Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.03.2018, Qupperneq 36
Sónar er hátíð dansins og gleði, tónlistarhátíð þar sem tækni og sköp-unargáfa eru í fyrirúmi með fjölmörgum tónlistaratriðum, vinnustof-um og fleiru. Nú er bara að reima á sig íþróttaskóna og halda í Hörpu hinn 16. og 17. mars og búa sig undir að fá innblástur frá nýjustu straumumog stefnum í tónlistarheiminum. Nánari upplýsingar um listamennina semkoma fram og dagskrána í heild er að finna á sonarreykjavik.com. Breska hljómsveitin Underworld með Karl Hyde í fararbroddi varð fræg á tí- unda áratugnum, fyrst í neðanjarðarsen- unni en sló rækilega í gegn með laginu Born Slippy sem varð einkennislag heillar kynslóðar í gegnum myndina Trainspott- ing. Underworld kom fram hérlendis á tónleikum í Laugardalshöllinni árið 1994 en þá var Darren Emerson í sveitinni en hann sagði skilið við hana árið 2000. Tónleikar sveitarinnar þykja mikið sjón- arspil og eru jafnan mikið fyrir augað. Ljósmynd/Perou Innblástur til að dansa Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fer fram á fjórum sviðum í Hörpu um næstu helgi. Hér verða taldir upp nokkrir af þeim listamönnum sem fram koma en dagskráin er viðamikil og spennandi. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is GusGus á sér tryggan aðdáendahóp sem mun ábyggilega mæta í stórum stíl, ekki síst til að heyra lög af glænýrri plötu sveitarinnar Lies Are More Flexible, í bland við gamla slagara sem eru ótalmarg- ir. Víst er að Biggi veira og Daníel Ágúst munu leiða gesti í danstrans í Hörpu á föstudagskvöldið. Ljósmynd/Kjartan Hreinsson Bad Gyal er frá Barcelona á Spáni. Hún varð fræg í heimalandinu þegar hún gerði sína eigin útgáfu af laginu Work með Rihönnu en Bad Gyal hef- ur verið köll- uð dancehall- drottning Spánar. Búið er að horfa á myndbandið við lag henn- ar Indap- anden 3,3 milljón sinn- um á You- Tube. Mynd/Pablo Alzaga 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.3. 2018 LESBÓK MÁLMUR Hið goðsagnakennda band Rainbow hefur sent frá sér sína fyrstu smáskífu í rúma tvo áratugi, Waiting For A Sign. Lagið verður á nýrri breiðskífu sveitarinnar, Memories in Rock II, sem koma mun út í næsta mánuði. Auk nýs efnis verður tónleikaefni frá síð- asta ári á plötunni, auk viðtalsefnis við meðlimi en gít- arleikarinn Ritchie Blackmore er sá eini upprunalegi í þessari lotu. Með honum í Rainbow eru nú söngvarinn Ronnie Romero, Jens Johansson, Bob Nouveau og Dave Keith. Þá syngja Lady Lynn og Candice Night bakradd- ir. Blackmore stofnaði Rainbow þegar hann hætti í Deep Purple á áttunda áratugnum og af frægum lögum bandsins má nefna I Surrender, Long Live Rock ’n’ Roll og Since You Been Gone. Nýtt efni frá Rainbow Ritchie Blackmore SJÓNVARP Ránið á John Paul Getty, hinum þriðja, er mönnum hugleikið um þessar mundir, enda þótt 45 ár séu liðin frá atburð- inum sem vakti á þeim tíma heimsathygli. Nýlega var frumsýnd kvikmynd um málið, All the Money in the World, sem fékk prýði- lega dóma en vakti ekki síður athygli fyrir þær sakir að klippa þurfti Kevin Spacey út úr myndinni á elleftu stundu og Christopher gamli Plummer leysti hann af hólmi. Í lok þessa mánaðar verður síðan frumsýndur nýr sjónvarpsþáttur um málið, Trust, þar sem Donald Sutherland leikur aauðkýfinginn J. Paul Getty, afa piltsins sem var rænt. Gamalt mannrán fer eins og eldur í sinu Donald Sutherland er enn í fullu fjöri 82 ára. AFP Ellen Dorrit Petersen í hlutverki sínu. Blinda RÚV Sunnudagsmyndin er norsk verðlaunamynd, Blinda, um konu sem einangrar sig á heimili sínu eft- ir að hún missir sjónina og byrjar að efast um að eiginmaður hennar sé henni trúr. Hún býr til alls kyns sögur í huganum um atvik sem eig- inmaður hennar gæti lent í og með tímanum eignast sögurnar sitt eigið líf. Leikstjóri er Eskil Vogt en aðal- hlutverk leika Ellen Dorrit Peter- sen, Henrik Rafaelsen og Vera Vit- ali. Sum atriði eru ekki við hæfi barna. STÖÐ 2 Allir geta dansað, nýr ís- lenskur skemmti- þáttur í beinni út- sendingu, byggður á Dancing with the Stars, hefur göngu sína á sunnudag kl. 19.10. Í þátt- unum keppa tíu þjóðþekktir Íslend- ingar í dansi en þeir eru paraðir saman við tíu fagdansara og eitt par stendur uppi sem sigurvegari. Kynnar eru Sigrún Ósk Kristjáns- dóttir og Eva Laufey Kjaran Her- mannsdóttir og dómarar Selma Björnsdóttir, Karen Reeves og Jó- hann Gunnar Arnarsson. Meðal keppenda eru Lóa Pind, Bergþór Pálsson, Jóhanna Guðrún og Óskar Jónasson. Dans er allra Jóhanna Guðrún SJÓNVARP SÍMANS Einn vinsæl- asti skemmtiþáttur veraldar, The Voice USA, þar sem hæfileikaríkir söngvarar fá tækifæri til að slá í gegn, er kominn aftur á sunnudags- dagskrá stöðvarinnar. Þjálfarar í þessari seríu eru Adam Levine, Blake Shelton, Kelly Clarkson og Alicia Keys. Allt miklir reynslubolt- ar með ráð undir rifi hverju. Barist verður til síðasta blóðdropa. Alicia Keys er meðal dómenda. Rödd fólksins

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.