Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Tallinn, Vilnius og Riga
Við skoðum glæsilegustu miðalda borgir Evrópu frá 11. og
12. öld og kynnumst miðaldastemningu sem er engri lík.
Borgir sem eru á minjaskrá Unesco, miðstöð menningar
og lista við Eistrasaltið. Á vegi okkar verða m.a. dóm-
kirkjur, þröngar steini lagðar götur, hallir, kastalar, fallegar
sveitir og sveitaþorp með brosandi heimamönnum.
Við förum aftur í tíma og rúmi.
15.-25. ágúst
Eystrasaltið
í sinni fegurstu mynd
Verð 219.900 kr.
á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið: Flug, skattar, allar ferðir,
aðgangur þar sem við á, hótel með
morgunmat , íslensk fararstjórn
Sími 588 8900
transatlantic.is
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Bjarni Stefánsson, deildarstjóri hjá
Vegagerðinni, segir að skortur á við-
haldi á vegum höfuðborgarsvæðisins
ásamt veðurfari sé helsta ástæða
þess að vegir eru holóttir. „Það eru
náttúrlega margir vegir sem eru
komnir á tíma og hafa verið sveltir í
viðhaldi í gegnum tíðina, bara út af
fjárskorti. Slitlagið hefur elst og er í
lélegra ástandi en hefur verið. Þessi
týpa af vetri hefur einnig haft áhrif;
mikið um frost og hlýju til skiptis,
sem eyðileggur slitlagið,“ segir
Bjarni.
Í gær var greint frá því í Morg-
unblaðinu að 95 tilkynningar um
tjón vegna holuaksturs hefðu borist
það sem af er ári. Til samanburðar
bárust 179 tilkynningar allt árið í
fyrra. Bjarni segir Vegagerðina
bregðast við eins hratt og auðið er
þegar tilkynningar berast um hol-
ótta vegi, sérstaklega ef holan hefur
valdið tjóni á ökutæki.
Sigurður Ævarsson hjá hjól-
barðaverkstæði Kletts í Klettagörð-
um segir að verkstæðið hafi í nægu
að snúast um þessar mundir vegna
tjóns á bílum eftir holuakstur. „Það
er mjög mikið að gera og hefur aldr-
ei verið meira. Fólk hefur verið að
skemma glæný dekk. Nýrri bílar
fara einhvern veginn verr út úr
þessu því það er yfirleitt lægri prófíll
á dekkjunum þannig að þau þola
þetta síður. Þetta er heilmikið tjón
hjá fólki,“ segir Sigurður.
Mögulegt að fá tjónið bætt
Þeir sem lenda í tjóni vegna
holuaksturs geta átt rétt á að fá
tjónið bætt ef búið er að tilkynna
holu á veginum til Vegagerðarinnar
og ekki hefur verið gert við hana.
„Í einhverjum tilfellum þar sem
hola er tilkynnt vita menn af henni
en af einhverjum orsökum er ekki
gert við hana strax. Svo keyrir ein-
hver ofan í hana og skemmir bílinn í
millitíðinni og þá getur veghaldari,
Vegagerðin í þessu tilfelli, verið
ábyrgur fyrir tjóninu á dekkinu sem
eyðileggst eða bílnum,“ segir Bjarni.
Skortur á viðhaldi orsök
holóttra gatna í borginni
Annir hjá dekkjaverkstæðunum vegna ástands gatnanna
Morgunblaðið/Hanna
Brotholur í malbiki Holur á götum borginnar geta valdið miklu tjóni á
ökutækjum. Fjöldi tilkynninga um tjón hefur borist Vegagerðinni í ár.
Agnes Bragadóttir
Höskuldur Daði Magnússon
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadótt-
ir, ráðherra iðnaðar- og nýsköpunar-
mála, segist líta svo á að 33 þingmenn
skipi stjórnarmeirihlutann en ekki 35
eftir atkvæðagreiðsluna vegna van-
trauststillögu gegn Sigríði Á. Ander-
sen dómsmálaráðherra á Alþingi í
fyrrakvöld. Þetta kom fram í máli
Þórdísar Kolbrúnar á útvarpsstöð-
inni K100 í gærmorgun. Undir þetta
tekur Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
Morgunblaðið. „Það er erfitt að líta
öðruvísi á þegar um er að ræða tvo
þingmenn sem voru andsnúnir þessu
samstarfi og hafa ekki gefið út annað.
Það auðvitað smitar til baka. En mér
líður ágætlega með 33 í meirihluta,“
segir Bjarni og bætir við að það hafi
ekki komið sér á óvart að ráðherrann
nyti trausts meirihluta þingsins.
„Þetta er vonandi endapunkturinn á
þessari nokkuð langdregnu umræðu
um mál sem mér finnst löngu upp-
lýst. Það sem kom mér á mest á óvart
var að þingmenn Viðreisnar, sem
studdu tillögu ráðherrans í þinginu á
síðasta ári, skyldu nú snúa við
blaðinu og nota þetta mál til að rök-
styðja vantraust á ráðherra. Það er
bæði óskiljanlegt og lágkúrulegt.“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð-
herra og formaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, var í gær
spurð hvort staða þeirra Rósu Bjark-
ar og Andrésar Inga myndi eitthvað
breytast í þingflokki VG, eftir að þau
greiddu atkvæði með vantrauststil-
lögunni á dómsmálaráðherra: „Rósa
Björk og Andrés Ingi upplýstu okkur
um þessa ákvörðun sína í gær. Hún
var mér auðvitað vonbrigði, í ljósi
þess að þingflokkurinn samþykkti
bókun þegar við gengum til þessa
ríkisstjórnarsamstarfs, um að fylgja
niðurstöðu flokksráðsfundar. En við
höfum ekki rætt þeirra stöðu sér-
staklega í þingflokknum. Við munum
væntanlega bara fara yfir þessi mál
síðar,“ sagði Katrín.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra
og formaður Framsóknarflokksins,
var í gær spurður hvort hann liti
þannig á að þingmannastyrkur rík-
isstjórnarinnar væri 33 þingmenn
eða 35: „Þegar við lögðum af stað
vorum við bara 33. Þau Rósa Björk
og Andrés Ingi gáfu ekki upp stuðn-
ing við ríkisstjórnina. Það hefur því í
sjálfu sér ekkert breyst hvað varðar
bakland ríkisstjórnarinnar, þótt þau
hafi hingað til kosið með ríkisstjórn-
inni í öllum mikilvægum málum, fjár-
lögum og öðru,“ sagði Sigurður Ingi.
Hann segir að miðað við það að
Rósa Björk og Andrés Ingi hafi stutt
þingmál ríkisstjórnarinnar í at-
kvæðagreiðslum hingað til þá taki
hann undir með forsætisráðherra,
sem lýsti vonbrigðum sínum með at-
kvæðagreiðslu Rósu Bjarkar og
Andrésar Inga á þingi í fyrradag.
„Þetta er í raun og veru sama
staða og eftir stjórnarmyndunarvið-
ræðurnar. Ég er eftir sem áður þing-
maður Vinstri grænna og tel mig
geta sinnt því af heilindum. Það verð-
ur hins vegar kannski flókið fé-
lagslegt verkefni að fá þingflokkinn
til að fúnkera,“ segir Andrés Ingi
Jónsson sem telur sig geta starfað
áfram innan þingflokks VG: „Já, það
stendur ekki á mér og hefur aldrei
gert.“ Ekki náðist í Rósu Björk í
gær.
Ákvörðunin var mér vonbrigði
Forsætisráðherra á von á því að staða þingmannanna í þingflokki VG verði rædd síðar Formanni
Sjálfstæðisflokksins líður vel með 33 menn í meirihluta Þingflokkur VG „flókið félagslegt verkefni“
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Frá umræðum um vantrauststillögu gegn Sigríði Á. Andersen.
Hlutfall kynjanna í dagskrá Rík-
isútvarpsins (RÚV), án frétta, árið
2017 var 3% jafnara en árið á undan
og nánast jafnt, eða 51% karlar og
49% konur, skv. RÚV.
Í fréttatímum og -þáttum eru
hlutföll kynjanna 64% karlar og 36%
konur. Það skýrist af hærra hlutfalli
karla í leiðandi stöðum í stjórn-
málum og samfélaginu sem fluttar
séu fréttir af og tölur fyrir 4. árs-
fjórðung sýni þróun í átt að meiri
jöfnuði í fréttum, að því er fram
kemur á vef RÚV.
Frá árinu 2014, hafi verið jafnt
kynjahlutfall í framkvæmdastjórn
RÚV og á árinu 2016 náðist jafnt
kynjahlutfall millistjórnenda og um-
sjónarmanna sem birtast í sjónvarpi
og heyrast í útvarpi. Vinna við jafn-
launavottun sé hafin. Alls var hlut-
fall kynjanna í dagskrá og fréttum í
fyrra 58% karlar og 42% konur,
sama og árið 2016, en í lok árs 2015
voru teknar upp markvissar mæl-
ingar á hlutfalli karla og kvenna í
hópi viðmælenda í föstum þáttum og
fréttum hjá RÚV. ernayr@mbl.is
Viðmælendur RÚV eftir kyni 2016-2017
100%
75%
50%
25%
0%
Karlar, % 2016 2017 4. ársfj. 2017. Konur, % 2016 2017 4. ársfj. 2017.
Heimild: RÚV
47
53
54
46
50
50
62
38
56
44
50
50
47
53
56
44
51
49
64
36
58
42
51
49
50
50
57
43
54
46
62
38
58
42
54
46
Rás 1 Rás 2 RÚV sjónvarp Fréttir Dagskrá og
fréttir
Dagskrá RÚV
Meiri jöfnuður í fréttum RÚV
Gert er ráð fyrir
því að fjórir lands-
réttardómara,
sem skipaðir voru
af dómsmálaráð-
herra á síðasta ári
en voru ekki á
meðal þeirra um-
sækjenda sem
hæfisnefnd lagði
til að yrðu skipað-
ir, dæmi í málum í
Hæstarétti á næstunni samkvæmt
vefsíðu réttarins. Dómararnir eru
Arnfríður Einarsdóttir, Ragnheiður
Bragadóttir, Ásmundur Helgason og
Jón Finnbjörnsson.
Hæstaréttarlögmaðurinn Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson hefur óskað
eftir því að einn dómaranna, Arnfríð-
ur Einarsdóttir, víki sæti sem lands-
réttardómari í máli skjólstæðings
síns á þeim forsendum að hún hafi
ekki verið skipuð með réttum hætti.
Hefur hann sagt að skipan hennar
hafi vakið upp efasemdir hjá skjól-
stæðingi hans um sjálfstæði dóm-
stólsins.
Landsréttur hefur staðfest hæfi
Arnfríðar, Ragnheiðar og Ásmundar
en búist er við að látið verði einnig
reyna á hæfi þeirra fyrir Hæstarétti.
Einnig hefur verið rætt um þann
möguleika að leita til Mannréttinda-
dómstóls Evrópu komist Hæstiréttur
að sömu niðurstöðu.
Dómarar sem deilt er
um dæma í Hæstarétti
Voru skipaðir af ráðherra í Landsrétt
Hæstiréttur
Íslands.