Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 52
Sjáið sokkana Gegnsæir
kjólar eru áberandi í
sumartískunni og
svo eigum við að
vera í sokkum í
skónum. Ekki
berfættar eins
og mér finnst
svo mikill vor-
boði.
Marta María Jónasdóttir
mm@mbl.is
Fyrsta skrefið er að stelast til þess
að fara berfætt í skónum í vinnuna
þótt það séu mínus fimm gráður.
Það sleppur ef fólk er í rólegri
innivinnu og situr fyrir framan
tölvu allan daginn. Sumartískan
kallar á meira en að vera berfættur
í skónum. Hún kallar líka á útvíðar
buxur, silkiskyrtur, tvíhneppta
næntísjakka, samlit dress, víða
kjóla og púffermar og auðvitað
helling af alls konar.
Sambland af áhrifum frá áttunda
og tíunda áratugnum einkenna
sumartískuna. Þeir sem eru í
kringum fertugt eru alla jafna
miklu meira til í stíl áttunda ára-
tugarins en stíl þess tíunda. Enda
svo allt of stutt síðan maður var í
Levis 501 með loðnar augabrúnir
og frekar óöruggur með tilvist sína.
Sem gerir það að verkum að maður
þarf aðeins að setja sig í stellingar
til að taka á móti þessum tísku-
straumum á nýjan leik og hleypa
þeim inn í líf sitt.
Á tíunda áratugnum var ég ungl-
ingur í 110 Reykjavík. Klæddist
Levis 501-gallabuxum í stærð 36,
afabol og var í víðri vínrauðri ull-
arpeysu úr Guðsteini yfir (til að
fela hvað rassinn var stór). Á þess-
um árum var
lífið ekki búið
að kenna manni
þá lexíu að
flestir eru bara
að spá í sjálfan
sig, ekki aðra,
og fáir að spá í
hvort einhver
sé með lítinn
eða stóran rass
og hvort það
þurfi að fela
hann inni í vín-
rauðri ull-
arpeysu. Þetta var líka
áður en stórir rassar
komust í tísku.
Kim Kardashian var
reyndar fædd en hún
var í grunnskóla og
ekki farin að hafa
áhrif á heimsbyggðina.
Áður en Kardashian frels-
aði okkur þóttu punkteraðir
rassar mest töff enda tísku-
fyrirmyndir þess tíma oft á
tíðum eins og svangir ung-
Því miður voru mynda-
tökur ekki leyfðar …
Það er akkúrat á þessum
árstíma sem maður fer
að undirbúa nýja árstíð
og peppa sig upp fyrir
sólina og sumarið. Auð-
vitað gerist þetta ekki yf-
ir nótt heldur smátt og
smátt. Fólk tekur eitt
skref í einu í átt að létt-
ara og bjartara lífi.
Púff, pífur og
rendur Minna á átt-
unda áratuginn.
Þessi peysa er frá
Baum und Pferd-
garten á Garða-
torgi.
SJÁ SÍÐU 54
Í þá gömlu góðu Kim
Kardashian ásamt stjúp-
föður sínum og systrum
áður en hún varð rík og
fræg.
Litríkt Ná-
kvæmlega
svona var
tískan 1992.
Aftur í tísku Levis
501 þóttu mjög töff
árið 1992.
Gallatíska Svona
var tískan þegar
501 þóttu svölustu
buxur veraldar.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Verð 79.800 kr.
á mann í 2ja manna herbergi
Flug með tösku, hótel með morgunmat,
rúta til og frá flugvelli. Íslenskur fararstjóri.
Sími 588 8900
transatlantic.is
Riga er meira en 800 ár gömul borg eða frá árinu 1201.
Þar blandast saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli
borgarhlutinn með sinn sjarma og hefðbundin nútímaborg í
hraðri þróun. Hvort sem það er menningin, söfn eða fallegar
byggingar, listaviðburðir og verslanir með allt það nýjasta
á góðu verði - þá finnur þú það í Riga. Gamli bærinn í Riga
er á minjaskrá UNESCO þar sem minjar borgarinnar þykja
þvílíkar gersemar. Auðvelt er fyrir gangandi vegfarendur að
komast á milli í gamla hluta Riga á steinilögðum
strætunum þar sem sagan liggur í loftinu.
18.-22. apríl 2018
Síðu
stu
10 s
ætin
Stórkostleg
miðaldaborg
Riga
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?