Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Qupperneq 31
kerfisins. Stjórnsýslulög, sem þóttu mikið framfara- spor á sínum tíma, hafa ekki að öllu leyti reynst vel og þungi skrifræðisins hefur aukist mjög með tilkomu þeirra, ekki síst fyrir það hvernig þau hafa verið túlk- uð. Þau eru túlkuð sífellt þrengra. Embætti umboðs- manns Alþingis hefur þróast í að setja skrifræði stjórn- sýslunnar jafnan í öndvegi. Embætti gefur sér að óþrjótandi tími gefist til að kalla eftir álitum og um- sögnum og síðar hafa bæst við lög sem gefa þeim aukið vægi. „Ráðgjöf“ embættismanna er sífellt að færast meir í þann klassíska farveg að vera ekki ráðgjöf held- ur plagg sem hægt er að draga fram, verði óvæntur órói, til að vernda afturendann á þeim sama embættis- manni. Og svo er það gert tortryggilegt, jafnvel af þingmönnum (!) hafi ráðherrann ekki auðsveipur gert sjónarmið embættismannsins að sínum. Ráðherrann á engan kost annan en að varast slíka embættismenn eins og heitan eldinn. Embætti sem ruglar skriffinnsku og oft óþarfa skriffinnsku, saman við sanngjarna og skilvirka stjórnsýslu, vinnur skemmdarverk frá morgni til kvölds. Þrjár doktorsgráður en kann ekki að svara í síma Mannaráðningar og ofurtrú á þykkustu umsóknirnar, umvafðar ótal prófgráðum og doktorsritgerðardoðr- anti sem enginn maður mun nokkurn tíma lesa óþving- aður er uppskriftin núna. Á pappírnum, svo ekki sé talað um í reiknistokknum, getur allt litið vel út. En þar er ekkert um mannleg samskipti, um frum- kvæði, sjálfstæði, einurð, heiðarleika og stjórn- skipulega tryggð. Maðurinn, sem ber alla ábyrgð á ráðningunni, á að kynna sér plögg og álit vel, en hann á fyrst og síðast að kynna sér vel persónulega þá örfáu umsækjendur sem koma helst til álita. Stjórnarskráin hefur sett alla ábyrgðina á hans herðar. Það er grund- vallarlögmál sem ekki má brjóta að valdinu fylgir ábyrgð og ábyrgð vald. Telji menn rétt að breyta því þá er ekkert við því að segja. Þá breyta þeir stjórn- arskránni í þá veru og segja að hinir andlitslausu og ábyrgðarlausu skuli fá það vald sem stjórnarskráin hefur hingað til ekki ætlað þeim. Stjórnarskráin er herra laganna en nú er svo komið að sá herra á engan vin. Það er meiriháttar áfall fyrir þjóðina. Yfirskriftin um að enginn sé dómari í eigin sök, í merkingunni að við það ráði enginn, þarf ekki að vera sönn. Það er ein fámenn stétt í landinu sem býr við meira starfsöryggi en allar aðrar stéttir og á það sameiginlegt með guði að það nær enginn til hennar. En hún þarf að sýna fólkinu í landinu, sem vill treysta henni að hún hafi líka burði til að vera dómari í eigin sök. Því þessi stétt þarf ekki að uppfylla neitt annað markmið en að verðskulda traust. Um forseta Íslands segir stjórnarskráin að hann sé ábyrgðarlaus af stjórnarathöfnum. Það hefur hingað til verið talið þýða að þar með sé hann valdalaus í sömu efnum. Nú telja menn sig hafa breytt stjórnarskránni með almennum lögum þannig að ráðherra mikilvægs málaflokks beri fulla ábyrgð á mannaráðningum en valdið hafi verið fært góðkunningjum úti í bæ sem enga ábyrgð bera. Engin fyrirstaða. Ekki mishæð í flatneskjunni Sennilega er meginástæðan fyrir því að lagt er í slíkan leiðangur sú að stjórnmálin í landinu eru nú sem höf- uðlaus her og þess gætir mjög í þinginu. Það hefði eng- inn leyft sér að setja slíkan hælkrók á lýðræðið ef menn eins og dr. Bjarni Benediktsson, Gunnar Thor- oddsen og Ólafur Jóhannesson ættu enn sæti í þing- salnum. Þingheimur hefur hvað eftir annað verið með upp- hlaup yfir því að framkvæmdavaldið sé yfirþyrmandi gagnvart löggjafarvaldinu. Þó er hið íslenska fyrir- komulag þannig að eftir hverjar kosningar gerir þingið atlögu að höfuðstöðvum framkvæmdavaldsins og send- ir þangað þingmenn (oftast) til að verða æðsta yf- irmann í öllum ráðuneytum. Og það er ekki hinn mjög svo rægði „fjórflokkur“ sem efast má um að sé til, sem mætt hefur galvaskur í stjórnarráðið. Ekki aldeilis. Eftirfarandi flokkar hafa á stuttu skeiði skipað mönnum í ráðherrastóla: Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur Björt framtíð Borgaraflokkur Framsóknarflokkur Samfylking Sjálfstæðisflokkur Viðreisn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Án þess að gerð hafi verið á því athugun skal giskað á að ekki hafi ráðherrar komið frá svo mörgum flokk- um að ríkisstjórnarborði víða annars staðar. Ekki er frítt við að þingmenn úr öllum þessum flokk- um hafi ónotast yfir því að framkvæmdavaldið eigi alls kostar við löggjafarvaldið. En svo kemur sama fólkið í pontuna og segist telja sig sjá merki um það að ráð- herra hafi ekki í hvívetna hlýtt undirmönnum sínum. Og þeir standa á haus í þingsalnum af aðdáun þegar því er haldið fram utanþings og jafnvel í íslenskum dómsal að nefnd úti í bæ eigi að ráða því endanlega en ekki ráðherrann, sem hefur að auki samþykki þing- heims! Auðvitað verður öllu sómakæru fólki ómótt þegar það sér fyrst valdseilingarmenn sem kunna sér ekki hóf. Fólkið horfir hrætt á að stjórnarskráin virðist ekki eiga neinn vin, en í hverjum stjórnarmyndunarviðræð- unum af öðrum er látið undan óvitum sem ganga með þá meinloku að fyrir alla muni þurfi að breyta henni í útþynntan óskalista. Óskalista sem þeim er þá vænt- anlega slétt sama um hvort sé tekið mark á eða ekki. Morgunblaðið/Árni Sæberg 4.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.