Morgunblaðið - 08.03.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Hér á landi er aðild að verka-lýðsfélögum mun almennari
en víðast hvar. Þessi munur virð-
ist þó ekki stafa af miklum áhuga
launamanna hér á landi á starfi
þessara félaga
heldur sennilega
miklu frekar af því
hvernig kerfið er
uppbyggt hér á
landi.
Áhugaleysilaunamanna á
þessari starfsemi
kom glöggt fram í
nýafstaðinni kosn-
ingu um formann
og stjórnarsæti í
Eflingu. Af 16.578
á kjörskrá greiddu
2.618 atkvæði, eða
15,8%.
Þetta er ekkert einsdæmi. Íkosningu í fyrra um formann
í öðru stóru félagi launamanna,
VR, kusu 5.706 af 33.383 á kjör-
skrá, eða 17,1%
Nýkjörinn formaður Eflingar,sem sigraði örugglega, hlaut
þrátt fyrir það ekki stuðning
nema 12,7% félagsmanna.
Formaður VR sem kosinn var ífyrra fékk enn minni stuðn-
ing, eða 10,7% félagsmanna.
Þetta áhugaleysi félagsmanna íverkalýðsfélögum, sem kem-
ur fram í lítilli kosningaþátttöku
og þar með í óljósu umboði foryst-
unnar, er áhyggjuefni.
Verkalýðsfélög geta haft veru-leg áhrif á þróun mála í ís-
lensku atvinnu- og efnahagslífi.
Þess vegna væri æskilegt að þeir
sem þar eru í forystu töluðu í
skýrara umboði félagsmanna.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Áhugaleysi og
óskýrt umboð
STAKSTEINAR
Ragnar Þór
Ingólfsson
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Nettoline fær 5 stjörnur frá
dönskum gagnrýnendum
styrkur - ending - gæði
Eldhúsinnréttingar
hÁgÆÐa dansKar
OpiÐ:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
úrVal innréttingaViÐ hönnum Og tEiKnum VönduÐ gÆÐaVaragOtt sKipulag
Veður víða um heim 7.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 heiðskírt
Bolungarvík -1 skýjað
Akureyri -3 snjókoma
Nuuk -8 snjókoma
Þórshöfn 1 léttskýjað
Ósló 0 alskýjað
Kaupmannahöfn 0 snjókoma
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -6 heiðskírt
Lúxemborg 4 rigning
Brussel 6 skúrir
Dublin 7 skúrir
Glasgow 6 rigning
London 9 skúrir
París 7 rigning
Amsterdam 8 súld
Hamborg 1 rigning
Berlín 2 þoka
Vín 8 heiðskírt
Moskva -5 heiðskírt
Algarve 13 rigning
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 skúrir
Aþena 19 léttskýjað
Winnipeg -17 léttskýjað
Montreal 0 alskýjað
New York 1 snjókoma
Chicago -1 léttskýjað
Orlando 19 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:11 19:07
ÍSAFJÖRÐUR 8:19 19:09
SIGLUFJÖRÐUR 8:02 18:52
DJÚPIVOGUR 7:41 18:36
Jarðskjálftahrinan við Grímsey er á
undanhaldi. Nokkuð hefur verið um
hræringar á þessum slóðum að und-
anförnu og hinn 22. febrúar kom
skjálfti sem mældist 3,7 og voru
upptök hans út af Öxarfirði.
„Þessar hræringar eru mjög í rén-
un núna,“ segir Gunnar B. Guð-
mundsson, jarðeðlisfræðingur hjá
Veðurstofu Íslands, í samtali við
Morgunblaðið. Skjálftarnir á Gríms-
eyjarsvæðinu núna séu gjarnan eitt
til tvö stig, eða svo vægir að fólk
greini þá ekki. Stærstu skjálftarnir
hafa verið um það bil 2,5. Vel þekkt
er að skjálftahrinur komi öðru hvoru
á þessum slóðum, það er á Grímseyj-
arbeltinu sem aftur er hluti af Tjör-
nesbrotabeltinu. Því má aftur jafna
við brotabeltið á Suðurlandi en bæði
eru þau þekkt umbrotasvæði.
sbs@mbl.is
Hrina
í rénun
Rólegt í Grímsey
Grímsey Horft yfir hafnarsvæðið.
Morgunblaðið/Golli
Unnið er að endurnýjun vélbúnaðar
í gömlu gufustöðinni í Bjarnarflagi
en stöðin hefur þjónað íbúum og
fyrirtækjum við Mývatn allt frá
árinu 1969.
Þó svo að gamla stöðin hafi gefið
mikið eftir hefur hún í gegnum tíð-
ina aukið framboð rafmagns í Mý-
vatnssveit umfram það sem ella
hefði verið, ekki síst eftir að jarð-
strengir voru lagðir í sveitinni fyrir
nokkrum árum, að því er fram
kemur í frétt á heimasíðu Lands-
virkjunar.
Landsvirkjun samdi við breska
fyrirtækið Green Energy Geo-
thermal (GEG) um smíði og upp-
setningu á nýjum vél- og rafbúnaði
og hefur verið unnið að framleiðslu
búnaðar nú í vetur. GEG er byggt á
íslensku hugviti og hefur reist
fjölda lítilla jarðvarmavirkjana í
Kenía undanfarin fimm ár.
Framkvæmdir á verkstað eru nú
að hefjast og er tilhögun þeirra
miðuð við að ekki verði truflun á
tengdri starfsemi á svæðinu, sem
snertir einkum rekstur hitaveitu
Skútustaðahrepps og afhendingu
vatns til Jarðbaðanna í Mývatns-
sveit.
Ekki hefur verið ákveðið hvað
gert verður við gamla vélbúnaðinn,
sem er upphaflega smíðaður árið
1934 og á sér því merka sögu.
Fyrst um sinn verður hann geymd-
ur í skemmu Landsvirkjunar á
svæðinu en áhugi stendur til að
búnaðurinn verði hafður til sýnis í
framtíðinni, sem vélbúnaður fyrstu
jarðvarmarafstöðvarinnar á Íslandi,
segir í fréttinni. sisi@mbl.is
Nýr búnaður í gömlu gufustöðina
Ljósmynd/Landsvirkjun