Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 34
LESBÓK Um helgina eru síðustu forvöð að skoða „Þetta vilja börnin sjá“ íGerðubergi. Á sýningunni eru myndverk 14 íslenskra myndlistar- manna úr alls 17 barnabókum og er sýningin fyrir alla fjölskylduna. Sýningu bókamynda lýkur 34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018 Það er trend í fjölskyldunni að geta ekkikomið inn í sýningarsal án þess aðreyna að fylla hann,“ segir myndlistar- maðurinn Björn Roth og brosir þegar haft er á orði að hann hafi komið með yfrið nóg af verk- um að setja upp á sýningunni sem hann opnar í BERG Contemporary á Klapparstíg 16 í dag, laugardag, kl. 17. Sýninguna kallar Björn Taugasallöt 2009- 2018. Þar getur bæði að líta raðir vatnslita- verka og olíumálverk; minni og eldri málverk í innri salnum en fjögur stór og splunkuný taka á móti gestum. Þetta er fyrsta sýning Björns í BERG Contemporary en listrænn ferill hans spannar rúma fjóra áratugi. Hann hófst með tilraunakenndum, sjónrænum tónlistargjörn- ingum í lok áttunda áratugarins og þróaðist fljótlega í umfangsmikið og náið samstarf með föður Björns, Dieter Roth, einum áhrifamesta myndlistarmanni síns tíma á alþjóðlegum vett- vangi. Eftir lát Dieters fyrir nær tuttugu árum hefur Björn unnið með dánarbúið, í samvinnu við gallerí þeirra feðga erlendis. Hefur hann sett upp sýningar og verk þeirra í virtustu söfnum og sýningarsölum út um lönd, í seinni tíð með sonum sínum, Oddi og Einari Roth. En á milli hefur Björn gefið sér tíma til að vinna að sinni eigin sköpun, eins og verkunum sem hann sýnir nú. En hvaða verk eru þetta? „Í gegnum árin hef ég mikið haldið til í Loð- mundarfirði og í Bryggjuhúsinu mínu á Seyð- isfirði og ekki með nein sérstök plön um að mála, teikna eða vinna að slíkum verkefnum,“ svarar hann. „Ég elska þessa staði, er alltaf með heimþrá til Austurlands og hlakka til að láta mér líða vel þegar ég er þar. En ég er líka alinn upp við það að vera alltaf að mála, teikna og græja eitthvað. Þess vegna er ég alltaf að vinna að einhverju fyrir austan, ekki að nein- um sérstökum verkefnum, en dagarnir líða ekki án þess að ég vinni eitthvað með litum eða rissi eitthvað. Eins er það þegar ég er í vinnu- stofunni minni á Álafossi, ef ég er ekki að und- irbúa með sonum mínum einhver verkefni, sem venjulega eru sett upp eða flutt erlendis, þá mála ég þar einn út af fyrir mig. Þar mála ég í olíu en í vatnslitum fyrir austan.“ Í rauninni sjálfsþerapía Björn segir taugasallötin sem gefa sýningunni heiti vera vatnslitamyndirnar sem hann hefur unnið fyrir austan. Þegar hann var undir álagi í vinnu og einkalífi hafi hann róast með því að sitja við á kvöldin og næturnar og gera þessar myndir. „Í rauninni er þetta sjálfsþerapía,“ segir hann. „Ég sá þetta líka hjá föður mínum, þegar hann tók sér blýant í hönd og byrjaði að teikna þá urðu oft til svona grúppur. Maður heldur áfram og áfram og það losnar um það sem hefur hvílt á manni og maður róast … Þessu vinnulagi hefur líklega líka verið haldið að mér því móðir mín er listþerapisti,“ bætir hann við en Sigríður Björnsdóttir var frumkvöðull á því sviði hérlendis. „Þegar maður hefur setið allan daginn á skrifstofunni, í símanum og skrifað tölvupósta, að væla í fólki og þrasa eitthvað, fjármagna verkefni og biðja um réttlæti eða eitthvað ann- að – sem er það sem maður gerir á skrifstofu- tíma – þá er gott þegar kvöldið kemur og nótt- in að vera einn með sjálfum sér mála og teikna; fyrr en varir, þegar ég stoppa, er kom- in grúppa af einhverju litskrúðugu og ég finn fyrir létti. Og get farið að sofa, áður en nýr dagur tekur við með nýju streði – þetta eru taugasallötin …“ Að heillast af hugarheimi Dieters Í samtali um olíumálverkin kemur í ljós að þau eldri hafa verið lengi í vinnustofu Björns, verið þar eins og heimalningar „í einhver ár,“ segir hann, og þar hefur hann unnið reglulega í þeim, „klappað þeim og strokið við og við gegnum árin“, eins og segir í texta sem fylgir sýningunni úr hlaði. „Ég ákvað síðan að gera eitthvað sérstakt fyrir þessa sýningu og það eru stóru verkin fjögur sem taka á móti fólki. Ég lagðist í vík- ing á vinnustofunni fyrir tveimur vikum og vann að þeim á næturnar; þessi málverk eru þaulunnin og einskonar samantekt á öllu hinu sem má sjá á sýningunni. Í þeim má sjá birtast aftur þær sjónrænu hugmyndir sem ég vinn út frá í hinum verkunum.“ Þeir sem fylgjast með alþjóðlegum miðlum sem fjalla um myndlist sjá að verk Dieters Roth, og þau sem þeir Björn unnu saman, eru sett upp á sýningum víða. Og eins og gefur að skilja er í mörg horn að líta hjá Birni í kring- um sýningarhaldið. Er ekki erfitt fyrir hann að finna tíma til að vinna sín eigin verk sam- hliða? „Ég er mikið spurður að þessu – en þetta rennur allt í eitt.“ Og Björn nefnir sem dæmi hvernig tíma sínum hafi verið varið undan- farna mánuði. „Frá áramótum vann ég í Zürich að uppsetningu á mjög stórri sýningu á verkum föður míns en hún var opnuð 18. jan- úar. 21. janúar var ég kominn austur á Seyðis- fjörð að taka á móti listaháskólanemum á tveggja vikna námskeið; 6. febrúar var ég kominn hingað suður að undirbúa þessa sýn- ingu hér, meðal annars með því að ramma inn með syni mínum tæplega hundrað myndir og mála þessi stóru olíumálverk. Þau eru rétt að þorna! Í byrjun apríl þarf ég að vera kominn erlendis aftur að vinna að stóru verkefni og verð við það í tvo mánuði. Svona rekur þetta sig áfram.“ Því þessi verk ykkar Dieters Roth eru ekki þess eðlis að hægt sé að senda þau í kössum milli safna og hver sem er geti sett þau upp. „Nei, þetta er létt vandamál,“ segir Björn og brosir. „Og málin hafa þróast þannig að synir mínir eru komnir á fullt í þetta með mér. Og án þess að ég hafi ýtt á þá – þetta gerðist átómatískst enda voru þeir strax flinkir og áhugasamir unglingar. Það var ekki síst afi þeirra sem smitaði þá af áhuganum, þeir unnu að myndverkum með honum og það var ekkert venjulega skemmtilegt að vera með gamla manninum! Sama kom fyrir þá og kom fyrir mig þegar ég var strákur, að heillast af hugar- heimi Dieters. Án þess að ég vissi af vorum við allt í einu farnir að vinna saman – en svo á ég mín einka-taugasallöt sem ég vinn að á milli,“ segir Björn. „Ég ákvað síðan að gera eitthvað sérstakt fyrir þessa sýningu og það eru stóru verkin,“ segir Björn Roth um málverkin sem taka á móti gestum. Morgunblaðið/Einar Falur „Maður heldur áfram og áfram“ „Þetta eru taugasallötin,“ segir Björn Roth um raðir vatnslitamynda á sýningunni sem hann opnar í BERG Contemporary. Og hann sýnir líka eldri olíumálverk og nokkur stór og splunkuný og segist alltaf vera „að mála, teikna og græja eitthvað“. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is ’Ég sá þetta líka hjá föðurmínum, þegar hann tók sérblýant í hönd og byrjaði aðteikna þá urðu oft til svona grúppur. Maður heldur áfram og áfram og það losnar um það sem hefur hvílt á manni og maður róast …

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.