Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Side 36
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes Sunna Sigfríðardóttir Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.3. 2018 LESBÓK Kvikmyndir Eitt eftirminnilegasta klúð- ur Óskarsverðlauna fyrr og síðar varð á síðasta ári þegar Warren Beatty og Faye Dunaway tilkynntu vitlausa mynd sem sigurvegara í flokki bestu mynda, La La Land, sem vann alls ekki heldur Moon- light. Það var að vísu ekki við þau að sak- ast heldur rugling á umslögum hjá öðr- um starfsmönnum en engu að síður vekur það athygli að í ár ætla þau að mæta aftur til leiks og kynna sama flokk. Á vef TMZ kemur fram að Bonnie og Clyde parið sé að æfa sögulega framkomu og spurningin er hvort þau gantist eitthvað með umslögin eða vísi í atvik síðasta árs. Dunaway hefur sagt frá því í viðtölum að hún hafi upplifað mikið sam- viskubit eftir atvik síðasta árs en nú sé auðveldara að hlæja að því ári síðar. Snúa aftur með atriði Warren Beatty og Faye Dunaway eru tilbúin í slaginn. Tónlist Meghan Trainor tókst á við mikið þunglyndi og kvíða eftir að hún neyddist til að leggjast undir hnífinn og gangast undir aðgerð á raddböndum sínum árið 2016. Hún óttaðist að ferli sínum gæti verið lokið. Í viðtalsþættinum The Dan Wootton Interview podcast sagði hún frá því hvernig kvíðaköstin gátu tekið þrjá daga samfellt og hún hefði upplifað sig bæði mjög andlega og líkamlega veika. Hún hefði fyrst komist að því hvað hrjáði hana þegar hún fór til læknis og sagðist óttast að hún væri með ofnæmi fyrir einhverju, en þá kom í ljós að kvíðinn hafði svona mikil líkamleg áhrif. Meghan Trainor hefur þurft að takast á við mikinn kvíða. AFP Taldi kvíða vera ofnæmi Elen DeGene- res varð fræg fyrir að taka hópsjálfu á verðlaunahátíð- inni.  Það er ekki tilviljunum háð að Billy Crystal hefur verið kynnir Óskarsverðlaunanna árin 1990-93, 1997-1998, 2000, 2004 og 2012. Hann lendir yfirleitt í efstu sætum allra lista yfir bestu Óskarsverðlauna- kynnana. Skiptir þá engu þótt sum- um finnist frammistaða hans síðast, 2012, ekki hafa verið á við þær fyrri, hann er samt kóngurinn. Ástæðan segja margir vera að fyndni hans er hlýleg og svo er svo einstaklega auð- velt að láta sér líka við hann að þótt hann fari í grófan brandara er hann samt hlýlegur.  Næstu kynnar eru ekki eft- irminnilegir af því þau þættu svo góð, þvert á móti þá lenda James Franco og Anne Hathaway jafnan í því að vera útnefnd sem verstu kynnar fyrr og síðar, vandræðalega vondir. The Wrap gekk svo langt að segja að Franco hefði verið líkt og í dauðadái á sviðinu og Hathaway reyndi að redda málunum með því að vera hress, en ofgerði hressileik- anum svo að samspil þeirra varð eins og einn stór brandari. Gestir botn- uðu oft hreinlega ekki í hvað þau voru að segja og reyna að gera.  Steve Martin hefur tvisvar kynnt Óskarsverðlaunin og hlotið lof í lófa fyrir. Martin hefur þessa stó- ísku ró sem kynna skortir stundum, og fyndni hans nýtur sín á fágaðan og áreynslulausan hátt, hann kann sig og veit nákvæmlega hversu langt hann má ganga.  Whoopi Goldberg hefur gert allar þær fjórar hátíðir sem hún hef- ur kynnt, 1994, 1996, 1998 og 2002, eftirminnilegar. Ekki bara með því að vera skemmtileg og fyndin heldur leggur hún alltaf svolítið aukalega í sýninguna, með búningaskiptum í ætt við Eurovision og ýmiss konar góðlátlegri stríðni við samstarfsfólk á sviðinu.  Ellen DeGeneres er eftirlæti margra en hún var kynnir 2007 og 2014. Hún er afslöppuð og tekur upp á ýmsu óvæntu og skemmtilegu, eins og þegar hún smellti í hina frægu hópsjálfu af sér og Óskarsgestum. Sumum hefur þótt skorta á tilþrif í hennar frammistöðu, það vanti flug- eldasýningu en aðrir segja að hún sé kynnir sem geti ekki mistekist og falli öllum í geð.  Frá því að Hugh Jackman kynnti Óskarsverðlaunin 2009 þykja fáir hafa náð að fylla hans sæti. Kannski geta það fáir, því ekki aðeins var hann yfirmáta fyndinn heldur söng hann og dansaði eins og hann væri að leika í söngvamynd.  Seth MacFarlane kynnti hátíð- ina 2013 og strax á fyrstu mínútum þótti það ekki boða gott þegar hann eyddi nokkrum mínútum í að tala um hve slæmur kynnir hann yrði ef- laust. Sem varð svo raunin. Mörgum er í minni þegar hann flutti atriðið Show us Your Boobs en í heild þóttu brandarar hans óviðeigandi og með hallærislegum kynferðislegum til- vísunum.  Þrátt fyrir að Neil Patrick Harr- is, sem sá um hátíðina 2015, hefði staðið sig frábærlega á öðrum verð- launahátíðum svo sem Emmy þá birtist allt annar Harris á sviðinu á Óskarsverðlaunahátíðinni og náði sér aldrei á flug, ekki fyrr en með töfrabrögðum alveg undir rest, en þá höfðu heilir þrír tímar liðið í fremur tilþrifalitlum leiðindum.  Chris Rock var kynnir fyrir tveimur árum og einnig 2005. Rock er einn þeirra góðu, hann potar í áhorfendur, bendir á bleiku fílana í gríni sínu, er orkumikill, léttur og skemmtilegur. Billy Crystal er í eftirlæti afar margra sem besti kynnir fyrr og síðar. AFP 10 eftirminnilegir Óskars-kynnar Afhending Óskarsverðlaunanna verður sýnd næstu nótt, aðfaranótt mánu- dags 5. mars. Kynnir kvöldsins er Jimmy Kimmell og snýr aftur eftir frábæra frammistöðu í fyrra. Sunnudagsblað Morgunblaðsins skoðaði eftirminni- lega kynna fyrr og síðar, slæma og góða. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Parið Anne Hathaway og James Franco áttu sögulega vonda frammistöðu sem kynnar verðlaunanna, hann eins og dauðyfli og hún að reyna að redda málum. Whoopi Goldberg gerir allt með stæl. Steve Martin var háttvís og hans fágaða fyndni naut sín vel.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.