Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 20

Morgunblaðið - 31.01.2018, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2018 Undanfarið hefur verið töluverð umræða um ráðningar dómara og sýnist sitt hverjum. Hæst ber gagnrýni á annars vegar störf lög- skipaðra dómnefnda sem láta dómsmála- ráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti dómara og hins vegar í hve ríkum mæli ráð- herra sé bundinn af þeirri umsögn við skipan dómaranna. Meðal vinnu- skjala dómnefndar sem fjallaði um umsækjendur um fimmtán embætti landsréttardómara er ítarlegt töflu- reikniskjal sem ýmsir hafa sett út á. Menn lýsa sig ósammála sund- urliðun og vægi einstakra þátta, telja stigagjöf til umsækjenda ranga og heildarniðurstöðuna jafnvel að engu hafandi. Þar með sé ekki um annað að ræða en að ráðherra, sem fer með stjórnarskrárvarið skip- unarvald, taki málið í sínar hendur og meti upp á nýtt. Gott og vel. Við búum í réttarríki og nú hefur æðsti dómstóll þjóð- arinnar, Hæstiréttur Íslands, tekið nokkra afstöðu til þessara álitaefna í dómum sem kveðnir voru upp 19. desember 2017 í málum sem tveir umsækjenda um dómaraembætti við Landsrétt höfðuðu gegn íslenska ríkinu vegna meðferðar ráðherra á umsóknum þeirra. Báðum umsækj- endum voru dæmdar miskabætur. Í báðum dómunum er fallist á tiltek- inn annmarka á áliti dómnefndar en þó svo óverulegan að hann gæti einn og sér ekki gefið tilefni til þess að vikið yrði frá dóm- nefndarálitinu. Eftir að hafa rakið meðferð ráðherra á málinu seg- ir ennfremur í um- ræddum dómum: „Að gættum þeim kröfum sem gera bar sam- kvæmt framansögðu var rannsókn ráðherra ófullnægjandi til að upplýsa málið nægi- lega, svo ráðherra væri fært að taka aðra ákvörðun um hæfni umsækjenda en dómnefnd hafði áð- ur tekið. Var málsmeðferð ráðherra að þessu leyti því andstæð 10. gr. stjórnsýslulaga.“ Almennt er það vandaverk fyrir þá sem fara með veitingarvald op- inberra starfa að rækja þá megin- skyldu að velja ætíð hæfustu um- sækjendurna. Sjónarmið sem byggja ber á eru margþætt og mats- kennd, rannsóknarskyldan rík og margt orkar tvímælis. Hvort sem fólki líkar betur eða verr verður samt haldbær heildarsamanburður naumast framkvæmdur nema með einhvers konar tölulegum kvarða eða jafngildi hans, einhverri röðun metinna hæfileika. Við þekkjum þetta vel úr skólakerfinu þar sem reiknaðar eru út meðaleinkunnir og bornar saman ef þurfa þykir. Sum hafa brautskráðst með ágætis- einkunn en önnur ekki hvað sem öðrum kostum líður. Jafnvel þótt einstakar einkunnir séu gefnar í bókstöfum er þeim varpað í tölugildi þegar bera skal saman heildarnáms- árangur. Excelskjöl geta verið ágæt til síns brúks. Dómaframkvæmd og álit umboðsmanns Alþingis vegna ráðninga í opinber störf fela ótví- rætt í sér viðurkenningu þeirrar að- ferðar að beita stigagjöf og tölu- legum samanburði við mat á umsækjendum. Enda hafa slíkar að- ferðir unnið sér sess í þeim hluta mannauðsfræða sem lúta að ráðn- ingum en að sjálfsögðu þarf að vanda beitingu þeirra og haga eftir eðli máls hverju sinni. Einmitt þess vegna tíðkast hæfnisnefndir af ýmsu tagi, ýmist lögboðnar eða ekki, sem hafa það hlutverk að létta rannsókn- arskyldu veitingarvaldshafans, ekki síst í tilvikum þar sem mikillar sér- fræðiþekkingar er krafist. Því miður eru þess dæmi að veit- ingarvaldshafi stytti sér leið í ráðn- ingalögfræðinni og láti hafa sig í að beita einhvers konar persónulegri „mér finnst“ lögfræði til að komast að niðurstöðu. Hæstiréttur hefur kveðið upp úr um ólögmæti og tak- mörk þess háttar vinnubragða. Fyr- ir almenning stoðar lítt að vera ósammála æðsta dómstóli. Niður- stöður réttarins eru ekki valkvæðar og því sætir undrum það innlegg dómsmálaráðherra í umræðuna að hún sé annarrar skoðunar. Réttur(,) reikningur og ráðningalögfræði Eftir Lárus H. Bjarnason »Dæmi eru um að veitingarvaldshafi stytti sér leið í ráðn- ingalögfræðinni og láti hafa sig í að beita ein- hvers konar persónu- legri „mér finnst“ lög- fræði Lárus H. Bjarnason Höfundur er rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. larushb@mh.is Það kom mér á óvart, þegar ég flutti til Ís- lands í fyrra, að sjá í umræðum hér margar sömu ranghugmynd- irnar og grassera í upp- runalandi mínu, Bret- landi. Þar í landi virðast sumir blaðamenn og jafnvel heilu dagblöðin staðráðin í að dreifa lyg- um um Evrópusam- bandið. Þeim virðist standa á sama um hvað er satt og hvað ekki. Því mið- ur létu margir kjósendur í Bretlandi sannfærast af slíkum rangfærslum og hafa nú afráðið að yfirgefa sam- bandið. Áhrif bresku pressunnar virð- ast þónokkur á Íslandi en sem sendi- herra ESB ætla ég að gera mitt besta til að koma í veg fyrir að Íslendingar verði blekktir eins og samlandar mín- ir. Í þessari grein langar mig að fjalla um neytendur: þig og mig. Evrópu- sambandið vinnur þrekvirki til að vernda neytendur, ekki aðeins íbúa hinna 28 aðildarlanda ESB heldur einnig landa utan sam- bandsins. Þeirra á með- al er Ísland, hvar neyt- endur og fyrirtæki njóta aðgangs að innri markaði ESB, sem tel- ur um hálfan milljarð manna. Frelsi til að flakka Í júní á síðasta ári af- nam ESB svonefnd reikigjöld farsímanot- enda, og þvinguðu þar með voldug símafyrir- tæki til að hætta að rukka fólk um fúlgur fyrir símtöl erlendis. Á innri markaði ESB var engin réttlæting fyrir reikigjöldum. Þau tilheyra nú fortíðinni, slæm minning frá bernsku- árum farsímamarkaðarins. Að sama skapi muna allir sem komnir eru yfir fertugt hina gömlu, slæmu daga í flugsamgöngum, þegar atvinnugreinin var bundin ströngu regluverki undir yfirráðum þjóðbund- inna flugfélaga og flugvalla í ríkiseigu, og flugmiðaverð gat orðið lamandi hátt. Sköpun innri markaðar fyrir flugsamgöngur, sem hófst á tíunda áratug síðustu aldar, hefur gjörbreytt faginu og rutt brautina fyrir flugfélög á við WOW Air, EasyJet og Vueling. Fyrir flugfélög sem starfa innan ESB hafa markaðshömlur verið afnumdar, sem og höft á borð við sérleyfi flug- leiða og takmarkanir á ferðafjölda. Neytendur, flugfélög, flugvellir og starfsfólk hafa öll notið góðs af stefnu- mótun ESB, um leið og umbæturnar hafa aukið virkni á sviðinu, getið af sér nýjar flugleiðir og flugvelli, leitt til meira úrvals, lægra verðs og, á heild- ina litið, betri þjónustu. Nógu stór til að stöðva misferli Til að markaðssvæði dafni er ekki nóg að saman fari duglegir frum- kvöðlar og sanngjörn lög. Beita þarf úrræðum til að tryggja að neytendur njóti góðs af markaðnum. Þar víkur sögunni að því lykilhlutverki sem ESB leikur í varðstöðu um heiðarlega samkeppni. Við höfum ekkert á móti stórum og árangursríkum fyrir- tækjum. Þvert á móti gegna þau lyk- ilhlutverki í að knýja fram nýsköpun og geta orðið öðrum innblástur. En þau þurfa að gæta sérstaklega að því að grafa ekki undan heiðarlegri sam- keppni. Tökum til dæmis Google. ESB hefur aldrei gert athugasemdir við þá staðreynd að leitarvél Google nýtur yfirburðastöðu í sínu fagi. Hins vegar viljum við koma í veg fyrir að fyrirtækið beiti henni til að hindra samkeppni. Þess vegna sektaði framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins Google um 2,4 milljarða evra í júní í fyrra (um 300 milljarða króna) fyrir að veita annarri vöru frá Google, verðsam- anburðarvél þeirra, forskot í leitarnið- urstöðum. Sú iðja kom í veg fyrir að önnur fyrirtæki gætu keppt á grund- velli verðleika og stundað nýsköpun. Mestu máli skiptir þó að þannig var evrópskum neytendum neitað um raunverulega valkosti í þjónustu og þar með mögulega um lægra verð. Jöfn tækifæri í almannaþágu ESB vinnur einnig hörðum hönd- um að því að tryggja að yfirvöld ein- stakra ríkja veiti ekki ákveðnum fyr- irtækjum sérstaka skattameðferð, sem geti grafið undan samkeppni. Á síðasta ári komst framkvæmda- stjórnin að raun um að Írland hefði veitt Apple óverðskulduð skattafríð- indi sem námu allt að 13 milljörðum evra (rúmlega 1600 milljarðar króna). Þetta gerði Apple kleift að greiða langtum lægri skatta en önnur fyrirtæki og veitti því samkeppnis- forskot sem mögulega hindraði ný- sköpun og getur hafa haft áhrif á val- kosti neytenda og verðlag. Það sem sumir kalla „skrifræðið í Brussel“ í neikvæðum tón, eins og að öryggi byggt á lögum og vandvirk stjórnsýsla séu óvinir fólksins, nýtur sjálfsagt ekki hylli allra. En það kann sitt fag. Fag þess er starf í þágu al- mannahagsmuna, að verja ein- staklinga og réttindi þeirra fyrir mis- beitingu voldugra aðila. Þetta er fag sem við, starfsfólk ESB, erum stolt af og verk sem við ætlum að halda áfram að inna af hendi, í þágu okkar allra. Staðreyndir um ESB og neytendur Eftir Michael Mann Michael Mann » Sem sendiherra ESB ætla ég að gera mitt besta til að koma í veg fyrir að Íslendingar verði blekktir eins og samlandar mínir. Höfundur er sendiherra Evrópusam- bandsins á Íslandi. Nokkuð hljótt hefur verið um olíuleit á Drekasvæðinu sem og hugsanlega vinnslu þar. Undanfarin ár hafa grunnrannsóknir farið fram sunnan við Jan Mayen og ýmis jarðlög sem geta fang- að olíuættuð efni kom- ið í ljós. Miklu ná- kvæmari og dýrari rannsóknir þarf til að nálgast mat á hvort olía og gas eru þar í vinnanlegu magni og hvort til- raunaboranir teljist fýsilegar eða ekki. Þessi sýslan hefur lengi verið gagnrýnd, enda ekki rúm fyrir jarð- efnin í kolefnisbókhaldi jarðar. Flokkar á Alþingi hafa verið mót- fallnir leit og vinnslu en meirihluti verið fyrir slíku. Sennilega hefur gagnrýnendum þó fjölgað jafnt og þétt, bæði þar og í samfélaginu. Kínverska félagið CNOOC og norska Petoro segja sig nú frá rannsóknarleyfi til 12 ára og öllum frekari skyldum sem því fylgja. Það er gott og jarðlífinu til framdráttar að mínu mati. Orkustofnun telur ekki að íslenska fyrirtækið Eykon geti staðið undir frekari umsvifum á svæðinu vegna smæðar. Viðbrögð fyrirtækisins eru þau að nota and- mælarétt sinn og jafnvel leita nýrra samstarfsaðila. Fyrir því sama hafa heyrst raddir á Alþingi, því miður. Áhöld kunna að vera um hvort leit- arleyfið og lög heimila innkomu nýrra hluthafa en það kemur brátt í ljós. Eftir að hafa heyrt sjónarmið á fundum í norðurslóðastarfi og víðar grunar mig að ákvörð- un um að hætta leit- inni sé af hagrænum toga. Stóru aðilarnir sjá hvorki fram á að heildarfjárfestingin verði vænleg né að niðurstöður leitar gefi tilefni til dýrra og um- fangsmikilla þrívídd- arskoðana eða til- raunaborana. Norðmenn vilja ein- beita sér að vinnslu norðan heimskautsbaugs nær Noregi. Gagnrýna ber skefjalausa sókn þeirra í auð- lindirnar á þessum árum firna- hraðrar hlýnunar á heimsvísu. Póli- tískar breytingar og þrýstingur innanlands gegn olíu- og gasvinnslu hafa líka áhrif á afstöðu norskra stjórnvalda til vinnslu við Jan Mayen. Hitt er svo deginum ljósara að áköf jarðefnaeldsneytisleit og vinnsla hvarvetna á norðurslóðum er ósamrýmanleg framförum í lofts- lagsmálum. Svo mikið er vitað um gnægð gass og olíu í jarðlögum annars staðar að viðbótarvinnsla á norðurslóðum myndi sveifla meðal- hitastigi jarðar langt yfir ásættan- leg mörk (1,5-2,0°C). Ef Ísland á að verða kolefnishlutlaust 2040 þarf al- gjört aðhald í gas- og kolefnis- vinnslu á okkar vegum. Sama gildir, vilji menn fylgja staðreyndinni um að markmiðum Parísarsamkomu- lagsins verður ekki náð nema 2/3 þekktra jarðefniseldsneytisbirgða verði hlíft. Leitin á Drekasvæðinu hingað til hefur stórbætt myndina af jarð- lögum fyrir norðan Ísland og sögu plötureksins tugi milljóna ára aftur í tímann. Jarðvísindin hafa hagnast! Almennt bíður okkar mikilvægt verkefni við að andæfa óskynsam- legri leit og vinnslu jarðefna á norð- urslóðum – því enn verður hart sótt í auðlindirnar. Nægir að nefna Trumpstjórnina, Statoil, rússnesk fyrirtæki og CNOOC. Drekasvæðið á að hvíla í friði Eftir Ara Trausta Guðmundsson » Almennt bíður okkar mikilvægt verkefni við að andæfa óskyn- samlegri leit og vinnslu jarðefna á norður- slóðum. Höfundur er þingmaður VG. Ari Trausti Guðmundsson Það gat skeð, að unga fólkið, sem nú situr á Alþingi, vildi endilega troða leyfi fyrir áfengisauglýsing- um í fjölmiðlum inn í það fjöl- miðlafrumvarp, sem nú á að fara að leggja fram á Alþingi. Sumir vísa til frelsis einstaklingsins, sem á varla við í þessu sambandi. Frelsi til hvers? spyr ég þá. Frelsi til þess að verða þræll áfengissýkinnar? Frelsi til þess að leyfa unga fólkinu að ánetjast þessu fíkniefni? Finnst fólki það svo eftirsóknarvert? Spyr sá, sem segir þvert nei við því og að þurfa að hafa áfengisauglýsingar yfir sér í fjölmiðlum í tíma og ótíma. Mér finnst það lýsa vel hugarfari þessa unga fólks, sem situr nú á Alþingi, að það skuli sýknt og heilagt vilja troða áfengi upp á landann í einhverju formi, og það er ömurlegt til þess að hugsa og vita af því. Þetta fólk hefur greinilega aldrei kynnst áfengisbölinu og afleiðingum þess í sinni verstu mynd, þó að hægt sé að sjá það um hverja helgi hér í borginni. Ég mótmæli harðlega þessari til- lögu þeirra og vona, að hún verði tekin út hið fyrsta. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Áfengisauglýsingar í fjölmiðla – nei takk! Sviðsett mynd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.