Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 54
lingspiltar í laginu. Kate Moss og þær allar áttu senuna og unglings- stúlkur í 110 köstuðu bara inn handklæðinu og fengu sér meiri rjómaís enda ekki vinnandi vegur að komast í það form sem þótti eft- irsóknarverðast á þeim tíma. Hugur minn reikaði ískyggilega til unglingsáranna þegar ég fór með tilvonandi eiginmanni mínum í leiðangur á dögunum. Planið var að kaupa á hann nýjar gallabuxur, svona eins og miðaldra fólk gerir á laugardögum. Þar sem við erum af sömu kynslóð erum við alltaf svolít- ið heit fyrir Levis enda voru allir í þannig þegar við vorum upp á okk- ar besta. Þegar inn í búðina var komið tók glaðlegur drengur á móti okkur og stjanaði við okkur. Kom með hverja brókina á fætur annarri inn í mátunarklefann. Í algeru hugsunarleysi báðum við af- greiðslumanninn um Levis 501 því það snið líkaði okkur svo vel þegar við vorum yngri. Levis 501 þótti nefnilega jafntöff í 220 Garðabæ og 110 Reykjavík. Til að gera langa sögu stutta höfum við tvö ekki hlegið jafnmikið í langan tíma. Lev- is 501 eru greinilega flottari á ung- lingsdreng en á bráðum 45 ára gömlum brúnhærðum lögfræðingi með gleraugu. Mögulega verðum við bæði kom- in í Levis 501 fyrir sumarið 2019, en eins og staðan er núna þurfum við meiri aðlögunartíma. Við græddum þó gott hláturskast sem jók hamingjustuðulinn um nokkur prósent og getum yljað okkur við góða minningu úr búningsklef- anum. Því miður voru myndatökur ekki leyfðar við þetta tækifæri – annars hefði þeim verið póstað með þessari grein. Allt í stíl Sumartískan minnir líka á áttunda ára- tuginn. Þetta dress er frá Baum und Pferdgarten á Garðatorgi. 1992 var að hringja inn Tvíhnepptur jakki minnir á tíunda áratuginn. Hann fæst í Mathildu í Kringlunni. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Hvernig er að starfa í Kanada? „Ég elska að vera hér, sér- staklega í Vancouver. Náttúran er stórfengleg og einhvern veginn allt öðruvísi en á Íslandi. Ég bý í Norð- ur-Vancouver þar sem borgin er í jaðri regnskógarins. Trén hér eru gríðarstór og skógardýrin ekki langt undan. Og svo eru Kanada- búar auðvitað þekktir fyrir kurteisi og tillitssemi sem ég get staðfest hér með.“ Guðbjörg býr með kanadískum eiginmanni sínum ytra, Andrew Burgess. „Við kynntumst á Íslandi árið 2011.“ Langaði að skoða alla valmöguleika Guðbjörg hefur ferðast mikið, unnið fyrir kvikmyndabransann, við vinnufataframleiðslu og eftir efna- hagshrunið varð hún einn stofn- enda PopUp-farandverslunar fyrir grasrót fatahönnunar á Íslandi. „Ég var á fullu í PopUp-inu í eitt ár en svo tók Þórey Björk Hall- dórsdóttir alfarið við því þegar ég fór að starfa fyrir Cintamani sem ég gerði í nokkur ár. Það var mjög áhugaverður tími að koma inn í fyrirtækið því það voru gríðarlegar breytingar framundan. Það urðu eigendaskipti á þessum tíma, sem varð mér mjög lærdómsríkt að taka þátt í að endurhugsa vöru- merkið og gera gagngera tiltekt á vöruframboðinu.“ Guðbjörg segir að eftir fimm ár hafi verið kominn tími til að halda áfram veginn og reyna eitthvað nýtt. „Ég sá auglýsingu á Linked- in um lausa stöðu hönnuðar hjá Arc’teryx, einu virtasta vörumerki fyrir útivistarfatnað. Í fyrstu var þetta fjarstæðukenndur draumur en ég komst í stöðuna eftir nokkur viðtöl og verkefni,“ segir hún og lýsir því að umsóknarferlið hafi tekið sex mánuði. Það besta í sínum bransa Arc’teryx heldur fast í hugsjónir sínar, að gera bestu mögulegu fötin fyrir fjallaíþróttir. „Fyrirtækið hef- ur vaxið gríðarlega undanfarin ár því að það eru vandfundnar flíkur sem eru betur gerðar og endast eins vel. Við leggjum mikla áherslu á að notendur geti treyst fatn- aðinum sínum þar sem fötin eru gerð fyrir útivist í fallvaltri nátt- úrunni. Til dæmis má nefna fjalla- skíðamennsku sem ég hanna mikið fyrir. Það er vaxandi íþrótt, þar Fékk starfið eftir sex mánaða umsóknarferli Guðbjörg Jakobsdóttir fatahönnuður er úr Kópavogi. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Ís- lands sem fatahönnuður árið 2006 og starfar nú sem hönnuður hjá Arc’teryx útivistarfyrirtækinu í Vancouver í Kanada. 54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | gardsapotek.is | appotek.is Lágt lyfjaverð - góð þjónusta Einkarekið apótek Nú einnig netapótek: Appotek.is SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.