Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Side 22
Undirrituð er mikill aðdáandiskyndibita og þeir eru fáirskyndibitastaðirnir sem hafa
ekki verið heimsóttir, raunar hef ég gert
gott betur og borðað mig í gegnum flesta
matseðla og hef því góða yfirsýn yfir úr-
valið. Á yngri árum var svo mikið verslað
við Dómínós að þaðan barst handskrifað
jólakort á aðventunni 1999, í dag kemst
ég varla í gegnum vikuna án þess að ná
mér í víetnamska barbecue-bátinn á
Hlemmi. Skyndibiti er hins vegar ekki
ódýr og með auknum þroska hef ég
smám saman fundið mér nokkra rétti
sem ég útbý heima en gætu blekkt hvern
sem er, svo mikið minna þeir á ilmandi
skyndibita í bréfi. Bónusinn er að nær
alltaf eru þeir heimagerðu aðeins hollari
en sá sem þú grípur með heim.
TORTILLUR MEÐ NAUTAKJÖTI
OG CHILIMAJÓ
Eftir að ég komst upp á lagið með að
baka eigin tortillur finnst mér þessar úti
í búð bragðast eins og plasthnífapör og
enn hef ég ekki fundið stað sem býður
upp á jafngóðar tortillur og þessar. Ég er
alltaf að prófa eitthvað nýtt til að setja á
þær en bestar finnst mér þær með smá
nautakjöti eða rifnu grísakjöti sem er
gott að kaupa rifið og tilbúið í kjötborði,
en má dunda sér við að útbúa sjálfur þeg-
ar meiri tími er til um helgar. Þessi upp-
skrift gefur ca átta pönnukökur en þær
eru ekki í neinni yfirstærð svo það er allt
í lagi að tvöfalda uppskriftina.
Tortillur:
260 g hveiti
½ tsk. salt
½ tsk. lyftiduft
¾ bolli vatn
3 msk. olía, til
dæmis repjuolía
Hrærið vel sam-
an, bætið við
meira hveiti ef deig-
ið er of blautt og vatni
sé það of þurrt. Best finnst
mér að nota hnoðarann í mat-
vinnsluvélinni í þetta. Skiptið deiginu í
átta hluta, breiðið viskustykki yfir og
látið bíða í 10 mínútur. Fletjið boll-
urnar út á hveitistráðu borði og steik-
ið á vel heitri pönnu, án allrar olíu, í
um mínútu á hvorri hlið.
Fylling:
200 g góður nautakjötsbiti, til dæmis
lund
nokkrar lúkur gott kál
½ paprika, þunnt sneidd
½ rauðlaukur ef vill, þunnt sneiddur
mulinn feta- eða geitaostur
Kryddið bitann með pipar og salti og
steikið við háan hita á öllum hliðum
þar til kjötið hefur lokast. Setjið í ofn
við 190°C og látið kjötið eldast þar til
kjarnhitinn er um 56-60 gráður. Sker-
ið kjötið í næfurþunnar sneiðar rétt
áður en maturinn er borinn fram.
Þetta er aðeins leiðbeinandi hugmynd
að grænmeti en gaman er að breyta
til og leika sér með hráefnin, bæta
jafnvel guacamole við.
Chilisósa:
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. majónes
safi úr ½-1 lime, eftir því hversu súr
sósan má vera
1 tsk. chipotle-chilisósa eða önnur
chilisósa
1 tsk. chiliduft
salt og pipar eftir smekk
Heimagerðir skyndibitar
Bráðinn ostur, löðrandi sósa, svissaður laukur og dúnmjúkt brauð. Þeir sem þykjast geta staðist
ilmandi skyndibita, löðrandi í sósu sem lekur á diskinn, eru ekki að segja satt.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Getty Images/iStockphoto
MATUR Hér að neðan er ostur bræddur yfir franskar kartöflur en þeir semvilja ganga skrefinu lengra ættu að prófa að strá rifnu grísakjöti yfir
kartöflurnar og svo setja brædda ostinn yfir. Sælgæti.
Franskar með rifnu grísakjöti
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018
Það er sjaldgæft að Íslendingar
bræði ost yfir frönsku kartöflurn-
ar sínar en þess virði að prófa.
Þessi frönskuréttur er sérstaklega
guðdómlegur. Hægt er að kaupa
frönsku kartöflurnar frosnar eða
gera sínar eigin. Ég nota frábært
tæki sem fæst m.a. í Heimkaupum
til að breyta kartöflunni í niður-
skornar franskar með einu hand-
taki en annars má bara líka nota
hnífinn.
Fyrir fjóra
6-8 stórar bökunarkartöflur
salt eftir smekk
ólífuolía
½ stykki Cheddar-ostur, rifinn
nokkrar matskeiðar majónes
3-4 msk. vorlaukur, smátt saxaður
Skerið kartöflurnar niður í
lengjur svo þær líkist sem mest
frönskum kartöflum. Þerrið kart-
öflurnar með eldhúspappír, gott
er að láta þær liggja aðeins á
bréfi. Penslið kartöflurnar með
ólífuolíu eða annarri grænmet-
isolíu, ekki of mikilli. Bakið við
180°C í um 25 mínútur eða þar til
gaffall smýgur auðveldlega í gegn-
um þær. Best er að bræða ostinn
annaðhvort í örbylgjuofni, þegar
kartöflurnar eru tilbúnar eða þá
að setja hann í skál og láta bráðna
yfir sjóðandi vatni í potti áður en
honum er hellt yfir kartöflurnar.
Berið fram með smá majónes-
polli á ostinum og söxuðum gras-
lauk.
Franskar með osti