Morgunblaðið - 08.03.2018, Side 85
samdráttur upp á 16% milli ára.
Áhorfstölurnar ná aðeins til þeirra
sem horfa á útsendinguna í sjón-
varpi, ekki í tölvum eða snjallsímum.
Áhorfstölurnar hafa oft haldist í
hendur við vinsældir myndarinnar
sem valin er sú besta. Það er þó ekki
í raunin í ár því The Shape of Water
er vinsælli en sigurmyndir síðustu
fimm ára. Myndin hefur þegar skil-
að 57 milljónum Bandaríkjadala þar
í landi, sem er tvöfalt meira en
Moonlight, vinningsmyndin í fyrra.
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti hæddist í
tísti á Twitter að
því að bandarísk-
um áhorfendum
að beinni sjón-
varpsútsendingu
Óskarsverð-
launanna færi
fækkandi milli
ára og taldi skýr-
inguna felast í skorti á stjörnum á
borð við sig. Jimmy Kimmel, kynnir
ársins, svaraði Trump um hæl og
þakkaði óvinsælasta Bandaríkja-
forseta sögunnar fyrir ábendinguna.
Þessu greinir Guardian frá. Í frétt-
inni kemur fram að í ár hafi aðeins
26,5 milljónir Bandaríkjamanna
horft á útsendinguna en þeir voru
32,9 milljónir í fyrra, en þetta er
Hæðist að áhorfstölum
Donald Trump
MENNING 85
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Rússneski leikstjórinn And-rey Zvyagintsev féll í ónáðhjá menningarmálaráð-herra heimalands síns
með tragísku ádeilumyndinni Levia-
than sem frumsýnd var árið 2014 og
hlaut sú kvikmynd fjölda verðlauna
og tilnefninga, m.a. á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes. Í henni tók leikstjór-
inn m.a. fyrir spillingu og valdníðslu
og þótti menningarmálaráðherranum
heldur ljót og neikvæð mynd dregin
þar upp af þjóðinni og deildi ófeiminn
þeirri skoðun sinni.
Og ekki er hún fögur myndin sem
dregin er upp í nýjustu kvikmynd
leikstjórans, Nelyubov eða Loveless
eins og hún heitir á ensku sem þýða
mætti sem Ástlaus eða Ástleysi. Tit-
illinn lýsir vel innihaldinu og leik-
stjórinn gefur áhorfendum engin grið
þegar kemur að ógeðfelldum per-
sónum og hörmulegum afleiðingum
ástleysis. Hvort myndin er ádeila eða
ekki verður hver að meta fyrir sig og
sá sem hér skrifar þekkir ekki nógu
vel til rússnesks samtíma og sam-
félags til að meta það. En vissulega
má skilja myndina sem ádeilu (sér-
staklega ef litið er til lokaatriðis
hennar) og þá á rússnesku millistétt-
ina og lífsgæðakapphlaup hennar þó
fyrst og fremst sé kvikmyndin harm-
leikur og áminning um mikilvægi
kærleikans. Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar.
Í upphafi myndar kynnumst við
einmana tólf ára dreng, Aloysha, þar
sem hann gengur, þungur á brún,
heim á leið að loknum skóladegi í
gráu borgarlandslagi í einhverju út-
hverfa Moskvu. Heima bíður hans
ung móðir, Zhenya, sem hangir öllum
stundum í snjallsímanum sínum og
einu samskipti hennar við drenginn
eru skammir og svívirðingar. Hann
er, að hennar mati, latur, veikgeðja,
væluskjóða og þannig mætti áfram
telja. Móðirin leggur greinilega fæð á
barnið. Þegar faðir drengsins, Boris,
kemur heim upphefst mikið rifrildi
milli þeirra hjóna, ljóst að þau hata
hvort annað af öllu hjarta og eru að
skilja. Nú þarf bara að selja íbúðina
svo hægt sé að hefja nýtt líf. Bæði
eiga nýjan maka; Zhenya ríkan karl
nokkru eldri eiginmanninum og Boris
mun yngri konu sem er að auki þung-
uð og líklegt að barnið hafi komið
undir í framhjáhaldi. Sonur þeirra
Zhenyu og Boris passar ekki inn í
myndina og hvorugt vill fá forræðið
yfir honum. Í heiftúðugu rifrildi kem-
ur upp sú hugmynd að láta skap-
stygga móður Zhenyu taka drenginn
að sér. Zhenya og Boris telja soninn
sofa vært á meðan þau hnakkrífast en
í ljós kemur að hann hefur falið sig á
bakvið hurð og heyrt allt sem þeim
fór á milli. Drengurinn grætur sáran
þöglum gráti, afmyndaður af sárs-
auka. Er það einstaklega sorglegt og
erfitt atriði að horfa á og leikur
barnsins, Matveys Novikovs, einkar
sannfærandi.
Engin niðurstaða fæst í deilu
hjónanna og hvort heldur til síns nýja
maka. Tveimur dögum síðar kemur í
ljós að sonurinn er horfinn en til þess
þurfti símtal úr skóla drengsins.
Zhenya hringir í Boris sem hefur litl-
ar áhyggjur, áhyggjurnar meiri af því
að strangtrúaður yfirmaður hans reki
hann ef fréttist af skilnaðinum en
strangkristileg og íhaldssöm fjöl-
skyldustefna fyrirtækisins leyfir ekki
slíkar syndir. Zhenya hringir á lög-
regluna sem hvetur hana til að
hringja í samtök sjálfboðaliða ef leita
eigi að barninu, lögreglan geti ekkert
gert. Hefst þá viðamikil leit og hjónin
halda á fund móður Zhenyu í von um
að drengurinn hafi farið þangað.
Amman reynist hreinasta norn, orð-
ljót með endemum og ástleysi hennar
á dótturinni algert.
Ástleysi elur af sér ástleysi og eina
ástin sem finna má í þessari óvægnu
kvikmynd er sjálfselskan, egóisminn,
en örlitla ljósglætu má þó greina í
myrkrinu, í hinum góðhjörtuðu sjálf-
boðaliðum sem bera hag saklausra
barna fyrir brjósti. Áhorfandanum er
frá upphafi ljóst að vonin er veik í
þessu verki og það er erfitt að hafa
samúð með foreldrunum þó á þeim
dynji eitthvert mesta áfall sem hægt
er að ímynda sér; að finna ekki barnið
sitt og fá jafnvel aldrei að vita hvað
varð um það. Er hægt að hugsa sér
verri martröð?
Þannig líður þessi hrollvekja
Zvyagintsevs hægt áfram, líkt og
óstöðvandi stórfljót í átt að óvissunni.
Straumurinn er þungur og drunginn
alltumlykjandi, magnaður upp af
listilegri kvikmyndatöku þar sem út-
sýni út um regnvotan glugga segir oft
meira en þúsund orð. Litleysi er
áberandi, gráir og blátóna litir og
tónlistin eykur á hrollinn, sparlega
notuð og á hárréttum augnablikum.
Leikararnir eru fantagóðir og sumir
frábærir og ber þar sérstaklega að
nefna Maryönu Spivak í hlutverki
Zhenyu og hinn fyrrnefnda barnunga
leikara í hlutverki sonarins.
„Hver getur lifað í ástlausum
heimi?“ spyr moldríkur ástmaður
Zhenyu eftir að hún hefur sagt hon-
um frá erfiðu uppeldi sínu og ást-
lausri móður, algjörlega ómeðvituð
um eigin gjörðir, að hún er í engu
betri og hversu sekt hennar og
barnsföður hennar er mikil. Því mið-
ur er það svo að við lifum mörg í ást-
lausum og sjálfselskum heimi og
sumir lifa ástleysið af en aðrir ekki. Í
þessari kvikmynd er ætlunin greini-
lega ekki að veita neina lausn undan
slíku oki og maður spyr sig óneitan-
lega hver tilgangurinn sé með verk-
inu á endanum. Er það ádeila, hug-
vekja, hreinræktuð tragedía? Allt
þetta í senn?
Ástlaus/Ástleysi er kvikmynd sem
hreyfir við manni, svo mikið er víst,
en með þeim hætti að áhorfandanum
líður illa á eftir. Ef hægt er að tala um
„feelgood“-kvikmyndir, myndir sem
auka vellíðan, þá fellur þessi í flokk
„feelbad“-kvikmynda. Hún veldur
vanlíðan en er samt sem áður fjári
mögnuð og situr í minni lengi vel.
Hver getur lifað í ástlausum heimi?
Ástlaus Matvey Novikov í hlutverki Aloysha sem lifir við algjört ástleysi.
Stockfish-kvikmyndahátíðin
í Bíó Paradís
Nelyubov/Loveless bbbbm
Leikstjórn: Andrey Zvyagintsev. Handrit:
Oleg Negin og Andrey Zvyagintsev. Aðal-
leikarar: Maryana Spivak, Aleksey Rozin,
Matvey Novikov. Rússland, Frakkland,
Þýskaland og Belgía, 2017. 127 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Ítalski fiðluleikarinn Nicola Lolli,
sem hefur gegnt stöðu konsert-
meistara Sinfóníuhljómsveitar
Íslands síðan árið 2014, kemur í
kvöld fram í fyrsta skipti með hljóm-
sveitinni sem einleikari. Lolli leikur
fiðlukonsert Prokofíevs frá árinu
1917. Aðalhljómsveitarstjórinn Yan
Pascal Tortelier er við stjórnvölinn.
Á tónleikunum hljómar einnig
mikilfengleg og rómantísk sinfónía,
sú nr. 2, eftir Charles Gounod. Á
starfsárinu hljóðritar Sinfóníu-
hljómsveitin tvær sinfóníur eftir
Gounod, sem var eitt helsta óperu-
tónskáld Frakklands á 19. öld. Sú
sem flutt verður nú hefur verið sögð
eins konar svar hins franska tón-
skálds við tónlist Schumanns.
Tónleikunum í Hörpu í kvöld lýk-
ur á kraftmiklu verki Ravels, La
valse, þar sem „Ravel teygir og tog-
ar tákn Vínarborgar í tónlistinni svo
jaðrar við skrumskælingu, enda
verkið samið skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöldina þegar enn var ekki
gróið um heilt meðal hinna stríðandi
þjóða,“ segir í tilkynningu.
Hljómsveitin kemur aftur fram á
morgun, í föstudagsröðinni Norður-
ljósum, kl. 18. Þá hljóma þrír söngv-
ar úr Myrthen, einsöngvari Þóra
Einarsdóttir, og Geistervariationen
eftir Schumann. Einleikarar á píanó
Anna Guðný Guðmundsdóttir og
Guðrún Dalía Salómonsdóttir. Tón-
leikunum lýkur á Örlagasinfóníu
Beethovens, þeirri fimmtu.
Lolli einleikari í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnandinn Tortelier mun
stjórna hljómsveitinni í Eldborg í
kvöld og Norðurljósum á morgun.
Tortelier stjórnar Sinfóníuhljómsveitinni tvö kvöld í röð
WeycorAR65e
þyngd 5150kg
vél: Deuzt (vatnskæld)
54KW (73hö)
Hanix H27DR
þyngd 2825kg
vél: Kubota
14,4KW (19hö)
Vinnuþjarkar
Þýsk og japönsk gæðavara
Við græjumþað
Til sjós eða lands
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI
ICQC 2018-20