Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Kjósum unga konu í bæjarstjórn! Guðbjörg Oddný Jónasdóttir 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þráinn Kristjánsson, þáverandi veit- ingamaður í Winnipeg í Kanada, kom blaðamanni á rib-eye bragðið fyrir margt löngu og það hefur ekki farið úr munni síðan. Curtis Olafson, fyrr- verandi öldungadeildarþingmaður í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum, á stóran þátt í því, en hann ræktar naut af Simmental-kyni, sem gefur af sér heimsins besta rib-eye og hefur haldið því að blaðamanni við hvert mögulegt tækifæri. Rib-eye er víða gott í Vesturheimi. Alltof víða! Uppáhaldsstaðurinn er Smith & Wollensky í Boston, en þangað fer maður samt ekki fyrr en búið er að safna í sjóðinn. Manny’s og Murray’s í Minneapolis kunna líka sitt fag rétt eins og 529 Wellington í Winnipeg og svo er um marga, marga fleiri. Á liðnu ári ákvað sælkerinn að borða aðeins minna en meðalsteikta rib-eye steik (medium rare) sem víð- ast í Evrópu. Svona innsetning á mat á menningarmáli. Þeim peningum var vel varið og enn sér þess merki þrátt fyrir hreyfingu í bak og fyrir. Incognito á Möltu Við Miðjarðarhafið, eins og annars staðar í hinum vestræna heimi, má nánast finna hvað sem er. Almennt má ganga út frá því að þar sem eru ferðamenn þar er matur. Malta er sem safn smábæja, hver með sínu sniði. Lífið og fjörið er í St. Julian’s, Paceville og Sliema og þar eru flestir matstaðirnir, en góðar matarholur leynast víða. Einn gim- steinninn er fjölskyldustaðurinn In- cognito á mörkum Qawra og Buggiba við norðvesturströndina. Rib-eye steikin þar er ein sú besta sem blaða- maður hefur fengið á Möltu í fjórð- ung aldar og í raun var hún svo góð að farið var kvöldið eftir til þess að vera alveg viss. Staðurinn er ekki sá fínasti, lítið lagt upp úr umhverfinu, en hjónin, sem eiga og reka staðinn, eru svo al- mennileg og vinaleg að umhverfið breytir engu. Ástæðulaust þótti að fylla diskinn af meðlæti heldur var kjötið látið njóta sín með góðri sósu, sem reyndar var óþarfi enda var henni sleppt seinna kvöldið. Lága verðið spillir ekki fyrir. Floras í Kaupmannahöfn Kóngsins Köbenhavn skartar af mörgum góðum rib-eye stöðum en eins og víða eru þar líka margar túr- istagildrur sem ber að varast. Það er góð regla að kynna sér staði sem heimamenn sækja. Hóteleigandi benti matgæðingnum sem þetta skrifar á að margir veitinga- húsamenn hugsuðu bara um líðandi stundu, ferðamenn kæmu bara einu sinni og því skipti ekki máli hvað væri boðið upp á. Aðrir legðu áherslu á stöðugleikann, heimamenn, og þeim mætti alltaf treysta. Einn þess- ara gömlu og grónu staða væri Flo- ras á Vesterbrogade 16, rétt hjá að- aljárnbrautastöðinni (Hovedbane- garden), og Madklubben klikkaði ekki. Blaðamaður hefur nokkrum sinn- um borðað á þessum stöðum og rib- eye steikin á Floras 2017 brást ekki frekar en fyrri daginn. Huggulegur staður og því kemur á óvart að aldrei hefur verið margmenni í heimsókn- unum undanfarin ár. Sjálfsagt bara tilviljun. Bowery í Amsterdam Margir góðir steikarstaðir eru í miðbæ Amsterdam í Hollandi og það mætti æra óstöðugan að benda á ein- hvern sérstakan. Hér á hið forn- kveðna vel við, leitið og þér munuð finna. Að þessu sinni var gist á Hilton- hótelinu við Schiphol-flugvöll. Það er vel í sveit sett og gaman er að borða rib-eye steik á Bowery-veitingastað hótelsins. Fínn staður með afbragðs- þjónustu, en í dýrari kantinum. Mester Cukraszda í Marcali Ungverjaland býður ekki aðeins upp á afbragðs gúllash-súpu heldur má víða fá fína rib-eye steik. Bestu, skemmtilegustu og dýrustu staðirnir eru að sjálfsögðu í Búdapest, til að mynda kúbverski staðurinn La Bodeguita Del Medio á horni Dob og Kertesz-götu nánast í miðbænum, en góðar steikur má finna á ólíklegustu stöðum. Einn þessara vetingastaða er Mes- ter Étterem & Cukrászda í miðbæ Marcali, skammt sunnan við vest- urhluta Balaton-vatns. Rib-eye steik- in þar hefur aldrei klikkað og eru þær orðnar nokkrar. Goldhorn í Berlín Í yfirreið ársins var víða komið við. Sumir „ferðamannamatstaðir“ voru einmitt það, lokkandi en ekkert meira. Þá ber að forðast. Þétt setinn veitingastaður dag eft- ir dag er hins vegar merki um gæði og Goldhorn-steikhúsið skammt frá Kurfürstendamm í Berlín, ekki langt frá aðalinngangi dýragarðsins, fær hæstu einkunn. Úrvalið er mikið, dýrðin kostar sitt en mikið er gaman að geta leyft sér svona munað þó ekki sé nema endrum og sinnum. Frábær staður í alla staði og bara það að nefna hann kallar fram bragðið góða. La Bonne Auberge í Glasgow Glasgow breyttist mikið við það að vera menningarborg Evrópu 1990 og þess sjást ekki síst merki í veitinga- flórunni. Margir góðir veitingastaðir eru í borginni. Blaðamaður hefur reglulega fengið sér rib-eye á La Bonne Auberge, sem er í sama húsi og hótelið Holiday Inn Glasgow Theatreland í nágrenni við nokkur leikhús og aðalrútubílastöðina, rétt ofan við Sauchiall-göngugötuna. Það er eitthvað svo fágað við um- hverfið og það gerir þennan marg- verðlaunaða veitingastað sérstakan. Steikin er líka alltaf sérstaklega mjúk og bráðnar í munni. Hvönn Brasserie í Þórshöfn Skerpukjötið klikkar ekki í Fær- eyjum en þar má líka fá afbragðs rib- eye. Steikin á Hvönn Brasserie á Hótel Tórshavn var góð og borin fram með rauðkáli. Ekki fengið þá blöndu áður. Vissulega var steikin betri á dýrari stöðum en andrúmsloftið þarna við höfnina var vinalegt og kallaði á mann, eins og reyndar allt sem fær- eyskt er. Eldhúsið í Vesturbænum Til þess að viðhalda venjunni er blaðamaður reglulega með rib-eye í matinn. Þetta er í raun einn helsti munaðurinn, sem hægt er að leyfa sér á heimaslóðum. Með smjör- steiktum sveppum og bakaðri kart- öflu. Algjör unaður. Kristján Þór Sig- fússon, fyrrverandi eigandi Argentínu steikhúss og einn helsti kjötsérfræðingur landsins, hefur ver- ið sannfærandi þegar hann segir að innlenda kjötið sé best, en innflutta nautakjötið fær líka góð meðmæli hjá blaðamanni. Niðurstaðan úr þessari yfirferð er að það er erfitt að eyðileggja rib-eye steik sé helstu reglum um steikingu fylgt. Til eru matstaðir sem færa gestum skósóla biðji þeir um vel steikta steik, en „medium rare“ á ekki að klikka. Meðlætið fer eftir hverjum og ein- um, en þessum matháki þykir best að hafa hlutina sem einfaldasta og forð- ast að drekkja góðri steik í sósu, þó sósan sé góð, eða kaffæra hana í ein- hverju öðru. Búdapest Kúbverski staðurinn La Bodeguita Del Medio. Marcali Mester Étterem & Cukrászda hugar vel að útlitinu. Færeyjar Hvönn Brasserie á Hótel Tórshavn. Innsetning á rib-eye víða um heim Í einfaldleika sínum snýst lífið um næringu, vinnu og hvíld. Að margra mati er rib-eye steik einn besti biti nautakjöts. Eftir óvís- indalega könnun í nokkrum löndum er blaðamaður á því. Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Berlín Goldhorn-steikhúsið skammt frá Kurfürstendamm stóð upp úr á árinu, besta steikin og mesta úrvalið. Heima Blaðamaður gerði sérlega vel við sig 17. júní. Malta Incognito á mörkum Qawra og Buggiba.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.