Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
Ein helsta hetja nýafstaðinna vetrarólymp-
íuleika, skíðagöngukappinn Johannes Høsflot
Klæbo, var ekki fremstur í sinni íþrótt frá
unga aldri. Þessi 21 árs gamli íþrótta-
maður var fremur lágvaxinn sem
krakki, þroskaðist seint og var ekki
endilega líklegastur til afreka.
Hann var raunar ekki einu sinni
ákveðinn í því sjálfur fyrr en fyrir
nokkrum árum að hann ætlaði að
leggja skíðagöngu fyrir sig því hann
hafði líka mikinn áhuga á fótbolta.
Eftir að hann tók vaxtarkipp um 15
ára aldur fór honum að ganga
betur á skíðunum og hæfileikar
hans og elja komu betur í ljós. Hann
æfði þó bæði fótbolta og skíða-
göngu allt þar til hann tók þá
ákvörðun 17 ára að leggja skíða-
gönguna fyrir sig.
Afi Klæbo gaf honum
fyrstu gönguskíðin þegar hann
var tveggja ára og afinn, Kåre Høsflot,
Stórkostlegur árangur norskraíþróttamanna á Vetrarólymp-íuleikunum í Pyeongchang í Suð-
ur-Kóreu hefur vakið athygli víða um
heim.
Norðmenn nældu sér í fjórtán gull-
verðlaun, fjórtán silfurverðlaun og ellefu
brons á leikunum. Alls 39 verðlaunapen-
ingar rötuðu um háls Norðmanna og
stærri þjóðir klóra sér nú í höfðinu yfir
því hvernig þjóð sem telur aðeins fimm
milljónir manna getur borið höfuð og
herðar yfir þær sem eru margfalt fjöl-
mennari eins og til dæmis Bandaríkin
(320 milljónir), Þýskaland (83 milljónir),
Bretland (66 milljónir), Suður-Kóreu og
Kanada (36 milljónir).
Menningin kringum
íþróttirnar skipti máli
Norðmenn sjálfir, bæði íþróttamenn og
forsvarsmenn íþróttastarfs í landinu sem
rætt hefur verið við í erlendum miðlum,
telja að skýringar á þessum góða árangri
megi fyrst og fremst finna í menningunni
sem leitast hefur verið við að byggja upp
í kringum allt íþróttastarf í landinu.
„Okkar sýn er að íþróttir eigi að vera
fyrir alla,“ segir Tom Tvedt, formaður
norsku ólympíunefndarinnar, í samtali
við breska blaðið Guardian á dögunum.
„Áður en þú verður þrettán ára ættu
íþróttir bara að snúast um að það sé gam-
an. Við einblínum ekki á það hverjir
vinna fyrir þann aldur. Í staðinn leggjum
við alla áherslu á að fá börn til að taka
þátt í skipulögðu íþróttastarfi í ein-
hverjum af okkar 11.000 íþróttafélögum.
Og árangurinn er sá að 93% norskra
barna stunda íþróttir reglulega hjá ein-
hverjum þessara félaga.“
Að ná sem flestum iðkendum er mark-
miðið og þannig telja Norðmenn sig bæði
leggja grunn að bættri heilsu lands-
manna og betri árangri á stórmótum, því
með auknum fjölda iðkenda sé úr fleiri
einstaklingum að velja þegar kemur að
því að velja þá bestu úr til að keppa fyrir
hönd þjóðarinnar. En jafnvel þá, þegar
komið er í alþjóðlegar keppnir milli
landa, síast „allir-með-menningin“ inn
hjá norsku íþróttamönnunum. Ólympíu-
farar halda þétt hver utan um annan og
leggja áherslu á vináttu og samstöðu í
stað stjörnudýrkunar. Eða eins og silf-
urverðlaunahafinn og ólympíufarinn
Kjetil Jansrud orðaði það svo vel í
viðtali: „Við sjáum enga ástæðu
eða réttlætingu fyrir því að
þú þurfir að vera skíthæll
til að vera góður íþrótta-
maður.“
Enga
skíthæla í
liðið, takk!
Norðmenn voru sigurvegarar Vetrarólympíuleik-
anna með 39 verðlaun. Í Noregi er áhersla lögð á að
í íþróttafélögum séu sem flestir iðkendur, allir séu
með en enginn keppi fyrr en 13 ára. Norðmenn
vilja engan hroka hjá sínu íþróttafólki, samstaða er
sett á oddinn en stjörnustælum úthýst.
þjálfar piltinn enn þótt líklega hafi fleiri bæst í
þjálfarateymið á síðari árum.
Klæbo, sem sneri heim með þrjú ólympíugull
frá Pyeongchang, er talinn gott dæmi um það að
ekki skyldi leggja ofuráherslu á sérhæfða afreks-
þjálfun barna of snemma. Tore Ovrebo, sem sér
um afreksþjálfun hjá norska Ólympíusamband-
inu segir til mikils að vinna að láta krakka ekki
keppa í íþróttum of snemma. „Við viljum að
þau þroskist og öðlist félagslega
færni. Þau læra mikið af íþrótt-
um. Þau læra mikið af því að
leika sér. Þau læra mikið af því að
vera ekki dæmd. Þau læra mikið
af því að þurfa ekki að vera
kvíðin. Og þannig líður þeim
betur. Og þá er líklegra að
þau haldi áfram.“
Aðdáendur
Klæbo eru eflaust
þakklátir fyrir að honum
leið vel á æfingum sem
barn og hélt áfram.
Gulldrengurinn
Johannes Hoes-
flot Klæbo.
AFP
Ekki alltaf verið bestur
AFP
Norðmenn kunna að fagna og á Vetrarólympíuleikunum höfðu þeir ríka ástæðu til enda nældi norska keppn-
isfólkið sér í 39 verðlaun, fleiri en nokkur önnur þjóð. Þeir vilja meina að það að hlúa vel að grasrótinni, þ.e.
barna- og unglingastarfi íþróttafélaganna, sé lykilatriði í góðum árangri á alþjóðlegum vettvangi.
’
Yfirburðirnir eru slíkir að ef liðið „Norðmenn
sem heita Johannes“ væri skráð til keppni þá
væri það lið í 10. sæti yfir flesta gullpeninga.
Dan Wetzel, dálkahöfundur Yahoo Sports
ERLENT
EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is
SVÍÞJÓÐ
STOKKHÓLMUR
Madeleine prinsessa
eignaðist sitt þriðja
barn á föstudag
með eiginmanni
sínum Christopher
O´Neill. Fyrir eiga
hjónin tvö börn,
fædd 2014 og 2015.
NORÐUR-KÓREA
Leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-un, bauð Donald
Trump forseta Banda-
ríkjanna á sinn fund og
hefur sá síðarnefndi þekkst
boðið. Jafnframt samþykkti
Jong-un að stöðva kjarn-
orku- og eldfl augatilraunir
landsins. Vonir eru bundn-
ar við að fundurinn bæti
ástandið á Kóreuskaganum.
BANDARÍKIN
LOS ANGELES Klám-
myndaleikkonan Stephanie
Clifford hefur höfðað mál
gegn forseta Bandaríkjanna,
Donald Trump, þar sem
samkomulag sem hann lét gera
við hana um að þegja um sam-
band þeirra sé ógilt vegna þess
að Trump hafi aldrei skrifað
undir samkomulagið um að
hún þegði um samband þeirra
gegn peningagreiðslu.
TYRKLAND
Tyrknesk yfi rvöld hafa nú sektað Ítala um tæplega
100.000 evrur eða um 12,3 milljónir íslenskra króna
fyrir að reyna að smygla hvítum truffl um út úr landinu.
Truffl ur eru taldar mikið hnossgæti og seldar dýrum
dómum. Hundar eru notaðir til að þefa uppi truffl ur.