Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Page 17
2004 Mark Zuckerberg býr til Facebook í herberginu sínu á heimavistinni í Har- vard. 2006 Hver sem er yfir 13 ára aldri má stofna reikning. Fréttayfirlitið (news feed) kynnt til sögunnar. 2007 1,6% hlutur seldur til Microsoft fyr- ir 240 milljónir dala. 2008 Notendur ná 100 milljóna mark- inu. 2009 „Like“-hnappurinn kynntur til sög- unnar. 2010 Skilar hagnaði í fyrsta sinn. 2012 Facebook kaupir Instagram fyrir milljarð dala í reiðufé og hlutabréf. Not- endur eru orðnir fleiri en milljarður. 2014 Facebook kaupir skilaboðaþjón- ustuna WhatsApp fyrir 19 milljarða dala. 2018 Virkir notendur eru 2,2 milljarðar talsins og er Facebook vinsælasti sam- félagsmiðillinn í heiminum. FACEBOOK Í GEGNUM ÁRIN GettyImages/iStockphoto 11.3. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Þórhildur Magnúsdóttir tók sér frí frá öll-um samfélagsmiðlum í febrúar í ár og ífyrra. Hvernig datt þér í hug að gera það? „Ég las blogg Leos Babauta, zenhabits.net, en hann skrifaði þar um hvernig hann sleppti einhverju í hverjum mánuði í ár. Hann prófaði að sleppa kaffi, sykri, áfengi og mörgu fleiru. Þá fékk ég þá hugmynd að gera eitthvað svip- að í eitt ár,“ sagði hún og úr varð að febrúar varð samfélagsmiðlalaus. Upplifunin af því að gera þetta í annað sinn er aðeins öðruvísi en í fyrra, segir Þórhildur. „Í fyrsta skiptið var þetta svo rosalega áhrifa- mikið. Það var svo mikil spennuuppbygging fyrir að slökkva á öllu. Ég var búin að segja öllum frá þessu og fólk var að láta mig fá síma- númerið sitt og svoleiðis.“ Önnur samskipti stærsti kosturinn Hvatti þetta þig til öðruvísi samskipta við fólk? „Algjörlega og fyrir mér er það stærsti ávinningurinn. Það sem mér finnst aðal- ókosturinn er hvað fólk notar samfélagsmiðl- ana mikið í þeirri trú að það sé í alvörunni að byggja upp sambönd við aðra sem það er að gera að einhverju leyti en ekki nógu djúpt. Þetta er svolítið yfirborðskennt og hamlandi. Það eru takmörk fyrir því hversu mikið maður getur tengst eða kynnst fólki í gegnum sam- félagsmiðla,“ segir hún. „Það er ekki endilega að maður sé meðvit- aður um að nú sé maður ekki að spjalla við fólk á Facebook og hugsi að maður ætti að spjalla við það í alvörunni heldur hefur maður bara meiri tíma og tekur betur eftir því hvað maður er að gera við tímann þegar þessi tímaþjófur er ekki til staðar.“ Hún notar að vísu messenger en þar er ekki hægt að skrolla því það er bara skilaboðaþjón- usta. Hún segist hafa notað hann aðeins meira en hún hafi líka komist meira áfram í ýmsu sem hún hafi þurft að sinna þegar hún var laus við áreiti samfélagsmiðlanna. Henni fannst kannski aðeins minna spenn- andi að taka samfélagsmiðlalausan febrúar í ár en í fyrra því hún vissi betur hvað hún var að fara út í. „En ég var samt alveg tilbúin til að gera þetta,“ útskýrir Þórhildur og bætir við að maður læri mikið um sjálfan sig þegar maður geri eitthvað svona. „Nú nota ég Facebook kannski öðruvísi en margir því ég er að stýra mörgum hópum þannig að mér finnst ég svolítið vera að missa af einhverju meira en bara skrolli. Ég missi af að halda uppi samræðum og vinna í þessum hópum sem mér finnst mjög skemmtilegt og er uppbyggilegt. Þetta er nokkuð sem kætir mig og mér finnst mjög gaman og gefandi.“ Mesti lærdómurinn sem kemur út úr því að sleppa samfélagsmiðlum er að það er gott tækifæri til að komast að því hvers hún sakn- aði og hvers hún saknaði alls ekki. Hún segir að eftir hléið í þetta sinn hafi hún tekið eftir því að það hafi tekið hana langan tíma að byrja að nota Facebook aftur. Fyrstu dagana hafi hún gleymt því að hún „mætti“ nota Facebook. „Ég er ekki spennt fyrir því og er lengi að venjast því aftur að sigta út áhugaverðu upplýsingarnar frá „hávaðanum“. Það er markmiðið; að finna meðalveginn, hve- nær hlutirnir gera lífið betra og hvenær þeir eru farnir að stela frá þér,“ segir hún en það eru til ýmsar leiðir til að nota Facebook. Fólki finnst erfitt að eyða út Sumir hafa búið til nýjan aðgang og eru þá bara í hópum sem þeir þurfa að vera í eins og fyrir skóla eða annað og eiga enga vini þar, útskýrir Þórhildur sem á vinkonur sem hafa gert þetta en önnur aðferð er að eyða út af vinalistanum. „Það er fullt af fólki sem mér þykir vænt um og ég hitti eða er að vinna með og ég umgengst og vil endilega hitta í kaffi eða spjalla við í vinnunni en ég vil ekki sjá myndir af köttunum þeirra á Facebook. Það sem fólk deilir á Face- book er kannski ekki það sem ég á sameigin- legt með þeim. Fólki finnst erfitt að eyða fólki af vinalistanum eða hætta að fylgjast með því þar og er hrætt um að einhver annar taki þessu persónulega. Þegar ég opnaði aftur á Facebook í fyrra var ég með önnur gleraugu og var dugleg að henda út, skrá mig úr hópum, taka til á vinalistanum og breyta tilkynninga- stillingunum,“ segir Þórhildur sem hefur alltaf slökkt á öllum tilkynningum frá Facebook í símanum. „Ég hef heyrt einhverja tala um að vera í „skrollbanni“, þeir lesa tilkynningar og opna hópa en skrolla ekki því það er svo mikil orku- suga. Það klárast aldrei og þú ert ekki að skoða neitt sérstakt,“ segir Þórhildur og bætir við að upplýsingainntökuþröskuldur hennar hafi lækkað mikið með tímanum. Hún er ekki kvíðin manneskja almennt en tók eftir því í samfélagsmiðlahléinu að hún fann enn minna fyrir kvíðatilfinningum. „Ég melti miklu minna af upplýsingum. Oft eru þetta djúpar pælingar og skemmtilegar en það þarf að vera eitthvert hóf.“ Er líklegt að þú gerir þetta aftur? „Kannski aðeins öðruvísi. Núna fannst mér ég aðeins meira hafa verið að missa af en ég er samt glöð að hafa gert þetta. Kannski bý ég bara til app til þess að gera Facebook betri!“ segir Þórhild- ur sem gæti vel gert það þar sem hún er forrit- ari. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Markmiðið að finna meðalveginn Þórhildur Magnúsdóttir hefur haft febrúar sam- félagsmiðlalausan tvö ár í röð og notar samfélags- miðla markvissar eftir hléið. Þórhildur segir skroll- ið vera orkusugu því það klárist aldrei. ’Það eru takmörk fyrir þvíhversu mikið maður geturtengst eða kynnst fólki í gegnumsamfélagsmiðla.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.