Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 29
Bournemouth skartar einni fallegustu strönd Bretlandseyja. Ljósmynd/Bournemouth Tourism niður og hlusta á tónleika á Pinewalk tónleikapallinum eða skoða páfa- gauka í stóru fuglabúri. Bryggjan er eitt helsta kennileiti Bournemouth, en hún var fyrst opnuð árið 1880 og hefur leikið stórt hlut- verk í sögu bæjarins. Westbourne er íbúða- og verslunarkjarni þéttsettur veit- ingastöðum, börum, kaffihúsum, nytjamörkuðum, bókabúðum og fleiru. Þar er hægt að fá sér hress- ingu á börum á borð við The Porter- house, sem rekinn er af nálægu brugghúsi, og Renoufs, margverð- launuðum vín- og ostabar, gæða sér á dýrindismáltíð á veitingahúsum eins og Romanzo Greek Taverna og Chez Fred, sem hefur fengið verðlaun fyrir besta „fish and chips“ á Bretlands- eyjum, eða kaupa í matinn í Tesco- búð sem er í gamalli meþódistakirkju. Poole er strandbær vestan við Bo- urnemouth sem státar af stærstu náttúrulegu höfn á Bretlandseyjum. Hafnarbakki Poole iðar af lífi og er kjörinn áfangastaður fyrir alla frá sælkerum til sagnfræðiáhugamanna, en byggðasafn Poole gefur einstaka innsýn inn í líf Englendinga á Viktoríutímabilinu, auk þess að Poole er einn bæjanna sem breski sjóherinn sigldi frá fyrir innrásina í Normandí árið 1944. Espresso Kitchen er lítið kaffihús í hjarta bæjarins sem orðið hefur að eftirlæti námsmanna bæjarins vegna notalegs andrúmslofts, nálægðar við bókasafn Bournemouth og persónu- legrar þjónustu, auk þess að bjóða upp á prýðilegt kaffi. Sankti Péturskirkjan er áberandi kennileiti í miðbæ Bournemouth. ’ Suðurströnd Eng-lands er einn af falleg-ustu stöðum Bretlands-eyja, auk þess að vera einn sá allra veðursælasti. Bournemouth stendur á Júra- ströndinni, en árið 2001 var strandlengjunni bætt á heims- minjaskrá UNESCO. Bournemouth Tourism 28.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Revolution Macalibrium® Karlmenn sem komnir eru á miðjan aldur glíma margir hverjir við einkenni sem rekja má til minnkandi framleiðslu testósteróns. Revolution Macalibrium er blanda ólíkra arfgerða macajurtarinnar, sérstaklega ætluð karlmönnum til að draga úr þessum einkennum og koma meira jafnvægi á hormónabúskapinn. Maca er afar virk rót og því er ráðlagt að byrja á því að taka 1 hylki á dag og bæta við öðru hylki eftir 1-2 vikur. Eftir 3-4 mánuði má minnka skammtinn aftur niður í 1 hylki en það gæti nægt til að viðhalda jafnvægi. Meiri kynlöngun - minni kvíði Hefur góð áhrif á: • Orku og úthald • Beinþéttni • Kynferðislega virkni • Frjósemi og almennt heilbrigði

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.