í
átt að úrslitakeppninni með frábærri
frammistöðu. Höttur er enn án sigurs
eftir tap fyrir Val, 102:94, í jöfnum
leik á Hlíðarenda þar sem Höttur var
yfir seint í leiknum. »2-3
Keflavík skoraði aðeins
60 stig í Grindavík
„Ég verð í hóp en ég get
náttúrlega ekki neitt. Maður
þarf alveg mánuð í það.
Þetta er bara redding nú
þegar ein er ólétt, að fá
aðra beint úr barneignar-
leyfinu,“ segir handknatt-
leikskonan Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir sem snýr
aftur á völlinn í dag, tveim-
ur mánuðum eftir að hafa
átt sitt annað barn, og er
komin aftur til Vals. »4
Verð í hóp en get
náttúrlega ekkert
„Ég kann rosalega vel við mig hjá
Barcelona. Allar aðstæður eru full-
komnar. Segja má að jólafríið hafi
komið aðeins of snemma því ég var
akkúrat búinn að koma mér fyrir þeg-
ar ég flaug í burtu,“ segir Aron Pálm-
arsson, landsliðsmaður í handknatt-
leik, í samtali við
Morgunblaðið þar
sem rætt er við
hann um lífið í
Barcelona en Ar-
on samdi seint á
síðasta ári við
Barcelona. »1
Aðstæður eru full-
komnar hjá Barcelona
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Rétt eins og München í Þýskalandi
er Ísland víða þekkt fyrir þrjú B –
Björk, Bláa lónið og Bæjarins beztu
pylsur. Í tæplega mánuð fyrir jól
fengu gestir á jólamarkaðnum í
Strassborg í Frakklandi tækifæri til
þess að fá sér Bæjarins beztu pylsur
með öllu og segir Guðrún Krist-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
fjölskyldufyrirtækisins, sem komst
alfarið í eigu Jóns Sveinssonar, afa
hennar, 1937, að landkynningin hafi
heppnast sérlega vel og því geti ver-
ið að framhald verði á í þessa veru.
Pylsustaðurinn Bæjarins beztu
pylsur við Tryggvagötu er einn vin-
sælasti ef ekki vinsælasti veitinga-
staður landsins og eitt helsta kenni-
leiti Reykjavíkur. Þar má gjarnan
sjá viðskiptavini standa í löngum
röðum til að fá sér eina með öllu.
Eða fleiri. Guðrún þurfti því ekki að
hugsa sig lengi um þegar boð kom
um að vera með á nýliðnum jóla-
markaði í Strassborg, en þar voru ís-
lensk fyrirtæki heiðursgestir, þar á
meðal Lýsi, Reykjavík Distillery og
Handprjónasambandið, auk þess
sem íslensku jólasveinarnir voru á
vappi.
Skemmtilegur aðfangadagur
„Þetta var óvenjulegt tækifæri en
skemmtilegt og sérstaklega var
gaman að standa vaktina á aðfanga-
dag,“ segir Guðrún. „Vissulega var
þetta fyrst og fremst landkynning,
en um leið kynning á vörunum okkar
og íslensku pylsurnar hafa sérstöðu
vegna þess að þær eru búnar til úr
lambakjöti. Mikil pylsumenning er í
Strassborg og það kom okkur á
óvart hvað pylsunum okkar var vel
tekið, en flestir báðu um eina með
öllu. Sumir fengu sér allt að fimm
pylsur á aðfangadag.“
Guðrún segir að þau hafi oft lent í
því í Strassborg að afgreiða fólk sem
hafði kynnst Bæjarins beztu á Ís-
landi. „Fólk kom sérstaklega til okk-
ar vegna þess að það hafði keypt
pylsur hjá okkur á Íslandi. Það vissi
að hverju það gekk.“
Jón Sveinsson, afi Guðrúnar, féll
ungur frá og þá tóku Guðrún, amma
hennar, og faðir við keflinu. Sjálf
hefur hún verið við stjórnina í um 30
ár og Baldur Ingi Halldórsson, son-
ur hennar, er óðum að taka við
rekstrinum. Fyrirtækið er með út-
sölustaði á fimm stöðum í Reykjavík
og Kópavogi og er auk þess með
handvagna sem eru notaðir við sér-
stök tækifæri. Einn slíkur var með í
för í Strassborg.
Guðrún segir að margt hafi breyst
á átta áratugum. „Pylsurnar eru allt
öðruvísi núna en þær voru fyrir 80
árum; brauð og sósur voru ekki á
boðstólum í byrjun og gæðin hafa
aukist jafnt og þétt.“
Þótt vel hafi tekist til í Strassborg
segir Guðrún að þrátt fyrir að pylsur
flokkist undir unna vöru sé erfitt að
fara í útflutning á landbúnaðar-
vörum, fyrst og fremst vegna kostn-
aðar. „Við erum því í ákveðnum átt-
hagafjötrum en erum opin fyrir öllu
og höfum augun opin.“
Ein með öllu í Strassborg
Bæjarins beztu
pylsur í hópi
heiðursgesta
Bæjarins beztu í Strassborg Guðrún Kristmundsdóttir naut þess að afgreiða viðskiptavini í Frakklandi.
Biðröð Baldur Ingi Halldórsson við afgreiðslu á markaðnum í Strassborg.