Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Þegar hinn sögufrægi dráttarbátur
Magni var dreginn upp í Slippinn í
Reykjavík í fyrradag kom í ljós að
mikið verk var að vinna við botn-
hreinsun bátsins. Enda ekki nema
von, því Magni var síðast tekinn í
slipp árið 2005, eða fyrir 13 árum.
Þá var hann botnhreinsaður og
málaður og ekki veitir af að mála
hann að nýju.
Það var vel við hæfi að nýi Magni
drægi nafna sinn frá Óðinsbryggju við
Sjóminjasafnið að Slippnum.
Magni á sér merka sögu en hann
var fyrsta stálskipið sem Íslendingar
smíðuðu. Hann var smíðaður í Stáls-
miðjunni í Reykjavík 1955 og hann-
aður af Hjálmari R. Bárðarsyni skipa-
verkfræðingi (1918-2009) fyrir
Reykjavíkurhöfn.
Hollvinasamtök Magna, sem stofnuð
voru í fyrra, áforma að gera bátinn
upp og sýna honum þann sóma sem
honum ber. Draumurinn er að hann
verði haffær á ný. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Jón Páll Ásgeirsson
Verk að vinna í Slippnum
Morgunblaðið/Hari
Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóð-
anna útskrifaði á mánudag nem-
endur í 20. sinn, en á þessu skólaári
tók 21 nemandi þátt í sex mánaða
þjálfunarnámi skólans. Komu nem-
endurnir frá 15 löndum í Asíu, Afr-
íku, Mið-Ameríku og Karíbahafi, og
var meirihluti þeirra konur, eða 13
talsins. Átta sérhæfðu sig á sviði
matvælaframleiðslu og gæðastjórn-
unar; sjö á sviði stofnmats og veiða-
færatækni; og sex á sviði sjálfbærs
fiskeldis, samkvæmt upplýsingum
frá skólanum.
Tumi Tómasson, forstöðumaður
skólans, ávarpaði nemendur og aðra
viðstadda útskriftina. Rakti hann
hvernig skólinn hefði þróast frá því
að vera nokkuð einfalt verkefni árið
1998, með nemendur frá aðeins
þremur löndum, yfir í sífellt flókn-
ari verkefni með nemendur frá fleiri
en fimmtíu löndum. Sagði hann
fiskveiðar á heimsvísu glíma nú við
nokkrar áskoranir, þar á meðal of-
veiði náttúrulegra stofna. Í því ljósi
hafi skólinn mikilvægu hlutverki að
gegna í að styðja við hin nýju sjálf-
bærnimarkmið SÞ.
Byggja upp færni sérfræðinga
Alls hafa 368 nemendur lokið
námi frá skólanum frá upphafi. Þeir
koma frá yfir 50 löndum, flestir frá
Víetnam, Úganda, Kína, Kenía, Sri
Lanka og Tansaníu, en skólinn hef-
ur einnig útskrifað nemendur frá
fölmörgum smáum eyríkjum þar
sem sjávarútvegur er mikilvægur,
eins og Kúbu, Jamaíku, Græn-
höfðaeyjum og Fídjíeyjum.
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sam-
einuðu þjóðanna var stofnaður árið
1998 á grundvelli þríhliða sam-
komulags Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna, utanríkisráðuneytisins og
Hafrannsóknastofnunar. Er hann
rekinn í nánu samstarfi háskóla-
samfélagsins, stjórnvalda og at-
vinnulífs, og meðal samstarfsaðila á
Íslandi má nefna Matís, Háskóla Ís-
lands, Háskólann á Akureyri og
Hólaháskóla.
Meginviðfangsefni Sjávarútvegs-
skólans er að byggja upp færni og
þekkingu meðal sérfræðinga á sviði
sjávarútvegs og fiskeldis í þróun-
arlöndum. Er umfangsmesti lið-
urinn í starfsemi skólans sex mán-
aða þjálfunarnámið, en það er
haldið á hverjum vetri frá sept-
ember til febrúar. Í náminu eru sér-
fræðingarnir efldir faglega og búnir
undir að hafa áhrif á uppbyggingu
sjávarútvegs í því starfsumhverfi er
þeir koma frá.
Sjávarútvegsskóli
SÞ útskrifaði 20.
árgang skólans
21 nemandi, meirihlutinn konur
Morgunblaðið/Eggert
Útskrift Gleðin leyndi sér ekki hjá
hinum nýútskrifuðu nemendum.
Fyrirtækið Landeldi ehf. hefur boðað
til íbúakynningar í Þorlákshöfn í dag
klukkan 17.30. Tilefnið er áform fyr-
irtækisins um að koma á fót allt að
fimm þúsund tonna eldi á laxfiski í
sveitarfélaginu. Athygli hefur vakið
að fyrirhugað er að eldið fari að öllu
leyti fram í landi, við sjávarsíðuna.
Stefnt er að því að fara á fundinum
yfir gerð og framkvæmd verkefn-
isins, skipulag þess, matsáætlun,
áhrif og stefnu, auk þeirra áhrifa sem
verkefnið mun hafa á atvinnumögu-
leika íbúa.
Eldið verði sem vistvænast
Samkvæmt upplýsingum frá fyr-
irtækinu hefur verkefnið verið í
vinnslu í um tvö ár og er lagt upp með
að eldið verði sem vistvænast, með
tilliti til notkunar náttúrulegra auð-
linda og úrvinnslu á hráefni, auk með-
ferðar úrgangsefna. „Við höfum það
að markmiði að skila sem vandaðastri
vöru til að tryggja inngöngu á verð-
hæstu markaði, og tryggja að verk-
efnið í heild styðji við atvinnulífið í
Þorlákshöfn, þar sem öll vinnsla verði
í heimahéraði,“ segir Ingólfur
Snorrason, sem er í forsvari fyrir fyr-
irtækið.
„Við höfum lagt mikla vinnu í verk-
efnið og keypt umtalsvert land í Ölf-
usi til að þjóna því,“ segir Ingólfur.
„Þetta verkefni er stærsta einstaka
landeldisverkefni á Íslandi, 5.000
tonn, og er okkur mjög svo umhugað
um ímynd og gæði bæði verkefnisins
og framleiðslunnar. Það eru margir
áhugaverðir möguleikar í framvindu
eldis á Íslandi og eru allir hlutaðeig-
andi aðilar sammála um mikilvægi
góðrar umgengni um náttúruleg auð-
æfi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorlákshöfn Laxeldið á að vera í landi og verða áformin kynnt í dag.
Kynna áform um
eldi í Þorlákshöfn
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
BIRKENSTOCK
barna
kr. 6.850,-
Misty