Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018 Á Langholtsvegi 96, í stóru fjölskylduhúsi, bjó fjölskyldan alla tíð frá því Vala fæddist. Föð- urafi og -amma á efri hæðinni og síðar þegar þau fóru á hjúkrunarheimili flutti föðursystir Völu þangað. Elstu systurnar voru fluttar að heiman þegar Vala kom til skjalanna en þrjú systkini bjuggu enn heima. Þegar þú talar um blankheit fjölskyldunnar, hvernig lýstu þau sér? „Það var ekki til peningur fyrir neinu auka- lega, við fórum til dæmis aldrei til útlanda. Maður hugsaði stundum; Guð, ef maður gæti farið til Mallorca og fyllt skápinn af tyggjói eins og fólk gerir. Heima hjá vinkonunum voru skápar með lykli sem enginn mátti fara í því þar var allt nammið frá Mallorca!“ Við tístum yfir þessari sönnu tíðarandalýsingu 9. áratugarins. „Við bróðir minn sváfum inni í herbergi hjá mömmu og pabba, og ég alveg þangað til að ég var 13 ára. Ég var í neðri koju og bróðir minn í efri koju og við töluðum um hvað við myndum gera ef við eignuðumst pening. Þá var það allt- af mjög fínt hús sem við sáum fyrir okkur en aðalatriðið var að það yrði gosbrunnur í garð- inum, það var það flottasta. Hugsaðu þér, það gat ekki orðið fínna! En það var alltaf til nóg að borða og farið í skemmtilegar útilegur um landið. Ég var alltaf voða fín en ég var ekki í nýjum fötum. Mamma keypti þau á flóamörkuðum, sem þykir nú frekar sjálfsagt að gera í dag. Sumir myndu segja að við hefðum verið fátæk en ég upplifði í sjálfu sér aldrei að ég væri hræðilega fátæk. Kannski var það líka bara að fólk barst minna á á þessum tíma. En ég man enn útlandalykt- ina þegar ég fór fyrst til útlanda 13 ára í sum- arskóla með vinkonum mínum.“ Nágrannakonan borgaði ár í tónlistarskóla Vala segir að hún sé svolítið forn í fasi, vinum hennar finnst hún gamaldags. Það hafi eflaust eitthvað að gera með að hún ólst upp í húsi með kynslóðum sem fæddar voru um 1900 á efri hæðinni og svo eldri foreldrum og systk- inum. Það er eitthvert töfraraunsæi í þessari tilveru þeirra á Langholtsvegi, Isabel Allende, við Vala erum eiginlega sammála um að það þurfi að skrifa bók um fjölskylduna því sann- arlega erum við bara að tæpa á stóru. „Afi og pabbi byggðu húsið á Langholtsvegi. Pabbi byggði svo síðar annað hús handa fjöl- skyldunni við Ásenda en varð gjaldþrota þann- ig að hann endaði á að flytja í kjallarann til afa og ömmu, í húsið sem hann byggði með þeim og svo bjuggum við þar alla tíð. Húsið var mjög lifandi, það var gestkvæmt og alltaf mik- ið líf og fjör á heimilinu, fólki fannst gott að koma til okkar, maður fann það. Mamma spil- aði á gítar og raddaði öll lög, oft slökktum við á sjónvarpinu og sungum saman, hún kynnti mig fyrir alls kyns tónlist. Mamma var svona líka gestrisin, það var alltaf einhvern veginn pláss fyrir alla og allt dregið fram úr ísskápnum þótt lítið væri til. „Já, gerðu svo vel og sestu hérna,“ sagði hún og svo sat alls konar fólk í eldhúsinu. Mamma fór aldrei í manngreinarálit og mörgum hefði þótt þetta fólk sem dúkkaði upp sumt hvert frekar furðulegt. Hún hefur greinilega verið útsjónarsöm? Gert þig að fínustu stelpunni með fötum af flóamörkuðum og fundið kræsingar þegar eng- um fannst neitt vera til? „Já, mjög svo. En hún átti auðvitað líka sína drauga og hefur örugglega verið að kljást við þunglyndi á tímabilum sem hún hefði í dag get- að fengið betri hjálp við. En hún, og þau bæði mamma og pabbi, höfðu þann eiginlega að vera jákvæð og húmorinn sem var svo ríkjandi fleytti öllum langt. Þetta er alltaf spurning um hvort glasið er hálffullt eða hálftómt. Sjálf var ég svolítið skondin inni í þessum heimilisaðstæðum því mamma var mjög af- slöppuð með drasl en ég var ótrúlega þrifgjörn frá mjög ungum aldri. Það voru föt úti um allt, mamma henti þeim í hrúgur og svo endaði hún á að breiða bara yfir fatahrúgurnar ef þurfti að gera þær snyrtilegri. Ég réð mjög illa við ka- osið heima og man eftir mér, reiðri lítilli ræst- ingakonu, þrífandi öskubakkana 5 ára gömul eftir systur mínar.“ Á efri hæðinni var annars konar kaos en þegar amma og afi Völu fóru á fjöll í göngur héldu draugarnir partí, eins og foreldrar Völu orðuðu það, mikill skarkali og mas heyrðist af efri hæðinni. Ertu að segja að það hafi verið draugagangur? „Í það minnsta datt alltaf allt í dúnalogn þegar farið var upp að athuga hvað væri í gangi. Við Guðni bróðir minn heyrðum líka umganginn þegar enginn var heima. Fólk er frekar næmt í fjölskyldunni og sér og heyrir ýmislegt.“ Það kom fljótt í ljós að þú varst hæfileikarík, en væntanlega litlir peningar fyrir dýru tón- listarnámi? „Nei, það voru ekki til peningar til þess en í þarnæsta húsi við okkur bjó besta vinkona mín, Gunnlaug Þorvaldsdóttir, alltaf kölluð Gulla, og hennar fjölskylda varð mín önnur fjölskylda. Það var í raun mamma hennar, Anna Jóns- dóttir, sem kom auga á ýmislegt sem mamma var alveg græn fyrir, og hún ákvað að borga fyrir mig einn vetur í tónlistarskóla þegar ég var sex ára. En græn og ekki græn, eins og mamma sagði við mig, það voru bara ekki til peningar og það er ekki fyrr en ég fór í kór Langholtskirkju, hjá Jóni Stefánssyni sem ég fékk einhverja menntun í tónlist. Þar þótti rödd mín svo kröftug að ég var fljótlega færð í eldri kórinn. Ég hlaut mitt tónlistarlega upp- eldi hjá Jóni og svo líka Ólöfu Kolbrúnu sem ég átti eftir að fara í söngtíma til í fjögur ár.“ Varstu ekkert döpur yfir að geta ekki haldið áfram í tónlistarskólanum? „Nei, í rauninni ekki. Kannski reyndi ég bara að horfa á þetta jákvæðum augum og horfa til þess að Gulla kvartaði yfir því að það væri of mikið að gera á fiðluæfingunum. Heima var endalaust sungið, ég söng í skólanum, hátt og snjallt í öllum leikritum og lék Rauðhettu sex ára gömul í skólaleikriti með svo miklum til- þrifum að ég grét alvöru tárum þegar amman lenti í maga úlfsins. Heima settum við fjöl- skyldan og vinkonurnar upp leikrit, saumuðum búninga og æfðum stíft. Maður fann sér bara tækifæri til að syngja í eigin litlu tilveru. En af því að við erum að tala um óvenjulega fjölskyldu þá fannst mér allt mjög venjulegt, of venjulegt, því pabbi og mamma voru ekki skil- in og ég átti engin hálfsystkini. Ég óskaði mér þess oft að ég ætti ævintýralegri fortíð, hefði verið ættleidd, væri frá Persíu, bara eitthvað. Og við vinkonurnar vorum með ofboðslega sterka ævintýraþrá. Við áttum það til að stel- ast út um miðja nótt, lékum okkur í húsa- grunnum, fundum gömul bein sem voru aug- ljóslega rollubein en töldum okkur trú um að þetta væri glæpavettvangur og mannabein. Af öllu þráðum við heitast að lenda í ævintýrum.“ Ófrísk í í námi Svo birtist Vala, sem nær fullsköpuð stór- söngkona, strax á fyrstu árum í Versl- unarskóla Íslands. Fyrsta minning blaða- manns, og margra, er þegar hún kom fram í vinsælum spjallþætti Eiríks Jónssonar á Stöð 2. og Eiríkur spurði hana; „Viltu ekki bara syngja eitthvað?“ Og Vala, óundirbúin og án alls undirleiks brast í söng og söng melódíu Maríu Magðalenu úr Jesus Christ Superstar. Vá, það yrði ekki hægt að gleyma henni. Er þetta bara í kolli mínum eða heldurðu að þarna hafirðu stimplað þig inn í minniskubb fleiri og jafnvel þjóðarinnar? „Jú, það eru sko fleiri sem hafa nefnt þetta við mig! Þarna var ég að leika í Jesus Christ Superstar. Í Langholtskórnum hafði ég fengið tækifæri til að syngja í messum, stundum ein- söngslínu, þannig að ég hafði fengið mjög dýr- mæta reynslu þar. Söngleikirnir komu svo strax til skjalanna þegar ég fór í Versló og það vatt upp á sig, ég lék í Rocky Horror, fékk hlutverk í sjónvarpsleikriti hjá Óskari Jón- assyni 17 ára, söng inn á teiknimyndir, fékk hlutverk í Þjóðleikhúsinu og ýmislegt fleira og dyrnar inn í bransann opnuðust.“ Sagan segir að þú hefðir í raun getað gert hvað sem er, lýst af fólki í kringum þig sem bráðgáfaðri. En þú valdir tónlistina? „Ég hefði örugglega getað lagt ýmislegt fyr- ir mig. Mér gekk alltaf vel í skóla, hafði eink- um áhuga á að sögu og stefndi reyndar á að verða fornleifafræðingur en þrátt fyrir ým- islegt sem togaði í mig kallaði tónlistin hæst. Á tímabili var ég að jafnvel að hugsa um að fara í leiklistarskólann og Baltasar Kormákur sagði einhvern tímann við mig; „Þú getur alveg sungið, ekki vera að pæla í því, farðu bara í leiklistarskólann því þá opnast sá möguleiki, svo geturðu bara sungið líka.“ En það var eitthvað sem sagði mér að ég yrði að taka klassíkina. Fyrst ætlaði ég bara að fara í söngleikina en þegar ég byrjaði að læra hjá Ólöfu Kolbrúnu fékk ég svo mikinn áhuga á öllum þessum óperuaríum og þá langaði mig að verða óperusöngkona. En hvorttveggja tog- aði í mig og ég hugsaði með mér; Ég get bara gert hvorttveggja. Ég hef alltaf haft mömmu í kollinum sem sagði mér að fylgja hjartanu. En ég veit að ég á alveg örugglega eftir að fara aftur og læra og þá jafnvel eitthvað allt annað.“ Vala fór í Söngskólann samhliða mennta- skólanum, 18 ára, og eftir útskrift hélt hún með kærastanum sínum til Bretlands og bjó „Kannski er maður svolítið dýna- mískari karakter ef maður hefur upplifað alls konar aðstæður. Og kannski er maður betri listamað- ur,“ segir Vala Guðnadóttir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.