Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 8. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 57. tölublað 106. árgangur
MIKIL TÆKI-
FÆRI ERU Í
TÖLVUTÆKNI
FJÖR OG
FÁKAR Í
VÍÐIDAL
FÓLKIÐ
Á K100 Í
NÆRMYND
FÉLAGSHÚS FÁKS 28 16 SÍÐNA AUKABLAÐVIÐSKIPTAMOGGINN
Auður Guð-
jónsdóttir,
stjórnar-
formaður Mænu-
skaðastofnunar
Íslands, fer
ásamt tveimur
öðrum íslenskum
konum til fundar
við bandaríska
þingmenn og al-
mannatengla síð-
ar í mánuðinum.
Bandarísk samtök mæðra mænu-
skaddaðra einstaklinga, Warriors
Momz, buðu íslensku konunum á
fundinn. Auður hefur fylgst mjög
vel með framförum í meðferð
mænuskaddaðra frá því að dóttir
hennar slasaðist. Hún telur að fara
þurfi pólitíska leið til að þoka þess-
um málum áfram. »18
Ræða við banda-
ríska þingmenn
Auður
Guðjónsdóttir
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýr formaður Eflingar,
hyggst nota næstu vikur til að móta stefnuna. Ný
stjórn muni funda með félagsmönnum Eflingar og
vinna að stefnumótun á lýðræðislegan hátt.
„Við viljum ekki koma með allt tilbúið. Við
viljum enda gera þetta í mikilli samvinnu við
fólkið í Eflingu,“ segir Sólveig Anna.
Hún segist sem verkakona ekki hafa haft mörg
tækifæri til að móta stjórnunarstíl. Hún sé róttæk
og vilji lýðræðisvæða stéttarfélagið.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir
kjör Sólveigar Önnu vera enn eitt ákallið um
breytingar í samfélaginu. Fleiri „hallarbyltingar“
séu í vændum hjá verkalýðshreyfingunni.
Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Raf-
iðnaðarsambandsins, segir tekjulægstu hópana
hjá ASÍ hafi fengið mestar launahækkanir undan-
farin ár. Nú sé kominn tími til að gera betur við
rafiðnaðarmenn. baldura@mbl.is
Hyggst leita leiðsagnar fólksins
Morgunblaðið/Eggert
Nýr formaður Eflingar segir stefnuna verða mótaða á allra næstu vikum
Á leikskólanum Sólveig Anna Jónsdóttir, nýr formaður Eflingar, starfar á leikskólanum Nóaborg í Reykjavík. Hún var með börnunum í gærmorgun.
MVill ekki lokast af á skrifstofunni »6
Ný skýrsla endurskoðunar-
fyrirtækisins Deloitte fyrir íslensk
stjórnvöld sýnir fram á mikinn
samdrátt í sjávarútvegi undanfarin
ár. Kristján Þór Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra segir að taka verði
niðurstöður skýrslunnar alvarlega.
„Það er nauðsynlegt fyrir alla að
horfast í augu við þetta, annað
væri ábyrgðarlaust,“ segir ráð-
herrann.
Guðmundur Smári Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri sjávar-
útvegsfyrirtækisins G.RUN á Snæ-
fellsnesi, segir reksturinn hafa
verið erfiðan á síðasta ári. Ástand-
ið hafi lítt skánað. „Smærri byggð-
ir og smærri fyrirtæki munu fara í
kaf, það er ekki flóknara.“ »50
Mikill samdráttur blasir við í sjávarútvegi
Morgunblaðið/Eggert
Bryggja Skýrslan lýsir dökkum horfum.
Þorsteinn G. Gunnarsson, forstjóri
Opinna kerfa, segir að það sé að
verða ákveðin áskorun fyrir íslensk
samkeppnisyfirvöld að greina á milli
innlendra og erlendra aðila sem
keppa á markaði hérlendis. „Heima-
markaður okkar er ekki bara Ísland,
en á sama tíma er íslenski mark-
aðurinn orðinn heimamarkaður
annarra líka. Það fer að verða
ákveðin áskorun fyrir samkeppnis-
yfirvöld að greina þar á milli, því nú
þýðir ekki að horfa bara á innlenda
aðila hvað varðar samkeppni á
innanlandsmarkaði. Það nægir að
horfa á fótspor
skýjaþjónustanna
Amazon Web-
services og
Microsoft Azure
hér á landi til að
átta sig á þessu.
Ég spyr mig
hvernig á að
reikna út mark-
aðshlutdeild á Ís-
landi í dag. Þetta
er orðið miklu flóknara. Þetta er
bæði áskorun og tækifæri á sama
tíma einnig.“ »ViðskiptaMogginn
Ísland orðið heimamarkaður annarra líka
Þorsteinn G.
Gunnarsson
Skáldsagan Dalalíf eftir Guðrúnu
frá Lundi er sú bók sem var oftast
lánuð út á almenningsbókasöfnum
landsins í fyrra. Vel á fimmta þús-
und manns fengu hana lánaða.
Næst í röðinni á vinsældalista bóka-
safnanna var Tvísaga: Móðir, dóttir,
feður eftir Ásdísi Höllu Bragadótt-
ur en hún var lánuð 3.191 sinni. Þá
komu bækur eftir glæpasagnahöf-
undana Arnald Indriðason og
Ragnar Jónasson. »24
Dalalíf vinsælasta
bókin á bókasöfnum
1 MÍN 2MÍN 3MÍN 4MÍN 5MRE
Y
KJ
AV
ÍK
U
RV
EG
U
R
FLATAHRAUN
FJ
A
R
Ð
A
R
H
R
A
U
N
MÍNÚTNA
HVERFIÐ5
Kynningarfundur í Bæjarbíói
kl. 20miðvikudaginn 14. mars
HRAU
Sérblað í dag
VESTUR
MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR
SÆNGUR-
FATNAÐUR
SÆNGUROG
KODDAR
HEILSURÚM
ALLARSTÆRÐIR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar
við val á rúmdýnum.
Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504