Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 60

Morgunblaðið - 08.03.2018, Síða 60
Í næstu viku mun útvarpsstöðin K100 standa fyrir leik þar sem hlustendum gefst tækifæri á að næla sér í miða á tónleika Sam Smith í London í apríl. Um er að ræða ferð með flugi, gistingu og miðum á tónleikana. Hinn 25 ára gamli Sam Smith er einhver allra vinsælasti tónlist- armaður dagsins í dag. Hann spratt fram á sjónarsviðið síðla árs 2012 og hefur átt ótrúlegan feril síðan þá. Fyrsta plata hans, In the lonely hour, sem kom út ár- ið 2014 hlaut mikið lof og seldist í milljónum eintaka um allan heim. Í kjölfarið var honum boðið að semja einkennislag James Bond- myndarinnar Spectre en hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir þá lagasmíð. Mikið álag fylgir slíkum vinsældum og ákvað Smith að draga sig úr sviðsljósinu í rúmt ár þangað til platan The Thrill of it All kom út síðasta haust. Smith fylgir nú plötunni með tónleika- ferðalagi um heiminn. Í apríl mun Smith koma fram í heimaborg sinni, London. K100 ætlar í samstarfi við ferðaskrif- stofuna Gamanferðir að gefa miða á tónleika hans í London ásamt flugi og gistingu. Um þriggja daga ferð er að ræða. Til þess að eiga möguleika á því að vinna miða á tónleikana þarf að hlusta náið á K100 í næstu viku. Þegar hlustendur heyra tvö lög í röð með Sam Smith eiga þeir að hringja í 571- 1111 því þá gætu þeir átt möguleika á að vinna miða á tónleikana. Leikurinn verður í gangi alla virka daga frá 09.00- 16.00 í næstu viku og það eina sem þarf að gera er að hlusta vel á K100 og vera með símanúmerið á hreinu. Heppnir hlustendur gætu verið á leið á tónleika með Sam Smith AFP Á tónleikum Sam Smith þykir magnaður á tónleikum. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 Smáratorgi 1, Kópavogi, s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 afsláttur boxum, skúffum... 20% af Port-Bag töskum,TILB OÐ Undanfarna mánuði hefur söng- konan Alice Merton vakið athygli fyrir lagið sitt No Roots. Hefur lagið verið eitt vinsælasta lag K100 undanfarið og virðist ekkert lát á vinsældunum. Merton fæddist í Þýskalandi. Þegar hún var aðeins þriggja mán- aða fluttu foreldrar hennar með hana til Kanada þar sem hún ólst upp til 13 ára aldurs þangað til hún flutti aftur til Þýskalands þar sem hún kláraði nám. Þegar hún lauk námi þar fluttist hún til Eng- lands þar sem hún er búsett í dag. Það má því segja að þessi unga söngkona sé veraldarvön en hún er með þrefaldan ríkisborgararétt. Þetta flakk fjölskyldu hennar um heiminn var einmitt innblásturinn að laginu vinsæla No Roots, en hún hefur greint frá því í viðtölum að sér finnist hún hvergi hafa ræt- ur og því hafi hún samið þetta lag um uppvöxt sinn. Í dag skiptir þessi 24 ára gamla tónlistarkona tíma sínum jafnt á milli Lundúna og Berlínar. Það er ljóst að það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá henni eftir mjög svo góða byrjun á ferlinum. Engar rætur Hin rótlausa Alice Merton hefur notið mikilla vinsælda undanfarið. Með þrefaldan ríkisborgararétt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.