Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Tónlist Stuðmanna er áheimavelli í leikhúsinu. Svoekki sé minnst á fjölleika-húsið. Fjöllyndið í stíl,
stefnum og andrúmslofti, létt-
paródísk afstaðan, hnyttnin í text-
unum og fjölbreytni yrkisefnanna.
Þessi lög tala mörgum röddum og oft-
ar en ekki eru „ljóðmælendur“ mót-
aðar persónur, jafnvel nafngreindar.
Allt þetta þokar list Stuðmanna nær
söngleiknum en flestri popptónlist
myndi þykja þægilegt eða fínt. Við
þessa þulu má svo bæta að staða
Stuðmanna í íslenskri þjóðmenningu
er slík að leikhúsinu beinlínis ber að
gera henni skil. Jörundur hunda-
dagakonungur, hernámið, Njála: allt
kallar þetta á að vera sett á dagskrá.
Það sama gildir um árshátíðargrínið
úr Menntaskólanum við Hamrahlíð
sem fór svona eftirminnilega, gleði-
lega og varanlega úr böndunum.
Og það hefur auðvitað verið á dag-
skrá. Það var dálítið þreytandi í
aðdraganda frumsýningarinnar að
heyra spyrla tala um Slá í gegn eins
og eitthvert Kólumbusaregg hjá Guð-
jóni Davíð Karlssyni, og höfundinn og
leikstjórann taka undir hvað það væri
merkilegt að engum skyldi hafa dott-
ið í hug fyrr að sjóða saman söngleik
með tónlist Stuðmanna sem hryggj-
arstykkið. Stutt gúggl leiðir mann
nefnilega í Loftkastalann 1996 þar
sem þeir Valgeirar, Skagfjörð og
Guðjónsson, frumsýndu söngleikinn
Sumar á Sýrlandi, spunninn utan um
tónlistina af fyrstu tveimur breið-
skífum sveitarinnar. Svo ekki séu
tíundaðar atlögur skólaleikfélaga um
landið þvert og endilangt að þessum
augljósa og gjöfula efnivið. Nýjabrum
er ekki góður sölupunktur fyrir þetta
sjó.
Það er handritið því miður ekki
heldur. Í kynningu sýningarinnar
hljómaði eins og hún byggðist á nokk-
uð skýrri og glúrinni grunnhugmynd,
sem er alger lífsnauðsyn fyrir sýn-
ingu sem þessa. Hér þarf sterka sögu
og skýr átök sem halda fleytunni á
floti og gefa svigrúm fyrir þá út-
úrdúra sem tónlistin kallar á. Tog-
streita milli áhugaleikfélags í litlu
þorpi og sirkuss sem mætir á svæðið
er alveg ágætis vettvangur, en það
spilast ekki vel úr þessu. Eitt er nú að
sirkusinn er ekki fyrr kominn í bæinn
en leikfélagið gengur til liðs við hann í
heild sinni, að frátöldum einum
þrjóskum sérvitringi. Annars eru
árekstrar hins þjóðlega og þess fram-
andi og forboðna ekki til meðferðar
hér. Það reynist heldur ekki vera
neitt leikrænt eða dramatískt púður í
aðlögun sveitavargsins að sirkuslíf-
inu, sem er óskiljanlegt. Samdráttur
fjölleikaprinsessunnar og leikfélags-
kolbítsins er auðvitað óhjákvæmileg-
ur, en þurfti hann að vera alveg svona
áreynslulaus? Og þessi reykvíska
fjölskylda sem fylgir pabbanum í
draumaleit hans þegar hann kaupir
rúmenskan sirkus á eBay – var ekk-
ert áhugavert við að skoða hvernig
það gæti gengið fyrir sig, eða ekki
gengið? Hefði það jafnvel nægt sem
leikrænt eldsneyti eitt og sér? Það
kviknar aldrei í því.
Í stað þess að leyfa leiktextanum
að vera límið, skapa togstreitu leggja
til hreyfiorku í samskipti persónanna
er hann að mestu lagður undir fim-
maurabrandara. Sem auðvitað hitta
sumir í mark, en ofgnóttin er þreyt-
andi, sérstaklega endalausar vísanir í
Stuðmannatexta. Þá þykja mér texta-
tengsl verksins við leiktexta Með allt
á hreinu misráðin (fyrir nú utan að
skjóta inn bútum úr tveimur Gæru-
lögum, sem er furðuleg ráðstöfun).
Hér hefði þurft að skapa nýjan og líf-
vænlegan jarðveg fyrir tónlistina, en
það er ekki gert.
Persónugalleríið er það best
heppnaða í framlagi höfundarins, ein-
faldar týpur, sumar andlits- og ein-
kennalausar en aðrar harla snið-
uglega samsettar; Kalli lögga með
búktalsdúkkuna sína, hin skeggjaða
Ólína sem finnst enginn sjá sig fyrir
brjóstunum, alvitri presturinn og svo
auðvitað prímadonnan Sigurjón digri,
sem reyndar er sóttur að stórum
hluta á bensínstöðina í Nætur-
vaktinni, en býr að því að Jón Gnarr
hefur áratugareynslu af jafnvæg-
isdansi milli fyndins banalítets og al-
vöru í leiktexta á barmi paródíunnar.
Tveir af leikrænum hápunktum sýn-
ingarinnar eru hans: tilraun Sig-
urjóns til að flytja Gullna hlið Davíðs
einn síns liðs eftir að hafa flæmt leik-
félagið út í sirkustjald og svo samtal
hans og Ólínu, sem Edda Björgvins-
dóttir túlkar fallega. Jón syngur ekki
í meistaradeildinni, en hefur það fram
yfir flesta að það sem hann syngur
hljómar eins og þar sé persóna að tjá
sig en ekki söngvari að brillera, sem
rétt er að geta að flestir þeirra gera.
Sömu áhrifum nær Snæfríður Ingv-
arsdóttir í gullfallegri túlkun á „Ang-
antý“ og þau Sigurður Þór Óskarsson
í skemmtilega endurútsettum „Ást-
ardúett“. Sem vel á minnst er eina
lagið sem hægt er að segja að sé með-
höndlað með skapandi afstöðu. Að
öðru leyti einkennist framlag Vignis
Snæs Vigfússonar og liðsmanna hans
af skotheldri fagmennsku og engu
þar umfram. Ég var á sveitaballa-
aldrinum á gullaldarárum Stuð-
manna og hef heyrt flest þessi lög
fara í gegnum hakkavél hug-
myndaríkra grallara. Þau þola það
vel, og græða sum.
Þau halda líka bolta sýningarinnar
á lofti þrátt fyrir allt. Dauðir punktar
þjóta hjá og hverfa í rykið af hverjum
smellinum á fætur öðrum. Þrjátíu lög
koma við sögu, fyrir utan öll hin sem
vitnað er til í leiktextanum. Undir
lokin, þegar sirkusinn frumsýnir sjóið
sitt, tekur tónlistin öll völd og gleði-
sprengjan springur. Þá er gaman.
Það er vel haldið utan um gangverk
sýningarinnar af Guðjóni Davíð og
Chantelle Carey, þó dansatriðin hafi
svo sem ekki slegið mig sem sérlega
frumleg sköpun. Þær sirkusbrellur
sem sýndar eru eru skemmtilegar og
það næst áberandi vel að má út skilin
milli leikara, söngvara, sirkusfólks og
dansara, nýta kraftana og gefa öllum
færi á að njóta sín. Leikmynd Finns
Arnars Arnarsonar og búningar Mar-
íu Th. Ólafsdóttur gera þetta að dálít-
ið myrkum sirkus, pínu fullorðins,
pínu „Freak Show“, og ekkert að því,
svo augljóslega meinlaust er þetta
fólk allt, ekki síst hin elskulegu sirk-
usstjórahjón sem Örn Árnason og
Ólafía Hrönn Jónsdóttir nutu sín fyr-
irsjáanlega vel í. Svona sýning er líka
leikvöllur fyrir ljósahönnuð og Magn-
ús Arnar Sigurðarson fer í öll helj-
arstökkin og splittin. Leikhópurinn
er í sölugírnum allan tímann, stuðinu
er haldið uppi af einurð og krafti (ég
bara neita að kalla það energí og trú).
Slá í gegn er mannmargt og íburð-
armikið stórsjó. Öllu er tjaldað til úr
vopnabúri Þjóðleikhússins til við-
bótar þeirri miklu meðgjöf sem tón-
list Stuðmanna er. Frá sjónarhóli
skemmtunar næst harla góður árang-
ur og fagnaðarlætin á frumsýning-
arkvöldinu voru eins og í Atlavík ’84.
Úr bæjardyrum leiklistar horfir að-
eins öðruvísi við. Leikræni efniviður-
inn er vægast sagt rýr og ekki erfitt
að ímynda sér viðbrögð listrænnar
forystu leikhússins ef því bærist slíkt
handrit í póstinum. Þau yrðu alla
vega ekki að opna alla skápa, ræsa
allar vélar, ráða stóra hljómsveit og
sirkus utan úr bæ.
Þjóðleikhúsið er ekki fjáröflunar-
armur Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands. Það hefur
listrænum skyldum að gegna. Það er
ekki sama hvað það gerir, eða hvern-
ig það gerir það, þó að öryggisnet
tónlistar allra landsmanna grípi það í
þetta sinn og skili öllum brosandi
heim.
Hvar er Dýrleif með töfrabrögðin?
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Meðgjöf „Slá í gegn er mannmargt og íburðarmikið stórsjó. Öllu er tjaldað til úr vopnabúri Þjóðleikhússins til
viðbótar þeirri miklu meðgjöf sem tónlist Stuðmanna er,“ segir í rýni um sirkussöngleikinn Slá í gegn.
Þjóðleikhúsið
Slá í gegn bbbnn
Höfundur og leikstjóri: Guðjón Davíð
Karlsson. Danshöfundur: Chantelle
Carey. Tónlist: Stuðmenn. Tónlistar-
stjórn: Vignir Snær Vigfússon. Leik-
mynd: Finnur Arnar Arnarson. Búningar:
María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Magnús
Arnar Sigurðarson. Hljóðmynd: Kristinn
Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur
Einarsson. Myndband: Ingi Bekk (mynd-
bandshönnun), Björgvin Már Pálsson og
Árni Jón Gunnarsson (hreyfimynda-
gerð) og Rúnar Steinn Skaftason (bak-
grunnur). Hljómsveit: Vignir Snær Vig-
fússon, Karl Olgeirsson, Helgi Reynir
Jónsson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson,
Róbert Þórhallsson og Aron Steinn
Ásbjarnarson. Leikarar, dansarar og
sirkuslistafólk: Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Örn Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir,
Edda Björgvinsdóttir, Jón Gnarr,
Sigurður Þór Óskarsson, Sigurður
Sigurjónsson, Birgitta Birgisdóttir,
Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson,
Esther Talía Casey, Þórey Birgisdóttir,
Hilmir Snær Guðnason, Bjarni Snæ-
björnsson, Juliette Louste, Ernesto
Camilo Aldazabal Valdes, Hildur Ketils-
dóttir, Nicholas Arthur Candy, Sindri
Diego, Harpa Lind Ingadóttir, Bjarni
Kristbjörnsson, Hjörtur Viðar Sigurðar-
son og Sölvi Viggósson Dýrfjörð. Frum-
sýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins 24.
febrúar 2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Hápunktar „Jón Gnarr hefur áratugareynslu af jafnvægisdansi milli fynd-
ins banalítets og alvöru í leiktexta á barmi paródíunnar. Tveir af leikrænum
hápunktum sýningarinnar eru hans: tilraun Sigurjóns til að flytja Gullna
hlið Davíðs einn síns liðs eftir að hafa flæmt leikfélagið út í sirkustjald og
svo samtal hans og Ólínu, sem Edda Björgvinsdóttir túlkar fallega.“