Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Þorbjörg Marinósdóttir
tobba@mbl.is
„Þetta er geggjaður kjúklingaréttur
með aðeins fjórum hráefnum, ein-
faldara verður það ekki og hver elsk-
ar ekki að elda einfaldan en bragð-
góðan mat sem hittir beint í mark?“
segir Linda yfir pottunum. „Þessi
réttur er í uppáhaldi hjá öllum í fjöl-
skyldunni, sem er algjört met því
smekkur manna er misjafn á mínu
heimili. Það tekur þá engan tíma að
gera réttinn svo hann passar fyrir
heimili þar sem mikið er að gera.
Það sem er sérstaklega þægilegt er
að sósan sem fylgir réttinum er
einnig marineringin.“
BBQ-sesamkjúklingur
4-6 kjúklingabringur skornar í tvennt
eða lundir
1 bolli góð bbq-sósa
½ bolli hlynsíróp
½ bolli ristuð sesamfræ
Hitið ofninn í 180°C.
Ristið sesamfræin á pönnu og
setjið til hliðar.
Hellið bbq-sósu og hlynsírópi í
skál og blandið vel saman, bætið svo
2 msk af sesamfræjum saman við og
hrærið vel saman.
Leggið bringurnar í eldfast mót
og hellið helmingnum af sósunni yfir
og penslið kjúllann vel með henni.
Sett í ofn og eldað í 25 mín. eða
þar til kjúllinn er tilbúinn.
Þegar kjúllinn er til setjið þið af-
ganginn af sesamfræjunum og notið
afganginn af sósunni með réttinum,
gott er að borða hann með nánast
öllu meðlæti svo sem hrísgrjónum,
salati, salsa eða kartöflum.
Mangó- og ananassalsa
„Nú þegar loks er farið að sjást í
sól er þetta salsa fullkomið enda er
það eins og sól í skál; ávaxtaríkt,
ferskt og gott. Það er einfalt að gera
og passar með nánast öllu og jafnvel
eitt og sér. Það passar vel með
kjúklingnum.“
2 söxuð mangó
1 bolli saxaður ananas
1⁄3 bolli söxuð rauð papríka
1⁄4 bolli saxaður vorlaukur
1⁄4 bolli saxað kóríander
safi úr ½ appelsínu
safi úr ½ lime
1 tsk rauður chili, saxaður, fræhreins-
aður ef þið viljið ekki mikinn „sólar“-
hita
Allt saxað og sett í skál, látið
standa á borði í 30 mínútur áður en
notið er.
Hamingju-gulrótamúffur
„Þessar múffur urðu til þar sem
einn af drengjunum mínum er mikill
gikkur og vildi alls ekki borða gul-
rætur. Í dag borðar hann þær með
glöðu geði og því eru þessar oft
gerðar á heimilinu. Þessar múffur
eru líka mjög saðsamar svo engin
hætta er á að of margar séu borð-
aðar þar sem í þeim er einnig sykur
sem maður vill reyna að minnka. Ég
hef einnig notað döðlusykur í þessa
uppskrift, þá voru þær mjög góðar
en meira eins og brauðbollur. Besta
við uppskriftina er að úr henni
færðu margar múffur en einnig þarf
aðeins að eiga góðan písk og sleif til
að gera þessar gersemar, – minna að
þrífa er alltaf plús.“
2 bollar hveiti
1 bolli sykur
2 tsk matarsódi
2 tsk kanill
1⁄4 tsk salt
2 bollar rifnar gulrætur
½ bolli rúsínur
½ bolli saxaðar valhnetur
½ bolli gróft kókos
1 epli skrælt og saxað
3 egg
1 bolli kókos- eða grænmetisolía
2 tsk vanilludropar/essens
Hitið ofninn í 180°C. Þessi upp-
skrift passar í 18-24 cm múffuform.
Í stóra skál blandið þið saman
hveiti, sykri, matarsóda, kanil og
salti. Blandið svo saman við gulrót-
um, rúsínum, epli og kókoshnetu.
Í annarri skál hrærið þið saman
eggjum, olíu og vanillu. Setjið blönd-
una saman við blönduna í hinni skál-
inni og blandið með sleif og setjið í
form.
Bakið í 20 mín. og stingið í með
hníf; ef ekkert loðir við hann eru
múffurnar tilbúnar.
Uppskrift að fullkominni helgi
Matgæðingurinn og grunnskólakennarinn Linda Björk Ingimarsdóttir reif upp svuntuna og eldaði þessa guðdómlegu rétti fyrir
Matarvefinn. Í raun er hér komin fullkomin uppskrift að girnilegri helgi. Verði ykkur að góðu!
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósmynd/Linda Björk
Fljótlegt og fá-
ránlega gott
Linda Björk er
matgæðingur
mikill en er snill-
ingur í að finna
fljótlegar upp-
skriftir.
Klikkaður kjúlli
Linda ber fram salsa
og ofnsteiktar kartöflur
með kjúklingnum.
Gulrótabomba Þessar múffur eru
virkilega góðar og ekki er verra að
þær eru troðfullar af gulrótum.
Sól í skál
Smá salsa
flýtir fyrir
vorinu.
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.