Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.03.2018, Qupperneq 40
SUNNUDAGUR 4. MARS 2018
www.husgagnahollin.is
558 1100
HELGAR
SPRENGJA
LÝKUR Á
MÁNUDAG
ACURA
Borðstofustóll. Dökk
grátt áklæði með
svörtum stálfótum
eða aski. Og svart
leður með svörtum
stálfótum eða aski.
AFSLÁTTUR
50%
Áklæði með stálfótum
17.995 kr.
35.990 kr.
Áklæði með viðarfótum
19.995 kr.
39.990 kr.
Leður með stálfótum
19.995 kr. 39.990 kr.
Leður með viðarfótum
21.995 kr. 43.990 kr.
2ja sæta: 170 × 95 × 92 cm
259.994 kr. 399.990 kr.
3ja sæta: 225 × 95 × 92 cm
279.494 kr. 429.990 kr.
Stóll
207.994 kr.
319.990 kr.
AFSLÁTTUR
35%WARREN Sófasett frá Broyhill.
Hágæða brúnt leður.
TAXFREE
HELGARSPRENGJU
af allri SMÁVÖRU*
og öllum STÓLUM*
* Taxfree tilboðið jafngildir 19,35% afslætti. Gildir
hvorki af Iittala né sérpöntunum. Að sjálfsögðu
fær ríkissjóður viðisaukaskatt af söluverði. Afslátt
urinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.
Kristín Helga Kristinsdóttir fékk ung mikinn áhuga á hand-
bolta, þökk sé föður hennar, og þau hafa margoft farið saman á
landsleik. Hún hugsaði sér því gott til glóðarinnar þegar hún sá
tvo landsleiki auglýsta; keypti á netinu miða á þann seinni,
sunnudaginn 25. febrúar, og bauð föður sínum og systur með.
„Ég sagði þeim að þetta væri mjög spennandi, Guðmundur
[Guðmundsson] orðinn þjálfari og leikirnir umspil fyrir HM
2019. Pabba fannst það reyndar skrýtið, hélt það ættu ekki að
vera leikir fyrr en í júní en ég sagði það ekki rétt; það stæði
svart á hvítu að þetta væri umspil fyrir HM.“ Daginn fyrir leik
sendi faðir Kristínar henni skilaboð. Hafði áttað sig á hvernig í
málinu lá: þetta væri körfubolti! „Ég var búin að bíða spennt í
heilan mánuð eftir handboltalandsleik en við fórum auðvitað, og
höfðum rosalega gaman af. Þetta var einn mest spennandi
körfuboltalandsleikur sem hefur farið fram!“ segir Kristín.
Áhorfendur skemmta sér í Laugardalshöll. Að vísu á handboltalandsleik en það skiptir varla máli með þessari frétt!
Morgunblaðið/Golli
Það var þó handaíþrótt!
Jón Arnór Stefánsson, besti íslenski körfubolta-
maðurinn, í leiknum gegn Tékkum. Ólafur bróðir
hans er besti handboltamaður Íslandssögunnar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Keypti miða á landsleik í handbolta og
hafði gaman af – þótt það væri körfubolti
„Það er gestkvæmt í Lista-
mannaskálanum þessa dagana.
Engin furða. Jóhannes Sveinsson
Kjarval er þar á ferð með sýn-
ingu á nýjum verkum, sem ekki
hafa áður komið fyrir almenn-
ings sjónir,“ sagði Valtýr Pét-
ursson, myndlistargagnrýnandi
Morgunblaðsins, 19. febrúar
1961. Valtýr, gagnrýnandi blaðs-
ins til áratuga, segir: „Megnið af
þeim verkum er meistari Kjar-
val sýnir að sinni hefur hann
unnið síðustu ár, en einstaka
málverk er frá eldri tíma. Það er
ætíð mikill viðburður í listalífi
Reykjavíkur, þegar Kjarval held-
ur sýningu, og þótt hann hafi al-
veg nýlega átt 75 ára merkisdag,
verður ekki séð á þessari sýn-
ingu, að aldur skipti nokkru máli
fyrir þennan einstaka listamann.
Hann er langt frá því að losa
hald á penslinum, og sum þeirra
verka, er hann hefur nýlokið við,
eru með því bezta, er hann hef-
ur gert.
Um mosa og hraunmyndir
Kjarvals er óþarft að spjalla.
Hann hefur ekki yfirgefið þetta
viðfangsefni sitt. Nú sýnir hann
nokkrar slíkar myndir, sem
hvergi gefa eftir, því er hann hef-
ur áður gert, jafnvel freistast
maður til að halda því fram, að
hann hafi ekki áður verið eins til-
þrifaríkur í mosa og hraunum og
nú.“
GAMLA FRÉTTIN
„Með því
bezta“
Páll Ísólfsson tónskáld og Jóhannes Sveinsson Kjarval, til hægri, rýna í verk
þess síðarnefnda á sýningu hans í Listamannaskálanum 16. febrúar 1961.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Helen Hunt
bandarísk leikkona
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
sviðsstjóri hjá embætti Landlæknis
Jodie Foster
bandarísk leikkona