Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 14

Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. BAKSVIÐ Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is „Það er tuttugu mínútna seinkun,“ tilkynnir starfsmaður flugfélagsins Ernis hópi fólks sem saman kominn er á Reykjavíkurflugvelli í élja- muggu í gærmorgun. Ferðinni er heitið á Gjögur til að sitja hrepps- nefndarfund í Árneshreppi. Það er ófært landleiðina, eins og iðulega á þessum árstíma. Oft er ekki mokað vikum saman frá byrjun janúar og fram í mars. Því er flogið tvisvar í viku, þegar veður leyfir, og rutt frá Gjögri inn í Norðurfjörð. Oddviti hreppsins nýtur ekki góðs af því. Hann er búsettur í Djúpuvík, sunnan Gjögurs, og enginn er moksturinn frá hans heimahögum. Því þarf hann að mæta til fundarins, sem fram fer á hreppsskrifstofunni í Norðurfirði, á vélsleða. Ferðin tekur 40 mínútur. Hreppsnefndin á því ekki að venj- ast að áhorfendur séu að fundum hennar. En augu margra hafa beinst að Strandamönnum síðustu mánuði eftir að skriður komst á hugmyndir um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði. Nokkrir sérfræðingar í skipulags- málum hafa verið boðaðir á fundinn en að auki hefur Sigurður Gísli Pálmason, aðaleigandi IKEA á Ís- landi, ákveðið að mæta við annan mann. Hann hefur látið sig málefni Árneshrepps varða að undanförnu og meðal annars boðist til að greiða fyrir mat á kostum virkjunar annars vegar og verndunar hins vegar. Á hreppsnefndarfundinum á einmitt að taka afstöðu til boðs hans. Það birtir loksins til í borginni og hópurinn að sunnan kemst loks í loft- ið. Eftir tæplega hálftíma flug skýj- um ofar rofar skyndilega til og til- komumiklir tindar fjallanna á Ströndum í fögrum vetrarskrúða birtast og bjóða aðkomufólkið vel- komið til afskekktustu byggðar Ís- lands. Mjólkin kom með flugi Ólafur Valsson, sem nýverið tók við rekstri Kaupfélagsins í Norð- urfirði, er kominn á flugvöllinn til að taka á móti vörum. Vika er síðan þær bárust síðast. Hann fagnar því mjólkinni sérstaklega. Ýmislegt ann- að kemur með flugi, m.a. pakkar með nýju parketi. Einhver er að fara í endurbætur í sveitinni. Ólafur mun svo líka bera út póstinn, sem kom að sunnan, til sveitunga sinna. Varaoddvitinn hefur það hlutverk að ryðja veginn frá Norðurfirði og að Gjögri. Hann hefur einnig það hlut- verk að blása snjónum af flugvell- inum. Í Árneshreppi hafa nefnilega flestir marga hatta því aðeins rúm- lega 30 manns hafa þar orðið vetur- setu. Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti tek- ur á móti hersingunni á hrepps- skrifstofunni sem er í sama húsi og Kaupfélagið. Húsnæðið er lítið og návígið mikið þegar fimm hrepps- nefndarmenn og þrír sérfræðingar setjast sín hvorum megin við skrif- borðið. Aðrir gestir verða að sitja frammi og fylgjast með í gegnum dyragættina. Skömmu eftir að fundurinn hefst spangólar hundur fyrir utan gluggann. Annars ríkir kyrrðin ein í fjallasalnum sem umlykur byggðina í Norðurfirði. Unnið að samfélagsrannsókn Tvennt er á dagskrá fundar hreppsnefndar; skipulagstillögurnar og boð Sigurðar Gísla um kostamat. Taka þarf tillit til athugasemda og umsagna sem bárust um tillögu að breytingu á aðalskipulagi og deili- skipulagstillögu. Í þeim er fyrst og fremst þrennt lagt til: Að leggja 25 kílómetra langa vinnuvegi um virkj- unarsvæðið, staðsetningu efnisnáma og vinnubúða við Hvalá. Nýverið lagði VesturVerk, sem áformar Hvalárvirkjun, til að vinnubúðirnar gætu eftir að framkvæmdum lýkur sinnt hlutverki gestastofu. Hrepps- nefnd hefur enn ekki tekið afstöðu til þess boðs frekar en annarra verk- efna sem VesturVerk hefur boðist til að fara í verði af virkjun. Fulltrúi frá Verkís, sem gerði skipulagstillögurnar fyrir sveitarfé- lagið og vann skýrslu um mat á um- hverfisáhrifum Hvalárvirkjunar fyr- ir VesturVerk, kynnir á fundinum samantekt á athugasemdum sem bárust og viðbrögð við þeim. At- hugasemdirnar lúta m.a. að því að samfélagsleg áhrif virkjunar hafi ekki verið metin nægilega og þá lýstu margir áhyggjum sínum af raski vegna lagningar vega og efn- isnáma, sérstaklega í ljósi þess að ekkert framkvæmdaleyfi fyrir virkj- un hefur enn verið gefið út. Í máli fulltrúans kemur fram að brugðist hafi verið við athugasemdum af hálfu VesturVerks með því að fá óháðan aðila til að rannsaka samfélags- áhrifin. Þá sé skerpt á ýmsum atrið- um varðandi frágang og umgengni við veglagninguna í viðbótum við skipulagstillögurnar sem nú bíða af- greiðslu. Fundarmenn ræða um at- hugasemdirnar sem bárust, m.a. þá sem kom frá Landvernd þar sem gagnrýndar voru „ámátlegar til- raunir vinnslufyrirtækis til að bera fé á hreppinn“ í formi vilyrða um fjármögnun innviðauppbyggingar verði af virkjun. Eva segir Land- vernd að sínu mati beita mjög vafa- sömum aðferðum við að koma höggi á fólk. Hreppsnefndarmaðurinn Guðlaugur Ágústsson tekur undir þetta og bendir á að ef Landvernd þyki skipulagstillögurnar brjóta í bága við náttúruverndarlög þá hljóti samtökin að fara í mál út af því á grundvelli þeirra laga. Enn margt ófrágengið Tveir hreppsnefndarmenn vilja fresta afgreiðslu tillagnanna. Það eru þau Hrefna Þorvaldsdóttir og Ingólfur Benediktsson varaoddviti. Þau tvö eru andvíg virkjun en meiri- hluti hreppsnefndar hafnar þeirri til- lögu og svo fer að skipulagstil- lögurnar eru samþykktar með þremur atkvæðum. Hrefna og Ing- ólfur leggja fram minnisblað þar sem fram kemur m.a. að ljóst sé að virkjunaráformin séu mjög róttækt inngrip í náttúru og samfélag Árnes- hrepps og mikilvægt sé að kanna kosti þess að stofna þjóðgarð eða annað verndarsvæði snemma í ferl- inu. Um það fjallaði einmitt síðasti dagskrárliður fundarins: Boð Sig- urðar Gísla um kostamat á virkjun og verndun. Hrefna og Ingólfur eru eins og fyrr á öndverðum meiði við aðra nefndarmenn um afgreiðslu þeirrar tillögu. Tillaga oddvitans um að hafna boðinu „að svo stöddu“ er samþykkt. Óvíst er hins vegar hvort það mun standa áfram. Fundi er slitið og aðkomufólk flýt- ir sér út á flugvöll þar sem flugvél Ernis bíður þeirra, klukkustund lengur en áætlun gerir ráð fyrir. Eva oddviti fer hins vegar á vélsleðanum aftur til Djúpavíkur. Enn er margt ófrágengið áður en koma mun að umræðu hrepps- nefndar Árneshrepps um útgáfu framkvæmdaleyfis fyrir Hvalár- virkjun. Ljóst er að af því verður ekki fyrr en eftir kosningar og þá mun sá kaleikur hafna í höndum nýrrar hreppsnefndar. Klofin um bestu framtíðarkosti Enn eitt skrefið í undirbúningi Hvalárvirkjunar var stigið á fundi hreppsnefndar Árneshrepps í gær er skipulagstillögur vegna virkjunar voru samþykktar. Fimm nefndarmenn í fámennasta sveitarfélagi landsins bera þá ábyrgð að ákveða framhaldið. Þrír þeirra eru fylgjandi virkjun en tveir eru á móti. Morgunblaðið/Sunna Mikið návígi Hreppsskrifstofan í Árneshreppi var þétt setin í gær og þurftu áheyrendur að sitja frammi og gægjast inn í gegnum dyragættina. Morgunblaðið/Sunna Fjöll í vetrarskrúða Reykjarfjarðarkamb, sem ævinlega er kallaður Kamb- urinn, ber tignarlega við himin við byggðina á Gjögri. Tveir af fimm hreppsnefndarmönnum í Árneshreppi telja farsælast að meta kosti virkjunar annars vegar og verndunar hins vegar fyrir sveitarfélagið. Þeir vildu því samþykkja tillögu Sigurðar Gísla Pálmasonar sem boðist hef- ur til þess að greiða fyrir slíkt kostamat sem talið er taka 2-3 mánuði. Sig- urður Gísli hefur stungið upp á því að skoðaðir verði kostir þess að stofna verndarsvæði í stað virkjunar og eru nefndarmennirnir tveir, Hrefna Þor- valdsdóttir og Ingólfur Benediktsson, sömu skoðunar. Þau telja einboðið áður en lengra verði haldið að meta þann valkost að vernda svæðið sem annars færi undir virkjanavegi, lón, stíflur og námur „með óafturkræfri eyðileggingu óbyggðra víðerna og fossa sem njóta verndar“. Meirihluti nefndarinnar hafnaði hins vegar boði Sigurðar Gísla og sagði Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti að þótt boðið væri góðra gjalda vert væru „kannski ekki möguleikar á því að gera þetta núna“. Hún benti einnig á að landeigandi Ófeigsfjarðar væri andvígur verndarsvæði. Í umræðum um boðið sagði hún að það vistspor sem sett yrði á landið með Hvalárvirkjun væri „svo lítið, svo örlítið“. Sagði hún að taka þyrfti upp aðalskipulag ef farið yrði í kostamat. Ing- ólfur sagði svo ekki vera. Einnig kom fram á fundinum að þegar stendur til að breyta aðalskipulagi á ný til að skilgreina nánari útfærslu sjálfrar virkj- unarinnar. Vistsporið svo lítið, svo örlítið HÖFNUÐU BOÐI UM KOSTAMAT Á VIRKJUN OG VERNDUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.