Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Síða 15
4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 taka sér frí frá pólitík. Það eru sannarlega sterk- ir pólitískir straumar innan akademíunnar.“ Það hlýtur að vera hamlandi? „Mér finnst það. Hér eins og annars staðar hugsar fólk gjarnan sér næst og er fyrst og fremst talsmenn sinnar greinar fremur en heildarinnar.“ Maður hefur stundum svo háleitar hug- myndir um vísindin, þar sé allt klárasta fólkið og eigi að vera yfir svona vesen hafið? „Einmitt, en það er alls konar fólk í akademí- unni og ekkert betra né verra en í saltfiskverk- uninni heima. Þetta er ekkert andlegt búdda- klaustur og það eru allir svag fyrir því að fá viðurkenningu og ná sínu í gegn, sem er jú líka mannlegt. Það er ákveðið menningarsjokk að koma inn í vísindin því maður hefur, og ég hafði það sjálf, þessar háleitu hugmyndir um sam- skipti fólks innan þeirra. Mentorinn minn gamli hefur aftur á móti mjög tæra sýn á vísindin, hvernig akademískt starf á að virka og vill útiloka allt annað prjál. Við erum hermenn í þekkingarleit.“ Hefur þú þessa sýn, að þú sért hermaður í þekkingarleit? „Já pínulítið. Það er kannski ekki gott að segja að þetta sé köllun en ég upplifi mig samt sem ákveðinn sendiboða, ég er í þjónustu við samfélagið og minn miðill er að gefa samfélag- inu einhverja mynd af því hvernig lífið er og þótt alls konar kreddur og vesen flækist fyrir í því, mínar eigin og annarra, reyni ég stíft að halda fókus í því starfi.“ Mun nýtast heimsbyggðinni Við ætlum að svissa aftur yfir á rannsóknina sem var kynnt í vikunni og á allan hug Unnar en yfirskrift hennar er Áfallasaga kvenna á Íslandi. Með góðri þátttöku verður í fyrsta skipti hægt að fá nákvæma yfirsýn yfir það hver tíðni áfalla og ofbeldis í samfélagi kvenna er á Íslandi og hvaða áhrif áföll og ofbeldi hafa á sálræna og lík- amlega heilsu kvenna. Einnig hvaða erfða- og umhverfisþættir tengjast mismunandi heilsufari kvenna í kjölfar áfalla. Niðurstöður rannsóknar af þessari stærðargráðu má yfirfæra á samfélög um allan heim svo þetta er ekki aðeins mikilvæg rannsókn fyrir Ísland. Rannsóknin er formlega á vegum Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands og er unnin í sam- vinnu við fjölmarga vísindamenn og stofnanir. „Þetta er þjóðarátak en 65 þúsund konur með skráð farsímanúmer fá persónulegt boð um þátttöku í gegnum sms og aðrar, rúmlega 40 þúsund, sem ekki hafa skráð farsímanúmer, fá boðsbréf í pósti. Við vonum að með þessu verði vitundarvakning í samfélaginu um algengi og vægi áfalla og ofbeldis en einnig munu niður- stöðurnar nýtast við mat á forvörnum á þessum vettvangi og mögulega til að þróa ný meðferðar- úrræði fyrir þolendur áfalla. Vísindalega þurfum við mikinn fjölda til að geta svarað þessum spurningum og því fleiri því betra. Í þeim hluta rannsóknarinnar þar sem við erum að skoða líkamlegt heilsufar, þurfum við mikinn fjölda til að skilja tengsl áfalla við ákveðna sjúkdóma, algengari og sjaldgæfari. Það á einnig við um markmið okkar að skilja hvort erfðaþættir hafi áhrif á mismunandi heilsufar fólks eftir áföll. Íslenskar konur á þessum aldri eru um 110.000 en við höfum ákveðið að konur sem eru eldri en 69 ára geti líka skráð sig í rannsóknina, enda höfum við fundið fyrir að þær hafa áhuga á að vera með.“ Unnur er bjartsýn á góða þátttöku og segir að metoo-byltingin veiti meðbyr. „Fólk veit hvað þessi málstaður er mikil- vægur og þetta er í raun ótrúleg tímasetning því við höfum verið að undirbúa þetta verkefni í 2-3 ár og svo þegar við erum loks tilbúin að leggja af stað hefur metoo skapað enn betri jarðveg. Við spyrjum konur út í mjög nákvæm atriði, þær svara ekki bara því hvort þær hafi lent í áföllum heldur er þetta nákvæm flokkun þar sem konur geta merkt við allt frá erfiðri fæðingarreynslu, ofbeldi, ástvinamissi upp í fé- lagsleg áföll og einelti. Við getum því á ná- kvæmari hátt en áður skoðað tengsl fjölmargra ólíkra áfalla við ýmsar heilsufarslegar afleið- ingar.“ Allar upplýsingar eru dulkóðaðar og ekki er hægt að tengja svör við nöfn en á afallasogu.is skrá konur sig inn og könnunin tekur um 30 mínútur. „Það er mikilvægt fyrir margra hluta sakir að konur taki þátt. Ég held að það sé áhugavert að fara í gegnum lífshlaup sitt á þennan hátt og hugsa út í hluti sem maður hefur kannski ekki hugsað áður. Við vitum að áföll eru algeng og höfum líka sterka tilfinningu fyrir því að þau hafi mikil áhrif á heilsufar okkar. En hin vís- indalega þekking á þessu sviði er ekki alveg komin á leiðarenda, þó svo að sterkar vísbend- ingar séu til staðar. Þess vegna þurfum við rannsókn sem þessa. Fyrir um 60 árum var óljós hugmynd um að reykingar hefðu slæm heilsufarsleg áhrif áður en stórar rannsóknir leiddu það í ljós. Með því að taka þátt erum við að fá miklu betri rannsókn sem er þjóðareign og niðurstöðurnar nýtast á heimsvísu. Ég hrökk í kút þegar vinkona mín ein sagði: „Heyrðu, þessi rannsókn er ekkert fyrir mig,“ því hún taldi sig ekki hafa lent í neinu. Ég vil því taka það fram að þessi rannsókn er fyrir allar konur, óháð sögu um áföll. Það er reyndar afar mikilvægt að þær konur sem telja sig ekki hafa lent í neinum áföllum taki líka þátt, því annars er hætta á því að við fáum, að einhverju leyti, skakka mynd. Svo má líta á þetta sem svo að ef við viljum breyta heiminum, þá er það þekkingin sem breyt- ir honum. Við getum ekki komið í veg fyrir öll áföll en við getum komið í veg fyrir einhver þeirra og að minnsta kosti afleiðingar þeirra. Vísindaleg þekking á áföllum og heilsufarlegum afleiðingum þeirra er besta leiðin til að fá yfirvöld og sam- félagið allt til að skilja mikilvægi þess, að fjárfesta í þessum málaflokki. Ég held að þessi hálftími sé kvenþjóðinni mikilvægur, ekki bara okkar, held- ur öllum kvenþjóðum og líka fyrir kvenþjóðir komandi kynslóða,“ segir Unnur að lokum. „Það er kannski ekki gott að segja að þetta sé köllun en ég upplifi mig samt sem ákveðinn sendiboða, ég er í þjónustu við samfélagið og minn miðill er að gefa samfélaginu einhverja mynd af því hvernig lífið er,“ segir Unnur. Morgunblaðið/Hanna Með nýju Opn heyrnartækjunum verður auðveldara að taka þátt í samræðum í fjölmenni og hljóðupplifun verður eðlilegri en nokkurn tímann fyrr. Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið 100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig. Þannig getur þú staðsett, fylgt eftir og einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra. Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin Tímapantanir í síma 568 6880 www.heyrnartaekni.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.