Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Mikil óánægja meðal nemenda
Aðeins 1.700 nemendum af 4.000 tókst að ljúka samræmdu prófi í íslensku
vegna tæknilegra örðugleika Ákvörðun um nýtt próf verður tekin í næstu viku
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Tæknimenn okkar eru nú að funda með fulltrú-
um fyrirtækisins sem rekur þetta prófakerfi. Þeir
eru að grafast nákvæmlega fyrir um það hvað
gerðist og tryggja að kerfið verði komið í lag fyrir
prófið í dag og á morgun. Við munum ekki leggja
prófið fyrir í dag nema kerfið sé í fullkomnu lagi
og höfum góða von um að svo verði,“ segir Arnór
Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar.
Tæknileg vandamál komu upp þegar leggja átti
samræmt könnunarpróf í íslensku fyrir um fjögur
þúsund nemendur í 9. bekk í gærmorgun. Net-
þjónn á Írlandi annaði ekki álaginu þegar prófið
átti að hefjast. Var skólastjórnendum gefið leyfi
til að fresta prófinu þar sem nemendur komust
ekki inn í það. Segir Arnór að um 1.700 nemendur
hafi náð að ljúka prófinu en sumir þeirra hugs-
anlega við óviðunandi aðstæður. Ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hvort og þá hvenær nýtt próf
verði lagt fyrir.
„Ég er að bíða eftir fundi með ráðherra um
þetta mál. Þá þarf ég líka að ræða við formann
skólastjórafélagsins. Ég geri ráð fyrir að ákvörð-
un um nýtt próf liggi fyrir í næstu viku,“ segir
Arnór.
Margir hafa lýst óánægju sinni með þessi mis-
tök, meðal annars á samfélagsmiðlum. Hafið þið
orðið vör við þetta?
„Já, við höfum alveg fengið að heyra það. Það
hefur mikið verið hringt hingað, meðal annars
nemendur sem hafa sagt okkur til syndanna út af
þessu. Skiljanlega eru þeir reiðir, það er full
ástæða til þess, og við viljum gjarnan heyra
þeirra sjónarmið. Við tökum þessar umkvartanir
alvarlega og okkur þykir leitt að þetta skuli hafa
bitnað á nemendum og skólum og valdið þeim erf-
iðleikum.“
Þriðja árið sem prófin eru rafræn
Arnór segir að þetta sé þriðja árið sem sam-
ræmd próf eru lögð fyrir með rafrænum hætti.
Hann kveðst telja að bærilega hafi tekist til, þrátt
fyrir þessa uppákomu.
„Miðað við umfang svona breytinga, að færa
prófin í þetta nýja kerfi, hefur þetta gengið furðu
vel. Bæði krefst kerfið þess að réttur búnaður sé
fyrir hendi í skólunum og eins þurfa nettengingar
að vera í lagi. Það tók tíma að laga það sem þurfti
að gera hér heima. Nú þegar það er komið í lag
þá kemur upp vandamál með netþjóninn á Ír-
landi.“
Morgunblaðið/Hari
Próf Erlent þjónustufyrirtæki ber sök á því að
margir gátu ekki lokið samræmdu prófi í gær.
Sjö menn voru handteknir í aðgerð-
um lögreglunnar á Ægisíðu, Haga-
mel og Grettisgötu í gær. Þær má
rekja til líkamsárásar í miðborginni í
fyrrinótt að því er fram kemur í til-
kynningu frá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu. Við húsleit á Ægisíðu
og Grettisgötu var lagt hald á efni
sem talin eru vera vímuefni. Menn-
irnir voru yfirheyrðir í gær en gert
var ráð fyrir að þeim yrði öllum
sleppt að þeim loknum.
Lögreglunni hafði fyrr um morg-
uninn borist tilkynning um að menn
væru að skemma bíl við Ægisíðu.
Þeir voru handteknir í leigubíl á
Hagamel. Um níuleytið var sérsveit
ríkislögreglustjóra síðan kölluð að
húsi við Ægisíðu. Svæðið í kring var
girt af og leikskólabörnum á Ægis-
borg og starfsmönnum bensínstöðvar
N1 við Ægisíðu var gert að halda sig
inni við á meðan aðgerðin fór fram.
Sérsveitin braust inn í húsið en þar
var einn sofandi maður sem þeir
handtóku. Þrír voru svo handteknir á
Grettisgötu í hádeginu í gær í
tengslum við málið.
Að sögn Jóhanns Karls Þórisson-
ar, stöðvarstjóra hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu var viðbúnaður
lögreglu mikill því mennirnir í leigu-
bílnum sögðu húsráðandann á Æg-
isíðu vera í haldi gegn vilja sínum af
vopnuðum mönnum. Allir hinir hand-
teknu voru Íslendingar og enginn
þeirra var vopnaður. Upptök málsins
virðast hafa verið slagsmál á milli
tveggja hópa á Grettisgötu í fyrrinótt
og einn hinna handteknu ætlar að
kæra annan fyrir líkamsárás. erna-
yr@mbl.is
Sjö handtökur í gær
Vopnuð sérsveit ríkislögreglustjóra braust inn í hús á Ægisíðu
Handtökurnar tengdust líkamsárás í miðborginni
Morgunblaðið/Eggert
Aðgerð Vopnuð lögregla braust inn
í hús og handtók einn sofandi mann.
Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér
eftirfylgniskýrslu um rekstur og
starfsemi sendiskrifstofa Íslands.
Niðurstaða hennar er að stofnunin
ítreki ekki fimm ábendingar sem
gerðar voru til utanríkisráðuneyt-
isins árið 2015. Brugðist hafi verið
við fjórum þeirra með viðunandi
hætti; að koma þyrfti á sérstökum
fjárlagalið fyrir fasteignaviðskipti
sendiskrifstofa, ljúka úttekt á er-
lendum fasteignum ráðuneytisins,
setja viðmið um lágmarksmönnun
sendiskrifstofa og stuðla að jafnri
stöðu kynjanna á sendiskrifstofum.
Fimmta ábendingin sneri að því
að afnema bæri undanþágu um aug-
lýsingaskyldu fyrir stöðu sendi-
herra. Ráðuneytið hefur lýst sig
andsnúið þessu og ber við að vegna
lögbundinnar flutningsskyldu og
framgangskerfis, sem og lögbundins
hlutverks utanríkisþjónustunnar í
hagsmunagæslu fyrir Ísland, sé
nauðsynlegt að lögbundin undan-
þága frá auglýsingaskyldu gildi
áfram.
Ríkisendurskoðun ítrekar ekki
þessa ábendingu en bendir á móti á
að auglýsingaskylda starfa stuðli að
auknu gagnsæi, jafnræði og vand-
aðri stjórnsýslu. hdm@mbl.is
Stöðurnar
ekki verið
auglýstar
Undanþága gildi
Myndband sem
sagt er vera af
Hauki Hilm-
arssyni og tekið í
Afrin í Sýrlandi í
ár hefur verið
birt á YouTube.
Þar segist hann
vera að sýna sam-
stöðu með bylt-
ingunni og berj-
ast við hlið félaga
sinna. Í tyrkneskum fjölmiðlum er
því haldið fram að Haukur hafi fallið
í stórsókn Tyrkja í Afrin. Íslensk yf-
irvöld eru að rannsaka hvort það eigi
við rök að styðjast.
Myndbandið er merkt Inter-
national Freedom Battalion (IFB)
sem er útlendingahersveit sem m.a.
hefur barist gegn vígamönnum Ríkis
íslams í Raqqa í Sýrlandi.
Í Facebook-færslu IFB í gær kom
fram að Haukur hefði verið liðs-
maður þeirra og að hann hefði fallið
hinn 24. febrúar sl.
Barðist við
hlið félaga
Skjáskot Úr
myndbandinu á
YouTube.
Uppselt er á sýningarsvæði fagsýningarinnar „Verk og vit“ sem verður
haldin í fjórða sinn í Laugardalshöll 8.-11. mars nk. 110 fyrirtæki og stofn-
anir munu kynna vörur sínar og þjónustu, t.d. húsaframleiðendur, verk-
fræðistofur, menntastofnanir, innflytjendur, fjármálafyrirtæki, tækjaleig-
ur, bílaumboð, steypustöðvar, hugbúnaðarfyrirtæki og starfsmannaleigur.
Síðast er sýningin var haldin, árið 2016, sóttu hana um 23 þúsund gestir.
Stórsýningin „Verk og vit“ hefst í dag í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Unnið að uppsetningu einingahúss úr límtré á sýningarsvæðinu