Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Smart föt, fyrir smart konur.
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52 Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingarráðs
Hafnarfjarðar, segir áformað að
byggja bílakjallara á svæðinu.
Hann segir aðspurður það hafa
reynst vel að byggja bílakjallara á
landfyllingum á Norðurbakka og
sunnan við verslunarmiðstöðina
Fjörðinn. Spurður um byggingar-
magn á svæðinu segir hann það
ekki hafa verið ákveðið. Það verði
gert í skipulagslýsingu.
Ólafur Ingi segir áherslu á að
hafa þjónustu og verslanir á jarð-
hæð bygginga en íbúðir og skrif-
stofur á efri hæðum. Það sé ekki
óraunhæft að ætla að 500 eða jafn-
vel fleiri íbúar geti flutt á svæðið.
Fyrirhuguð þétting byggðar í miðbæ Hafnarfjarðar
Hótel
Þétting byggðar
Fjörður
Fjarðargata
Strandgata
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Áform eru um byggingu fjölda íbúða
ásamt verslun og þjónustu á þétting-
arreitum í miðbæ Hafnarfjarðar.
Skipulagssvæðið afmarkast af Vík-
ingastræti, Suðurgötu, Strandgötu
og allt að safnahúsum við Vestur-
götu.
Ólafur Ingi Tómasson, formaður
skipulags- og byggingarráðs Hafn-
arfjarðar, segir bæinn hafa falið
þremur arkitektastofum að halda
áfram mótun tillagna að nýju deili-
skipulagi. Þær eru T.ark, Trípólí og
Sei. Stofunum var í byrjun febrúar
falið að vinna hugmyndir að nýjum
miðbæ. Þeim hugmyndum var vel
tekið og samþykkti skipulagsráð í
fyrradag að halda vinnunni áfram.
Ólafur Ingi segir engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um fjölda íbúða.
Spurður hvort 200 íbúðir rúmist á
svæðinu segir Ólafur Ingi „málið
ekki komið á það stig að hægt sé að
segja til um hvort íbúðirnar verði 200
eða 600“. Áhersla verði lögð á versl-
un og þjónustu á jarðhæð.
Uppbygging gæti hafist 2020
Ólafur Ingi telur raunhæft að upp-
bygging geti hafist 2020-2021.
Til marks um stærð svæðisins
nefnir Ólafur Ingi að þar séu nú um
900 bílastæði ofanjarðar.
„Þetta er afar
verðmætt land.
Við erum að end-
urskoða deili-
skipulagið. Þetta
er fyrsta skrefið.
Síðan verður
íbúafundur og
ráðinn verkefna-
stjóri. Hans verk
verður að gera
skipulagslýsingu.
Út frá henni verður farið í sam-
keppni.“
Verslunarmiðstöðin Fjörður er á
miðju svæðinu. Það nær frá hring-
torginu við Reykjavíkurveg/Strand-
götu austur að Fjarðarkránni við
Fjarðargötu. „Þetta er eitt fallegasta
svæði Hafnarfjarðar. Ætlunin er að
miðbærinn verði meira aðlaðandi,“
segir Ólafur Ingi. Hann segir að-
spurður ekki rétt að birta núverandi
vinnuteikningar í fjölmiðlum. Þær
séu ólíkar og ekki í endanlegri mynd.
Heimasíða um verkefnið
Hann segir upplýsingum verða
miðlað jafnóðum til íbúa. Meðal ann-
ars verði sett upp heimasíða um
verkefnið á vefsvæði Hafnarfjarðar-
bæjar. Skipulagsferlið verði í sam-
ráði við íbúa.
Ólafur Ingi segir hugmyndir uppi
um að tengja svæðið við almennings-
samgöngur, sem verði efldar með
sérrými í umferðinni. Horft sé til
borgarlínu í þessu efni.
Hann segir aðspurður ekki hafa
verið rætt um innviðagjöld á svæð-
inu til að standa straum af kostnaði
við borgarlínu. Slík gjaldtaka er nú
hafin á þéttingarreitum í Reykjavík.
Ólafur Ingi segir aðspurður að
skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði hafi
samþykkt byggingu hótels á lóð
norðan við Fjörð. Þar er nú bílastæði
og grasflötur við Strandgötu.
Reginn fasteignafélag er með
verkefnið en ASK arkitektar hanna
hótelið. Framhliðar hótelsins eru
brotnar upp og mun það líta út eins
og sambyggð hús. Minnir hönnunin á
Hljómalindarreitinn í Reykjavík.
Teikna nýjan miðbæ í Hafnarfirði
Skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði fela arkitektastofum að halda áfram að móta tillögur að nýjum miðbæ
Formaður skipulagsráðs segir 200 íbúðir rúmast á svæðinu Þar séu nú um 900 bílastæði ofanjarðar
Ný götumynd Skipulagsyfirvöld í Hafnarfirði hafa samþykkt teikningar af hóteli á Strandgötu.
Teikningar/ASK arkitektar
Horft úr Gunnarssundi Hótelið verður norðan við verslunarmiðstöðina Fjörð.
Ólafur Ingi
Tómasson