Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 75
DÆGRADVÖL 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Ármúla 24 • S. 585 2800Opið virka daga 9-18, laugardaga 11-16 • www.rafkaup.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt dálítið bágt með þig í fjöl-
menni og þarft að taka þér tak svo þú
getir umgengist annað fólk af öryggi.
Mundu að maður er manns gaman.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert fullur af krafti og iðar í
skinninu eftir að koma öllu því í verk sem
hefur verið á biðlistanum. Fólk vill sjá þig
og njóta nærveru þinnar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Óhófleg ástundum félagslífs að
undanförnu hefur tekið sinn toll hjá þér.
Kallaðu fólk fallegum nöfnum, spurðu
hvað það vilji og uppfylltu óskirnar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér býðst að freista gæfunnar og
taka áhættu sem ætti ekki að koma að
sök ef þú bara leggur ekki allt þitt undir.
Haltu ró þinni og framkvæmdu svo.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Hafðu augun hjá þér þegar þú kynn-
ir samstarfsmönnum þínum verk þitt því
svipbrigði segja oft meira en mörg orð.
Ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu það ekki koma þér á óvart
þótt orsakir deilu þinnar og vinar þíns
séu aðrar en fram kemur á yfirborðinu.
Ekki er allt sem sýnist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sjaldnast vitum við alla söguna um
annað fólk og því eigum við að fara okk-
ur hægt í að dæma gjörðir þess.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér hættir til að vera of
fastur fyrir en ef þú ferð of geyst í hlut-
ina áttu á hættu að missa stuðning
þeirra sem skipta sköpum upp á fram-
haldið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú þarftu að gefa sjálfum þér
sérstakan gaum og koma lagi á öll þín
mál. Mundu að þú færð borgað fyrir að
fara að fyrirmælum annarra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það gengur ekki að blanda
saman léttúð frístundarinnar og alvöru
starfsins. Láttu velgengni ekki stíga þér
til höfuðs, vertu ljúfur og lítillátur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nýttu tækifærið til að víkka
sjóndeildarhringinn. Nú veistu hvað þú
vilt og til hvers þú ert reiðubúinn. Æv-
intýri eru á næsta leiti.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er mikill vandi að bregðast
rétt við óvæntum tíðindum. Gleði og
sorgir eiga sér sömu uppsprettu – hjart-
að. Njóttu þess að tala við gamla vini um
gamla tíma.
Ferendur tjaldarans eftir ÓmarKhayyám nutu mikilla vin-
sælda hjá föður mínum og þeim
sem voru á hans reiki fæddir undir
aldamótin 1900 og upp úr þeim.
Hver þýðingin rak aðra. Ég stalst í
þennan litteratúr krakki og skoðaði
myndirnar sem fylgdu hverju er-
indi. Ég skal ekki gera upp á milli
þeirra en svo vel var kveðið að hátt-
urinn og hrynjandin og blærinn eru
orðin hluti af íslenskri lýrik. Í þýð-
ingu Einars Benediktssonar:
Einn hleifur brauðs í mund, mín fylgifrú,
ein flaska víns, eitt ljóðakver og þú,
sem syngur hjá mér ein í eyðimörk, –
frá auðn til himnaríkis slærðu brú.
Og eins allur góður skáldskapur
hefur Rubáiyat haft áhrif á „nú-
tímaskáldskap“ þeirra kynslóða
sem síðar komu. „Flas til fagnaðar“
segir Ólafur Stefánsson á Leirnum
og hefur greinilega lesið Rubáiyat:
Í grafarþró er gengið lífið hjá,
að gráta liðið fullseint orðið þá.
Því helltu núna óspart gini’ í glas,
og girndum svala eins og framast má.
Davíð frá Fagraskógi orti:
Er sálin rís úr svefnsins tæru laug,
er sælt að finna líf í hverri taug
og heyra daginn guða á gluggann sinn
og geta jafnvel boðið honum inn.
Friðrik Steingrímsson – Filli –
segist á Leir nýkominn úr aðgerð
þar sem skipt var um hnjálið.
Vinnufélagarnir vildu samdægurs
fá að vita hvernig gengi:
Aðgerðin tókst afar vel
allt í sóma það ég tel,
trítl’á nýjum traustum lið
og tærnar snúa fram á við.
Eins og flestir vita getur svona
inngrip haft áhrif á þarmana til
skamms tíma. Þeir virkuðu lítið
fyrstu tvo dagana en það er allt að
lagast:
Innyflin komast nú óðum í lag
annað þó hægara fari,
nú kúka ég örlítið annan hvern dag,
ég ætla það pappírinn spari.
Frábær skeytin fyndin leit,
fóta neytir lengur,
óðinn veitir, át og skeit,
ekki breytist drengur.
Björn Ingólfsson sagði þetta góð
tíðindi og enn eina ástæðuna til að
hrópa húrra fyrir heilbrigðiskerf-
inu:
Læknar hafa löngum hupp-
legir verið heims um bing,
geta líka lappað upp
á liðónýtan Mývetning.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ferhendur tjaldarans
og Mývetningurinn
„ÉG VAR BEÐIN UM AÐ FLYTJA LÍKRÆÐUNA.
ÓLAUNAÐ – EN GÆTI VERIÐ GOTT
TÆKIFÆRI TIL AÐ MYNDA TENGSLANET.“
„ÉG VARÐ ÞRIÐJI!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna ástarljóðið
hans til þín í töskunni
þinni.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
PAR
ADÍS
EKKI
SÉNS
ÉG ER NOKKUÐ VISS UM
AÐ PARADÍS MYNDI VERA
NIÐUR Í MÓTI.
NAGDÝR ERU
ÓGEÐSLEG!!
BÆTTU BARA VIÐ TÓMATSÓSU!
Víkverji er ekki eins og fólk erflest, alltént þegar kemur að
súkkulaðiáti. Allavega finnst honum
hann vera í miklum minnihluta, þar
sem hann vill ekki menga súkkulaðið
sitt með hlutum eins og hnetum eða
rúsínum. Að hluta til stafar það af
því að Víkverja finnst í fyrsta lagi
hvorugt sérstaklega girnilegt, en
mestmegnis vill hann bara að súkku-
laðið hans sé eins hreint og mögu-
legt er. Kannski fær smá-lakkrís að
fljóta með, en ekkert annað.
x x x
Ha, borðar þú ekki hnetur?“ Þessaspurningu hefur Víkverji heyrt
margoft áður. Í seinni tíð hefur hann
freistast til þess að ljúga því að hann
sé hreinlega haldinn hnetuofnæmi,
þar sem fólk sem borðar hnetur
virðist alltaf vera sannfært um að
það sé eini þjóðfélagshópurinn sem
ekki geti lagt sér þetta lostæti til
munns. En nei, Víkverji er víst ekki
með ofnæmi. Honum finnst þær
bara vondar, svona eins og ein-
hverjum gæti fundist hvaða matur
sem er vondur. Nema beikon, því
hver elskar ekki beikon?
x x x
En jafnvel beikon myndi ekki veragott með súkkulaði, og því skilur
Víkverji ekki hversu ótrúlegt úrvalið
er af súkkulaði með annaðhvort
hnetum eða rúsínum, að ótalinni
verstu martröð Víkverja, súkkulaði
með hnetum OG rúsínum. Maðurinn
sem fann upp á þeirri blöndu er ekki
á jólakortalistanum hjá Víkverja,
skal hann segja ykkur.
x x x
Rúsínufælnina er erfiðara að út-skýra en hnetuóþolið. Víkverji
er raunar ekki mikið fyrir þurrkaða
ávexti til að byrja með, en rúsínur
eru í alveg sérstöku fálæti hjá hon-
um. Víkverji telur að útskýring-
arinnar megi að hluta til leita í því að
rúsínur minna hann alltaf innst inni
á dauðar flugur. Og ekki myndi hann
borða flugur, jafnvel þótt þær væru
vafðar fram og til baka í beikoni.
Sem aftur vekur spurninguna: Hef-
ur einhver prófað að súkkulaðihúða
beikon? Hver segir að það yrði ekki
bara sérdeilis prýðilegt á bragðið?
vikverji@mbl.is
Víkverji
En Guð auðsýnir kærleika sinn til
okkar í því að Kristur dó fyrir okkur
þegar við vorum enn syndarar.
(Rómverjabréfið 5.8)