Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 21
Mokka á Skólavörðustíg hefur haldist nánast óbreytt í meira en hálfa öld en Halldór Hjálmarsson
hannaði útlit staðarins, öll húsgögnin og ljós. Þar hafa ófáir setið í gegnum árin og spjallað.
Á veitingastaðnum Veðri á Klapparstíg má finna stólinn Þórshamar sem Halldór hannaði.
’Þetta er ein af mínumfyrstu minningum, aðvera úti í bílskúr með pabbaþegar hann var að smíða
þessa stóla. Ég fékk nýlega
einhverja nostalgíutilfinn-
ingu og mér fannst eitthvað
svo grátlegt að þetta væri
horfinn heimur.
tugunum. Hér var öflugur húsgagnaiðnaður
með mikilli handverksþekkingu og á sama tíma
voru að skila sér hingað framúrskarandi hönn-
uðir, sem margir höfðu menntað sig hjá bestu
hönnuðum Danmerkur á þeim tíma, á tímabili
sem oft er nefnt gullöld danskrar hönnunar.“
Hrunið stöðvaði ferlið
Örn starfar þessa stundina hjá Landgræðsl-
unni í verkefni sem miðar að eflingu fagþekk-
ingar í uppbyggingu og náttúruvernd á ferða-
mannastöðum, en hefur starfað víða sem
arkitekt og einnig sem leiðsögumaður og land-
vörður á hálendinu. Hann segir að þótt draum-
ur sinn hafi ætíð verið að fara út í hús-
gagnahönnun og feta þannig í fótspor föður
síns, þá hafi hann því miður ekki menntun á því
sviði og láti sér því nægja að setja saman hús-
gögn í stað þess að hanna þau.
Það var fyrst árið 2007 að Örn vildi endur-
vekja hönnun stólanna Skötu og Þórshamars í
kjölfar þess að hann hafði fengið styrk frá
Hönnunarsafni Íslands til þess að gera upp
húsgögn Halldórs; styrk sem hann segir hafa
skipt sköpum. Örn segir mörg þeirra hafa ein-
ungis verið til í einu eintaki og lágu auk þess
undir skemmdum.
„Ég ákvað síðan að senda gamlan stól út til
Þýskalands ásamt teikningum og lét smíða fyr-
ir mig nýtt mót. Það tók langan tíma að ná
þessu réttu og þegar fyrsta sendingin kom
heim þá kom hrunið,“ segir hann og brosir.
„Þá var þetta búið. Það seldust sex stólar í
Saltfélaginu sem þá var og hét, og ég fékk þá
greidda úr þrotabúinu,“ segir hann og hlær.
Í framhaldinu tóku Sólóhúsgögn yfir fram-
leiðsluna um tíma, en þeir smíða ennþá fæturna
undir þá og eru í raun nánustu samstarfsaðilar,
að sögn Arnar.
Vill stækka Skötuna
Örn hefur nú farið af stað aftur, enda í miðju
góðæri. „En ég er auðvitað eins og krækiber í
helvíti hjá birgjum þannig að ég fæ aldrei neinn
magnafslátt neins staðar en samt tekst mér að
selja þessa stóla til verslana og get jafnvel haft
þá ódýrari en Maurinn og Sjöuna, þó ég sé ekk-
ert endilega að bera saman við þá,“ segir hann.
„Það eru núna að koma margar fyrirspurnir og
ef af verður get ég ekkert sinnt neinu öðru.
Mögulega er stóllinn líka að fara að taka þátt í
sýningu í Kaupmannahöfn og það verður
spennandi að sjá hvað kemur út úr því. Svo eru
sérvaldar útgáfur af stólnum seldar í Geysi
Heima. Mig langar bara að koma þessu í ein-
hvern farveg; annaðhvort læt ég einhvern ann-
an um þetta eða ég gerist sjálfur hús-
gagnasmiður,“ segir hann.
Í bílskúrnum hans Arnar eru staflar af stólum sem hann er að setja saman.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Ljósmynd/Valgarður Gíslason
4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21
VIÐ
DRÖGUM ÚT
DUBLIN
8. MARS
Fimmtudagi
nn 8. mars
hljóta 5 hep
pnir áskrife
ndur
flugferð fyri
r 2 með
WOW air til
Dublin