Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 82
Bókin Selá í Vopnafirði er í stóru
broti og ríkulega myndskreytt, fyrst
og fremst nýjum ljósmyndum af
ánni og veiðimönnum en einnig með
eldri og sögulegum myndum. Fjallað
er um dalinn sem Selá fellur um nið-
ur í Vopnafjörð, um ræktun árinnar,
greint frá helstu veiðistöðum og þá
er fjöldi viðtala í
bókinni, við að-
standendur ár-
innar sem og
veiðimenn. Bókin
kemur út í ís-
lenskri og enskri
útgáfu. Hér er
gripið niður í kafla þar sem stað-
arhaldarinn Gísli Ásgeirsson segir
frá.
24 ár í Vopnafirðinum
Einn af reyndustu núlifandi veiði-
mönnum í Selá er Gísli Ásgeirsson,
leiðsögumaður, umsjónarmaður,
landeigandi í dalnum og stjórn-
armaður í Veiðiklúbbnum Streng
sem leigir ána. Gísli segir að Garðar
heitinn Svavarsson hafi „dregið sig“
í Vopnafjörðinn árið 1992, en Gísli
var æskuvinur sonar Garðars,
Heimis Garðarssonar. Garðar H.
Svavarsson var einn magnaðasti
stangaveiðimaður landsins til fjölda
ára og átti jörðina Vakursstaði í
Vesturárdal og fyrstu veiðitúrarnir í
Vopnafjörðinn voru farnir í Vest-
urdalsá. Upp úr því fór reynsla Gísla
vaxandi og hann var farinn að vera
leiðsögumaður laxveiðimanna innan
fárra ára […]
„Ég var strax ofboðslega heillaður
af Selá, maður hafði heyrt sögurnar
af henni og ég gerði mér miklar
væntingar um ána þegar samskiptin
við hana hófust. Og ekki brást áin
þeim væntingum nema síður sé. Á
sama tíma og mér hefur gengið mis-
illa að tileinka mér og komast í sam-
band við aðrar ár, þá komst ég strax
í gott samband við Selá. Hún tók vel
á móti mér og segja má að við, Selá
og ég, höfum átt langt og farsælt
hjónaband,“ segir Gísli, og heldur
áfram:
„Það sem heillar mig umfram allt
annað við Selá er hin ótrúlega fjöl-
breytni. Svæðin eru stór, áin vatns-
mikil, maður er mikið einn og sér af-
ar lítið til annarra að veiðum í ánni.
Þá er fjölbreytni í fiski og von á
stórum löxum sem eru óvenjulega
sterkir. Þá er áin svo margslungin
og löng að það er enn verið að gera
uppgötvanir hvað varðar veiðistaði.
Maður þarf oft að hafa mikið fyrir
hverjum fiski í Selá og hún getur
verið afar krefjandi […]
– Selá brýtur oft líka reglurnar,
t.d. þannig að hún á það til að gefa
fantaveiði í sól, hita og glampandi
sólskini, veðri sem menn myndu
ekki kunna við víðast hvar við aðrar
laxveiðiár. En það er staðreynd sem
ýmsir hafa sagt, að sól og blíða þykir
mjög gott veiðiveður í Vopnafjarð-
aránum, aðallega Selá og Hofsá. Það
stafar kannski af því að þær eru að
upplagi frekar kaldar ár. Við slíkar
aðstæður hafa ég og margir fleiri
lent í ævintýrum, jafnvel magnveiði
sem gefur Laxá á Ásum í sínu besta
skapi lítið eftir. Þannig á ég í minn-
ingunni 13 laxa í beit í Efri-
Sundlaugarhyl. Einnig á ég slíkar
minningar, nokkrar, frá neðsta
svæðinu þar sem maður hittir oft á
öflugar göngur og þá er oft nóg að
gera með allt í keng.“ […]
Þrír fyrstu 15, 17 og 19 punda
Þegar Gísli er beðinn um að nefna
eftirlætis veiðistað í ánni verður Víf-
ilsfljót fyrir valinu, þar hafi hann átt
ánægjulegar stundir, bæði sjálfur á
veiðum og í leiðsögumennsku.
„Ein skemmtileg saga er til dæm-
is frá því þegar ég fór þarna einn eft-
irmiðdag með bandaríska feðga.
Þeir voru báðir óreyndir, sér-
staklega þó strákurinn, 15-16 ára,
sem hafði ekkert veitt. Pabbi hans
hafði þó eitthvað gutlað, en ekki
mikið. Hugmyndin var þó að koma
stráknum á blað og við vorum ein-
mitt búnir að eyða drjúgum tíma
þegar töfrastundin rann upp. Strák-
urinn var búinn að reyna nokkrar
flugur, en síðan var það Collie dog
númer 14 sem hleypti öllu af stað.
Þarna landaði strákurinn þremur
nýgengnum löxum, 15, 17 og 19
punda, fyrstu löxunum sínum og var
alveg búinn á því löngu áður en sá
þriðji var kominn á land. Þegar sú
stund kom ámálgaði pabbinn að nú
ætti hann kannski að taka við, en þá
brá svo við að allt var búið. Enginn
lax hreyfði sig meira á þessari vakt.
Síðan er það þessi mikla fiskrækt
sem staðið hefur um árabil í Selá og
tengist stigabyggingunum, fyrst í
Selárfossi og löngu síðar í Efrifossi.
Það færir mann nær náttúrunni og
áin fer nánast að renna um æðar
manns, að fylgjast með laxinum
nema ný lönd. Að hafa eytt ótöldum
stundum í að fara með ánni, upp úr
og niður úr, gangandi, akandi, á fjór-
hjólum eða jeppum, upp með Hrútá,
inn fyrir Hrútá inn að Illakambi.
Vera landkönnuður og sjá hverja
nýja kynslóð laxa af annarri fæðast,
vaxa og dafna og finna að fjölskyld-
an er að stækka ár frá ári. Það eru
forréttindi og færir mikla gleði.“
Veiðihúsið Hið glæsilega veiðihús Fossgerði. Selárfoss er efst til hægri. Spenna Erlendur veiðimaður glímir við lax í Efri-Sundlaugarhyl og Sveinn Björnsson leiðsögumaður fylgist með.
Var strax heillaður af Selá
Ljósmyndir/Einar Falur Ingólfsson
Náttúrufegurð Lax hefur tekið flugu Vigfúsar Orrasonar í Dimmahyl og stokkið. Selá fellur víða í fallegum giljum.
Stórlax Sveinn Björnsson leið-
sögumaður með 100 cm nýrenning.
Út er komin bókin Selá í Vopnafirði og er hin fimmta í ritröð Litrófs um íslenskar laxveiðiár. Höfundar eru sömu og áður, Guð-
mundur Guðjónsson, sem er ritstjóri, og Einar Falur Ingólfsson, sem hefur tekið allar nýjar ljósmyndir, skrifar einnig. Selá er
ein þekktasta og gjöfulasta veiðiá landsins en saga laxveiða í ánni er þó ekki löng, en ræktunarsaga hennar er mjög merkileg.
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Framtak-Blossi er umboðsaðili
fyrirVOLVO PENTA á Íslandi
Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is
Framtak-Blossi
kappkostar að bjóða
góða þjónustu og
sanngjarnt verð á
varahlutum.
Hafið samband við
Hafþór í síma 895-3144
eða hafthor@blossi.is
Framleitt úr vistvænum
virkum efnum sem
brotna hratt niður í
náttúrunni.
UNDRAVÖRUR
fyrir bílinn þinn
Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum.