Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2018 GMC Denali Litur: Frost White, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, Nýr 2018 Denali (nýja útlitið). Vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalara­ kerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Z71 pakki, kúla í palli (5th wheel pakki)og fleira. VERÐ 10.490.000 m.vsk 2018 GMC Sierra SLT Litur: Dark slate, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Öll standsetning innifalin í verði ásamt ábyrgð og þjónustu. VERÐ 9.590.000 m.vsk 2018 GMC Sierra SLT Litur: Hvítur, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upphitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. VERÐ 9.490.000 m.vsk 2017 RAM Limited Litur: Dökk rauður / svartur að innan. Einnig til hvítur og svartur. 6,7L Cummins,loftpúðafjöðrun, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, RAM­box, toppljós, heithúðaður pallur. 35“ dekk, LED­bar, húddhlíf og glug­ gahlífar komið á, allt innifalið. VERÐ 9.990.000 m.vsk ÖFLUG LAUSN VIÐ HÁLSBÓLGU! Bólgueyðandi og verkjastillandi munnsogstafla við særindum í hálsi Strefen 8,75 mg munnsogstöflur og Strefen Orange 8,75 mg Sukkerfri, munnsogstöflur. Innihalda flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga tímabundið úr særindum í hálsi hjá fullorðnum og börnum eldir en 12 ára. Sjúga skal eina munnsogstöflu rólega og láta leysast upp í munni á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, mest 5 töflur á sólahring. Ekki er ráðlagt að nota lyfið lengur en í 3 sólarhringa. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. HUNANGS OG SÍTRÓNU- BRAGÐ APPELSÍNU- BRAGÐ SYKURLAUST ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Aðalskipulag Akureyrar 2018 til 2030 var samþykkt með 11 samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn á þriðjudag. Tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins taka að vísu fram í bókun að þeir samþykki ekki útfærslu á þéttingu byggðar í Kotárborgum eins og hún er sett fram en að öðru leyti er full- komin sátt um plaggið.    Kotárborgir er svæðið á milli há- skólasvæðisins í norðri og Gerða- hverfis í suðri þar sem nú er óbyggt útivistarsvæði. „Það er sjálfsagt að gera ráð fyrir byggð á Pálmholts- reitnum og í beinni línu norður að verndarsvæði Glerár. Við teljum þörf á frekari umræðu um uppbyggingu svæðisins og þróun þess áður en meira svæði er lagt undir sem bygg- ingarland,“ segja sjálfstæðis- mennirnir Gunnar Gíslason og Bald- vin Valdemarsson í bókun.    Tryggvi Már Ingvarsson, formað- ur skipulagsráðs, segir að frá byrjun hafi verið lagt upp með að klára málið fyrir kosningarnar í vor. „Þetta er framtíðarsýn um það hvert við viljum stefna og enginn flokkur hafði áhuga á því að gera aðalskipulagið að kosn- ingamáli,“ sagði Tryggvi í samtali við Morgunblaðið.    Skipulagsmál hafa stundum verið of áberandi í umræðum fyrir kosningar á Akureyri að sumra mati, á kostnað til dæmis ýmissa fé- lagslegra mála sem ættu frekar að brenna á fólki. Eftirminnilegt er til dæmis að fyrir fjórum árum var miklu púðri eytt í hvort mjókka ætti hluta Glerárgötu, þjóðvegi 1 í gegn- um miðbæinn, úr tveimur akreinum í eina.    Aðalskipulagið nýja byggist að miklu leyti á því gamla, eins og jafnan er, en Tryggvi segir þar þó að finna „veigamiklar breytingar. Þær varða fyrst og fremst stefnu um þróun byggðar. Þannig gerir aðalskipulagið ráð fyrir að uppbygging íbúðarsvæða til ársins 2030 rúmist öll innan þétt- ingarsvæða og á byggingarsvæðum í norðurhluta bæjarins í stað þróunar til suðurs eins og eldra skipulag gerði ráð fyrir,“ segir Tryggvi.    Nýjasta hverfi bæjarins, Nausta- hverfi, hefur byggst hratt upp á síð- ustu árum og byggðin þannig teygt sig til suðurs – í átt að útivistarperl- unni í Kjarnaskógi. Til stóð að bæta enn við á þeim slóðum en af því verð- ur sem sagt ekki á næstunni og mest byggt norðan Glerár.    Gert er ráð fyrir að meira en 3.000 íbúðir verði byggðar á Akureyri á næsta áratug eða rúmlega það og sú uppbygging verður öll á þétting- arreitum, sem svo eru kallaðir. Auk hverfanna norðan Glerár er gert ráð fyrir íbúðarbyggð á neðsta hluta Oddeyrar, á milli Laufásgötu og Hjalteyrargötu þar sem í dag er starfræktur ýmiskonar iðnaður í gömlum húsum. Er það, og þétting byggðar við Furuvelli, hugsað til að fjölga íbúum hverfisins og skjóta styrkari stoðum undir skólahald og þjónustu. Að sama skapi er ljóst að þjónusta við gámaflutninga verður áfram á Oddeyrinni og gámar því meðal annars geymdir á gamla Sana- vellinum.    Lengi hefur verið rætt um að stærstur hluti hafnarstarfsemi verði fluttur norður að Dysnesi við Eyja- fjörð en skv. hinu nýju skipulagi verður ekki af því næstu áratugi. „Við tökum afstöðu gegn því. Höfnin er fjöregg samfélagsins, þess vegna þarf að fara varlega í breytingar og ef af færslu verður þarf það að vera á forsendum atvinnulífsins. Hafnar- starfseminni verður ekki þröngvað burtu,“ segir Tryggvi.    Eitt af því sem mjög hefur verið rætt á kjörtímabilinu er lagning raf- lína um land Akureyrar. Nú liggur endanlega fyrir, skv. aðalskipulaginu, að raflínur innan marka sveitarfé- lagsins sunnan Rangárvalla verði settar í jörð. Tryggvi segir það til dæmis veigamikið öryggisatriði vegna flugs til og frá flugvellinum en einnig sé ljóst að ekki verði lagðar raflínur í gegnum útivistarsvæðið í Kjarnaskógi nema í jörðu.    Nýr grafreitur í Naustaborgum verður hannaður eftir nýrri hug- myndafræði um aukið aðgengi al- mennings og miklu útivistargildi. Þannig verður reiturinn hugsaður sem hluti af núverandi útivistarsvæði í Naustaborgum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Oddeyri Horft yfir Eyrina til suðurs. Neðst má sjá gámasvæðið sem verður þar áfram, á gamla Sanavellinum. Gert er ráð fyrir íbúðarbyggð neðarlega á Oddeyri, á svæðinu sem merkt er á myndina; milli Hjalteyrargötu og Laufásgötu. Veigamiklar breytingar á aðalskipulagi Akureyrar Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er áfram bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins og oddviti listans, sem fulltrúaráðið hefur samþykkt. Gunnar skipar 8. sæti listans, líkt og síðast, en flokkurinn er í dag með sjö bæjarfulltrúa af 11. Allir núverandi bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ eru á listanum, nema Sturla Þorsteins- son, sem var síðast í 7. sæti. Það sæti tekur Björg Fenger lögfræð- ingur, sem var áður í 10. sæti. Í sex efstu sætunum nú eru bæj- arfulltrúarnir Áslaug Hulda Jóns- dóttir forstöðumaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, náms- og starfs- ráðgjafi, Sigurður Guðmundsson lögfræðingur, Gunnar Valur Gísla- son verkfræðingur, Jóna Sæmunds- dóttir lífeindafræðingur og Almar Guðmundsson hagfræðingur. Gunnar áfram bæjarstjóraefni í Garðabæ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.