Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Qupperneq 26
Hvað heillar þig við tísku? Einna helst tjáningin og frelsið. Tíska gerirfólki kleift að tjá sig í gegnum fötin sem það klæðist. Hver og einngetur skapað sinn stíl - það er ótrúlega gaman að sjá hvað við erum öll ólík og hvað tískan hefur áhrif á hvernig við sjáum hvert annað. Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Hann er nokkuð fjölbreyttur en í stuttu máli er hann róm- antískur með 70’s ívafi í bland við 90’s götutísku. Ég elska „vintage“ föt og á orðið nokkuð gott safn af ein- stökum flíkum sem ég mun aldrei láta frá mér. Það er því orðið nokkurs konar hobbý að leita uppi „vin- tage“ gersemar. Hefur þinn persónulegi stíll þróast mikið með árunum? Já klárlega. Ég hef stundum verið alveg út og suður og fylgt allskyns tískustraumum sem ég myndi ekki beint klæðast í dag. Ég lít þó alls ekkert neikvæðum augum á þau tímabil - tíska er til þess að prufa sig áfram með og ég mun sennilega aldrei hætta því. Ég reyni þó alltaf að vera samkvæm sjálfri mér og finnst stíllinn minn ná að endurspegla mig og minn karakter. Hvert sækir þú innblástur? Ég sæki innblástur að mestu í gegnum tónlist, kvikmyndir og fólkið í kringum mig. Áttu þér uppáhalds tískuhús/hönnuð? Aless- andro Michele yfirhönn- uður Gucci er algjör snill- ingur og ég dýrka allt sem hann gerir. Ég hef síðan alltaf heillast mikið af danskri hönnun líkt og flestir Ís- lendingar og eru Malene Birger og Won Hundred í miklu uppáhaldi hjá mér. Hildur Yeoman stendur síðan upp úr hér á landi en allt sem hún kemur nálægt er gullfallegt! Hver hafa verið bestu kaupin þín? Ætli ég verði ekki að nefna hvítu lambakápuna sem ég keypti nýverið af etsy- .com. Ég gjörsamlega elska hana og held ég muni alltaf gera. Hvað er á óskalist- anum þessa stund- ina? Undanfarið hefur mig dreymt um Gucci hælaskó sem ég get ekki hætt að láta mig dreyma um. Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Ég reyni að velja gæði eftir bestu getu og eru góð efni lykilatriði. Eitt- hvað sem ég klikka alveg stundum á en er alltaf að sjá hvað þessi þáttur skiptir miklu máli bæði upp á endingu og notagildi. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Ég hef alltaf haldið mikið upp á stílinn hennar Nicole Richie. Upp á síðkastið hef ég verið að tengja mikið við eina ofurskvísu sem ég fylgi á instagram með notendanafnið happilygrey. Ég mæli með að fylgja henni. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Húðvörur sem gefa góðan raka og ljóma er eitthvað sem ég þarf helst að huga að þar sem að ég vinn í háloftunum og þar er alls ekki besta loftið. Bioeffect 30 day treatment hefur verið að gera mjög góða hluti fyrir húðina mína. Ég get síðan ekki lifað án highlighter - gerir allt betra! Kolbrún Anna í hvítu lambakápunni sem hún keypti á etsy.com. Morgunblaðið/Hari Gæði og góð efni lykilatriði Kolbrún Anna Vignisdóttir, flugfreyja og bloggari á lífsstílsvefnum femme.is, er með flottan og fjölbreyttan fatastíl. Kolbrún elskar að leita uppi „vintage“ flíkur og sækir meðal annars innblástur í tónlist og kvikmyndir. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Kolbrún heldur upp á stíl instagramara sem kallar sig Happily Grey. Kolbrún mælir með Bioeffect 30 day treatment. Alessandro Michele yfirhönnuður Gucci er einn a eftirlætis- hönnuðum Kolbrúnar. Leðurskórnir frá Gucci eru ofarlega á óskalistanum. Hönnun Hildar Yeoman er í eftirlæti. Instagram.com/happilygrey TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018 Miðvikudaginn 31. janúar verður haldinn fataskiptimarkaður á Loft, Bankastræti 7. Þangað getur fólk mætt með föt sem það er hætt að nota og skipt flík fyrir aðra flík. Viðburðurinn er haldinn frá klukkan 16.30 til 18.30. Fataskiptimarkaður á Loft

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.