Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 80

Morgunblaðið - 01.03.2018, Síða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is Frábær smurefni sem einangra, verja og koma í veg fyrir tæringu eins og verkfæra o rafma nsvara. 100% eins árs RAKAVÖRN VISTVÆNAR BARNAVÖRUR Kíktu á netverslun okkar bambus.is Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 Tónlist Stuðmanna er áheimavelli í leikhúsinu. Svoekki sé minnst á fjölleika-húsið. Fjöllyndið í stíl, stefnum og andrúmslofti, létt- paródísk afstaðan, hnyttnin í text- unum og fjölbreytni yrkisefnanna. Þessi lög tala mörgum röddum og oft- ar en ekki eru „ljóðmælendur“ mót- aðar persónur, jafnvel nafngreindar. Allt þetta þokar list Stuðmanna nær söngleiknum en flestri popptónlist myndi þykja þægilegt eða fínt. Við þessa þulu má svo bæta að staða Stuðmanna í íslenskri þjóðmenningu er slík að leikhúsinu beinlínis ber að gera henni skil. Jörundur hunda- dagakonungur, hernámið, Njála: allt kallar þetta á að vera sett á dagskrá. Það sama gildir um árshátíðargrínið úr Menntaskólanum við Hamrahlíð sem fór svona eftirminnilega, gleði- lega og varanlega úr böndunum. Og það hefur auðvitað verið á dag- skrá. Það var dálítið þreytandi í aðdraganda frumsýningarinnar að heyra spyrla tala um Slá í gegn eins og eitthvert Kólumbusaregg hjá Guð- jóni Davíð Karlssyni, og höfundinn og leikstjórann taka undir hvað það væri merkilegt að engum skyldi hafa dott- ið í hug fyrr að sjóða saman söngleik með tónlist Stuðmanna sem hryggj- arstykkið. Stutt gúggl leiðir mann nefnilega í Loftkastalann 1996 þar sem þeir Valgeirar, Skagfjörð og Guðjónsson, frumsýndu söngleikinn Sumar á Sýrlandi, spunninn utan um tónlistina af fyrstu tveimur breið- skífum sveitarinnar. Svo ekki séu tíundaðar atlögur skólaleikfélaga um landið þvert og endilangt að þessum augljósa og gjöfula efnivið. Nýjabrum er ekki góður sölupunktur fyrir þetta sjó. Það er handritið því miður ekki heldur. Í kynningu sýningarinnar hljómaði eins og hún byggðist á nokk- uð skýrri og glúrinni grunnhugmynd, sem er alger lífsnauðsyn fyrir sýn- ingu sem þessa. Hér þarf sterka sögu og skýr átök sem halda fleytunni á floti og gefa svigrúm fyrir þá út- úrdúra sem tónlistin kallar á. Tog- streita milli áhugaleikfélags í litlu þorpi og sirkuss sem mætir á svæðið er alveg ágætis vettvangur, en það spilast ekki vel úr þessu. Eitt er nú að sirkusinn er ekki fyrr kominn í bæinn en leikfélagið gengur til liðs við hann í heild sinni, að frátöldum einum þrjóskum sérvitringi. Annars eru árekstrar hins þjóðlega og þess fram- andi og forboðna ekki til meðferðar hér. Það reynist heldur ekki vera neitt leikrænt eða dramatískt púður í aðlögun sveitavargsins að sirkuslíf- inu, sem er óskiljanlegt. Samdráttur fjölleikaprinsessunnar og leikfélags- kolbítsins er auðvitað óhjákvæmileg- ur, en þurfti hann að vera alveg svona áreynslulaus? Og þessi reykvíska fjölskylda sem fylgir pabbanum í draumaleit hans þegar hann kaupir rúmenskan sirkus á eBay – var ekk- ert áhugavert við að skoða hvernig það gæti gengið fyrir sig, eða ekki gengið? Hefði það jafnvel nægt sem leikrænt eldsneyti eitt og sér? Það kviknar aldrei í því. Í stað þess að leyfa leiktextanum að vera límið, skapa togstreitu leggja til hreyfiorku í samskipti persónanna er hann að mestu lagður undir fim- maurabrandara. Sem auðvitað hitta sumir í mark, en ofgnóttin er þreyt- andi, sérstaklega endalausar vísanir í Stuðmannatexta. Þá þykja mér texta- tengsl verksins við leiktexta Með allt á hreinu misráðin (fyrir nú utan að skjóta inn bútum úr tveimur Gæru- lögum, sem er furðuleg ráðstöfun). Hér hefði þurft að skapa nýjan og líf- vænlegan jarðveg fyrir tónlistina, en það er ekki gert. Persónugalleríið er það best heppnaða í framlagi höfundarins, ein- faldar týpur, sumar andlits- og ein- kennalausar en aðrar harla snið- uglega samsettar; Kalli lögga með búktalsdúkkuna sína, hin skeggjaða Ólína sem finnst enginn sjá sig fyrir brjóstunum, alvitri presturinn og svo auðvitað prímadonnan Sigurjón digri, sem reyndar er sóttur að stórum hluta á bensínstöðina í Nætur- vaktinni, en býr að því að Jón Gnarr hefur áratugareynslu af jafnvæg- isdansi milli fyndins banalítets og al- vöru í leiktexta á barmi paródíunnar. Tveir af leikrænum hápunktum sýn- ingarinnar eru hans: tilraun Sig- urjóns til að flytja Gullna hlið Davíðs einn síns liðs eftir að hafa flæmt leik- félagið út í sirkustjald og svo samtal hans og Ólínu, sem Edda Björgvins- dóttir túlkar fallega. Jón syngur ekki í meistaradeildinni, en hefur það fram yfir flesta að það sem hann syngur hljómar eins og þar sé persóna að tjá sig en ekki söngvari að brillera, sem rétt er að geta að flestir þeirra gera. Sömu áhrifum nær Snæfríður Ingv- arsdóttir í gullfallegri túlkun á „Ang- antý“ og þau Sigurður Þór Óskarsson í skemmtilega endurútsettum „Ást- ardúett“. Sem vel á minnst er eina lagið sem hægt er að segja að sé með- höndlað með skapandi afstöðu. Að öðru leyti einkennist framlag Vignis Snæs Vigfússonar og liðsmanna hans af skotheldri fagmennsku og engu þar umfram. Ég var á sveitaballa- aldrinum á gullaldarárum Stuð- manna og hef heyrt flest þessi lög fara í gegnum hakkavél hug- myndaríkra grallara. Þau þola það vel, og græða sum. Þau halda líka bolta sýningarinnar á lofti þrátt fyrir allt. Dauðir punktar þjóta hjá og hverfa í rykið af hverjum smellinum á fætur öðrum. Þrjátíu lög koma við sögu, fyrir utan öll hin sem vitnað er til í leiktextanum. Undir lokin, þegar sirkusinn frumsýnir sjóið sitt, tekur tónlistin öll völd og gleði- sprengjan springur. Þá er gaman. Það er vel haldið utan um gangverk sýningarinnar af Guðjóni Davíð og Chantelle Carey, þó dansatriðin hafi svo sem ekki slegið mig sem sérlega frumleg sköpun. Þær sirkusbrellur sem sýndar eru eru skemmtilegar og það næst áberandi vel að má út skilin milli leikara, söngvara, sirkusfólks og dansara, nýta kraftana og gefa öllum færi á að njóta sín. Leikmynd Finns Arnars Arnarsonar og búningar Mar- íu Th. Ólafsdóttur gera þetta að dálít- ið myrkum sirkus, pínu fullorðins, pínu „Freak Show“, og ekkert að því, svo augljóslega meinlaust er þetta fólk allt, ekki síst hin elskulegu sirk- usstjórahjón sem Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir nutu sín fyr- irsjáanlega vel í. Svona sýning er líka leikvöllur fyrir ljósahönnuð og Magn- ús Arnar Sigurðarson fer í öll helj- arstökkin og splittin. Leikhópurinn er í sölugírnum allan tímann, stuðinu er haldið uppi af einurð og krafti (ég bara neita að kalla það energí og trú). Slá í gegn er mannmargt og íburð- armikið stórsjó. Öllu er tjaldað til úr vopnabúri Þjóðleikhússins til við- bótar þeirri miklu meðgjöf sem tón- list Stuðmanna er. Frá sjónarhóli skemmtunar næst harla góður árang- ur og fagnaðarlætin á frumsýning- arkvöldinu voru eins og í Atlavík ’84. Úr bæjardyrum leiklistar horfir að- eins öðruvísi við. Leikræni efniviður- inn er vægast sagt rýr og ekki erfitt að ímynda sér viðbrögð listrænnar forystu leikhússins ef því bærist slíkt handrit í póstinum. Þau yrðu alla vega ekki að opna alla skápa, ræsa allar vélar, ráða stóra hljómsveit og sirkus utan úr bæ. Þjóðleikhúsið er ekki fjáröflunar- armur Ungmenna- og íþrótta- sambands Austurlands. Það hefur listrænum skyldum að gegna. Það er ekki sama hvað það gerir, eða hvern- ig það gerir það, þó að öryggisnet tónlistar allra landsmanna grípi það í þetta sinn og skili öllum brosandi heim. Hvar er Dýrleif með töfrabrögðin? Ljósmynd/Hörður Sveinsson Meðgjöf „Slá í gegn er mannmargt og íburðarmikið stórsjó. Öllu er tjaldað til úr vopnabúri Þjóðleikhússins til viðbótar þeirri miklu meðgjöf sem tónlist Stuðmanna er,“ segir í rýni um sirkussöngleikinn Slá í gegn. Þjóðleikhúsið Slá í gegn bbbnn Höfundur og leikstjóri: Guðjón Davíð Karlsson. Danshöfundur: Chantelle Carey. Tónlist: Stuðmenn. Tónlistar- stjórn: Vignir Snær Vigfússon. Leik- mynd: Finnur Arnar Arnarson. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson. Hljóðmynd: Kristinn Gauti Einarsson og Kristján Sigmundur Einarsson. Myndband: Ingi Bekk (mynd- bandshönnun), Björgvin Már Pálsson og Árni Jón Gunnarsson (hreyfimynda- gerð) og Rúnar Steinn Skaftason (bak- grunnur). Hljómsveit: Vignir Snær Vig- fússon, Karl Olgeirsson, Helgi Reynir Jónsson, Þorvaldur Þór Þorvaldsson, Róbert Þórhallsson og Aron Steinn Ásbjarnarson. Leikarar, dansarar og sirkuslistafólk: Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Örn Árnason, Snæfríður Ingvarsdóttir, Edda Björgvinsdóttir, Jón Gnarr, Sigurður Þór Óskarsson, Sigurður Sigurjónsson, Birgitta Birgisdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Oddur Júlíusson, Esther Talía Casey, Þórey Birgisdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Bjarni Snæ- björnsson, Juliette Louste, Ernesto Camilo Aldazabal Valdes, Hildur Ketils- dóttir, Nicholas Arthur Candy, Sindri Diego, Harpa Lind Ingadóttir, Bjarni Kristbjörnsson, Hjörtur Viðar Sigurðar- son og Sölvi Viggósson Dýrfjörð. Frum- sýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins 24. febrúar 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Hápunktar „Jón Gnarr hefur áratugareynslu af jafnvægisdansi milli fynd- ins banalítets og alvöru í leiktexta á barmi paródíunnar. Tveir af leikrænum hápunktum sýningarinnar eru hans: tilraun Sigurjóns til að flytja Gullna hlið Davíðs einn síns liðs eftir að hafa flæmt leikfélagið út í sirkustjald og svo samtal hans og Ólínu, sem Edda Björgvinsdóttir túlkar fallega.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.