Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Síða 21
28.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 Plöntur eru og hafa verið ákaflega vinsælar í innan- hússtískunni undanfarið. Sænska hönnunarhúsið Kauppi & Kauppi sýnir áhugaverðan plönturamma eða eins konar innan- húss gróðurhús fyrir pottaplöntur sem ber heitið Limbus Greenframe á húsgagnasýningunni Stock- holm Furniture & Light Fair í febrúar en hefur þeg- ar sent frá sér kynningu um verkefnið. Viðarramminn er mínímalískur með fótum svo hægt er að koma honum fyrir hvar sem er í rým- inu. Í rammanum er einnig LED ljós svo plönturnar vaxi í rétta átt. Ramminn er unninn úr aski og LED lýsingu og lagði hönnunarhúsið upp úr því að allt efnið væri 100% endurvinnanlegt. Ramminn er því bæði fallegur sem stofustáss, skilrúm eða hreinlega bara gróðurhús fyrir potta- plöntur. LED ljósi er komið fyrir inni í rammanum sem hjálpa plöntum að vaxa í rétta átt. Áhugaverður plönturammi Ramminn sjálfur er unninn úr aski og er 1.400 x 1.300 mm að stærð. Þar sem hann er á fótum er hægt að koma honum fyrir hvar sem er í rýminu. Schemata arkitektar hafa endur- gert svokallað svefnklefahótel í Shibuya hverfinu í Tókýó og breytt því í gufubað. Það er hótelkeðjan Nine Hours sem fékk arkitektana til að breyta húsnæðinu en því var gersamlega umturnað, nema sjálfum svefn- klefunum. Arkitektastofn hélt í „retró“ útlit upprunalegu svefn- klefanna, þar sem hægt er að leigja klefa með einbreiðu rúmi en fyrirbærið opnaði fyrst í Osaka ár- ið 1970. Svefnklefar eru þekkt fyr- irbæri í Japan nú til dags og yfir- leitt eingöngu ætlaðir körlum. Á hótelinu býðst báðum kynjum nú að fara í gufubað og taka stutta lúra í svefnklefum þess á milli. Arkitektarnir vildu halda í gamaldags útlit svefnklefa- hótela við endur- gerð hótelsins. Einstakt gufubað í Tókýó Fyrsta svefnklefahótelið í Japan var opnað í Osaka árið 1970. Hönnunarmolar úr öllum áttum Í vikunni voru hönnunarsýningarnar Maison&Objet í París og IMM Cologne í Köln haldnar þar sem fjöldinn allur af hönnuðum sýndi nýjustu verk sín. Sunnudagsblað Morgunblaðsins tók að þessu sinni saman nokkra mola um áhugaverðar nýjungar í hönnun og arkitektúr. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is ÚTSALA – ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.husgagnahollin.is VE FVERSLUN A LLTAF OP IN GHOST Hægindastóll í mörgum litum í áklæði og svörtu leðri. Ghost í áklæði 95.992 kr. 119.990 kr. Ghost í leðri 127.992 kr. 159.900 kr. AFSLÁTTUR 20%

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.