Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralage inn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira, en bara ódýrt
Hálkubroddar
ensínbrúsar
last/Blikk
, 10, 20L
asaljós og lugtir,
0 gerðirÍseyðir-spray á
hélaðar rúður
frá 1.495
r
V
Bílrúðusköfur
frábært úrval
Snjóskóflur
margar gerðir
frá 1.999
Startkaplar
985
Snjósköfur
margar gerðir
frá 1.495
frá 495
Strekkibönd
2024 SLT
L iðLé t t ingur
Verð kr
2.790.000
Verð með vsk. 3.459.600
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfesting í þjóðvegum hefur verið
sögulega lítil síðustu ár. Eftir því
sem nauðsynlegu viðhaldi er slegið
lengur á frest þeim mun dýrara
verður að vinna það upp.
Þetta má lesa úr greiningu Sam-
taka iðnaðarins á stöðu vegamála.
Samtökin
skoða meðal ann-
ars fjárfestingu í
þjóðvegakerfinu
aftur til 1964 sem
hlutfall af lands-
framleiðslu.
Leiðir saman-
burðurinn í ljós
að fjárfestingin
árin 2010-2016
var undir meðal-
talinu þessa rúmu
hálfu öld. Var fjárfestingin árin 2011
til 2016 raunar minni sem hlutfall af
landsframleiðslu en nokkurt annað
ár frá 1964.
Viðhaldið líka dregist saman
Þá var fé til viðhalds og þjónustu í
þjóðvegakerfinu borið saman sem
hlutfall af landsframleiðslu á sama
tímabili. Þar er svipaða sögu að
segja. Viðhaldsfé áranna 2010-2016
er undir meðaltalinu á tímabilinu frá
1964. Það er hins vegar hlutfallslega
meira en fjárfestingin sömu ár. Sam-
drátturinn var ekki jafn mikill.
Samtökin skoðuðu jafnframt
framlög ríkisins til fjárfestingar, við-
halds og þjónustu í þjóðvegakerfinu
árin 2000-2016 á hverja milljón ek-
inna km. Tölur eru á verðlagi 2017.
Reyndust framlögin um 9 millj-
ónir króna á hverja milljón km árið
2016. Hefur sú upphæð verið um 9
milljónir frá 2011. Til samanburðar
er meðaltalið frá árinu 2000 um 12
milljónir. Fjallað var um samspil ek-
inna kílómetra og viðhaldsþarfar á
vegum í samtali við Hrein Haralds-
son vegamálastjóra í Morgunblaðinu
á laugardaginn var. Þar sagði
Hreinn slit og skemmdir á yfirborði
vega í nokkuð beinu hlutfalli við um-
ferð.
Fram kom í greininni að sam-
kvæmt talningu Vegagerðarinnar
fóru að meðaltali rúmlega 161 þús-
und bílar um þrjú mælisnið á höfuð-
borgarsvæðinu í desember. Það er
18% meira en 2015 og 23% meira en
2007, sem þótti mikið umferðarár.
Sagði Hreinn að vegna met-
umferðar á svæðinu gæti tekið
lengri tíma en ella að vinna upp við-
haldsþörf á vegum. Óvíst sé hvort
það takist næstu fjögur árin.
Ekki fylgt umferðinni
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
(SI), tekur undir með vegamála-
stjóra að aukin umferð auki við-
haldshallann og mikil þörf sé á ný-
fjárfestingu. Miðað við núverandi
framlög sé ástand vega að versna og
sáralítið unnið á viðhaldsþörf.
Sigurður segir framlög til vega-
samgangna ekki hafa fylgt auknu
umferðarmagni frá árinu 2008.
Fólksfjölgun, fjölgun ferðamanna,
fjölgun bíla og aukin efnahagsumsvif
hafi lagst á eitt um að skapa mikla
uppsafnaða viðhalds- og fjárfesting-
arþörf. Það auki vandann að nýfjár-
festingar séu í lágmarki.
„Að óbreyttu mun skortur á við-
haldi og nýjum fjárfestingum á sviði
vegamála standa áframhaldandi
hagvexti fyrir þrifum. Hagstofan
spáir um 17% hagvexti fram til árs-
ins 2023. Það er ljóst að erfitt verður
að knýja hagvöxt á innviðum í lélegu
ásigkomulagi, þar með talið þjóð-
vegakerfinu,“ segir Sigurður.
Hann bendir á skýrslu Samtaka
iðnaðarins og Félags ráðgjafarverk-
fræðinga um innviði. Þar komi fram
að árleg þörf til endurnýjunar bund-
inna slitlaga sé um 3 milljarðar á ári.
Uppsöfnuð þörf sé um 11 milljarðar.
Þetta geri 26 milljarða næstu 5 ár.
Milljarða þarf í malarvegina
Þá kosti árlegt viðhald malarvega
um 1,3 milljarða á ári og uppsafnað
viðhald um 2 milljarða. Þetta geri
um 9 milljarða næstu 5 ár.
Jafnframt kosti styrkingar og
endurbætur á hættulegum vegum
um 3 milljarða á ári. Uppsöfnuð þörf
sé um 50 milljarðar. Þetta geri 65
milljarða næstu 5 ár. Loks kosti við-
hald brúa 1,4 milljarða á ári, eða 7
milljarða næstu 5 ár.
„Uppsöfnuð viðhaldsþörf er því
samanlagt metin meiri en 60 millj-
arðar og nauðsynleg fjárveiting
vegna reglubundins viðhalds árlega
meira en 8 milljarðar,“ segir Sig-
urður. Leggja þurfi meira en 20
milljarða á ári í málaflokkinn næstu
5 ár til að vinna á vandanum. Það
eru alls yfir 100 milljarðar króna.
Hann segir að í efnahagslegu tilliti
sé heppilegt að fara í framkvæmdir.
Mildar áhrif niðursveiflunnar
Með því sé bæði dregið úr niður-
sveiflunni sem spáð sé framundan og
byggt undir hagvöxt til framtíðar.
„Gerðar hafa verið margar rann-
sóknir á tengslum hagvaxtar og fjár-
festingum í vegakerfi. Niðurstöður
þeirra eru að fjárfesting í vegainn-
viðum auki hagvöxt marktækt.
Ávöxtun þjóðfélagsins af breyttri
stefnu í vegamálum gæti því orðið
töluverð,“ segir Sigurður Hann-
esson.
Viðhaldsleysið bitnar á hagvexti
Samtök iðnaðarins telja skort á viðhaldi og fjárfestingu í vegakerfinu munu bitna á hagvexti
Fjárfesting síðustu ára langt undir meðaltalinu frá 1964 100 milljarða þörf næstu fimm ár
Fjárfesting í þjóðvegakerfinu 1964-2016
Sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu
1,75%
1,5%
1,0%
0,75%
0,5%
0,25%
0%
Fjárfesting, % VLF Meðaltal
1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015
Heimild: SI
Fjárframlög til þjóðvegakerfis 2000-2016
Krónur á hvern ekinn kílómetra*
20
15
10
5
0
kr./km
Fjárfesting
Viðhald og þjónusta
Meðaltal, 12 kr.
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16
999999
13
17
21
12
1011
13
16
1212
13
*Á verðlagi 2017. Heimild: SI.
Viðhaldsfé í þjóðvegakerfinu 1964-2016
Sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu
0,7%
0,6%
0,5%
0,4%
0,3%
0,2%
0,1%
0%
Viðhald, % VLF Meðaltal
1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015
Heimild: SI
Vísitala umferðar á höfuðborgarsvæðinu
150
140
130
120
110
100
90
2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017
*Hafnarfjarðarvegur sunnan Kópavogslækjar, Reykjanesbraut við Dalveg
í Kópavogi og Vesturlandsvegur (Nesbraut). **2017 er skv. spá SÍ.
Summa ársdagsumferðar fyrir þrjú mælisnið 2005 til 2017*
Heimild: Vegagerðin
Vísitala umferðar, 2005=100
Vísitala vergrar landsframleiðslu, 2005=100**
Vísitala umferðar
139,5
Sigurður
Hannesson
Sunna Elvira Þorkelsdóttir, sem
lamaðist eftir fall á Malaga á Spáni,
á dögunum fær ekki vegabréf sitt
frá lögreglu þar eftir að hafa verið
úrskurðuð í farbann. Eiginmaður
hennar var úrskurðaður í gæslu-
varðhald hér á landi í síðustu viku í
tengslum við fíkniefnasmygl. Áður
var hann í haldi spænsku lögregl-
unnar vegna rannsóknar á falli
Sunnu, en var látinn laus þegar
málavextir í því tilviki voru orðnir
ljósir.
„Sunna er ekki með stöðu grun-
aðs eða vitnis í einu eða neinu,“ seg-
ir Jón Kristinn Snæhólm, talsmaður
Sunnu, sem bætir við að af þeirri
ástæðu skilji hann ekki hvers vegna
skjólstæðingur sinn sé í farbanni.
Sjálfur er Jón Kristinn á leiðinni til
Spánar til aðstoðar, halds og
trausts.
Sunna fær ekki vegabréfið í Malaga