Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 40
ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS
Dublin Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinningshafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Þ
eir sem hafa unun af því að
skoða fornar skólabygg-
ingar ættu hiklaust að setja
Dublin ofarlega á sinn lista
yfir áfangastaði. Þar er nefnilega að
finna Trinity College hvar andans
jöfrar á borð við Oscar Wilde, Samu-
el Beckett og Bram Stoker gengu
um garða og námu fræði. Skólasvæð-
ið er í miðborg Dublin og þar er sag-
an í hverjum hellusteini. Bygging-
arnar eru flestar síðan á 18. öld og
hafa varðveist ótrúlega vel. Áhuga-
fólk um vel varðveittar götumyndir
og borgarhluta verða ekki svikin af
heimsókn í Trinity College, og hver
einasti Instagram-reikningur verður
talsvert fallegri með myndum þaðan.
Bókasafn allra bókasafna
Eitt mesta djásn Írlands er ein-
mitt að finna í Trinity College en það
er hið sögulega handrit The Book of
Kells. Bókin sú var rituð og ríkulega
myndskreytt af munkum í kringum
árið 800 og hefur lifað af, með nokkr-
um skemmdum þó, nokkrar ráns-
ferðir frá hendi víkinga sem rupluðu
ítrekað í Dublin. Síðurnar bera
handbragði munkanna fagurt vitni
enda eru skrautskriftin forkunn-
arfögur, og myndskreytingar og
gyllingar á síðunum þá ekki síður.
Hinn varanlegi íverustaður bók-
arinnar er þó ekki minna dýrindi en
það er hið eldforna bókasafn skólans,
svo tilkomumikið að helst minnir á
eitthvað sem gæti verið að finna í
Hogwarts-skólanum úr Harry Pot-
ter-bókunum. Aðalsalur bókasafns-
ins er heilir 65 metrar á lengd, með
himinhátt þak, og þar er að finna
200.000 bækur sem margar hverjar
eru þær elstu og fágætustu á gerv-
öllum Bretlandseyjum. Það er því
engin furða að safnið sækja um hálf
milljón ferðamanna á ári hverju því
bókasöfn af þessu tagi eru ekki á
hverju strái.
Farðu úr bænum – hvað þetta
er fallegt umhverfi!
Einmitt, það er nefnilega stutt að
bregða sér frá borginni og út í guðs-
græna náttúruna. Hin tignarlegu
Wicklow-fjöll blasa við nánast hvað-
an sem litið er úr borginni og þá
hjálpar til að Dublin er lágreist borg,
ekki ósvipuð Reykjavík. Dagsferð til
fjallanna er ómissandi fyrir alla fjöl-
skylduna og nágrenni þeirra er
hreint út sagt paradís fyrir göngu-
garpa sem og áhugafólk um hjólreið-
ar. Endalausar leiðir og stígar sjá til
þess að engum þarf að leiðast og allir
finna farveg við sitt hæfi. Best af öllu
er að Wicklow-fjöll eru aðeins um
klukkustundar akstur frá Dublin.
Af öðrum náttúruperlum í næsta
nágrenni má nefna Powerscourt Es-
tate, sem er ekki nema í 20 mínútna
fjarlægð. Það er stórkostlega fal-
legur kastali sem fyrst var reistur á
12. öld og endurbættur á 18. öld.
Þúsund ekrur af gullfallegum lysti-
görðum skilja gesti eftir agndofa og
þar er auk þess að finna hæsta foss
Írlands og tvo af fallegustu golf-
völlum landsins.
Fyrir þá sem kjósa kyrrð í bland
við náttúrufegurð er rétt að benda á
Glendalough dal í Wicklow-
þjóðgarðinum en þar eru tvö stöðu-
vötn í stórbrotnu umhverfi og auk
þeirra munkabústaðir, kenndir við
heilagan Kevin, sem byggðir voru á
6. öld. Óvíða er betra að staldra við
og núllstilla líkama og sál til fulls
enda kyrrðin nánast alger í þessu
umhverfi hins helga manns forðum.
Nú fara allir í hundana!
Fyrir þá sem kjósa aftur á móti
aðeins meira fjör má benda á hina
vinsælu fjölskylduskemmtun að
skella sér á völlinn, veðja smáaurum
og fylgjast með hundakapphlaupi.
Það hljómar mögulega eins og vafa-
söm skemmtun en Írar eiga langa
sögu að baki í hundakapphlaupi,
hugsað er sérstaklega vel um
hundana (Irish Greyhound Board
sér til þess) og þeir fá ekki að keppa
lengur en tvö ár. Þar á eftir eru
hundunum fundin ástrík heimili og
eftirspurnin meiri eftir hundi en
framboðið. Séð er til þess að fjöl-
skyldan skemmti sér öll og vissara
er að bóka pláss fyrirfram því „kvöld
í hundunum er geysivinsæl“
skemmtun.
Hverfið sem reis úr öskustónni
Eitt skemmtilegasta hverfi Dublin
nefnist Temple Bar. Fyrir um 40 ár-
um blés hins vegar ekki byrlegar
fyrir borgarhlutanum en svo að til
stóð að jafna hann við jörðu. Hægt
og rólega færðist skemmtilegra líf í
Temple Bar og nú er svo komið að
hvergi í borginni eru fleiri menning-
artengdar starfseiningar á fermetra
en einmitt í Temple Bar. Það
skemmtilega er hins vegar að meira
að segja heimamenn hafa ekki alveg
áttað sig á kostum hverfisins og að-
dráttarafli þess svo það er einmitt
lag að upplifa Temple Bar um þessar
mundir, áður en sjarminn verður á
hvers manns vitorði.
Af áhugaverðustu viðkomustöð-
unum í Temple Bar má nefna Meet-
ing House torgið, þar sem finna má
Ljósmyndasafn Írlands og Gallery of
Photography. Í næsta nágrenni eru
Project Arts Centre og New
Theatre, Gutter-bókabúðin sem er
dásemd og IFI, eitt besta óháða
kvikmyndahús Evrópu.
Til að eyða smá pening eru hins
vegar tveir áfangastaðir algerlega
ómissandi: herrarnir fara í Indigo &
Cloth, sem er í senn herrafataversl-
un, kaffihús og hönnunarstofa, og
dömurnar skella sér í Scout, þar sem
finna má kvenfatnað sem fæst ekki
hvar sem er ásamt flottum borðbún-
aði. Dublin er því einmitt núna hár-
réttur staður til að heimsækja, því
höfuðborg Grænu eyjunnar hefur
sjaldan eða aldrei haft jafn margt
áhugavert að bjóða.
Dublin, nú sem aldrei fyrr
Temple Bar er einn mest spennandi hluti borgarinnar, iðandi af lífi og menningu.
Powerscourt Estate er svo fallegt að gesti sem þangað koma setur hljóða.Það er fallegt um að litast í miðborg Dublin og stemningin jafnan ljúf.
Dublin ber nafn sem er ef til
vill ekki ýkja lýsandi fyrir
borgina nú um stundir því
orðið merkið dökk lind.
Borgin dregur nafn sitt af
dökkum hyl sem var í ánni
Poddle og var staðsettur
rétt við Dyflinnarkastala. Í
dag er aftur á móti bjart yfir
borginni og meira segja
borgarhlutar sem áður
þóttu ófélegir iða nú af lífi,
list og menningu.
Wicklow fjöll og nágrenni þeirra bjóða upp á náttúrulegt umhverfi eins og það gerist fallegast á Írlandi.