Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
Ný ríkisstjórn tók til starfaundir merkjum þess aðstyrkja Alþingi, auka sam-
starf stjórnar og stjórnarandstöðu,
slá nýjan tón og efla traust á stjórn-
málunum. Þetta eru ekki eingöngu
orð á blaði heldur einlægur ásetn-
ingur. Ég hef heyrt ýmsa úr stjórn-
arandstöðunni taka undir mikilvægi
þessa, að vísu miseindregið. En þeg-
ar á reynir má sjá hversu mikil al-
vara er að baki. Sé pólitískur stund-
arávinningur í boði stenst
stjórnarandstaðan ekki þá freistingu
að stunda hallærislegan skot-
grafahernað og neðanbeltishögg.
Þetta eru vonbrigði.
Einstakur atburður
Fyrir atburði vikunnar voru meira
en 60 ár liðin frá því að vantrausts-
tillaga var borin upp á Alþingi á
hendur einum tilteknum ráðherra.
Engar sérstakar takmarkanir eru á
því hvert tilefni vantrausts getur
verið. Samt hafði þetta bara gerst
einu sinni áður á lýðveldistímanum,
fyrir næstum mannsaldri. Hér er því
um mjög óvenjulegan og í raun ein-
stakan atburð að ræða.
Hvers vegna hefur engin slík til-
laga komið fram í meira en sex ára-
tugi? Er það vegna
þess að ráðherrar
og embættisverk
þeirra hafi verið
óumdeild á þess-
um tíma? Er það
vegna þess að
stjórnarandstæð-
ingar hafi upp til
hópa verið lið-
leskjur og und-
irlægjur allan
þennan tíma? Auðvitað ekki. Ástæð-
an er ósköp einfaldlega sú að þeir
hafa tekið hlutverk sitt og ábyrgð al-
varlega.
Ráðherra tók mark
á Alþingi í góðri trú
Allir þingmenn vita að listi hæfnis-
nefndar yfir dómara Landsréttar,
sem Sigríður Andersen dómsmála-
ráðherra breytti, hefði ekki farið
óbreyttur í gegnum þingið. Hann
hefði ekki verið samþykktur. Þing-
menn, meðal annars liðsmenn núver-
andi stjórnarandstöðu, kröfðust þess
beinlínis að ráðherra myndi breyta
listanum.
Í þessu máli er grundvallaratriði
að hafa í huga að það er óumdeilt að
dómsmálaráðherra var í fullum rétti
til að gera breytingar á dómara-
efnum. Dómsmálaráðherra hefur
sagt að hún hafi gætt að rannsókn-
arskyldu sinni eins og hún taldi full-
nægjandi. Og Alþingi fékk tillögu
ráðherrans til meðferðar og féllst á
hana. Eina álitamálið snýr að því,
sem ávallt hlýtur að vera matskennt,
hvort málið hafi verið fullrannsakað.
Það er sjálfsagt að læra af því þeg-
ar dómar skýra gildandi löggjöf, sem
gerist reglulega eins og við vitum.
En að fullyrða að mat Hæstaréttar á
því, að ráðherra hafi getað sinnt
rannsóknarskyldu sinni betur, sé til-
efni til að leggja fram vantrauststil-
lögu er fyrirsláttur í pólitískum leik
sem gerir lítið til að auka virðingu
Alþingis, nema síður sé.
Fyrst með, síðan á móti
Málatilbúnaður þingmanna Við-
reisnar er kapítuli út af fyrir sig. Þau
studdu sem kunnugt er tillögu ráð-
herrans um dómara en halda því
núna fram að ráðherra hafi leynt þau
upplýsingum sem gjörbreyti málinu.
En um hvað snýst málið? Jú,
Hæstiréttur segir að ráðherra hafi
ekki rannsakað málið nógu vel. Eru
það nýjar upplýs-
ingar fyrir Viðreisn
að efasemdir hafi
verið um þetta?
Nei, ekki aldeilis.
„Við höfðum uppi
verulegar efasemd-
ir í umfjöllun okkar
um málið, að það
hefði ekki verið
nægilega vel rann-
sakað,“ sagði Þor-
steinn Víglundsson sjálfur á Alþingi
í umræðum um vantraustið núna í
vikunni. Samt studdu þau tillögu
ráðherrans á sínum tíma.
Á fundi stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar á sínum tíma var ráð-
herra auk þess beinlínis spurð út í
ráðgjöf sem hún hefði leitað eftir,
eins og fram kom í máli forsætisráð-
herra á Alþingi í vikunni: „Það var
spurt um þá ráðgjöf sem hæstvirtur
ráðherra hefði sótt sér. Það gerði ég
sjálf á fundi stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar. Það kom fram hjá
hæstvirtum ráðherra að hún vísaði
til eigin mats eins og hún hefur gert
síðan þannig að þetta eru ekki nýjar
upplýsingar í málinu,“ sagði for-
sætisráðherra.
Það sem hefur gerst nýtt í þessu
máli er að umboðsmaður Alþingis
hefur ákveðið að taka það ekki til
sérstakrar skoðunar en hann hefur
hins vegar boðað frumkvæðis-
athugun á því mati hæfnisnefnda
sem fer fram á hæfi umsækjenda um
opinberar stöður. Ég fagna þeirri at-
hugun. Það er svo hlutverk okkar
stjórnmálamanna að fara yfir það
hvort endurskoða þurfi reglurnar
eða breyta verklagi. Vonandi eru
sem flestir tilbúnir í þá vinnu.
Fyrirsláttur
’Hvers vegna hefurengin slík tillagakomið fram í meira ensex áratugi? Er það
vegna þess að ráð-
herrar og embættisverk
þeirra hafi verið óum-
deild á þessum tíma?
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/Hari
Rithöfundurinn Davíð Logi Sig-
urðsson fór í Costco. „Jæja.
Maður talar ekki illa um Costco.
En í gærkvöldi
greip ég í tómt í
þriðja skiptið í
röð þegar ég ætl-
aði að næla mér í
tojara – þið vitið,
salernispappír. Matvæla- og
heimilisvöruverslun sem ekki selur
klósettpappír – getur hún talist á
vetur setjandi?“ skrifaði hann á
Facebook.
Bryndís Ísfold Hlöðvers-
dóttir stjórnmálafræðingur er í
Stokkhólmi:
„Eyddi deginum í
að þjálfa kosn-
ingateymi sænsku
verkalýðshreyfing-
arinnar og eins og
með allt sænskt voru vatnskönn-
urnar fallegar og smart líka.“
Björn Teitsson deildi tengli í
hópinn Samtök um bíllausan lífsstíl
um væntanlegan matarmarkað í
Skeifunni í sumar. „Frábært fram-
tak í Skeifunni í sumar. Sérstaklega
þar sem þetta hægir á umferð og
e.t.v. munu skapast aðstæður f
gangandi og hjólandi í fyrsta sinn í
sögu Skeifunnar :) Þetta er allt að
mjakast, við erum að verða að al-
vöru borg <3“
Brynhildur Þórarinsdóttir
rithöfundur tjáði sig um lestur en
hún deildi frétt um að við hættum
of snemma að
lesa upphátt fyrir
börn. „Hvað með
að snúa heima-
lestrinum við í
eina viku og láta
börnin kvitta fyrir
að einhver hafi lesið fyrir þau?
Það má vera foreldri, kennari,
systkini, afi, amma, nágranni, fót-
boltaþjálfarinn, frænka heima í
Póllandi (gegnum Skype) eða hver
annar sem svarar kallinu.“
Franz Gunnarsson tónlistar-
maður skrifaði um
grát. „Smá innlegg
um „grát“. Það er
æðislegt og fallegt
að ungir sem
aldnir menn sýni
raunverulega tilfinningar sínar
hvort sem það er gert op-
inberlega eða prívat. Það er öm-
urlegt og lélegt að fólk noti grát
sér til framdráttar hvort sem það
er gert opinberlega eða prívat.
Að blanda sjálfsvígum ungmenna
inn í umræðu um grát í söngva-
keppni er í besta falli absúrd.
P.s. Ég er ekki að halda því fram
að tilfinningaflæðið í söngvakeppn-
inni hafi verið skipulagt plott til
að veiða stig!“
Kristján Sigurjónsson, rit-
stjóri ferðavefjarins Túrista, tur-
isti.is, var á ferð og flugi og lenti í
ævintýri á flug-
velli.
„Ég hef ekki oft
náð augnkontakt
við heimsfrægt
fólk en nú hefur
það gerst í tvígang á stuttum tíma.
Og svo vandræðalega vill til að í
bæði skiptin var ég að fara að
létta á mér í Benelúx-landi. Fyrra
skiptið var goðsögn úr fótbolt-
anum á klósetti í Amsterdam og
rétt áðan heimsfrægur sjónvarps-
maður við pissuskál í Brussel. Af
tillitssemi við þann síðari mun ég
ekki nefna hann á nafn því sá gekk
út án þess að þvo sér um hendur.
Hann gengur núna um salinn og
tekur í spaðann á aðdáendum sín-
um.“
Fyrrverandi þingmaðurinn Paw-
el Bartoszek er að velta leik-
skólum fyrir sér
og komst að eft-
irfarandi stað-
reynd.
„Í Árbæ er leik-
skóli sem heitir
Árborg. Í Árborg er leikskóli sem
heitir Árbær.“
AF NETINU
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
ColourFutures2018
Silver Shores
Steel Symphony
Faded Indigo