Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 10
ASHLEY NICOLETTE FRANGIPANE er þekkt bandarísk tónlistarkona sem gengur undir listamannsnafninu Halsey. Sviðsnafn hennar vísar til Halsey Street í Brooklyn, götu sem hún eyddi miklum tíma í sem unglingur og er jafn- framt stafarugl úr eiginnafni hennar. Hún fæddist 29. september árið 1994 í Edison í New Jersey í Bandaríkjunum. Chris faðir hennar er svartur og er auk þess af írskum ættum en Nicole móðir hennar er af írskum og ungverskum uppruna. Hún lærði á fiðlu, víólu og selló þegar hún var lítil og skipti síðan yfir í gítar þegar hún var fjórtán ára. Hún var greind með geðhvarfasýki þegar hún var sautján eftir að hafa reynt að svipta sig lífi en hún var í kjölfarið lögð inn á geðdeild. Hún varð þekkt í gegnum samfélagsmiðla en hún byrjaði að setja inn tónlist- armyndbönd á síður á borð við Tumbler og YouTube árið 2012. Þar á meðal var grínútgáfa af Taylor Swift-laginu „I Knew You Were Trouble“ þar sem Swift fjallar um samband sitt við Harry Styles. Halsey hefur viðurkennt að hafa notað eiturlyf sem unglingur og segist hafa verið óvenjulegt barn að hluta til vegna geðhvarfasýkinnar. Hún fór í háskóla en hætti og í kjölfarið hentu foreldrar hennar henni út af heim- ilinu. Hún átti á þessu tímabili oft erfitt, gisti hjá vinum og var pen- ingalaus. Hún flutti seinna til ömmu sinnar um tíma. Halsey hafði lengi samið ljóð en byrjaði að semja lög til að vekja athygli á textum sínum. Lagið „Ghost“ er það sem vakti fyrst athygli á henni en það varð mjög vinsælt á SoundCloud á aðeins nokkrum klukkustundum. Í kjölfarið höfðu mörg útgáfufyrirtæki samband og hún skrifaði undir samn- ing við Astralwerks. Fyrsta hljóðversplata hennar Badlands kom út í ágúst 2015 og náði platínusölu í Bandaríkjunum. Hopeless Fountain Kingdom kom síðan út í júní í fyrra og hefur einnig selst vel og þykir útvarpsvænni en sú fyrri. Vill að Trump hlusti Halsey hélt magnaða ræðu á mótmælagöngu kvenna í New York sl. laug- ardag. Hún sagði við þann mikla mannfjölda sem var saman kominn í Central Park að hún kynni ekki að halda ræðu nema hún væri rímuð og þess vegna ætlaði hún að flytja ljóð. Fyrr hafði hún sagt við ljósmyndara TMZ að hún vildi að Trump myndi hlusta á ræðuna en ekkert hefur heyrst frá Bandaríkjaforseta varðandi #metoo byltinguna. Í ljóðinu segir hún frá kynferðislegu ofbeldi sem hún og einnig vinkona hennar hafa orðið fyrir. Hún segir frá nauðgun og misnotkun á einstaklega áhrifaríkan hátt en ræðan hefur snert marga. Hún segir að enginn sé öruggur, heldur ekki hún sjálf eftir að hún náði frama og talar um hetjurn- ar sem hafa stigið fram eins og „Ashley og Simone og Gabby, McKayla og Gaga, Rosario, Aly“ og að þetta sé upphafið en ekki endirinn. ingarun@mbl.is Ljóð urðu að lögum Halsey hélt magnaða ræðu í mótmælagöngu kvenna í New York sl. laugardag. ’Hún varð þekkt í gegnumsamfélagsmiðla en húnbyrjaði að setja inn tónlistar-myndbönd á síður á borð við Tumbler og YouTube árið 2012. Á tónleikum árið 2015. 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018 Í PRÓFÍL TÓNLISTARHÁTÍÐIR Halsey gagnrýndi Firefly- tónlistarhátíðina fyrir að skilja konur útundan á hátíð- inni 2018. Hún spilaði sjálf á hátíðinni árið 2015 og gagn- rýndi val tónleikahaldara í ár á Twitter. „Ég meina það, hvað eruð þið að spá. Hvar eru konurnar? Þessi hátíð var í svo miklu upáhaldi hjá mér og það er skömm að það séu ekki fleiri konur á listanum. Fyrir utan (hina frá- bæru) Sza eru fyrstu 20 tónlistaratriðin á listanum allt karlar. Það er 2018, standið ykkur betur!!!“ skrifaði hún. Eminem, Kendrick Lamar, Arctic Monkeys og The Killers eru aðalnöfnin á hátíðinni og aðeins 19 af 95 tón- listaratriðum hátíðarinnar eru konur eða hljómsveitir með konum innanborðs. Á vef Billboard er bent á að aðdáandi hafi skrifað Halsey og sagt henni að slaka á í tísti sem nú er búið að eyða. Hún var ekki í vandræðum með að svara honum og útskýrði að tónleikahaldararnir séu þeir sem þurfi að vera leiðandi í að fá meiri fjölbreytni á svið. Hún tísti m.a. „Hátíðir BIÐJA tónlistarfólk að koma að spila. Listamenn SPYRJA ekki hátíðir hvort þeir megi mæta. Ég er bara að benda á þetta. Það eru svo margar flottar konur í tónlist núna!“ Á sviði á tónleikum KIIS FM í Los Angeles í desember. AFP Hvar eru konurnar? ÁSTIN Tónlistarkonan kom fram í fyrsta Saturday Night Live-þætti ár- ins. Hún tók tvö lög, „Bad at Love“ og „Him & I“. Í síðarnefnda laginu deildi hún sviðinu með kærasta sínum en hún er í sambandi með rapparanum G-Eazy. Bæði lögin eru sem stendur á topp 20 á Billboard Hot 100-listanum í Bandaríkjunum, eða í því sjöunda og sextánda. Þau skarta bæði nokkrum húð- flúrum en það nýjasta sem Halsey er með er textabrot úr laginu „Loser“ eftir Beck frá 1993 en hún lét flúra „I’m a loser baby“ á hálsinn á sér. Er hún nú með yfir 20 húðflúr. Hún hefur ennfremur hannað tvö húðflúr sem G-Eazy er með; ann- arsvegar engil og hinsvegar djöful sem prýða upphandleggi kærastans. Komu saman fram í SNL Með kærastanum á körfuboltaleik í upphafi árs. TEXTAMYNDBAND Lagið sem skaut Halsey á stjörnuhimininn var „Closer“ sem hún gerði með The Chainsmokers. Við það var gert svo- kallað textamyndband og náði það eins milljarðs áhorfum 10. janúar 2017 og var það fyrsta texta- myndbandið sem náði þeim áfanga. Nú er búið að horfa á myndbandið 1,99 milljarðs sinnum og er það núm- er 21 yfir vinsælustu myndböndin á YouTube. Þau tóku lagið fyrst saman á tón- leikum á Coachella-tónlistarhátíðinni í apríl 2016. „Closer“ var jafnframt á toppi Billboard Hot 100-listans í tólf vikur í röð. Fyrsti stóri smellurinn Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is KLAPPSTÓLL Koma í 3. litum 4.900 kr. BEKKUR 120x35, H: 46cm 39.500 kr. TILBOÐS DAGAR húsgögn og smávara 30-50% afsláttur af vörum sem eru að hætta í sölu Óform- lega klædd á tónlist- arhátíð í desember.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.